Morgunblaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Á NÆSTA ári eru nákvæmlega 100 ár liðin frá því fyrst voru sett Lög um skógrækt og varnir gegn uppblæstri lands, 22. nóv. 1907. Þessi fyrri lög um skógrækt voru ein- ungis 5 greinar og voru fyrst og fremst lagagrunnur fyrir stjórnun skógrækt- armála. Veturinn 1954–5 voru þessi gömlu skógræktarlög endur- skoðuð, þau færð að nokkru leyti til nú- tímahorfs enda hafði orðið til nokkur þekk- ing og reynsla af skógrækt þegar þá var komið sögu. Inn í þessi núgildandi skógræktarlög, sem bera númerið 3/1955, voru illu heilli sett umdeild ákvæði um skyldu skógareiganda að reisa fjárhelda girðingu um land sitt. Fram að gildistöku þessara laga gilti mjög forn germanskur réttur sem kveður á um ábyrgð eiganda búfjár á tjóni sem búsmali hans kann að valda. Skógræktarmenn tóku þessu í fyrstu þegjandi en reynsla þeirra síðan hefur yfirleitt verið mjög slæm af viðskiptum skógareigenda við sauðfé og bændur. Girðingarákvæðin í skógrækt- arlögunum eru allt að því ótrúlega smásmuguleg, einkum 16. og 17. gr. sem ættu að vera þingmönnum nútímans þörf lesning lagatexta sem hefur verið tekinn góður og gildur í meira en hálfa öld. Þar kemur augljóslega fram hvernig ekki má bjóða þjóðinni upp á lausn þegar hagsmunaárekstur tveggja andstæðra sjónarmiða blasir við. Almennt séð á að vera unnt að treysta því, að lagatextinn sé auð- skilinn öllu venjulegu fólki og að hann sé sanngjarn gagnvart þeim aðilum sem málið varðar. En þarna er öðru nær. Ábyrgð og kostnaður skógareigandans er alfarið lagður á hann en sauð- fjárbóndinn er alltaf ábyrgðarlaus gagnvart nagandi eðli sauðfjár síns þegar það sækir sér allt sem því finnst mest lost- æti. Stundum halda engar girðingar sumu sauðfé hversu vel sem frá þeim er gengið og þá kunna góð ráð að reynast dýr. Helgina 25.–27. ágúst nk. verður hald- inn aðalfundur Skóg- ræktarfélags Íslands í Hafnarfirði. Marg- sinnis hefur lausa- göngu sauðfjár borið á góma á þeim vettvangi og er þetta málefni orðið að n.k. „eilífð- armáli“ þar sem engin sjáanleg lausn er í sjónmáli. Fjölmargar ályktanir og tillögur hafa verið samþykktar á und- anförnum áratugum og stjórn Skógræktarfélags Íslands síðan sent stjórnvöldum með frómri ósk um að á þessu „styrjaldarástandi“ við íslenskt sauðfé mætti finna haganlega lausn. En það er eins og flest mál heims séu þýðingarmeiri en þetta litla baráttumál: að við sem leggj- um stund á skógrækt, fáum að búa við áþekkt lagaumhverfi og önnur starfsemi í landinu? Við erum búin að horfa upp á tugi ef ekki mörg hundruð þúsund ungra trjáplantna sem í dag væru að öllu óbreyttu stór og stæðileg tré hefðu þau ekki lent í bernsku sinni í íslenskum rollukjafti. Nú hyggjumst við nokkrir skóg- areigendur leggja fram tillögu að áskorun til aðalfundarins sem við ætlumst til að stjórn Skógrækt- arfélags Íslands beini síðan til Al- þingis Íslendinga: að kaleikur hálfrar aldar ranglætis gagnvart okkur skógræktarfólki verði frá okkur brottnuminn og við fáum að stunda okkar merka ræktunastarf óáreitt fyrir sísvöngu sauðfé ís- lenskra bænda sem stundað hefur ókeypis fæðuöflun sína úr íslensku skógunum allt of lengi. Við viljum að lagaumhverfi skógræktar verði fært betur að nútímaháttum eins og meðal allra siðmenntara þjóða en ekki þar sem þessi óhefti ósýnilegi beit- arréttur íslenskrar sauðkindar í skógunum hefur fengið að vaða uppi hvar sem sauðféð hefur feng- ið að bera niður. Við viljum helst af öllu banna eða takmarka mjög lausagöngu sauðfjár enda ættu sömu reglur að gilda um sauðfé landsmanna sem og annað búfé bænda, hesta, kýr og svín. Nokkur sveitarfélög hafa nú þegar bannað lausagöngu sauð- fjár, t.d. Mosfellsbær. Má því segja að þegar sé búið að grafa undan þessum arfavit- lausu og ranglátu lagagreinum um fjárheldu girðingarnar um skóg- ana okkar. Hagstætt lagaumhverfi er nauð- synlegt allri starfsemi í landinu eigi hún að geta þrifist og dafnað og er skógrækt á Íslandi engin undantekning frá því. Það er ósk mín og von að um okkar íslenska samfélag megi fara ný skógræktaralda þar sem fleiri sjái sér ástæðu og tilgang að taka þátt í þessu merka starfi sem skógræktin er. Takmörkum lausa- göngu sauðfjár Guðjón Jensson skrifar um skógrækt og lausagöngu sauðfjár ’… og við fáum að stunda okkar merka ræktunarstarf óáreitt fyrir sísvöngu sauðfé íslenskra bænda …‘ Guðjón Jensson Höfundur er skógareigandi, starfar við bókasafn Iðnskólans í Reykjavík og er leiðsögumaður nokkrar vikur á sumrin. BRÁTT líður að því að hinir níu þingmenn sem skipa mennta- málanefnd Alþingis hittist eftir sumarleyfi og líti yfir fyrirliggj- andi verkefni. Eitt af skylduverkum nefnd- arinnar er að gera árlega tillögu til Al- þingis um skiptingu heiðurslauna lista- manna. Þótt ekkert ákvæði um heiðurslaun sé í núgildandi lögum um listamannalaun hefur leiðarljós Alþingis við veitingu þeirra að jafnaði verið það að sá listamaður sem telst þessa heiðurs aðnjótandi eigi að baki ötula starfsævi við listsköpun og þyki hafa náð framúrskar- andi árangri á sínu sviði. Fyrir utan list- ræna landvinninga er gjarnan horft til þeirra viðurkenninga hérlendis og erlendis sem listamanninum hefur hlotnast og iðulega hefur nefndin einnig haft bakvið eyrað að listamaðurinn sé kominn á eftirlaunaaldur eða styttist í starfslok, þótt ekki sé það algilt. Menn geta haft misjafna skoðun á heiðurslaunum listamanna eða hvernig skipta á þeim milli list- greina, en að mínu mati er það tæpast menningarríki sem ekki hlúir að þeim sem stritað hafa í þágu listarinnar alla sína ævi og orðið betur ágengt en öðrum, þótt sjaldnast sé árangurinn sýnilegur í digrum sjóðum. Um 25 valinkunnir listamenn hafa verið á listanum undanfarin ár og þótt dauðinn hafi grisjað hann annað slagið hefur ekki reynst sérlega vandasamt að fylla í skörðin. Á seinasta þingi var lögð fram tillaga um að listamönnunum yrði fjölgað í allt að 40 og viðmið- unarreglur yrðu settar um hverjir þar kæmu til álita og hvaða kjör þeim ætti að búa, en sú ágæta til- laga hefur ekki enn náð braut- argengi. Núverandi upphæðin er smánarleg, var rúmlega 130 þús- und krónur á mánuði seinast þeg- ar ég sá um málið fjallað, eða rúm- lega klukkustundarkaup forstjóra eins íslenska fjárfestingarbankans, miðað við að sá ágæti maður skili um 250 vinnustundum á mánuði. En burtséð frá samanburði við við- skiptalífið, sem hlýtur alltaf að vera menningarlífinu í óhag þegar launakjörin eiga í hlut, er þó ljóst að fyrir listamenn sem ríða sjaldn- ast feitum hestum munar um þess- ar fáeinu krónur. Enn frekar þeg- ar hillir undir lok starfsævinnar. Einn er sá maður sem marg- sinnis hefur borið á góma þegar tilnefningar til heiðurslauna lista- manna eru rædd, þ.e. Sigurður A. Magnússon rithöfundur. Fjarvera hans af þeim lista hefur þótt svo æpandi að fyrir fáeinum misserum sá hópur manna ástæðu til að safna undirskriftum þungavigt- armanna- og kvenna þar sem skor- að var á menntamálanefnd að gera þar á bragarbót. Því miður bar þá- verandi nefnd ekki gæfu til að taka tillit til þeirrar áskorunar. Sigurður er nýlega orðinn 78 ára gamall þótt tæpast megi greina það á andlegu eða lík- amlegu atgervi hans. Hann á að baki langa starfsævi í þágu list- arinnar og afköst hans eru með af- brigðum. Dugnaður hans og ósér- hlífni á þeim vettvangi eru með fádæmum, nánast sama hvar borið er niður. Frá því fyrsta bók hans, ferðasagan Grískir reisudagar, kom út fyrir ríflega hálfri öld hef- ur hann skrifað skáldsögur, ljóð, leikrit, ferðasögur, endurminn- ingabækur, greinasöfn og bækur um íslenska hestinn. Þessi afköst myndu flestir telja nægja að minnsta kosti tveimur lífum, en Sigurður virðist hafa lifað fleiri líf því að auki hefur hann þýtt á ís- lensku stórvirki eftir bókmenntalega jöfra á borð við H.C. And- ersen, Bertolt Brecht, Gíorgos Seferis, Pan- delis Prevalakis, Walt Whitman, James Joyce (þýðing hans á Ódysseifi er afrek), Nagíb Mahfúz, Kazuo Ishiguro, John Fowles og Ernest Hem- ingway. Ekki slæmur listi það. En lífin virðast hafa verið enn fleiri einsog ótal margir pistlar hans um menningar- og þjóðfélagsmál, leik- og ritdómar bera vitni um, og mörg skrif hans önnur hafa verið merkilegt krydd í suðupotti menningar- innar og borið því vitni að þar býr ein- læg ástríða að baki. Óþreytandi vinna hans við að kynna Íslend- ingum undur Grikklands er svo efni í langan bálk. Þess má einnig geta að Sigurður var fyrsti for- maður Rithöfundasambands Ís- lands og hefur unnið ötullega að félagsmálum stéttarinnar og í þágu margvíslegra annarra mál- efna, enda hugsjónakraftur hans víðfrægur. Í ævisöguskrifum sín- um hefur Sigurður gengið nær sjálfum sér og sumum samferð- armönnum sínum en nokkur annar hérlendur rithöfundur, og er skefjalítil hreinskilni hans í eigin garð í senn aðdáunarverð og óvænt. Skoðunarleysi og hálfkák er honum framandi og á svo sann- arlega að virða honum til tekna á tímum þegar miðjumoð og hug- leysi ríkja iðulega í opinberri um- ræðu. Hann er með öllu fráhverfur þjónkun við valdhugsun og verður lengi minnst fyrir einarðlegt andóf gegn hvers kyns þrengingum að mannréttindum. Ástráður Ey- steinsson, prófessor í bókmennta- fræði, segir í formála ræðu- og rit- gerðasafns Sigurðar, Í tíma og ótíma (1998) að hann sé rithöf- undur og menntamaður sem „læt- ur eldmóðinn kynda undir gagn- rýnni hugsun, þorir að eiga sér hugsjónir en tekur jafnframt sjálf- stæða og óflokksbundna afstöðu í þjóðþrifamálum“. En heiðurslaun eru ekki veitt fyrir gallharðar skoðanir eða bar- áttu í þágu mannréttinda eða ann- arra þeirra málefna sem Sigurður hefur stutt ötullega, þar er aðeins horft til framlagið til íslenskrar menningar. Ég leyfi mér að vitna aftur í öndvegisgrein Ástráðs um Sigurð: „Hann er ekki aðeins á meðal fremstu rithöfunda landsins heldur er hann sem fyrr segir rit- höfundur í víðri merkingu sem telja má tímabæra. Ferill hans er áminning um að merking bók- mennta verður til í allri miðlun þeirra og tengist gjörvöllu vafstri okkar sem einstaklinga og fé- lagsvera á víðum velli. Með orðum sínum minnir hann á að bók- menntir eru ekki aðeins list orðs- ins heldur líka list samfélagsins, knúin áfram af trúnni á manns- andann.“ Og eins og fyrrnefnd upptalning, þótt ekki sé hún tæmandi, ber vitni hefur Sigurður verið ham- hleypa til flestra verka á menning- arsviðinu. Ég skora hér með á menntamálanefnd Alþingis að veita Sigurði A. Magnússyni verð- skuldaðan sóma. Sóma fyrir Sigurð Sindri Freysson skrifar um heiðurslaun listamanna Sindri Freysson ’Sigurður A.Magnússon hef- ur verið ham- hleypa til flestra verka á menn- ingarsviðinu.‘ Höfundur er rithöfundur og blaða- maður. ÁRÓÐURINN gegn Íbúðalána- sjóði heldur áfram með auknum þunga. Sérfræðingar ýmissa fjár- málastofnana, innlendra sem er- lendra, koma fram í fjölmiðlum og hamra á því að starfsemi Íbúða- lánasjóðs „hamli virkni peninga- málastefnu Seðla- bankans“. Íbúðalánasjóður er gerður einn að- almeinvætturinn í ís- lensku efnahagslífi og verðbólguvaldur. Höf- uðeinkenni þessa mál- flutnings fulltrúa fjár- málastofnananna er að engin rök fylgja fullyrðingum þeirra um skaðsemi Íbúða- lánasjóðs. Engin lýs- ing kemur fram á því hvernig skaðsemi lánastarfsemi sjóðsins er háttað umfram lánastarfsemi bankanna. Aðeins er vitnað með óljósum hætti í skýrslur eins og Seðla- bankans og Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins. Hverjir skaðast á starf- semi Íbúðalánasjóðs? Hverjir græða minna en ella vegna lána- starfsemi sjóðsins? Eru það ekki bankarnir? Hvaða ráð hafa svo þessir sér- fræðingar og fjármálastofnanir til að auka „virkni peningamálastefnu Seðlabankans?“ Ráð þeirra er að gera Íbúðalánasjóð að einkarekn- um heildsölubanka. Og hvað er það sem breytist við það að Íbúða- lánasjóður verði einkarekinn heildsölubanki? Jú, það að þá fá bankarnir að lána almenningi þá peninga sem sjóðurinn lánar nú milliliðalaust. Það verður til milli- liður sem krefst aukins kostnaðar fyrir lántakandann í hærri vöxtum og þjónustugjöldum. Og hluthafar bankanna krefjast arðsemi af starfsemi þeirra. Íbúðalánasjóð- ur er hins vegar rek- inn þannig að hann standi aðeins undir rekstrarkostnaði. Við boðaða breytingu yrði fákeppni og kostnaður aukinn á íbúða- lánamarkaði. Eru það hagsmunir almenn- ings að svo sé að mál- um staðið? Hvað segja launþegar um það? Ráð áðurnefndra sérfræðinga og stofnana eru einnig þau að hækka beri stýrivexti Seðlabank- ans sem nú eru 13%. Slík ráð- stöfun drægi eitthvað úr eft- irspurn eftir lánum, sem þýddi aðeins það í raun að bankarnir tækju eitthvað minna af erlendum lánum á lágum vöxtum til að end- urlána hér á háum vöxtum. En stýrivaxtahækkun þýddi aðallega almenna vaxtahækkun á lánum sem þegar hafa verið tekin. Sem aftur þýðir aukinn hagnað lánveit- enda bankanna úr vasa skuld- aranna í landinu. Þannig yrði enn frekari tilfærsla á fjármunum frá þeim til bankanna. Ráð innlendu og erlendu fjármálasérfræðing- anna miða þannig öll að því að þjarma að almenningi í þágu auð- ugra fjármálastofnana. Íbúðalánasjóður hefur það sem af er þessu ári lánað um 15 millj- örðum minna en á sama tímabili í fyrra en heildarútlán bankanna hafa aukist á sama tíma. Af hverju skýra sérfræðingarnir ekki hvers vegna lán Íbúðalánasjóðs eru meiri skaðvaldur í efnahagslífinu en lán bankanna? Það er einfald- lega vegna þess að rök þeirra standast ekki. Málflutningur þeirra er áróður fyrir hagsmunum bankanna gegn hagsmunum al- mennings. Þeir eru starfsmenn fjármálastofnananna. Hvað gengur þeim stjórnmálamönnum til sem lepja athugasemdalaust upp „fræði“ fjármálastofnananna? Þeir verða að gera almenningi grein fyrir því hvers vegna þeir virða hagsmuni bankanna meir en hags- muni almennings. Frá stjórn- málamönnum hefur ekkert heyrst annað en bergmál af hrópum bankanna. Áróðurinn gegn Íbúðalánasjóði Árni Þormóðsson skrifar um lánamarkaðinn ’Ráð innlendu og er-lendu fjármálasérfræð- inganna miða þannig öll að því að þjarma að al- menningi í þágu auðugra fjármálastofnana.‘ Árni Þormóðsson Höfundur er öryggis- og næt- urvörður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.