Morgunblaðið - 11.08.2006, Side 37

Morgunblaðið - 11.08.2006, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 37 DAGBÓK GÓÐ HEILSA GULLI BETRI Lið-a-mót FRÁ www.nowfoods.com APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR A ll ta f ó d ýr ir Ferðamálafélag Ölfuss stendur fyrir há-lendisgöngu 17. ágúst næstkomandi. Vigfús Gíslason er formaður ferða-málafélagsins og fararstjóri: „Svæðið sem við munum ferðast um er í Vestur- Skaftafellssýslu og liggur á milli Skaftár og Tungnaár, vestan Vaknajökuls. Þetta svæði er nokkuð í umræðunni um þessar mundir vegna áforma um að reisa svokallaða Skaftárveitu,“ segir Vigfús. Ferðast verður um nágrenni Langasjós, Fögrufjalla og Sveinstinds: „Langisjór er stöðu- vatn, um 20 km langt, blátært og fallegt. Sjórinn var jökulvatn og greina elstu heimildir frá því að skriðjökull úr Vatnajökli hafi fallið niður í Langasjó, og var hann áður litaður af jöklinum. En nú er vatnið tært og umlukið mosavöxnum móbergsfjöllum og svörtum söndum,“ lýsir Vig- fús náttúrunni sem gengið verður um. „Fögru- fjöll eru móbergshryggur sem liggur sunnan við Langasjó, milli hans og Skaftár. Fjallgarðurinn er klofinn af allmörgum stöðuvötnum sem eru tær og afar falleg. Þetta eru mjög fáfarnar og sérstakar slóðir og einkennist landslagið af jök- ulvötnum, svörtum söndum, grænum mosa fjallanna sem sumstaðar vex upp í topp, og jafn- vel í yfir 1.000 m hæð, og svo jöklarnir sem eru í baksýn. Sveinstindur er þriðja kennileitið á leiðinni, og hæsta fjallið um þessar slóðir en hann ber nafn Sveins Pálssonar, læknis og nátt- úrufræðings, sem var mikill brautryðjandi í rannsóknum á íslenskri náttúru.“ Ferðamálafélag Ölfuss er óformlegur fé- lagsskapur og eru allir velkomnir í félagið: „Þetta er lítið félag áhugafólks um útivist og gönguferðir og sníðum við okkur stakk eftir vexti hverju sinni. Ferðamálafélagið hefur stefnt að því að fara eina veglega ferð á hverju ári og höfum við skoðað marga markverða staði und- anfarin sumur,“ segir Vigfús. „Við förum að auki í styttri kvöldgöngur, sérstaklega fyrri part sumars og reynum þá að fá til liðs við okkur góða fararstjóra sem þekkja söguna á hverjum stað.“ Vigfús segir algengast að félagsmenn fari í stærri ferðir á eigin bílum og skipti þá kostnaði með sér og reyni að hafa ferðir sem hagkvæm- astar. Haldnir eru fundir nokkru fyrir ferðina þar sem þátttakendafjöldi er áætlaður og ferðin undirbúin. Hálendisganga Ferðamálafélagsins hefst sem fyrr segir fimmtudaginn 17. ágúst. Ferðalagið mun taka fjóra daga og munu ferðalangar snúa aftur heim á sunnudeginum en þeir munu hafa bækistöð í gömlu gangnamannahúsi við Sveins- tind. Nánari upplýsingar um Ferðamálafélagið má finna á heimasíðu Sveitarfélagsins Ölfus, www.olfus.is, undir „Ferðaþjónusta“. Þar má einnig finna ýmsar upplýsingar um sveitarfélag- ið, viðburði og þjónustu, fornleifar og sögu, svo nokkuð sé nefnt. Þeir sem eru áhugasamir um hálendisferð Ferðamálafélagsins geta einnig haft samband við Vigfús í síma 892 4452. Útivist | Ferðamálafélag Ölfuss í hálendisgöngu um nágrenni Sveinstinds 17. til 20. ágúst Langisjór og Fögrufjöll  Vigfús Gíslason fæddist á Flögu í Skaftártungu 1957. Hann er sölustjóri hjá Flügger-litum, áður Hörpu Sjöfn, þar sem hann hefur starfað síð- an 1982. Vigfús hefur einnig starfað sem far- arstjóri um nokkurra ára skeið og er for- maður Ferðamálafélags Ölfuss. Vigfús er kvæntur Lydíu Pálm- arsdóttur og eiga þau tvo syni og einn son- arson. Árnaðheilla ritstjorn@mbl.is 80 ára afmæli. Guðmundur Frið-riksson Tröllagili 3, 603 Ak- ureyri er 80 ára í dag, 12. ágúst. Hann verður að heiman. Brúðkaup | Þann 15. júlí síðastliðinn voru gefin saman í Fríkirkjunni Kefas þau Guðrún Hlín Bragadóttir og Narfi Ísak Geirsson af Verði Traustasyni. Þau eru til heimilis í Kópavogi. Undanásafélagið. Norður ♠K109 ♥64 ♦D854 ♣D95 Vestur Austur ♠G864 ♠52 ♥G83 ♥K72 ♦Á9732 ♦G106 ♣K ♣G107642 Suður ♠ÁD73 ♥ÁD1095 ♦K ♣Á83 Á sumarleikunum í Chicago var Bretinn Brian Senior gerður að heiðursfélaga í undanásafélaginu fyrir frækna frammistöðu sína í spilinu að ofan. Senior var í vestur, í vörn gegn fjórum hjörtum: Vestur Norður Austur Suður -- Pass Pass 1 hjarta Pass 1 grand Pass 2 spaðar Pass 3 spaðar Pass 4 lauf Pass 4 hjörtu Allir pass Sagnir bentu til veikleika í tígli og Senior ákvað að leggja þar til atlögu. Hann valdi tvistinn til að verja styrk makkers í litnum, enda líklegt að blindur væri með nokkra tígullengd og kannski KG. En allt fór á versta veg, hélt Senior, þegar suður fékk slaginn á kónginn blankan. Sagnhafi þurfti einhvern veginn að komast inn í borð til að svína í trompinu og spilaði því litlu laufi að drottningunni. Og nú var það Senior sem fékk á blankan kóng. Sem sýnist þó vera blendinn ágóði, því vestur er illa endaspilaður – hann hjálpar sagn- hafa með því að hreyfa hálit og tíg- ulásinn fríar drottninguna í borði. En Senior var heitur og spilaði aftur undan tígulásnum. Og viti menn, sagnhafi lét áttuna og tromp- aði gosa austurs. Sagnhafi fór nú inn á blindan á spaðakóng til að spila trompi á tíuna. Senior átti slaginn á gosann og hélt ótrauður áfram á fyrri braut – spilaði tígulníu, undan ásnum í þriðja sinn! Og auðvitað dúkkaði sagnhafi (ás- inn gat verið þriðji í austur) og trompaði heima. Sagnhafi reyndi nú að taka tvo slagi á ÁD í spaða, en þá féll tjaldið: Austur trompaði og spil- aði laufi, sem Senior stakk. Tvær stungur í viðbót fylgdu í kjölfarið og sagnhafi endaði þrjá niður – vörnin fékk fimm slagi á tromp og einn á lauf. Sem voru góð skipti yfir tíg- ulslaginn. En hvernig fer spilið með tígulás út? Það er léttunnið. Vestur gerir ekkert betra en að spila meiri tígli, og þá nær sagnhafi að svína tvisvar í trompi án nokkurrar fyrirhafnar. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 e5 6. Rdb5 d6 7. Bg5 a6 8. Ra3 b5 9. Bxf6 gxf6 10. Rd5 f5 11. Bd3 Be6 12. Dh5 Hg8 13. g3 Rd4 14. c3 fxe4 15. Bxe4 Bg4 16. Dxh7 Hg7 17. Dh6 Rf3+ 18. Ke2 Rg5+ 19. f3 Rxe4 20. fxg4 Dc8 21. De3 Dxg4+ 22. Df3 Dxf3+ 23. Kxf3 f5 24. Rc2 Kf7 25. Rce3 Ke6 Staðan kom á norska meist- aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Moss. Hinn ungi stórmeistari Kjetil Lie (2.523) hefur skemmtilegan skákstíl og í skákum hans koma oft upp fléttur. Hér hafði hann hvítt gegn Stig Gabrielsen (2.288) og vél- aði af andstæðingi sínum peð með einfaldri sýndarfórn. 26. Rxf5! Kxf5 svartur hefði staðið höllum fæti eftir 26. … Rg5+ 27. Kg4 Kxd5 28. Rxg7 en skást var að verjast með því að leika 26. … Rd2+ þó að taflið væri erfitt eftir 27. Ke2 Kxf5 28. Kxd2 Ke6 29. Re3. 27. Re3+ Ke6 28. Kxe4 d5+ 29. Rxd5 Bc5 30. Re3 hvítur hefur nú tveim peðum yfir og létt- unnið tafl. 30. … Hh8 31. a4 b4 32. cxb4 Bxe3 33. Kxe3 Hb7 34. b5 axb5 35. a5 Hd7 36. Hhd1 Hxd1 37. Hxd1 Hxh2 38. a6 Hh3 39. Kf3 Hh7 40. Ha1 Ha7 41. Ke4 og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik Til fólks af Bernhöftsætt VIÐ leitum að fólki af Bern- höftsætt, afkomendum þeirra sem fluttust til Íslands snemma á 19. öld. Til stendur að lagfæra grafreit forfeðra Bernhöftsættarinnar í Kirkjugarðinum við Suðurgötu. Þar liggja m.a. bakararnir Tönnes Daniel Bernhöft og k.h. Marie El- isbeth; Vilhelm Georg Theodor Bernhöft og k.h. Johanne Louise og Daniel Edmund Gottfred Bern- höft og f.k.h. Guðrún Ólafsdóttir. Okkur þykir rétt að sem flestir afkomendur þeirra eigi kost á að taka þátt í þessu verki. Því biðjum við þá, sem eru af Bernhöftsætt og sjá þetta bréf að hafa samband við einhverja okkar undirritaðra til að fá nánari vitneskju um um hvað er að ræða. Hanna Ásgeirsdóttir 862 2764, Ingibjörg Bernhöft 864 2627, María V. Heiðdal 551 5320. Réttlátari skipting á góðæristertunni ÉG las í bók um hvað Jesús sagði við lærisveina sína um notkun efn- islegra auðæfa og ég las áfram að tími væri til kominn að þeir sem ríkir eru af veraldlegum gæðum – pólitískum völdum – snúi við blaðinu. Þetta finnst mér passa vel við nútímann þar sem við eigum met í efnahagslegum ójöfnuði í allri Evrópu. Ég las líka að hinir ríku kalla hina fátæku fólk jarðarinnar. Á ráðstefnu um fátækt, sem haldin var fyrir nokkrum árum, voru þeir sem minna mega sín flokkaðir sem fólk á jaðrinum. Mörgu fólki hefur sárnað að vera flokkað svona af há- menntuðum sérfræðingum. Í símatíma á Útvarpi Sögu hringir fólk mikið og kvartar yfir sínum aumu kjörum. Ég hef líka heyrt fólk tala um að í þessu landi búi tvær þjóðir og er þá átt við hina fátæku og hina ríku. Þegar maður skoðar tekjublað Frjálsrar verslunar hugsar maður um hvern- ig í ósköpunum hægt sé að ætla öldruðum, öryrkjum og láglauna- fólki að lifa af um 100 þúsund krón- um á mánuði því að laun margra eru svo há að mann svimar við lest- urinn. Við höfum heimsins hæsta verð á bensíni, hæsta matvöruverð í Evr- ópu og hæstu vexti. Og þegar við förum út í banka er tíndir af okkur hundraðkallar fyrir að borga reikn- inga sem eru stílaðir á aðra banka. Ég er ósátt við svona vinnubrögð viðskiptabanka míns, sem er Landsbankinn. Þessi banki veltir milljörðum og hvers vegna fáum við viðskiptavinirnir ekki að njóta neins af þessum ofsagróða? Nú fara skólarnir að byrja og það er sitthvað að vera barn há- launafólks eða barn fátækra for- eldra eða einstæðra mæðra. Börn fátæka fólksins eiga ekki fyrir skólamáltíðum og koma jafnvel nestislaus í skólann. Ég veit um barn sem bað for- eldra sína um að setja meira í nest- isboxið sitt vegna þess að barn 5 barna einstæðrar móður kom oft nestislaust í skólann. Það þarf greinilega að vanda betur til að skipta góðæristertunni. Stjórnmálamenn hæla sér gjarn- an af því að við búum í einum af ríkustu löndum heims og þess vegna ætti að vera nóg fyrir alla, annað er gjörsamlega óþolandi. Sigrún Á. Reynisdóttir. Poki týndist í Smáralind Á FIMMTUDAGINN í síðustu viku týndist poki í Smáralind. Í honum voru tvennir línuskautar, snyrtiveski og myndavélasími. Finnandi er vinsamlegast beðinn um að hafa samband við Sigríði í síma 659 0971. Neyslustýring ÞAÐ blasir við, þegar maður ferðast um landið, hvernig þjóðin stýrir matarneyslu sinni sér til óbóta. Við matborð, svo sem í Hyrnunni í Borgarnesi, sitja ferða- menn með bústnar kinnar og spikið upp úr buxnamálinu og bæta á sig, reyndar með lítilli lyst, því að nær- ingarþörfinni er þegar fullnægt. Stjórnvöld ýta undir þessa neyslu með því að hafa lægri virð- isaukaskatt á mat en annarri neyslu. Á þennan hátt verða til óþrotleg verkefni fyrir sjúkrahús og heilsuhæli. Hvaða vit er þá í þeirri neyslustýringu sem felst í lægri virðisaukaskatti á mat en á annarri neyslu? Neysluskattar eru það, sem skil- ar sér best í þjóðarbúið úr vasa er- lendra ferðamanna, aðra skatta greiða þeir ekki. Hér er um að ræða virðisaukaskatt á mat, skatt á áfengi og gjald á bensín. Hátt verð á veitingum, á áfengi og á bensíni ætti að vera sérstakt ánægjuefni þeirra, sem vilja draga fram gildi ferðaútvegs fyrir þjóðarbúið. Björn S. Stefánsson. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is KÓRSKÓLI Langholtskirkju stendur fyrir söngnámskeiði fyrir drengi frá 6 ára aldri í næstu viku. Kennarar verða Magnús Ragnarsson og Harpa Harðardóttir. Nám- skeiðið verður frá mánudegi til föstudags, kl. 9–12, og felst í samblandi af söng, radd- þjálfun og leikjum. Mark- miðið er að virkja sönggleði drengjanna. Að námskeiði loknu verður þátttakendum gefinn kostur á að þreyta inn- tökupróf í drengjakór sem tekur til starfa í næsta mán- uði. Stjórnandi hans verður Magnús Ragnarsson. Kórinn verður hluti af Kórskóla Langholtskirkju og verður áttundi kórinn sem starfar við kirkjuna. Nánari upplýsingar eru gefnar í Langholtskirkju í síma 520 1300. Söngnám- skeið fyrir drengi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.