Morgunblaðið - 24.08.2006, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 24.08.2006, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 11 FRÉTTIR LAGERSALA Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 33 milljörðum króna fyrstu fimm mánuði ársins samanborið við 32 milljarða á sama tímabili 2005. Aflaverðmæti hefur aukist um rúman milljarð eða 4%. Aflaverðmæti maímánaðar nam tæpum 8 milljörðum en í maí í fyrra var verðmæti afla 5,8 milljarðar, sam- kvæmt samantekt Hagstofunnar. Aflaverðmæti botnfisks var í lok maí orðið 25,7 milljarðar miðað við 22,7 á sama tíma árið 2005 og er því um 13% aukningu að ræða. Verðmæti þorskafla var 13,2 milljarðar og jókst um 3,5%. Aflaverðmæti ýsu nam 4,9 milljörðum sem er 12,9% aukning og ufsaaflinn jókst að verðmæti um 55%, var 1,6 milljarðar. Verðmæti flatfisk- afla jókst um 14% milli ára, nam 2,3 milljörðum. Aflaverðmæti kolmunna í maílok var orðið 2,2 milljarðar sam- anborið við tæpar 800 milljónir í fyrra. 18% aukning á innlendum mörkuðum Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu var 13,5 milljarðar króna sem er samdráttur um 8% milli ára, en verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu inn- anlands jókst um 18%, var 5,4 millj- arðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 9,9 milljarðar og jókst um 13% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 3,4 milljörðum sem er 12% aukning. Mest verðmæti á suðvesturhorninu Fyrstu fimm mánuði ársins var unnið úr langmestum verðmætum á suðvesturhorni landsins. Á höfuð- borgarsvæðinu var unnið úr fiski að verðmæti 6,5 milljarðar króna og á Suðurnesjum úr 6 milljörðum króna. Um 21% verðmætaaukning átti sér stað á höfuðborgarsvæðinu, en á Suð- urnesjum stóð verðmæti í stað. Mest verðmætaaukning varð á Vestur- landi, 27%. Mestur samdráttur varð á Norðurlandi eystra, 20%. Skýringar á þessu eru ýmsar, en mestu ræður lík- lega afar slök loðnuvertíð. Í maímánuði var mikil verðmæta- aukning frá síðasta ári. Um er að ræða aukningu í öllum landshlutum, í nokkrum tilfellum tvöföldun eða meira milli ára. Mest voru verðmætin á höfuðborgarsvæðinu, 1,5 milljarðar króna, næstmest á Austurlandi, 1,4 milljarðar, Suðurnesin voru með 1,2 milljarða og útflutningur á óunnum fiski til útlanda skilaði einum millj- arði, sem er veruleg aukning frá síð- asta ári. Skýringar á þessu eru meðal annars lækkandi gengi krónunnar og hækkandi fiskverð.                             !  " #$!%&           &%" !$%& '#'"%& #("%) ""%' '!$% !#&%!         & )%& &$%# $&'%! $"'%' '!% &" %   * + ,    .  !  "          ! ! Verðmæti fiskaflans eykst um 4% Aflaverðmæti 33 milljarðar króna fyrstu fimm mánuði ársins VERÐ á laxi lækkaði lítillega á er- lendum mörkuðum í síðustu viku, m.a. vegna aukins framboðs. Þetta kemur fram í tölum norsku Hag- stofunnar. Laxaverðið hefur þar með lækkað í fjórar vikur í röð. Frá þessu var greint í Morg- unkorni Glitnis. Verð á ferskum útfluttum laxi frá Noregi var 15% lægra í síðustu viku, 36,80 norskar krónur á kíló miðað við verðið í lok júní, 43,10 norskar krónur þegar það náði há- marki. Eru það um það bil 440 og 517 íslenzkar krónur. Norðmenn eru stærstu einstöku framleiðendur á eldislaxi í heim- inum og því er útflutningsverðið frá Noregi lýsandi fyrir heims- markaðsverð á laxi. Þótt með- alverðið síðustu vikur hafi lækkað er það enn mjög hátt í sögulegu ljósi og mjög viðunandi fyrir fram- leiðendur. „Afkoma laxeldisfyrirtækja í Noregi hefur verið mjög góð und- anfarið og benda spár til að svo verði einnig í ár. Flestar spár benda þó til þess að verðið muni gefa eftir á seinni hluta þessa árs og á næsta ári vegna aukningar í framboði. Verðlækkun á laxi undanfarið kem- ur sér vel fyrir fullvinnslufyrirtæki. Alfesca er eitt af þeim fyrirtækjum sem finna fyrir verðbreytingum á laxaafurðum þar sem dótturfyr- irtæki þess, Labeyrie, Delpierre og Vensy, eru stórir kaupendur á laxi, m.a. frá Noregi,“ segir í Morg- unkorninu.               ! !            " "  "! "#                  Verð á laxi lækkar enn ÚR VERINU HUGARAFL efnir í dag og á morg- un til ráðstefnu á Hótel Sögu um geðheilbrigðismál. Yfirskrift ráð- stefnunnar er Bylting í bata og meg- inefni hennar er valdefling og bati. Ráðstefnunni lýkur með opnum borgarafundi síðdegis á morgun, föstudag. Birgir P. Hjartarson frá Hugar- afli sagði þetta vera fyrstu stóru ráð- stefnuna sem samtökin hafa haldið frá því þau voru stofnuð fyrir rúm- lega þremur árum. Tilgangurinn með ráðstefnunni er m.a. að leitast við að breyta afstöðu fólks til geð- sjúkra. Einnig að notendur heil- brigðisþjónustunnar eignist rödd og hafi eitthvað að segja um þá meðferð sem þeir njóta. „Þetta hefur verið svolítið ein- stefnulegt, hingað til,“ sagði Birgir. „Fólk fer til geðlæknis og bara hlustar. Það fjölgar sífellt öryrkjum vegna geðsjúkdóma og eins hækkar lyfjakostnaður stöðugt. Þrátt fyrir alla peningana sem settir eru í þetta fjölgar geðsjúkum. Við þurfum nýj- ar aðferðir og ný úrræði. Hugarafl vinnur að þeim. Notendur heilbrigð- iskerfisins, eins og við köllum okkur, vilja hafa eitthvað að segja um með- ferðina. Við viljum hafa hlutverki að gegna og höldum t.d. mestmegnis sjálf þessa ráðstefnu.“ Hugarafl er samstarfshópur fag- aðila, t.d. iðjuþjálfa og sálfræðings, og notenda heilbrigðisþjónustunnar sem vinna innan samtakanna á jafn- ingjagrundvelli. Birgir segir að Hugarafl hafi gefið út fræðsluefni, haldið fyrirlestra og kynningar á stofnunum bæði fyrir starfsfólk og sjúklinga. Mörg önnur verkefni eru í undirbúningi. Yfirskrift ráðstefnunnar, Bylting í bata, vísar til þess markmiðs Hugar- afls að breyta bataferlinu og skil- greiningunni á því, eyða fordómum og landamærum sem dregin hafa verið á milli sjúkdóma. „Geðræn ein- kenni koma við sögu í nær öllum sjúkdómum,“ sagði Birgir. „Þú get- ur fengið hjartaáfall, heilablóðfall eða annan sjúkdóm og þetta kallar allt á ákveðið kreppuástand. Ég þekki engan sem hefur fengið hjartaáfall að hann lendi ekki í ein- hverju þunglyndi á eftir. Geð- sjúkdómar koma öllum við.“ Fordómar eru víða Fordómar gagnvart geð- sjúkdómum eru enn víða til staðar, jafnt meðal almennings og meðal sjúklinga, að sögn Birgis. „Maður fordæmir sjálfan sig fyrir að vera með geðsjúkdóm, því þjóðfélagið stimplar mann sem öðruvísi. Þar byrjar vandamálið. Í kerfi okkar leggjum við mikla áherslu á að styrkja sjálfsmyndina og sjálfs- traustið og byggja einstaklinginn upp svo hann geti betur tekist á við daglegt líf sitt. Sjúklingur er margt fleira en sjúklingur og hann þarf að gera sér grein fyrir því. Maður getur verið vinur, faðir, móðir og svo margt annað þótt maður sé veikur. Það getur verið erfitt að vinna sig út úr því að vera „bara“ sjúklingur í eigin huga.“ Birgir sagði notendur heilbrigð- isþjónustu oft skorta þekkingu á úr- ræðum sem standa til boða. Þeir þurfi að vera virkir þátttakendur í bataferlinu. Það sé ekki nóg að taka bara lyfin sín og bíða eftir bata. Guðmóðir nýrra viðhorfa Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er Judi Chamberlin frá Bandaríkj- unum og mun hún m.a. fjalla um skilning á valdeflingu (empower- ment) og bata. Judi er sjálf notandi og hefur lengi barist fyrir réttindum notenda geðheilbrigðiskerfisins. Hún er höfundur bóka, greina og bæklinga um geðheilbrigði, sjálfs- hjálp, bataferli og réttindi notenda heilbrigðisþjónustu. Judi er ráðgjafi við endurhæfingarmiðstöð geð- sjúkra við Háskólann í Boston, auk þess sem hún vinnur hjá National Empowerment Center (www.po- wer2u.org). Birgir sagði að Judi vera „guð- móður“ þeirrar aðferðafræði sem Hugarafl vinnur eftir og er kennd við valdeflingu. „Kerfið var búið til í Bandaríkjunum á sínum tíma og margir komu að rannsóknunum sem það byggir á, en hún er guðmóðirin,“ sagði Birgir. „Þar voru tekin saman fimmtán atriði sem byggjast m.a. á því að notandi þjónustunnar, sjúk- lingurinn, komi inn í ákvarðanatöku, hafi aðgang að upplýsingum, eigi valkosti, fái stuðning til að efla sjálf- an sig og fái að vera einstaklingur í staðinn fyrir að vera „bara“ sjúk- lingur. Sá hinn sami þarf líka að við- urkenna stöðu sína og vilja leggja sig fram. Við í Hugarafli sjáum að þetta kerfi virkar vel.“ Ný afstaða til bataferlisins Morgunblaðið/Ásdís Félagar í Hugarafli hafa undirbúið ráðstefnuna Bylting í bata, sem hefst í dag. Frá vinstri: Birgir Páll Hjartarson, Berglind Nanna Ólínudóttir, Björg Torfadóttir, Jón Ari Arason, Herdís Benediktsdóttir, Garðar Jónasson, Nanna Þórisdóttir og Elín Ebba Ásmundsdóttir. Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er Judi Chamberlin frá Bandaríkjnum. TENGLAR .............................................. www.hugarafl.is ÚTVARPSSTÖÐINNI XFM var í gær afhent bréf frá umhverfissviði Reykjavíkurborgar þar sem farið er fram á að starfsmenn stöðvarinnar hætti tafarlaust að gefa hlustendum sígarettur. Stöðin hefur að undan- förnu kynnt kvikmyndina Thank You For Smoking og af því tilefni gefið hlustendum miða á myndina og látið sígarettu fylgja. Lýðheilsu- stöð barst kvörtun um athæfið og sendi umhverfissviði erindi þar um. „Við teljum að þetta sé klárlega brot á tóbaksvarnarlögum, þar sem vörukynning og dreifing vörusýna er bönnuð, og þess vegna skrifuðum við þetta bréf þar sem þess er kraf- ist að útvarpsstöðin láti tafarlaust af athæfinu,“ segir Rósa Magnúsdótt- ir, deildarstjóri hollustuhátta. Framhald málsins ráðist af því hvort forráðamenn útvarpsstöðvarinnar hyggist lúta fyrirmælum umhverf- issviðs eður ei. „Við verðum bara að skoða það í framhaldinu hvaða úr- ræðum við beitum í framhaldinu til að fylgja málinu eftir,“ segir Rósa. Sigurður G. Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Íslenska sjónvarps- félagsins, staðfestir að hann hafi fengið bréf frá umhverfissviði Reykjavíkurborgar varðandi sígar- ettugjafirnar. Hann bendir á að lög mæli í sjálfu sér hvergi fyrir um það að bannað sé að gefa tóbak. Tóbaks- varnarlög miðist við vörukynningu og dreifingu vörusýna, en ekki sé um neitt slíkt að ræða heldur ein- ungis verið að gefa sígarettuna sem slíka. Deilt um sígarettu- dreifingu Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.