Morgunblaðið - 11.08.2006, Page 28
28 FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Valgeir Matt-híasson fæddist
á Siglufirði hinn
21. mars 1947.
Hann lést á heimili
sínu 29. júlí síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Katrín
Júlíusdóttir frá
Siglufirði, f. 28.
ágúst 1919, d. 30.
sept. 2005, og Matt-
hías Helgason frá
Hnífsdal, f. 11. apr-
íl 1918, d. 6. maí
1983. Systkini Val-
geirs eru: Júlíus Anton, f. 9.
sept. 1945, maki Maríanna Har-
aldsdóttir; Hörður, f. 22. apríl
1948; og Ásdís, f. 4. ágúst 1950,
sambýlismaður Egill Thoraren-
sen.
Valgeir kvæntist Jóhönnu
Georgsdóttur 8. nóv. 1980. Þau
skildu. Börn þeirra eru: 1) Georg
Alexander, f. 11.
mars 1980, sam-
býliskona Tinna
Halldórsdóttir, þau
eiga soninn Halldór
Snæ. 2) Helena
Dögg, f. 20. des.
1984, hennar börn
eru Andri Snær og
Lilja Dís. 3) Ra-
móna Lísa, f. 16.
nóv. 1987. Fyrir
átti Jóhanna dótt-
ur, Elísabetu Við-
arsdóttur, f. 18.
des. 1973.
Valgeir stundaði sjómennsku
framan af ævi. Hann starfaði um
árabil á Kópavogshæli sem
gæslumaður og síðar sem bíl-
stjóri. Hann átti við vanheilsu að
stríða síðustu ár ævi sinnar.
Valgeir verður jarðsunginn
frá Seljakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Elsku Valli minn, nú ertu farinn
frá okkur öllum og þín er sárt sakn-
að. Þær eru ógleymanlegar stund-
irnar sem við áttum saman, liðin
eru 32 ár frá því að við kynntumst.
Það var yndislegt þegar við öll í
fjölskyldunni löbbuðum upp Esjuna
þar sem Georg hélt á Mónu Lísu á
herðunum. Allar bústaðarferðirnar
voru þitt heitasta áhugamál, enda
varst þú mjög duglegur að ferðast
með okkur öllum. Auðvitað voru
tímarnir misgóðir eins og hjá öllum.
Tíminn hefur flogið frá okkur og
nýttum við hann misvel. Þú fékkst
hana Elísabetu sem fósturdóttur.
Mér finnst svo stutt síðan við eign-
uðumst okkar fyrsta barn, hann
Georg, þú varst svo stoltur af frum-
burðinum. Það eru 26 ár síðan, og
var samband ykkar alveg sérstakt.
Svo komu fleiri gullmolar í heiminn
og varst þú jafnstoltur af þeim öll-
um. Ég trúi hreinlega ekki að þetta
hafi í rauninni gerst. Þetta er svo
erfitt, mér finnst ég bara hálf
manneskja. Það eru 13 ár frá því að
við skildum, en við slitum í rauninni
aldrei samvistum, þú varst alltaf
með okkur.
Elsku Valgeir minn, ég kveð þig
nú með þessum orðum. Þín er sárt
saknað, sjáumst seinna, elsku Val-
geir minn.
Þín
Jóhanna Georgsdóttir.
Jæja, elsku pabbi minn, þá er
komið að kveðjustund, þetta er ekki
einfalt, dauðinn gerir sjaldan boð á
undan sér eins og þú sagðir gjarn-
an, maður sér það núna og áttar sig
á því að maður verður ávallt að
vera í góðu sambandi við ástvini
sína. Ég naga mig í handarbökin af
samviskubiti yfir að hafa ekki verið
duglegri að hringja og heimsækja
þig, ég vildi að ég hefði komið strax
til þín þegar ég kom að utan, þá
hefði ég kannski getað bjargað þér,
maður veit aldrei. Við áttum svo
margar góðar stundir saman þegar
ég var lítill. Þú bjóst til nöfn fyrir
okkur systkinin og kallaðir mig allt-
af pabbastrút, þú varst mjög söng-
elskur og hafðir mjög gaman af tón-
list og man ég eftir því þegar þú
settir strumpana á fóninn og hélst
mér á háhesti og labbaðir með mig
fram og til baka, ég hef sennilega
ekki verið eldri en fjögurra ára. Þú
settir líka Vilhjálm Vilhjálmsson á
fóninn og spilaðir lagið Lítill dreng-
ur, þér fannst eins og textinn væri
saminn fyrir þig og ég væri þessi
litli og ljóshærði drengur sem vildi
kúra hjá föður sínum. Þú táraðist
alltaf þegar þú hlustaðir á lagið, þú
varst svo stoltur af mér.
Já, við áttum frábærar stundir,
allar veiðiferðirnar, gönguferðirnar
í kringum veiðivötnin, tjald- og bú-
staðaferðirnar, þú hafðir svo gaman
af því að ferðast og vera með fjöl-
skyldunni. Veiðiferðirnar voru í
mjög miklu uppáhaldi hjá mér þó
við veiddum nánast aldrei neitt, það
var bara félagsskapurinn og stemn-
ingin á bak við þetta allt.
Elsku pabbi minn. Nú eru þetta
einungis minningar, þetta er tími
sem maður fær aldrei aftur. Þú
varst yndislegur og frábær faðir
sem ég elti hvert fótmál. Ég studdi
ávallt við bakið á þér eins og þegar
þú og mamma slituð samvistum, þá
var það ég sem kom með þér, tím-
arnir voru ekki alltaf auðveldir þá.
Þú áttir við veikleika að stríða, þér
fannst sopinn allt of góður. Ég var
alltaf á varðbergi þegar þú fékkst
þér í glas, fór t.d. mörgum sinnum
inn í herbergið þitt á nóttunni, bara
til þess að athuga hvort þú værir á
lífi. Ég lifði fyrir þig, pabbi minn.
Ég hafði svo miklar áhyggjur af þér
og hef haft þær frá því að ég man
eftir mér. En svo kom að því, tím-
inn sem ég hef alltaf kviðið fyrir, þú
hefur nú yfirgefið þessa jarðvist og
ég vona að þér líði betur þar sem
þú ert núna, pabbi minn. Nú standa
eftir góðar minningar og líka mikil
sorg sem maður verður að láta tím-
ann græða. Ég elska þig af öllu
hjarta, pabbi minn, og ég þakka þér
fyrir allan þann frábæra tíma sem
við áttum saman. Minningarnar lifa
og ætla ég að reyna hvað ég get að
endurlifa þær með litla drengnum
mínum og vona að hann öðlist einn-
ig ógleymanlegar minningar.
Þinn sonur,
Georg.
Elsku pabbi minn, nú eru þetta
lokaorðin sem ég ætla að segja við
þig, hversu heitt ég elska þig og
hversu sárt er að vita það að þú
sért farinn frá okkur öllum. Það er
alveg rosalega sársaukafullt að
þurfa að setjast niður og skrifa
minningargrein um frábæran pabba
sinn eins og þú varst. Við áttum
yndislega tíma saman, við fórum oft
í sumarbústað öll fjölskyldan saman
því þú elskaðir að ferðast í faðmi
fjölskyldunnar og labba í kringum
vötnin og veiða. Þú varst nýkominn
úr ferðalagi. Þú og mamma og
Móna fóruð í bústað á Illugastöð-
um. Það var ekki nema mánuður
sem þú varst í honum þar til þú
kvaddir okkur. Maður spyr sig: Af
hverju, af hverju þú, svona góður
maður sem áttir lífið framundan,
ekki nema 59 ára að aldri? En lífið
er oft óréttlátt eins og þegar guð
valdi að taka þig til sín eins og sagt
er, þeir deyja ungir sem guðirnir
elska.
Við eigum svo ótrúlegar minn-
ingar um þig, ég var nýbúin að
skutla þér. Ekki datt mér í hug að
sá rúntur væri sá síðasti. Þú gast
aldrei verið án okkar, þú hringdir
mörgum sinnum á dag í okkur en
því miður gat ég ekki alltaf hlaupið
til þín og gert þér greiða eins og
Móna og mamma gátu, því ég á tvo
litla gullmola sem ég þurfti að
hugsa um en þú varst svo skýr
maður að þú skildir það alltaf. Ég
mun láta afabörnin þín vita hversu
yndislegur pabbi þú varst, það er
svo ótrúlega erfitt að sætta sig við
það að fá aldrei að tala við þig eða
hitta þig. Mér finnst þetta ennþá
vera svo óraunverulegt, en ég man
nokkrum dögum áður en þú kvadd-
ir okkur þá varstu að segja mér
hversu mikið þér þætti vænt um
mig, þessi orð gleymast aldrei.
Það eru svo margar minningarn-
ar sem við eigum saman, við fórum
oft bara dagsrúnt, bara að skoða
Seljalandsfoss og Skógarfoss og
Gullfoss og Geysi og keyrðum út á
land eins og Kirkjubæjarklaustur
og bara út um allt. Það eru ógleym-
anlegir tímar og þeir koma aldrei
aftur. Þú sagðir við mig, sem ég
mun aldrei gleyma: Ef einhver fer
illa með þig, Helena mín, þá er mér
að mæta,“ og manneskjan mundi
sjá eftir þessu alla ævi. Þú vildir
aldrei að neinn gerði börnunum
þínum eitthvað illt því við vorum
gimsteinarnir þínir. En það er svo
sorglegt að vita það að núna værum
við á fullu að hjálpa þér að flytja
því þú varst búinn að kaupa þér
íbúð rétt hjá okkur öllum en færð
víst ekki að njóta þess að vera í
nýju íbúðinni. Hún Lilja Dí, litla
afastelpan þín, sagði við mig: ,,Afi
veikur heima,“ því hún skildi ekki
neitt í öllum löggubílunum og
mönnunum sem voru hjá þér dag-
inn sem þú kvaddir okkur en núna
segir hún mér að afi búi hjá guði.
Ég man þegar þú hringdir í mig og
talaðir við mig, þá varstu alltaf að
fíflast í mér og biðja mig um að
skipta við þig um íbúð því þú varst
alltaf að dást að íbúðinni minni, en
þú varst sko með húmor í lagi, elsk-
aðir að segja brandara og fíflast í
öllum en því miður varstu bara orð-
inn mikið veikur og gast ekki sleppt
sopanum. Vonandi ertu kominn á
betri stað þar sem þér líður betur,
ég veit þú átt eftir að fylgjast með
okkur hinum megin frá og varð-
veita okkur. Þín verður sárt saknað
og mun ég geyma minningarnar í
hjarta mér að eilífu um frábæran
pabba. Sjáumst síðar, elsku pabbi
minn. Hvíldu í friði.
Þín dóttir og pabbablóm,
Helena Dögg.
Elsku pabbi minn, nú ertu farinn
frá okkur öllum, ég vil ekki trúa
þessu, að ég eigi ekki eftir að njóta
góðu stundanna okkar sem við átt-
um saman, gullið mitt. Það er svo
sárt að sitja við skrifborðið og
skrifa minningargrein um pabba.
Þú vildir allt fyrir mig gera, sama
hvað það var, elsku pabbi. Allar
ferðirnar okkar voru svo dásam-
legar, sumarbústaðarferðirnar voru
margar og yndislegar. Þegar þú
varst með betri heilsu hékkstu í
trjánum eins og api, það er svo
sannarlega ógleymanlegur tími en
veiðin var í miklum metum hjá þér
enda fór góður tími í hana. Ég
keypti mér sjálf veiðistöng til að
fara með þér að veiða en þegar ég
átti sjálf ekki veiðistöng leyfðir þú
mér að kasta nokkrum sinnum út í
vatnið og þar veiddi ég Maríufisk-
inn minn. Þá varst þú svo glaður að
sjá litlu stelpuna þína með fisk á.
Við áttum góða tíma með þér þegar
þú og mamma voruð að metast um
hvort væri í betra formi, þá var
mamma að sýna hvað hún væri lið-
ug (enda var hún í æfingum) en þá
varst þú mun liðugri en mamma.
Svo tókstu stóran kodda, stilltir
honum upp við hurð og stóðst á
haus. Enginn vandi fyrir þig, rús-
ínan mín, en þið mamma voruð dug-
leg að metast þegar þið tókuð ykk-
ur til. En síðasta bústaðarferðin þín
var nú bara fyrir mánuði síðan,
þegar þú, ég og mamma fórum í
seinustu bústaðarferðina. Ekki
bjóst maður við því að þær yrðu
ekki fleiri, elsku pabbi. Þú fórst allt
of fljótt frá okkur, en því miður
þurftir þú að kveðja þennan heim
langt um aldur fram út af veikind-
unum og sopanum sem hrjáði þig.
Elsku engillinn minn, ég mun
ávallt hugsa um hversu yndislegur
faðir þú varst pabbi minn. Mig
langar til að enda þetta með ljóði
sem þú samdir fyrir mig fyrir
nokkrum árum. Þú varst ofboðslega
duglegur að semja ljóð, eins og þín
söngrödd var góð. Það var svo dýr-
mætt þar sem þú og ég vorum að
syngja saman heima hjá mér og
þér, hvor okkar næði laglínunni
betur, elsku gullið mitt. Ég kveð
þig með þessu ljóði eftir þig.
Sjáumst síðar.
Þetta litla ljóð er eftir þig, pabbi
minn.
Líf í nýju landi
er kvaddi ég mitt föðurland
með von í hjarta.
Mig hreif sú mynd um
tíma betri og bjarta
að vera fjarri mínu
hrjáða landi
sem ég skildi eftir spor
í gljúpum sandi.
Þín dóttir og pabbablúnda,
Ramóna Lísa.
Nú er Valgeir frændi minn búinn
að kveðja langt fyrir aldur fram.
Hann fæddist og ólst upp á Siglu-
firði, næstelstur af fjórum systk-
inum. Þar lauk hann grunnskóla-
prófi þess tíma og ef aðstæður
hefðu leyft hefði hann hugsanlega
stefnt að frekara námi en hann var
bókhneigður að eðlisfari. Fyrstu
fullorðinsárin var hann á sjó og
þótti duglegur til vinnu. Síðar
fékkst hann við ýmislegt, vann m.a.
á Kópavogshæli og sem skólaliði í
grunnskóla.
Alveg frá því að hann stofnaði
fjölskyldu og eins eftir að hann
varð einn lagði hann áherslu á að
búa í eigin húsnæði. Rétt áður en
hann dó hafði hann gengið frá
skiptum á íbúð til að vera nær sín-
um nánustu sem hann treysti á.
Valgeir var ræktarsamur að eðl-
isfari og ég man eftir því að þegar
hann sem unglingur á Siglufirði
hafði fengið vinnulaun greidd átti
hann til að koma færandi hendi með
gjafir til mömmu sinnar og einnig
til ömmu og afa. Hann vissi að þar
átti hann líka hauka í horni. Þegar
aldur færðist yfir móður hans var
hann mjög natinn við hana og tilbú-
inn til hjálpa henni á ýmsa lund eft-
ir því sem heilsa hans leyfði.
Valgeir velti mikið fyrir sér til-
gangi lífsins sem honum fannst oft
fara um sig ómjúkum höndum og
var hann stundum ósáttur við al-
mættið. Síðustu ár hefur hann verið
mjög heilsuveill auk þess sem sjón
hans hafði hrakað mikið.
Mér finnst gott að eiga þá minn-
ingu að þegar ég talaði við hann
síðast rúmri viku áður en hann dó
þá var hann léttari en oft áður.
Hann var nýkominn úr ferðalagi
með fjölskyldunni og hafði auðheyr-
anlega haft mjög gaman af því.
Eins batt hann vonir við að augn-
aðgerð sem hann var að bíða eftir
myndi færa honum betri sjón. Þá
eins og svo oft áður í okkar sam-
tölum kom hann því að hvað hann
væri ánægður með og stoltur af
börnunum sínum. Einnig var hann
mjög þakklátur Jóhönnu, fyrrver-
andi konu sinni, fyrir umhyggju
hennar í veikindum hans.
Valgeiri frænda mínum bið ég
blessunar á guðs vegum og sendi
aðstandendum hans samúðarkveðj-
ur.
Ingibjörg.
VALGEIR
MATTHÍASSON
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÁSTHILDUR TEITSDÓTTIR
fyrrum húsfreyja á Hjarðarfelli,
Snæfellsnesi,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli föstu-
daginn 4. ágúst, verður jarðsungin frá Fáskrúðar-
bakkakirkju laugardaginn 12. ágúst kl. 14.00.
Guðbjartur Gunnarsson, Harpa Jónsdóttir,
Högni Gunnarsson, Bára K. Finnbogadóttir,
Sigríður Gunnarsdóttir, Michel Sallé,
Hallgerður Gunnarsdóttir, Sturla Böðvarsson,
Teitur Gunnarsson, Lilja Guðmundsdóttir,
Þorbjörg Gunnarsdóttir, Erlendur Steinþórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær eiginkona, dóttir, móðir, tengdamóðir,
amma, systir og mágkona,
ÁGÚSTA S. JÓNSDÓTTIR ROSARIO,
(Dúva),
andaðist á heimili sínu, 8100 Mona Avenue, Nor-
folk WA 23518, miðvikudaginn 10. maí.
Minningarathöfn fer fram í Fossvogskapellu
mánudaginn 14. ágúst kl. 15.00.
Romeo D. Rosario,
Ágústína G. Ágústsdóttir,
Romeo A. Rosario, Kemberly Rosario,
Ágústína Sara Epps Rosario,
Sverrir F. Rosario, Tamy Rosario,
Gísli B. Jónsson,
Kristrún B. Jónsdóttir, Magnús Sigurðsson.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÚN HANNESDÓTTIR,
Kópavogsbraut 1A,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð sunnudaginn
6. ágúst.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn
15. ágúst kl. 13.00.
Ásgeir Pétursson,
Guðrún Ásgeirsdóttir,
Ingibjörg Ásgeirsdóttir,
Sigríður Ásgeirsdóttir, Þórður Kristinsson,
Pétur Ásgeirsson, Jóhanna Gunnarsdóttir,
Andrés Pétur Rúnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.