Morgunblaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 36
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
KALLI
EIGNAÐIST
SYSTUR Í
GÆR-
KVÖLDI
ÞAÐ ER ALLT BÚIÐ AÐ
VERA Á FULLU SÍÐAN Á
MIÐNÆTTI Í
GÆR
SÍMINN HEFUR EKKI
HÆTT AÐ HRINGJA OG
MARGIR HAFA KOMIÐ Í
HEIMSÓKN
EN
ENGINN
GEFUR
MÉR AÐ
BORÐA
PLÁNETAN MERKÚR VAR
NEFND EFTIR RÓMVER-
SKUM GUÐI SEM VAR MEÐ
VÆNGI Á FÓTUNUM
HANN VAR GUÐ BLÓMA
OG VEISLUHALDA OG ÞVÍ
ER HANN SKRÁSETT
VÖRUMERKI
BLÓMAVALS
EN AF HVERJU EINHVER
NEFNI PLÁNETU EFTIR
ÞESSUM GAUR, VEIT ÉG EKKI
...OG YFIR
TIL ÞÍN
SIGGA
ÉG ÞARF AÐ FARA HEIM OG
HJÁLPA HELGU MEÐ ÞRIFIN
Á MEÐAN HÚN
SKRÚBBAR
GÓLFIN...
...ÞÁ BENDI ÉG
HENNI Á BLETTI
SEM HÚN
MISSTI AF
HA, HA,
HA. HVAÐ
GERIR ÞÚ?
ÞAÐ ER SVO
DIMMT HÉRNA INNI.
ER EINHVER LEIÐ AÐ
KVEIKJA LJÓSIÐ
HÉRNA INNI
HÉRNA ER
TAKKI!
Æ,Æ, HVAÐ Á
ÉG AÐ SEGJA
MÖMMU?
KANNSKI
TEKUR HÚN
EKKI EFTIR
ÞESSU
VIÐ ÆTLUM
AÐ TAKA TIL Í
DAG OG ÞIÐ
ÆTLIÐ AÐ
HJÁLPA
FÁUM
VIÐ EITT-
HVAÐ
BORGAÐ?
EF ÞIÐ
STANDIÐ
YKKUR VEL
FÁIÐ ÞIÐ
300 KR.
300
KR.? EKKI
MEIRA
?
MAMMA
ER
ÓSANNGJÖRN!
VIÐ VILJUM
SANNGJÖRN
LAUN!
SVONA NÚ, SÝNDU
NASHYRNINGA TAKTANA ÞÍN
SJÁLF-
SAGT MÁL
SMILEY GLÆSI-
LEGT!
HONUM
FINNST
ÞETTA
GLÆSI-
LEGT!
BÍDDU BARA
ÞANGAÐ TIL ÞÚ
SÉRÐ ALVÖRU
NASHYRNINGINN
Dagbók
Í dag er fimmtudagur 24. ágúst, 236. dagur ársins 2006
Víkverji fór á blintstefnumót um
daginn. Svo blint að
hann vissi ekki hvað
hinn aðilinn hét fyrr
en á stefnumótið kom.
Víkverji hefur yfirleitt
verið með fordóma
gagnvart stefnumót-
um og gert allt sem í
hans valdi stendur til
að forðast þau en nú
er svo komið að vinir
Víkverja eru komnir
með nóg af einhleyp-
ingslífi hans og eru
statt og stöðugt að
reyna að koma honum
saman við vini, kunningja, ættingja
og vinnufélaga. Víkverji hefur látið
til leiðast og farið á nokkur stefnu-
mót til að halda vinunum góðum. En
hann hefur yfirleitt mætt með ólund
á slík mót og farið á þau til að þókn-
ast öðrum. Með því hugarfari mætti
Víkverji einmitt á þetta staurblinda
stefnumót um daginn. Hinn aðilinn
var mættur á staðinn og virtist hinn
ágætasti þó að Víkverji hafi fussað
og sveiað yfir honum í huganum og
ákveðið að gefa nú ekki færi á sér;
var hinn kaldasti, yfirheyrði hinn
aðilann eins og glæpamann, sagði
sem minnst frá sjálfum sér og stökk
ekki bros. Þegar Víkverja fannst
hann hafa eytt nægum
tíma í þessa vitleysu
sagði hann „jæja“,
kvaddi með ákveðnu
handabandi og hélt
heim á leið og gat þá
loksins farið að anda
léttar.
Eftir á fór Víkverji
að hugsa hvers vegna
hann hefði þessa for-
dóma gagnvart stefnu-
mótum því þau eru í
raun og veru sniðugt
fyrirbæri. Það er
miklu sniðugra að
hitta manneskju yfir
kaffibolla eða mat-
ardiski, ræða við hana af viti og sjá
hvort eitthvert framhald geti orðið á
heldur en að fara íslensku leiðina
sem er að blikka einhvern yfir bar-
borðið. Flestir geta haldið uppi sam-
ræðum við ókunnuga í smátíma
þannig að það er ekkert svo hræði-
legt að fara á stefnumót auk þess
sem ef enginn frekari áhugi er fyrir
nánari kynnum þá nær það bara
ekkert lengra og ekki þarf að taka
það persónulega.
Svona eftir á að hyggja finnst
Víkverja stefnumót bara sniðug og
hefur ákveðið að opna huga sinn fyr-
ir þeim þ.e. ef hann nennir að standa
í því að fara á fleiri slík í framtíðinni.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Börn | Grunnskólarnir á Akureyri eru byrjaðir og mikið fjör í frímínútum í
Glerárskóla. Gulur, rauður, grænn og blár. Kannski feluleikur, og sá sem
faldi sig hafði ekki þolinmæði til þess að bíða og kíkti því út úr fylgsninu?
Hver veit, frímínúturnar þykja jú eflaust alltaf dálítið stuttar.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Skólinn byrjaður
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569
1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Daníel tók til máls og sagði: „Lofað verði nafn Guðs frá ei-
lífð til eilífðar, því hans er viskan og mátturinn.“ (Daníel 2, 20.)