Morgunblaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 23
MENNING
LJÓSMYNDARINN Joe Rosenthal
er allur, 94 ára að aldri. Rosenthal er
þekktastur fyrir að hafa í febrúar
1945 tekið mynd af sex bandarískum
sjóliðum reisa þjóðfána sinn á toppi
Suribachi-fjalls á japönsku smáeyj-
unni Iwo Jima. Myndinni var strax
slegið upp á forsíðum bandarískra
dagblaða til vitnis um baráttuþrek
og föðurlandsást bandarískra her-
manna og er í dag sú mynd sem oft-
ast hefur verið endurprentuð vest-
anhafs.
Tíu árum eftir að myndin var tek-
in skrifaði Rosenthal í Collier’s ma-
gazine að litlu hefði munað á sínum
tíma að hann hefði sig ekki upp á
Suribachi-fjall af þeim sökum að
minni fána hefði þegar verið komið
upp. Hann hélt þó af stað og kom að
þar sem verið var að draga upp nýtt
og stærra flagg. „Ég sá að menn-
irnir voru byrjaðir að reisa fánann.
Ég greip til myndavélarinnar og
smellti af. Þannig var myndin tekin
og þegar svona er í pottinn búið þá
getur maður ekki gengið af vett-
vangi í fullvissu um að hafa náð góðu
skoti,“ skrifaði Rosenthal sem sjálf-
ur sá ekki endanlegu útkomuna fyrr
en sex dögum eftir að myndin birtist
bandarískum almenningi. „Þegar ég
heyrði fyrst talað um hana þá vissi
ég ekki um hvaða mynd var rætt.“
Heimild um
raunverulegan atburð
Nánast frá fyrsta degi var Ro-
senthal borið á brýn að hafa sviðsett
myndina og stillt hermönnunum
upp. Myndasmiðurinn hélt því þó
alltaf fram að myndin væri heimild
um raunverulegan atburð og benti á
að ef um sviðsetningu hefði verið að
ræða hefði hún ekki heppnast eins
vel og raunin varð. Allir þeir sem
urðu vitni að tökunni hafa staðfest
fullyrðingar Rosenthals.
Vegna staðsetningar sinnar var
Iwo Jima talin gegna hernaðarlega
mikilvægu hlutverki í síðari heims-
styrjöldinni, en eyjan liggur í rúm-
lega 1.000 kílómetra fjarlægð frá
Tókýó. Samtals er talið að um 6.800
Bandaríkjamenn hafi látið lífið á
þeim fimm vikum sem orrustan um
eyjuna stóð meðan 21.000 Japanir
börðust því sem næst til síðasta
manns. Eftir mynd Rosenthals var
síðar mótuð bronsstytta sem stend-
ur í dag við Arlington-kirkjugarðinn
í Virginínu þar sem þeir hermenn
bandarískir sem létu lífið í bardag-
anum hvíla.
Þessi sögulegi viðburður stendur
Íslendingum að sjálfsögðu nær eftir
að atburðir þessara tilteknu daga
heimsstyrjaldarinnar voru sviðsettir
á Reykjanesi síðastliðið sumar.
Myndin, sem er óumdeilanlega
kunnust allra mynda frá heimsstyrj-
öldinni síðari, færði Rosenthal
heimsfrægð og hin eftirsóttu Pulit-
zer-verðlaun að auki. Í könnun á
vegum New York-háskóla árið 1999
lenti hún í 68. sæti yfir hundrað
bestu myndir aldarinnar.
Ljósmyndun | Ljósmyndarinn á bak við frægustu mynd heimsstyrjaldarinnar síðari látinn
Vissi fyrst ekki um hvaða mynd allir voru að tala
AP/Joe Rosenthal
Þessa frægustu mynd heimsstyrjaldarinnar síðari tók Joe Rosenthal með
Speed Graphic-myndavél á toppi Suribachi-fjalls á eyjunni Iwo Jima.
AP
Joe Rosenthal fyrir framan Arlington-kirkjugarðinn í Virginíu og minn-
ismerkið um þá bandarísku hermenn sem féllu í orrustunni um Iwo Jima.