Morgunblaðið - 24.08.2006, Side 7
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Einsöngvari ::: Barbara Bonney
EFNISSKRÁ:
Hector Berlioz ::: Rómverskt karnival, forleikur
Edvard Grieg ::: Fimm söngvar
Nikolaj Rimskíj-Korsakov ::: Sheherazade
MIÐASALA HEFST Í DAG!
::: WWW.SINFONIA.IS
BARBARA BONNEY, BERLIOZ, GRIEG OG RIMSKÍJ-KORSAKOV
Í HÁSKÓLABÍÓI, LAUGARDAGINN 9. SEPTEMBER KL. 17.00
FL Group hefur markað þá stefnu að styðja verkefni er lúta að mannúð
og menningu. Fyrr á þessu ári gerðu FL Group og Sinfóníuhljómsveit
Íslands samstarfssamning til næstu fjögurra ára og er þar um veglegt
framlag að ræða til menningar. Einn þáttur samstarfsins eru árlegir
styrktartónleikar. Þeir fyrstu verða haldnir 9. september og mun ágóði
af tónleikunum renna til sérverkefnis á vegum BUGL.
Efnisskrá tónleikanna samanstendur af glæsi-
legum og gáskafullum forleik, kyngimagnaðri
hljómsveitarsvítu og sérstaka ánægju vekur
þátttaka bandarísku söngkonunnar Barböru
Bonney, sem eftirsótt er um heim allan vegna
einstakrar fjölhæfni og heillandi framkomu.
Barna- og unglingageðdeild Landspítala - háskólasjúkrahúss, BUGL, sinnir mikilvægu starfi sem kunnugt er. Viðvarandi
skortur á fjármunum sníður þeirri brýnu þjónustu sem þar er veitt þröngan stakk. Því hafa FL Group og Sinfóníuhljómsveit
Íslands ákveðið að ágóði þessara fyrstu styrktartónleika renni til átaksverkefnis BUGL sem hlotið hefur nafnið „Lífið kallar“.
Markmið verkefnisins er að styrkja fjölskyldur barna og unglinga sem eiga við andlega erfiðleika að etja, til að móta nýja
lífssýn þar sem inntakið er lífsgleði. Verkefnið er fjölskyldumiðuð eftirmeðferð í tengslum við bráðaþjónustu BUGL.
Verði aðgöngumiða er stillt í hóf, en landsmenn allir eru hvattir til að styðja verkefnið með frjálsum framlögum
inn á bankareikning 0101-26-600600, kt 601273-0129.
MIÐAVERÐ ::: 3.700 / 3.400 KR.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
8
3
7
4
LÍFIÐ KALLAR