Morgunblaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 43 Sýnd kl. 6, 8 og 10.15 B.i. 16 ára -bara lúxus Sími 553 2075 Sýnd kl. 6 og 9 B.i. 16 ára COLIN FARRELL JAMIE FOXX ACADEMY AWARD WINNER FRÁ MICHAEL MANN LEIKSTJÓRA “COLLATERAL” OG “HEAT” SVALASTA SPENNUMYND SUMARSINS eee Tommi - kvikmyndir.is eee HJ - MBL eee LIB - TOPP5.IS EITRAÐAS TI SPENNUTR YLLIR ÁRS INS S.U.S XFM 91.9 400 KR. Í BÍÓ * * Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu Frábær gamanmynd með íslandsvininum John C. Reilly sem sló svo eftirminnilega í gegn í Þjóðleikhúsinu. Sími - 551 9000 Útvarp einsog þú hefur aldr ei upplifað þa ð áður eeeee H.J. Mbl 3,75 af 4 Ó.T. Rás 2 Mögnuð spennu mynd í anda „ 24“ Sýnd kl. 6 ÍSL. TAL Snakes on a Plane kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 16 ára A Praire Home Company kl. 5.45, 8 og 10.15 Ástríkur og Víkingarnir kl. 6 Silent Hill kl. 8 og 10.40 B.i. 16 ára The Da Vinci Code kl. 10.10 B.i. 14 ára Click kl. 5.50 og 8 BRESKAR fantasíur fyrir börn, hafa reynst happadrjúgar á hvíta tjaldinu, bæði hvað snertir aðsókn og skemmtanagildi. Skemmst er að minnast myndanna Töfralandið Narnía, Ljónið, nornin og skáp- urinn (The Chronicles of Narnia, The Lion, the Witch and the War- drobe), e. C.S. Lewis, og varð ein mest sótta myndin á síðasta ári. Five Children and It er byggð á samnefndu ævintýri eftir skáld- konuna E. Nesbitt (The Railway Children) og eiga þessi verk margt sameiginlegt. Börnin fimm eru send út á land á stríðstímum (í myndinni er eru það ár fyrri heimsstyrjaldarinnar), og holað niður hjá Albert frænda (Bra- nagh), leiðinda durt sem er ekki til að bæta upp á ástandið hjá hornrekunum, krakkahópnum. Það gerir hann hinsvegar, Sandálf- urinn (Psammead), ljóti (Izzard), sem fimmmenningarnir finna á leyniströnd. Framhaldið er ósvikin töfra- saga, Sandálfur uppfyllir óskir barnanna og í kaupbæti fáum við dálitla siðferðispostillu, það dugar skammt því úrvinnslan er lítið augnayndi og handritið blóðlaust. Highmore, sem fer fyrir barna- hópnum, stóð sig firnavel í Find- ing Neverland og Charlie and the Chocolate Factory, hér fær hann ekki við neitt ráðið. Fær daprar línur líkt og hin börnin og upp- skeran eftir því. Ekki lífgar Bra- nagh upp á hópinn, það er helst að Izzard takist að kreista fram bros hjá ungum áhorfendum. Hann ljær Sandálfinum rödd sína, en fyrirbrigðið er hannað af Jim Henson (sem gerði mun betur með Prúðuleikarana á sínum tíma.) Það sem vantar upp á í Five Children & It, er fyrst og síðast fyndnara handrit og aðeins flinkara kvikmyndagerðarfólk. Ég hef að vísu ekki lesið ævintýrið hennar Nesbitt, en hún er einn frægasti barnabókahöfundur allra tíma og örugglega ekki við hana að sakast um andleysið. Sandálfur, en enginn Gandálfur KVIKMYNDIR Sambíóin Leikstjóri: John Stephenson. Aðalleik- arar: Freddie Highmore, Eddie Izzard, Kenneth Branagh, Zoe Wanamaker, Jonathan Bailey, Jessica Claridge, Poppy Rogers, Tara Fitzgerald. 90 mín. Frakkland/Bretland/Bandaríkin 2004. Five Children & It  Sæbjörn Valdimarsson PÉTUR Ben heldur í kvöld útgáfu- tónleika í Iðnó. Fyrsta plata hans, Wine for my weakness, kemur út hjá 12 Tónum í dag og er komin í verslanir. Eins og segir í frétta- tilkynningu frá 12 tónum hefur Pét- ur „verið áberandi í íslensku tónlist- arlífi undanfarin ár og er plötunnar beðið með mikilli eftirvæntingu“. „Þetta er bara rokkmúsík,“ segir Pétur þegar blaðamaður biður hann að skilgreina tónlistina. „Allskonar rokk og ról. Svolítið blúsdrifið en samt „í dag“. Ég er búinn að vera að hlusta mikið á Bob Dylan, PJ Harvey, Tom Waits, Neil Young, Radiohead og alls konar nýtt dót. Platan er svona blanda af öllu þessu. Hún er mjög fjölbreytt: ró- leg á köflum, nánast bara með kassagítar, útsetningum og strengj- um alveg út í að vera „hardcore“. Meðal við innri baráttu Ég sæki oft í að hlusta á, fyrir ut- an Radiohead sem ég hef lengi hlustað á, eitthvað sem mig vantar. Sérstaklega í seinni tíð eru það textar, en þá fer ég til dæmis í Dyl- an til að fatta hvað það er sem gerir textana hans svona góða. Og svo reyni ég bara að gera mitt besta í því, þótt það sé síðan smekksatriði hvernig maður nær því. Allavegana reynir maður að miða sig við þá bestu.“ Platan inniheldur 11 lög sem eru öll eftir Pétur en hann semur einnig textana. Spurður um titilinn á plötunni, Wine for my Weakness, segir Pétur: „Platan inniheldur trúarlegar skírskotanir. Ég er að fjalla um innri baráttu og platan er einhvers konar meðal við henni; vín sem veikir veikleikann.“ Textar Péturs fjalla að hans sögn um ýmsa uppdiktaða karaktera og alvöru karaktera. „Ég leyfi mér ákveðið skáldaleyfi í textum, þessi „ég“ sem textarnir fjalla um eru ekki allt ég sjálfur en sumt af því, og fólk verður bara að ákveða það fyrir sig hvar er ég að skálda og hvar ekki. Þannig gerir maður list held ég,“ segir Pétur og hlær. „Með því að óskýra mörkin milli veruleika og draumveruleika.“ Eitt lagið er samið í kringum karakter í bíómyndum sem ég gerði tónlist við, myndirnar Börn og for- eldrar eftir Ragnar Bragason og Vesturport. Lagið heitir „Alone“ og fjallar um mann sem stendur í skilnaði og upplifir sig einan og finnst hann vera ömurlegur. Börn verður einmitt frumsýnd í byrjun september og ég er mjög stoltur af þessum verkefnum og er búinn að leggja lungann af árinu í þessar myndir. Síðan er á plötunni eitt lag sem ég samdi til dóttur minnar. Það heitir „I’ll be here“ og er mjög ró- legt, bara kassagítar en mikið út- sett.“ Fjölmargir tónlistarmenn koma fram á tónleikunum í kvöld. Anna Kristín, kona Péturs, mun syngja bakraddir, Sigtryggur Baldursson leikur á trommur, Hannes Pét- ursson á slagverk, Óttar Sæmund- sen á bassa og Þorbjörn Sigurðsson syngur einnig bakraddir og spilar á hljómborð og gítar. Þau koma öll við sögu á Wine for my weakness. „Ég ætla mér að fylgja plötunni eftir en ég er ekki búinn að bóka neitt ennþá. Ég verð allavegana á Iceland Airwaves með bandið. Svo langar mig líka að gera aðra plötu en vinna hana öðruvísi. Mig langar að nýta námið meira, en ég lærði tónsmíðar við Tónlistarskól- ann í Reykjavík. Mig langar til dæmis að vera með kammersveit og gera eitthvað kreisí.“ Tónlist | Pétur Ben gefur út sína fyrstu plötu Wine for my weakness „Maður reynir að miða sig við þá bestu“ Tónleikarnir hefjast kl. 22. Húsið opnar kl. 21 og aðgangseyrir er 1000 kr. Eftir Hjálmar S. Brynjólfsson hsb@mbl.is „Þannig gerir maður list held ég: með því að óskýra mörkin milli veruleika og draumveruleika,“ segir Pétur. Meðfram plötunni vann hann að kvik- myndatónlist fyrir myndirnar Börn og foreldrar eftir Ragnar Bragason. STÓRTÓNLEIKAR Björgvins Halldórssonar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru handan við hornið og miðasalan hefst á morgun kl. 10. Tónleikarnir fara fram í Laugardalshöll 23. september. Salan fer fram á www.midi.is, www.bravo.is, í verslunum Skífunnar og verslunum BT á Ak- ureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Það er líka hægt að nálgast miða í síma 580-8020. M12 áskrifendur Stöðvar 2 njóta sérkjara, en forsala fyrir þá mun fara fram í dag. Hún hefst einnig kl. 10 á sömu sölustöðum. Það verður aðeins um þessa einu tónleika að ræða, og eingöngu selt í númeruð sæti. Björgvin hefur verið farsæll söngvari, laga- höfundur, upptökustjóri og hljómplötuframleið- andi. Hann mun á tónleikunum flytja brot af því besta af löngum ferli sínum ásamt Sinfón- íuhljómsveit Íslands, Fóstbræðrum, Hljómsveit Björgvins, bakröddum og nokkrum lands- þekktum gestum. Sérstaklega verður vandað til tónleikanna og það er gaman frá því að segja að Björgvin var kjörinn poppstjarna Íslands í Laugardalshöll í september 1969, og stígur nú aftur á það sama svið í Höllinni. Tónlist | M12 áskrifendur geta keypt miða í forsölu á tónleika Björgvins Miðasala á stórtónleikana að hefjast Morgunblaðið/Sverrir Björgvin Halldórsson mun m.a. njóta fulltingis Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Fóstbræðra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.