Morgunblaðið - 24.08.2006, Side 14

Morgunblaðið - 24.08.2006, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Dagana 25. - 27. ágúst 2006 A 4 · B Æ JA R Ú T G E R Ð IN Majuro. AFP. | Þrír mexíkóskir sjó- menn, sem segjast hafa verið á reki um Kyrrahafið í níu mánuði í olíu- lausum bát, eru væntanlegir heim til sín á morgun, föstudag. Í Mexíkó hafa hins vegar vaknað ýmsar spurn- ingar um frásögn þeirra og efast sumir um, að hún geti verið rétt að öllu leyti. Talsmaður Vicente Fox, forseta Mexíkó, sagði í fyrradag, að hafin yrði rannsókn á örlögum tveggja fé- laga mannanna þriggja en sagt er, að þeir hafi ekki lifað af vistina í bátnum nema í tvo mánuði. Mennirnir þrír segja, að þeir hafi lagt úr höfn í San Blas í Mexíkó 28. október síðastliðinn og haldið til há- karlaveiða. Þeir hafi síðan orðið olíu- lausir og rekið fyrir austanvindi alls 8.000 km leið. Ótrúlega vel á sig komnir Í mexíkóskum fjölmiðlum hafa verið vangaveltur um, að mennirnir þrír hafi étið félaga sína tvo en George Lanwi, lögreglustjóri í Maj- uro, höfuðstað Marshall-eyja, sagði í gær, að hann efaðist um alla sögu mannanna. „Hvernig gátu þeir lifað í allan þennan tíma í opnum báti? Mér finnst það mjög grunsamlegt enda eru þeir ótrúlega vel á sig komnir,“ sagði Lanwi og bætti við, að það væri mjög undarlegt, að mennirnir og bát- urinn, sem er 8,8 metra langur, hefðu ekki fundist fyrr. „Á þessum slóðum er mikil sigling alla daga,“ sagði Lanwi. Áhöfn taívansks fiskiskips fann mennina undan eynni Kiribati 8. þessa mánaðar og kom með þá til Majuro á Marshall-eyjum í fyrradag. Þar voru þeir settir í læknisskoðun, sem þeir stóðust með prýði, en það, sem kom læknunum mest á óvart, var, að þeir sýndu þess engin merki andlega að hafa verið á hrakningi á úthafinu í níu mánuði. Bólgnir fætur voru það eina sem að þeim amaði. Mennirnir segjast hafa lifað á fiski og fugli, sem þeim tókst að veiða, og haft regnvatn til drykkjar. Neita þeir harðlega fréttum eða vangaveltum um, að þeir hafi stundað eitur- lyfjasmygl. Efasemdir vakna um hrakningasöguna AP Mexíkósku sjómennirnir þrír, Jesus Vidana, Lucio Rendon og Salvador Ordonez, eftir komuna til Majuro á Marshall-eyjum á þriðjudag. Furðu vekur hvað þeir eru brattir, andlega sem líkamlega, eftir níu mánaða hrakninga í opnum, olíulausum báti um Kyrrahafið. ÍSRAELSKA lögreglan yfirheyrði í gær forseta Ísraels, Moshe Katsav, í þrjár stundir í embættisbústað hans í Jerúsalem vegna ásakana um að hann hafi sýnt tveim konum kynferð- islega áreitni, að sögn fréttavefjar The Jerusalem Post. Gerð var skyndileg húsleit í bústað forsetans aðfaranótt þriðjudags og lagt hald á tölvur og skjöl í tengslum við rann- sóknina. Lögreglan mun afhenda nýjum dómsmálaráðherra, Menahem Ma- zuz, niðurstöður yfirheyrslnanna og ákveður hann síðan hvort lögð verður fram ákæra á hendur Katsav. Forveri Mazuz, Haim Ramon, sagði af sér embætti sl. sunnudag vegna ásakana um kynferðislega áreitni. Forsetinn fékk að sögn The Jerusalem Post að sjá sönnunargögnin sem notuð eru í rannsókninni. Tvær konur hið minnsta hafa kært Katsav fyrir áreitni en hann segist vera saklaus. Lögreglan rannsakar einnig hvort forsetinn hafi rétt fyrir sér í því að önnur konan, sem vann fyrir hann, hafi reynt að beita hann fjárkúgun. Hún segir Katsav hafa átt kynferð- islegt samneyti við sig þegar hún var í starfsliðinu. Vill að Katsav fari í leyfi Áhrifamikill þingmaður, Ruhama Avraham, hvatti í gær Katsav til að fara í leyfi. „Forsetinn hefur eins og allir aðrir rétt á að sanna sakleysi sitt en á hinn bóginn verður hann að varðveita heiður forseta- embættisins. Sem stendur eru born- ar fram harkaleg- ar ásakanir á hendur forsetan- um og hann þarf þess vegna að fara í leyfi,“ sagði Avr- aham. Lögfræð- ingar Katsavs fordæmdu í vik- unni að upplýsingum um málið hefði margsinnis verið lekið í fjölmiðla og sögðu að um pólitísk bellibrögð væri að ræða en ekki áhuga á að leiða sannleikann í ljós. Kröfðust þeir þess að lögreglan birti upptökur af sam- tölum forsetans og umræddrar konu sem þeir sögðu sanna að reynt hefði verið að beita Katsav fjárkúgun. Forseti Ísraels grunaður um kynferðislega áreitni Lögreglan lagði hald á tölvugögn í embættisbústaðnum Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is Moshe Katsav, forseti Ísraels. Á SUMRIN hleypa milljónir manna heimdraganum og halda þá gjarnan suður á bóginn og í átt til til sólar- landa. Er því haldið fram á bresku sjónvarpsstöðinni Sky News, að hugsanlega hafi margt af þessu fólki farið með flugvélum, sem eru með gallaða og jafnvel hættulega íhluti, einkum í bolnum. Andrew Wilson, fréttaritari Sky News í Bandaríkjunum, vann að rannsókn þessa máls í hálft ár og er það niðurstaða hans, að Boeing- verksmiðjurnar bandarísku hafi vit- andi vits keypt þúsundir gallaðra íhluta af undirverktaka. Eru gallarn- ir meðal annars þeir, að boruð voru röng göt og því hafi stundum reynst erfitt að koma hlutunum tryggilega fyrir. Segir Wilson, að þetta eigi einkum við um Boeing 737NG, sem smíðaðar hafi verið í Witchita í Kan- sas á árunum 1994 til 2002. Hafi þessar vélar verið seldar víða um heim án þess, að kaupendum hafi verið gerð grein fyrir þessu. Í þætti á Sky News þar sem skýrt var frá þessu, var rætt við tvo fyrr- verandi starfsmenn Boeing, sem störfuðu áður við innri endurskoðun í fyrirtækinu. Sögðu þeir, að Boeing hefði keypt gallaða íhluti af fyrirtæki í Kaliforníu, Ducommun, og sett þá í vélarnar þótt vitað væri, að þeir væru gallaðir og hugsanlega hættu- legir. Sniðin í höndunum Taylor Smith, annar starfsmann- anna, sagði, að hún vissi ekki hvers vegna þetta hefði verið gert enda al- veg fáránlegt af nokkru fyrirtæki að taka slíka áhættu. Hinn, Jeannine Prewitt, sagðist vita, að í samsetn- ingarverksmiðjunni hefðu menn átt í basli með styrkta málmrenninga eða -bönd, sem sett eru umhverfis dyr á flugvélum. Þeir hefðu einfaldlega ekki passað nógu vel. Síðar hefði komið í ljós, að böndin voru ekki sniðin af viðurkenndum, tölvustýrð- um vélum, heldur í höndunum. Jafn- vel bönd í sjálfri skrokkgrindinni voru ekki rétt að sögn Bill Skepneks, lögfræðings Boeing-starfsmannanna fyrrverandi, en í upplýsingabæklingi með 737-vélunum segir, að þessi bönd séu meðal „hornsteina“ vél- anna enda geti bilun eða galli í þeim haft alvarlegar afleiðingar. Varaðar við að láta yfirvöld vita Prewitt og Smith segjast hafa bent yfirmönnum sínum á gallana í íhlutunum frá Ducommun og þá fengið hrós fyrir en sagt um leið, að þær skyldu ekki láta FAA, banda- ríska loftferðaeftirlitið, vita. Gerðu þær það, gætu þær átt yfir höfði sér málssókn af hálfu fyrirtækisins. Þær stöllur segjast þó hafa haldið áfram að vekja athygli á gölluðu íhlutunum og þá hafi þeim í raun ver- ið ýtt til hliðar og þær einangraðar. Talsmaður Boeing neitar því en að því kom að þeim Prewitt og Smith var sagt upp. Á síðasta ári höfðuðu þær síðan mál gegn Boeing á grundvelli laga um uppljóstrara en það hefur ekki enn verið tekið fyrir af alríkisdóm- stól í Witchita. Talsmenn hvorugs fyrirtækisins, Boeing og Ducommun, vildu koma fram í þættinum á Sky News en lýstu því yfir, að ekkert væri hæft í ásökunum þeirra Prewitt og Smith. Segja gallaða íhluti í sumum Boeing-vélum Sky News fullyrðir að gölluðu hlutirnir hafi verið notaðir vitandi vits

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.