Morgunblaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR FRÉTTIR
Mótmæla
málflutningi
um störf lög-
reglumanna
EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur
borist frá Landssambandi lög-
reglumanna sem mótmælir ósann-
gjörnum málflutningi um störf lög-
reglumanna:
„Að undanförnu hefur verið mik-
il umfjöllun um störf lögreglu-
manna við framkvæmd skyldu-
starfa, m.a. við Kárahnjúka. Að
mati Landssambands lögreglu-
manna er sú umfjöllun einsleit og
til þess fallin að draga úr trúverð-
ugleika lögreglumanna og fagstétt-
arinnar í heild sinni.
Við framkvæmd lögreglustarfa
ber stundum við að valdbeiting
verður nauðsynleg. Er þess þá
jafnan gætt að vandlega sé farið að
reglum og í samræmi við þær vald-
heimildir sem lögreglumenn hafa.
Það er mjög óviðkunnanlegt
hversu mjög ýmsir óviðkomandi
aðilar leggja sig fram um að gera
störf lögreglumanna tortryggileg
við þær aðstæður og grafa ekki að-
eins undan starfsheiðri og æru við-
komandi lögreglumanna heldur
gerir öllum lögreglumönnum erf-
iðara að sinna sínum mikilvægu
störfum. Gott dæmi er umfjöllun
einstaklinga í fjölmiðlum í tilefni af
framkvæmd lögreglustarfa við
Kárahnjúka en ýmsir virðast draga
þá ályktun að þau störf, þrátt fyrir
að þau séu framkvæmd á faglegan
hátt, sýni fram á að lögreglumenn
sinni almennt störfum sínum illa
eða að óeðlilegar hvatir búi að baki
framgöngu þeirra. Slík ósönn og
ómálefnaleg umfjöllun skaðar fag-
stétt lögreglumanna í heild sinni
og kemur í veg fyrir að almenn-
ingur fái réttar og eðlilegar hug-
myndir um störf lögreglu og þá
einstaklinga sem þar starfa. Lög-
reglumenn á Íslandi eru afar vel
menntaðir einstaklingar sem hafa
undirgengist erfið og ítarleg próf,
tilheyra vandaðri fagstétt og búa
við mjög mikið eftirlit með störfum
sínum af hálfu yfirmanna, ríkissak-
sóknara og annarra stjórnvaldaog
sinna störfum sínum af fag-
mennsku.“
Fræðslustundir í
Kristniboðssalnum
FRÆÐSLUSTUNDIR með yf-
irskriftinni „Sigur yfir myrkrinu“
verða í Kristniboðssalnum, Háaleit-
isbraut 58–60, dagana 24.–26.
ágúst, í boði Íslensku Kristskirkj-
unnar. Stundirnar verða sem hér
segir: 24. og 25. ágúst kl. 19–22 og
26. ágúst kl. 10–12 og 13–16. Und-
irtitill fræðslunnar er: „Kraftur
þess hver þú ert í Jesú Kristi“.
Meðal annars verður fjallað um:
Von þín um vöxt sem kristinn ein-
staklingur byggir á skilningi þínum
á því hvert þú ert – og – hver sjálfs-
mynd þín í Kristi sem Guðs barn er.
Skráning er á skrifstofu Íslensku
Kristskirkjunnar sími 567 8800 eða
með því að senda tölvupóst á krist-
ur@kristur.is, aðgangur er ókeyp-
is. Kennarar eru Ágúst Valgarð
Ólafsson og Egill Ingi Jónsson.
Keppni hefst í
Áskorendaflokki
ÁSKORENDAFLOKKUR Skák-
þings Íslands hefst á morgun,
föstudaginn 25. ágúst, kl. 18 í
Skákheimilinu, Faxafeni 12. Allir
geta verið með í mótinu en tveir
efstu menn mótsins vinna sér rétt
til þátttöku í landsliðsflokki Skák-
þings Íslands að ári. Tefldar
verða 9 umferðir daglega frá 25.
ágúst til 2. september, samhliða
undanúrslitum í landsliðsflokki.
Skrifstofa Skáksambands Ís-
lands tekur við skráningum í síma
568 9141 kl. 10–13, eða með tölvu-
pósti á netfang siks@simnet.is
Krakkar, eigið þið
göt handa mér? Ó,
nei! Amma var komin
í bæinn og ég hafði
ekkert gat gert á fötin mín frá síð-
ustu heimsókn. Ég var miður mín.
Allir vita að ömmu „á Ljósó“ finnst
ekkert skemmtilegra en að gera við
göt frá barnabörnunum. Því trúði
ég í einlægni fyrstu tíu ár ævi minn-
ar. Ég gerði stundum gat á lítið not-
aðan sokk til þess að amma yrði
ekki fyrir vonbrigðum. Seinna gerði
ég mér grein fyrir því að amma var
kannski bara að reyna að létta und-
ir heimilisstörfin með mömmu.
Amma sagði mér að þegar að-
stæður byðu aðeins upp á orkufrek
hversdagsstörf væri best að hella
sér út í þau og búa til leik úr verk-
efnunum. Hún vann líka vel og allt
sem kom frá ömmu var gott, vandað
og í miklu magni. Sama hvort var:
sulta, flatkökur, kleinuhringir eða
handavinna.
Nýtni og umhyggja ömmu kom
mér sífellt á óvart. Ég komst t.d. að
því að ef maður nuddar nógu lengi
er hægt að ná gömlum pensli hrein-
LILJA
ÁRNADÓTTIR
✝ Lilja Árna-
dóttir fæddist í
Holtsmúla í Land-
sveit 16. ágúst 1926.
Hún andaðist á
heimili sínu í Smá-
ratúni 19 á Selfossi
25. júlí síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Selfoss-
kirkju 3. ágúst.
um, hann þarf ekki
alltaf að mála grænt!
Í pokann utan af
Morgunblaðinu má
lauma kleinuhringj-
um í nesti og afgangs-
garn má hnýta saman
og búa til 100 sokka
og húfur handa Rauða
krossinum, án þess að
hnútur sjáist.
Nýtnin kom mér
líka til góða. Sama
hvaða tískustraumar
voru í gangi átti
amma alltaf eitthvað
nothæft til. Síðast voru það rauð
leðurstígvél og veski. Nú, tveimur
árum eftir að gripirnir komust í
mínar hendur og fimmtíu árum eft-
ir að þeir voru keyptir, gefa þeir
enn tilefni til spurningarinnar „Vá,
hvar keyptirðu þetta?“ sama hvar
ég er.
Elsku amma. Það eru bara tveir
mánuðir síðan við vorum saman öll
fjölskyldan að setja niður kartöflur.
Það var góður dagur. Þú varst kom-
in niður á fjórar fætur um leið og
bíllinn stoppaði við kartöflugarðinn
og settir niður hraðar en allir aðrir.
Langur tími mun líða þar til ég skil
að þú verðir ekki með okkur til að
taka upp í haust. Ég veit að þú fylg-
ist með okkur og afa og eins munum
við hugsa til þín. Ég vona að þú sért
glöð með Ingó frænda og að við hin
sem eftir erum verðum ykkur til
sóma.
Þín
Svanlaug (Svana)
♦♦♦
Útför
AGNARS ÞÓRÐARSONAR
rithöfundar,
verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstu-
daginn 25. ágúst kl. 15.00.
Hildigunnur Hjálmarsdóttir,
Uggi Agnarsson, Margrét Guðnadóttir,
Úlfur Agnarsson, Ásta Briem,
Sveinn Agnarsson, Gunnhildur Björnsdóttir
og barnabörn.
Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR GUÐJÓNSSON,
Sléttuvegi 17,
Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 20. ágúst, verður jarð-
sunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 25. ágúst
kl. 13.00.
Kolbrún W. Guðmundsdóttir, Henry J. Devine,
Sigfús Guðmundsson, Auðbjörg Ögmundsdóttir,
Ástvaldur Guðmundsson, Jórunn Garðarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Dóttir okkar og systir,
LINDA BJÖRG RAFNSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju föstudag-
inn 25. ágúst kl. 13.00.
Anna Margrét Eiríksdóttir, Hafsteinn Helgi Grétarsson,
Rafn Harðarson, Monika Anna Zdun
og systkini.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
föstudaginn 25. ágúst kl. 15.00.
Steinunn Eiríksdóttir, Kristján Róbertsson,
Edda Kristjánsdóttir, W. Duco DeBoer,
Guðlaug Kristjánsdóttir, Kristinn Magnússon,
Eiríkur Gauti Kristjánsson, Þórdís Helgadóttir,
Baldur og Sindri Kristinssynir,
Steinn og Thor DeBoer.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýju við andlát og útför
BRYNDÍSAR GYÐU JÓNSDÓTTUR STRÖM.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigþór Guðjónsson,
Ívar Örn Sigþórsson,
Íris Ósk Sigþórsdóttir.
Ástkær móðir okkar,
ÁSA Þ. OTTESEN,
andaðist mánudaginn 21. ágúst.
Börn hinnar látnu.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
ÞORSTEINN KRISTJÁNSSON,
Efstasundi 22,
Reykjavík,
lést á heimili sínu sunnudaginn 20. ágúst.
Jónína Þorsteinsdóttir, Lárus L. Sigurðsson,
Ágústa Kristín Þorsteinsdóttir, Guðjón Þór Ólafsson,
barnabörn, langafabörn og langalangafabarn.
Helluhrauni 10, 220 Hf.,
sími 565 2566,
www.englasteinar.is
Englasteinar
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella
á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minning-
argreinar ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr-
ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna
skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak-
markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn-
ur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum -
mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að
senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvadd-
ur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda
inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um,
fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn
og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til
að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minn-
ingargreinunum.
Undirskrift Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en
ekki stuttnefni undir greinunum.
Myndir Ef mynd hefur birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minning-
argrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda
hana á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina
vita.
Minningargreinar