Morgunblaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is FYRIR skemmstu flykktust konur í Broadway en þar leiddu drengirnir í Chippendales saman „hesta“ sína á sýningu. Samkvæmt viðtali í Frétta- blaðinu og á fleiri miðlum munu kon- urnar vera komnar til að líta þá dýrð augum er karlmenn bera sig og síð- ast enn ekki síst kasta af sér oki for- tíðarinnar og fjötrum sem við karl- menn munum hafa á þær lagt. Ásamt þeim mun og einnig einstaka kona kasta af sér beisli og múl og æpa og veina frá sér vit og glóru um leið og brjóstahöld og fleira flýgur, svo aftur sé vitnað í einn dansarann í viðtali við Fréttablaðið. Sá maður segir einnig í viðtalinu að drengirnir séu „fæddir til að þóknast konum“. Guð hjálpi þeirri konu sem myndi láta út úr sér „ég er fædd til að þóknast körlum“. Hún yrði líklega fljótt „tekin á beinið“, býst ég við. Ég óska konum þeim sem fara á þessa dansskemmtun til hamingju með það og vona að þær skemmti sér vel og losni við öll höft og ok og beisli en um leið vona ég að þær hugsi til okkar karla sem vilja einnig sjá þær dansa á „stringsinum“ ein- um að þær leyfi slíkt án þess að við þurfum að leita út í ystu myrkur út- hverfa í Kópavogi. Ég gæti vel hugs- að mér eins og væntanlega fleiri að sjá svona sýningu vel vaxinna kvenna í Broadway. Slík sýning myndi jafnvel passa vel á Menningarnótt. ÓLAFUR AUÐUNSSON, jafnréttissinni Kirkjustétt 7, Reykjavík. Einum leyfist, annar ekki má Frá Ólafi Auðunssyni: FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Góð 83 fm 4ra herb. íbúð á 2. hæð í þessum eftirsóttu fjölbýlum. Stofa með útgangi á suðursvalir, eldhús með þvottaherbergi og búri innaf, 3 svefnherbergi í svefn- álmu, lítið sjónvarpshol og flísa- lagt baðherbergi með nýjum tækj- um. Borðaðstaða í eldhúsi. Verð 28,5 millj. Furugerði - 4ra herb. m. suðursvölum Glæsileg 132 fm, 5 herb. íbúð á efstu hæð. Sérsmíðaðar innrétt- ingar, stofa með kamínu, baðher- bergi flísalagt í hólf og gólf og skápar í öllum herb. Fallegt eldhús með eyju. Svalir til suðvesturs með útsýni. Ryksugukerfi og síma- og tölvulagnir í herb. Sérstæði í lokaðri bílageymslu. Verð 33,5 millj. Þorláksgeisli - Glæsileg 5 herb. íbúð Mjög glæsileg og nánast algjör- lega endurnýjuð 4ra herb. 80,4 fm íbúð í Vesturbænum. Íbúðin skipt- ist í 2 rúmgóð herbergi, 2 sam- liggjandi stofur, rúmgott eldhús og baðherbergi. Öll gólfefni eru ný úr eik og mustangsteini, eldhúsinn- rétting er ný og allar lagnir eru nýj- ar eða yfirfarnar. Laus við kaup- samn. Verð 19,9 millj. Seljavegur - 4ra herb. nýuppgerð EF ÞÚ vaknaðir nú ekki upp í fyrramálið, hvar stæði fólkið þitt þá? Hverjar yrðu myndir þess af þér? Þú tekur ekkert með þér þegar þú ferð, en hvað muntu skilja eftir þig? Hver verður ævisaga þín, arfleifðin sem þú skilur eftir þig? Skila hagnaði eða bera ávöxt? Verður þín minnst sem þess sem eyddir tíma þínum í að heimta og hrifsa, græða og skila hagn- aði eða þess sem not- aðir tímann í að gefa af þér og elska? Þess sem bar ávöxt í lífinu, sjálfum þér og þínum til heilla, öðrum samferðamönnum til bless- unar og Guði til dýrðar? „Því hvar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera.“ (Matt. 6:21) Nýtum tímann Nýttu tímann því vel á meðan þú ert því það er of seint þegar þú ert farinn. Nýttu hann til að fegra um- hverfi þitt með gjöfum. Leitastu við að strá fræjum kærleik- ans hvar sem þú ferð. Og þín verður minnst sem þess sem elskaði. Þess sem raunverulega bar umhyggju fyrir fólki. Þá muntu bera ávöxt í lífinu sem mölur og ryð kann ekki að granda. Ávöxt sem var- ir. Boðberar kærleikans Boðberar kærleikans eru jarðneskir englar sem leiddir eru í veg fyrir fólk til að veita umhyggju, miðla ást, fylla nútíðina innihaldi og tilgangi. Þeir veita framtíðarsýn vegna tilveru sinnar og kærleiks- ríkrar nærveru. Þeir eru jákvæðir, þeir styðja, uppörva og hvetja. Þeir sýna hlut- tekningu, umvefja og faðma, sýna nærgætni og raunverulega um- hyggju í hvaða kringumstæðum sem er án þess að spyrja um endurgjald. Hafa slíkir englar orðið á þínum vegi? Veist þú um einhverja slíka? Ert þú kannski einn af þeim? Smitandi kærleikur Kærleikann getur enginn tekið sér eða hrifsað til sín. Hann er gjöf sem má meðtaka og þiggja. Verum opin fyrir kærleikanum. Leitumst við að lifa í honum og finn- um honum farveg svo hann berist áfram og fleiri fái notið hans. Kærleikurinn er tær, hann er heill. Honum fylgir sannleikur og frelsi, umhyggja og umburðarlyndi, von og traust, ábyrgð og agi. Hver verður ævisaga þín? Sigurbjörn Þorkelsson skrifar hugvekju ’Leitastu við að stráfræjum kærleikans hvar sem þú ferð. ‘ Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er rithöfundur og framkvæmdastjóri Laugarneskirkju. HINN 20. júlí birtist grein eftir mig í Morgunblaðinu sem bar heit- ið „Um ímyndaðan andstæðing séra Gunnars“. Þar benti ég á ýmsar (en þó ekki allar) rang- færslur sem komu fram í grein séra Gunnars Jóhann- essonar „Um trú og vísindi“. Löng svar- grein eftir séra Gunn- ar birtist síðan 8. ágúst síðastliðinn und- ir titlinum „Enn um vísindi og trú“. Nú held ég áfram vörnum fyrir Richard Dawkins en einnig sjálfan mig og trúleysi almennt. Séra Gunnar heldur að hann sé að draga eðlilegar ályktanir um skoðanir Dawkins í sínum skrifum, ég held því fram að Gunnar sé að gera Dawkins upp skoðanir. Ég hef þeg- ar bent prestinum á að það væri góð vinnuregla hjá honum að vitna orðrétt í Dawkins þegar hann er að fjalla um skoðanir prófessorsins. Gunnar hefur ítrekað tekið orð Dawkins úr samhengi og ætti því að vanda sig betur. Karl Sigurbjörnsson biskup sagði nýlega að Richard Dawkins héldi því blákalt fram að trúar- brögð séu rót alls ills. Þetta er ósatt og Karl væri meiri maður ef hann bæði Dawkins afsökunar á þessum orðum sínum. Dawkins hefur orðrétt sagt að trúarbrögð séu ekki rót alls ills enda væri slík staðhæfing fáránleg. En kirkjunnar menn virðast ekki eiga önnur svör við málflutningi Dawkins en þau að gera honum upp skoðanir. Það sýn- ir kannski best að Dawkins er að hitta í mark. Þessi nauðvörn þjóð- kirkjumanna ber vott um rökþrot. Gunnar tengir gyðingaofsókn- irnar við félagslegan Darwinisma (sem hann kallar af einhverjum ástæðum sósíalískan Darwinisma). Það er alveg rétt að ýmsir vís- indamenn voru á villigötum á þess- um tíma en það er ekki hægt að kenna gölluðum fræðum um að hafa æst nærri því heila þjóð upp í gyðingahatur. Gyð- ingahatrið í Þýska- landi var líka mun eldra en félagslegur Darwinismi. Í framhaldi af um- ræðu um Helförina heldur Gunnar því fram að „Hitler og flestir nasistar [hafi verið] guðleysingjar og andsnúnir krist- indómi“. Sjálfur sagði Hitler í bók sinni Mein Kampf: „[…] í dag trúi ég því að ég vinni í samræmi við vilja hins al- máttuga skapara: með því að verja mig gegn Gyðingunum er ég að berjast fyrir Drottin.“ Það skiptir samt meira máli hverjar trúarskoð- anir Þjóðverja voru almennt. Ég vitna í upphaflegu grein mína „[þ]að er okkur nær óskiljanlegt að hægt sé að æsa nær heila þjóð upp í að styðja ofsóknir gegn nágrönn- um sínum en ef við horfum til þess að trúarleiðtogar, bæði mótmæl- enda og kaþólskra, höfðu undirbúið jarðveginn í margar aldir þá skilj- um við ofstækið betur.“ Séra Gunnar telur gyðingahatur alls ótengt kristni en staðreyndin er sú að ofsóknir gegn gyðingum hafa í gegnum tíðina verið réttlættar með tilvísunum í Nýja testamentið. Þá sérstaklega í Matteusarguðspjall þar sem gyðinga“lýðurinn“ segir „[k]omi blóð hans [Krists] yfir oss og yfir börn vor!“. Staðreyndin er sú að trúarbrögð (allavega kristni) er auðvelt að nota til þess að fá fólk til að fremja illvirki. Það er óviðunandi fórnarkostnaður. Þegar Gunnar ræðir um skil- greiningar á trúleysi kemur hann nokkuð reglulega með undarlegar staðhæfingar sem oft virðast ekki í neinu samhengi við fyrri orð hans. Ég ætla að svara nokkrum atriðum hér þó að ég hafi þegar svarað flestu mjög vandlega í grein á vef- ritinu Vantrú sem heitir „Lífssýn eða trú“. Presturinn skilur ekki skilgreiningar mínar á trúleysi annars vegar og guðleysi hins veg- ar. Guðlaus maður trúir ekki á guð. Trúlaus maður hefur sömu afstöðu og guðlaus maður til guða en bætir um betur og trúir ekki á nein yf- irnáttúruleg fyrirbrigði. Allir trú- lausir menn eru guðlausir. Guð- lausir menn geta trúað á álfa en trúlausir menn ekki. Þegar ég segi að við Dawkins skilgreinum trúleysi á svipaðan hátt þá virðist Gunnar halda að ég sé þá að nota orðið trúleysi sem þýðingu á orðinu atheism. Það er bara rangt. Á ensku væri orðið trúleysi non-belief. Dawkins er non-believer og hann er líka at- heist á sama hátt og ég er guðleys- ingi og trúleysingi. Maður sem er non-believer er sjálfkrafa atheist eins og sá sem er trúlaus er sjálf- krafa guðlaus. Þegar ég bendi Gunnari á að hann aðhyllist hlaðborðskristni þá segir hann að ég virðist vilja helst gera hann að íhaldssömum bók- stafstrúarmanni. Að sjálfsögðu er það ekki vilji minn. Ég myndi vilja gera hann að stoltum og góðum trúleysingja sem skilur að Biblían er með öllu óþörf. Gunnar er kom- inn hálfa leið með því að skilja að siðferði Biblíunnar megi ekki taka hrátt upp og stendur þar með framar bókstafstrúarmönnum. Nú þarf hann bara að taka eitt skref í viðbót til að hætta að nota Biblíuna alveg. Það er óþarfi að hafa þetta mikið lengra. Þeir sem vilja kynna sér skoðanir Dawkins á hinum ýmsu málefnum er bent á að lesa greinar hans og bækur (Gunnar og Karl mættu líka gera það). Fólk ætti að minnsta kosti ekki að treysta á túlkanir þjóðkirkjumanna á mál- stað hans, þar er lítinn sannleika að finna. Úr samhengi séra Gunnars Óli Gneisti Sóleyjarson skrifar um trúmál ’Gunnar er kominn hálfaleið með því að skilja að siðferði Biblíunnar megi ekki taka hrátt upp og stendur þar með framar bókstafstrúarmönnum.‘ Óli Gneisti Sóleyjarson Höfundur sat í skipulagsnefnd ráðstefnunnar Jákvæðar raddir trúleysis. ÞAÐ er margt óskýrt í ákvörðun Lífeyrisstofu að svipta 2.300 manns lífeyrissréttindum eða skerða lífeyri þeirra. Í bréfi þeirra til sjóðfélaga frá 28. júlí sl. er hvergi vitnað til laga sem skýra þessa ákvörðun. Hér skal bent á að réttindi þau sem menn eiga í lífeyrissjóðum, helgast af greiðsluskyldu sem komið var á með lögum. Þess vegna er augljóst að þarna er um að ræða lögvarin réttindi sem ein- ungis verða afnumin með lagafyr- irmælum. Skv. 72. grein laga 33/1944 þ.e. stjórnarskrárlaga er eignarréttur friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema al- menningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir. Inneign sjóðsfélaga og rétt- indi geta ekki gufað upp. Aðrir lífeyrissjóðir hafa ekki tekið þessa sömu ákvörðun um sviptingu eða skerðingu. Ég hef aðeins getað skoðað einn annan og þar skiptir ekki máli hvort greiðslur séu hærri nú en fyrir greiðslutöku. Það vekur óneitanlega athygli að upphæðin sem miðast við fyrstu greiðslur úr sjóði Lífeyr- isstofu er alls ekki framreiknuð að núvirði, þannig að samanburður við tekjur sl. árs er á engan hátt raunhæfur. Þegar litið er til þessa minnist maður 65. greinar laga 33/1944 um að allir skuli jafnir fyrir lögunum án tillits til efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Reglur lífeyr- issjóða hljóta að eiga að gilda jafnt fyrir alla, ekki bara þá verst settu. Svona fyrirvaralítil svipting er alvarlegt mál fyrir fjölda manna sem vegna örorku sinnar geta á engan hátt varið sig. Í fyrsta lagi verður sjóðurinn að skýra mál sitt með lagarökum. Í öðru lagi verður sjóðurinn að veita sjóðfélögum upplýsingar um ið- gjöld og lífeyrisréttindi samkvæmt reglum hvers sjóðs, sbr. 7. grein 91/1980. Þegar ég var barn las ég í Biblí- unni að frá þeim sem ekkert hafa, skal tekið verða. Nú loks við lest- ur bréfsins frá 28/7 skildi ég þessi orð. ERNA ARNGRÍMSDÓTTIR, Sólvallagötu 35, Reykjavík. Frá þeim sem ekkert hafa … Frá Ernu Arngrímsdóttur:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.