Morgunblaðið - 11.08.2006, Side 32
kyns gjafir (eins og „einn rauður“)
voru mjög líklegar til vinsælda, en
snuprur og aðfinnslur voru ávísanir
á botnsæti.
Hún Tobba stóð líka fast á sínu,
var fljót í tilsvörum og gjörsamlega
ófeimin. Þar naut hún þess örugg-
lega að hafa alist upp með fjórum
fjörugum bræðrum. Mín uppáhalds
saga af Tobbu er að hún svaraði ein-
hverju sinni híi ókunnugra krakka á
þessa leið: „Hvað er að ykkur, sjáið
þið ekki að ég er þroskaheft?“
Þótt Tobba hafi vissulega verið
hörkutól á sinn hátt, þá átti hún ara-
grúa af vinum og ættingjum sem
hún sá ekki sólina fyrir. Tobba
hlakkaði alltaf mikið til allra hátíð-
isdaga, og skemmti sér manna best
á slíkum dögum.
Aðrir tyllidagar féllu þó alveg í
skuggann af 20. maí, afmælisdegi
hennar. Þá var oft slegið upp mikilli
veislu, og Tobba naut sín best á
þeim dögum, umkringd þeim sem
henni þótti vænt um, og þótti ógn-
arvænt um hana.
Vegna slyss í barnæsku mátti
Tobba ekki neyta matar í föstu
formi. Það er ótrúlegt að hugsa til
þess að Tobba, með alla sína fötlun,
hafi getað ávallt stýrt frá öllu því
matarkyns sem gæti staðið í henni,
og jafnvel leitt til dauða hennar.
Tobba lifði í um 60 ár án þess að
falla fyrir þeirri freistingu að stinga
einhverju slíku upp í sig. Það sem er
jafnvel enn merkilegra er að hún
kvartaði aldrei yfir því að geta ekki
borðað eins og annað fólk. Amma og
afi héldu til dæmis alltaf frábær jóla-
boð, þar sem borðin svignuðu undan
kræsingunum. Þegar ég komst til
vits og ára fannst mér stundum erf-
itt að njóta þeirra í augsýn Tobbu,
því hún varð á sama tíma að gera sér
að góðu að sjúga Síríus-lengjur, og
nærast á súrmjólk og krukkumat.
Hún kvartaði bókstaflega aldrei, en
það var helst að maður uppskæri
eitrað augnaráð ef maður kallaði
krukkumatinn hennar barnamat.
Það var mjög erfitt að heyra þær
fréttir að Tobba frænka hefði kvatt
þennan heim. Ég hafði verið hjá
henni daginn áður, og þegar ég gekk
inn í stofuna í Blesugrófinni að
heimsækja Tobbu í síðasta sinn, þá
tók hún kveðju minni með því að
veifa og brosa til mín. Mér líður því
eilítið betur í þeirri vitneskju að hún
hafi ekki þurft að upplifa stöðugar
kvalir sína seinustu daga.
Það tekur mig mjög sárt að geta
ekki fylgt Tobbu til grafar. Ég hef
sannarlega misst uppáhaldsfrænku.
Ég vil þakka öllum þeim sem önn-
uðust Tobbu á vegum Styrktar-
félags vangefinna af ótrúlegri ósér-
hlífni og ástúð í gegnum árin. Ég
vissi alltaf að Tobba væri í góðum
höndum, og vil þakka sérstaklega
Sirru og öllu starfsfólkinu í Blesu-
grófinni af öllu hjarta. Tobba
frænka hefði ekki lifað svona lengi,
og henni ekki liðið svona vel, í neinu
öðru umhverfi en því sem þið bjugg-
uð henni.
Sigurður Óli Sigurðsson.
Elsku Tobba, það er skrýtið að
þurfa að kveðja þig nú því þú gekkst
í gegnum svo mikil veikindi og alltaf
var ég hrædd um þig en þú stóðst
þau alltaf af þér. Þetta virtist þó
vera í það skiptið sem bati náðist
ekki og þú yfirgafst þennan heim.
Ég átti erfitt með að átta mig á því
að Tobba frænka væri dáin, mér
þótti alltaf mjög vænt um þig og á
alltaf eftir að varðveita stundirnar
sem við áttum saman og ég man sér-
staklega eftir því þegar við vorum að
dunda okkur saman inni í herberg-
inu þínu að klippa út myndir. Ég hef
alltaf virt þig fyrir allt það sem þú
hefur gengið í gegnum og alltaf stað-
ið það af þér, þú varst sterk en alltaf
lýstir þú allt upp með þínum mikla
og skemmtilega persónuleika. Þú
varst sólargeisli í lífi allra. Megi Guð
geyma þig.
Þín frænka
Rakel Dís.
Nú hefur Tobba okkar kvatt okk-
ur í bili og haldið för sinni áfram. Við
sem eftir sitjum trúum því að nú
sért þú í ljósinu, sameinuð ástvinum,
sem örugglega eru búnir að bíða
lengi eftir þér. Með þá vissu í huga
erum við sáttari við skilnaðinn.
Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð.
Lifðu sæl á ljóssins friðarströnd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Hér í Blesugróf er tómarúm sem
erfitt verður að fylla. Þú varst engri
lík, uppátækin þín, orðalagið þitt,
sjálfstæði þitt og svo ekki sé minnst
á húmorinn. Oftar en ekki bjöllu
klingt og nú skyldi vera partí, síríus-
lengjur, kók, góð músík, dansað og
hlegið. Þú færðir okkur stóran vina-
hóp sem er okkur afar kær, en það
eru bræður þínir, mágkonur og fjöl-
skyldur þeirra. Með þeim höfum við
öll notið yndislegra stunda bæði í
gleði og sorg. Vinir sem alltaf hafa
verið til staðar fyrir okkur öll og vilj-
um við þakka alla þeirra vináttu í
gegnum árin.
Elsku Tobba, þú skilur eftir
skemmtilegar minningar og fyrir
okkur dýrmæta reynslu sem hefur
gert okkur að betri manneskjum. Já,
elsku litla konan okkar, vinir þínir
hér á heimilinu eiga eftir að sakna
þín mikið enda eruð þið búin að búa
hér saman í sátt og samlyndi sem
ein fjölskylda í 18 yndisleg ár.
Elsku Tobba, guð leiði þig á nýjan
stað og um leið viljum við þakka all-
ar góðar stundir í Blesugróf. Svo
hittumst við öll saman aftur í Para-
dís.
Þú áttir svo friðsama og fallega lund
og framreiddir bros hvar sem gekkstu
og gaman var alltaf að fara á þinn fund
er á frjálslegu strengina lékstu.
Og nú ertu horfin vor Dalanna dís
og dapur er ástvina fjöldinn.
Í Paradís er sú vera þér vís
er verndar þig handan við tjöldin.
(Benedikt Björnsson.)
Þínir ástvinir í Blesugróf 29.
Elsku frænka. Nú er þessari
löngu göngu lokið. Þú ert búinn að
heyja þessa baráttu í mörg ár. Aðdá-
unarverður kraftur og lífsvilji hefur
haldið þér gangandi lengur en flestir
þorðu að vona. Í gegnum tíðina hef-
ur maður ósjaldan haldið að kveðju-
stundin væri runnin upp. En elsku
frænka, okkur til mikillar gleði,
vaknaðir þú eins og ekkert hefði í
skorist. Brosandi út í lífið og full af
fjöri. Haldið enn eitt afmælið með
pomp og prakt. Hringt bjöllunni og
sungið enn einn afmælissönginn. Ég
er viss um þú hafir kosið að fara
þennan dag til að hringja bjöllunni í
afmæli föður þíns. Afi Guðlaugur
hefði átt afmæli daginn eftir að þú
fórst.
Oft hefur þú kennt manni að
gleðjast yfir þeim litlu hlutum sem
lífið hefur að bjóða. Alltaf svo glöð
og kát að sjá vinalegt andlit og sér-
staklega ef maður gat gaukað ein-
hverju smáræði að þér. Það þurfti
ekki mikið. Félagsvera fram í fing-
urgóma og lífskúnstner. Gleymi ekki
hve auðvelt var að kætast við það
eitt að vera boðið inn í herbergið þitt
þegar þú settir tónlistina á fullt. Það
var dansað, sungið og borðað
ógrynni af súkkulaði við undirspil
sumargleðinnar. Þetta var hápunkt-
ur helgarinnar í Álftahólum 2. Alltaf
varstu barngóð og hjálpleg við okk-
ur bræðrabörnin. Passaðir okkur
systkinin meðan pabbi og mamma
voru að vinna. Gafst okkur allan
þinn tíma til að sinna okkur og
spjalla. Allar þær minningar sem
koma upp í hugann eru hlýjar og
lýsa einstakri persónu. Þær myndu
fylla heila bók. Færðu ömmu og afa
stórt faðmlag þangað upp frá
frænda þínum. Guð geymi þig og
varðveiti.
Þinn frændi,
Einar Valur.
Fleiri minningargreinar um Þor-
björgu Guðlaugsdóttur bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga. Höfundar eru: Stefán
Konráðsson; Birgitta og Freyja;
Sigríður Eyþórsdóttir og Perlu-
félagar; Telma Björk.
32 FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Sama lága verðið.
Og að auki 30 - 50% afsláttur
af öllum gæludýravörum.
Tokyo, Hjallahrauni 4,
Hafnarfirði,
Ferðalög
Fossatún –Tíminn og vatnið
Fyrirtæki og hópar!
Einstakt umhverfi, glæsileg að-
staða, skemmtileg afþreying og
frábærar veitingar.
www.steinsnar.is S. 433 5800
Heilsa
Djúpslökun og heilun - frelsi frá
streitu og kvíða
Sjálfstyrking - reykstopp.
Notuð er m.a. EFT (Emotional
Freedom Techniques) og
dáleiðsla (Hypnotherapy).
Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslu-
fræðingur, sími 694 5494,
www.EFTiceland.com .
Húsnæði í boði
Einbýli til leigu í Grindavík. 135
fm hús með 33 fm bílskúr til leigu
í Grindavík. Verð 100 þús. á mán.
Uppl. í síma 847 9893.
Sumarhús
Sumarhús til sölu. Sumahús við
Eyrarskóg í Svínadal, sem af-
hendist fullbúið að utan en tilbúið
til innréttingar að innan, 62 m² að
flatarmáli, bjálkaklæðning. Glugg-
ar og hurðir úr harðviði.
Upplýsingar í síma 893 2329.
Sumarhús — orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg
og vönduð sumarhús í ýmsum
stærðum. Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbú-
in hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Sumarbústaðalóðir á Suður-
landi. Fallegar sumarhúsalóðir
frá kr. 1.250.000. www.hrifunes.is
eða hrifunes@hrifunes.is
Rotþrær
Framleiðum rotþrær, 2.300-25.000
lítra.
Öll fráveiturör og tengistykki í
grunninn.
Sérboruð siturrör og tengistykki
í siturlögnina.
Heildarlausn á hagstæðu verði.
Borgarplast, Seltjarnarnesi,
sími 561 2211.
Borgarplast, Borgarnesi,
sími 437 1370.
Heimasíða:
www.borgarplast.is
Námskeið
Upledger höfuðb. og spjald-
hryggjarmeðf. Kynningarnám-
skeið á Upledger höfuðbeina- og
spjaldhryggjarmeðf. verður haldið
2. sept. næstkomandi á Akureyri.
Upplýsingar í síma 466 3090 eða
á www.upledger.is
Upledger höfuðb.- og spjald-
hryggjarmeðf. Kynningarnám-
skeið á Upledger höfuðbeina- og
spjaldhryggjarmeðf. verður haldið
26. ágúst næstkomandi í Rvík.
Upplýsingar í síma 466 3090 eða
á www.upledger.is.
Microsoft kerfisstjóranám á
haustönn Frá 4.9 til 31.1.2007.
Ítarlegt, vandað og hagnýtt nám
á mjög hagstæðu verði. Bættu
Microsoft í ferilskrána. Rafiðnað-
arskólinn, www.raf.is,
s. 86 321 86.
Tölvur
iMac 17" 1.83GHz Intel - tölva
iMac 17" 1.83GHz Intel ásamt
minni 1 GB MacBook/iMac Intel.
Lítið notuð 6 mán. borðtölva. Verð
með vsk 100.000 kr. Reikningur
á 148.603 kr. fylgir. Upplýsingar
896 9998.
Til sölu
Kristalsljósakrónur. Handslípað-
ar. Mikið úrval.
Slóvak Kristall,
Dalvegi 16b,
201 Kópavogi,
s. 544 4331.
Gardínur til sölu. Þrjú sett, 1 föl-
gult (5 síðar lengjur og 2 kappar),
1 dumbrautt (4 síðar lengjur), 1
röndótt (2 síðar lengjur og 2
kappar). Selst ódýrt. Upplýsingar
gefur Sigríður í síma 5539175.
Óska eftir
Hutchenreuther - Peseta
Arabia - Anemona
Ef þú átt svona bolla sem þú vilt
selja (einn eða fleiri), vinsamleg-
ast hafðu samband í síma
568 6877 eða 862 8666.
Ýmislegt
Sími 4 200 500
www.plexigler.is
Plexigler fyrir fiskverkendur,
skiltagerðir, fyrirtæki og
einstaklinga.
Sérsmíði og efnissala.
Rosalega flottur og alveg glæ-
nýr í BCD skálum á kr. 1.995,
buxur í stíl kr. 995.
Mjög fallegur í BCD skálum á kr.
1.995, buxur í stíl kr. 995.
Falleg blúnda og gott snið í BCD
skálum á kr. 1.995,- buxur í stíl á
kr. 995.
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Glæsilegir dömuskór úr leðri.
Litir: Turkis, brúnt og beige.
Verð: 7.600.
Glæsilegir dömuskór úr leðri.
Litir: Svart, hvítt og turkis.
Verð: 4.985.
Glæsilegir dömuskór úr leðri.
Litir: Silfur og gull. Verð: 5.385
Misty skór, Laugavegi 178.
Sími 551 2070.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Ástandsskoðun. Býð uppá al-
mennar ástandsskoðanir og eign-
amat. Ástandsskoða eignir við
kaup og sölu á fasteignum. Hús-
ver ehf. Sími 699 4041,
arnarivar@gmail.com.
Bílar
VW Golf árg. '98, ek. 128 þús.
km. Skoðaður '07 án athuga-
semda. Bsk. Búið að skipta um
tímareim. Smurbók frá upphafi.
Mjög vel með farinn bíll í topp-
standi. Engin skipti. Verð 490.000.
Sími 849 1783.
Tilboð - Cherokee Laredo. Cher-
okee Laredo mjög vel farinn, 4wd,
álfelgur, sjálfskiptur, rafmagn og
fjarstýrðar samlæsingar, abs,
dráttarkúla o.fl. Tilboð 1.400.000
kr. í staðgreiðslu! Upplýsingar í
síma 694 9384.
Nýr Mercedes Benz Sprinter
316 CDI maxi til sölu. Sjálfskipt-
ur, ESP, samlæsingar með fjar-
stýringu, forhitari o.fl.
Kaldasel ehf.,
Dalvegi 16b, 201 Kópavogi,
símar 544 4333 og 820 1070.
M. Benz Unimoug 1550L
6 manna árg. '98. Ekinn 196 þús.
km. Atlas-krani 1,5 tonn og dæla
árg. 2006. Spil 3 tonn. Pallur
lengd 3,25 - breidd 2,33. Upplýs-
ingar í síma 892 8380.
Fellihýsi
Fellihýsi Til sölu 10 feta fellihýsi,
Colman See Pane, árgerð '99. Lít-
ur mjög vel út og lítið notað, mið-
stöð, (ísskápur, sólarsella og sól-
tjald sett í vagninn 2005). Verð
750.000. Sími 669 1470.
Smáauglýsingar
sími 569 1100