Morgunblaðið - 24.08.2006, Síða 16
Reykjavík | Skólar hafa flestir
hafið störf að nýju sem þýðir í
huga margra að senn líði að
sumarlokum.
Gróður hefur enn ekki sleppt
takinu af sumrinu og er iðja-
grænn víðast hvar.
Félagarnir Vilhelm Ólafsson
og Dagur Tjörvi Arnarsson
nýttu tækifærið og nutu náttúr-
unnar þegar þeir léku sér sam-
an í grasagarðinum í Laugardal.
Morgunblaðið/Eggert
Glaðir gumar í grænum gróðri
Í grasagarði
Akureyri | Höfuðborg | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Elstu nemendum VinnuskólaReykjavíkur var í sumar boðiðupp á menningarfræðslu í Hafn-
arhúsinu. Skoðuðu þeir ólík listform og
kynntust verkum ýmissa listamanna.
Nemendurnir kynntu sér m.a. þróun
teiknimyndasagna og gerði hver og einn
teiknimyndasögu auk þess að leika hana
og útskýra fyrir félögum sínum.
Hugleikur Dagsson skipaði, ásamt
Ilmi Stefánsdóttur myndlistarmanni,
dómnefnd sem útnefndi þrjár sögur sem
bestu nemendaverk sumarsins. Baldvin
Páll Henrysson hlaut fyrstu verðlaun,
Þorlákur Björnsson önnur verðlaun og
Árni Freyr Snorrason þriðju verðlaun.
Fengu menningarfræðslu
Magnús Stef-ánsson, Fá-skrúðsfirði,
heyrði í sjónvarpsfréttum
af fjárstyrkjum Alcoa til
hinna ýmsu verkefna, þar
á meðal til lögreglunnar.
Valdi mun lögreglan lúta
léttmálmsins – ekki skal súta
þótt Alcoa sé
ausandi fé
og margur það kalli að múta.
Hjálmar Freysteinsson
yrkir um nýjan formann
Framsóknar:
Af Jóni vænta mikils má
mannkostum búinn fínum,
Þó hann byrjaði aftan á
embættisferli sínum.
Jón Sigurðsson byrjaði
sem seðlabankastjóri,
varð ráðherra, þá flokks-
formaður og væntanlega
þingmaður eftir næstu
kosningar. Og Hjálmar
veltir því upp hvort þetta
sé „hin leiðin“ sem umtöl-
uð hafi verið fyrir nokkr-
um árum:
Hugmyndina Halldór fann,
hélt það bæta neyðina,
til forustu ef fengi þann
sem færi „hina leiðina“.
Af formanni
Framsóknar
pebl@mbl.is
♦♦♦
Mosfellsbær | Bæjarhátíðin Í túninu
heima verður haldin í Mosfellsbæ dagana
25.–27. ágúst nk. Hátíðin er nú haldin í
annað sinn en nafnið er sótt til samnefndr-
ar minningarbókar Halldórs Laxness.
Eldgleypingar, ratleikur, flóamarkaður,
dansleikur, listflug og kjúklingaveisla eru
meðal dagskrárliða á hátíðinni.
Fyrsti liður hátíðarinnar verður dagskrá
fyrir leikskólabörn í Bókasafni Mosfells-
bæjar ásamt myndlistarsýningu í listasaln-
um í Kjarna sem hefst kl. tíu á föstudags-
morgun. Formleg setning hátíðarinnar
verður kl. 19.45 sama dag í íþróttahöll
Mosfellsbæjar en henni verður breytt í
sýningarsal fyrir fyrirtæki, einstaklinga,
klúbba og félagasamtök í bænum. Þar
verður hægt að sjá afrakstur félags- og at-
vinnulífs í Mosfellsbæ fram á sunnudags-
kvöld þegar hátíðinni lýkur.
Hátíðin er haldin á tíu stöðum víðs vegar
um bæinn. Einnig verður boðið upp á
margskonar tónlist, flugmódelasýningu,
söngkeppni, brekkusöng, varðeld, fim-
leika- og karatesýningar, útimarkað, reið-
sýningu, fótbolta o.fl.
Bæjarhátíð í
Mosfellsbæ
um helgina
Norðurþing | „Það er nú bara þannig að
svona gerast kaupin á eyrinni. Það er í sjálfu
sér lítið sem við getum sagt eða gert við því.
Auðvitað er það þannig að fyrir hvert ein-
asta bæjarfélag á landinu er sárt að sjá á eft-
ir atvinnutækifærum sem svona starfsemi
fylgja,“ segir Bergur Elías Ágústsson, sveit-
arstjóri Norðurþings, spurður um áhrif
brotthvarfs útgerðarfélagsins Langaness
frá Húsavík á bæjarlífið í Húsavík.
Skinney Þinganes, frá Hornafirði, hefur
keypt félagið og með fylgja tvö uppsjávar-
veiðiskip auk veiðiheimilda sem svara til ríf-
lega 1.400 þorskígildistonna.
„Engu að síður er það þannig að þetta
setur bara aukna kröfu á okkur, að leita
annarra tækifæra og það verður haldið
áfram með opnum huga að efla svæðið og
aðra atvinnumöguleika á svæðinu. Við meg-
um ekki heldur gleyma því að hér hefur
smábátaútgerð eflst verulega og það er já-
kvætt. Við þurfum að vinna að öðrum tæki-
færum og það er enginn barlómur hér,“ seg-
ir Bergur Elías.
„Enginn
barlómur hér“
Benedikt Sigurðarson, aðjúnkt við Há-
skólann á Akureyri og fyrrverandi stjórn-
arformaður KEA, íhugar að gefa kost á
sér í fyrsta sæti á lista Samfylkingarinnar
í norðausturkjördæmi við alþingiskosn-
ingarnar í vor. Ef af verður mun Benedikt
eingöngu gefa kost á sér í fyrsta sætið.
Lára Stefánsdóttir varaþingmaður hefur
ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti á lista
Samfylkingarinnar í vor. Síðast skipuðu
þingmennirnir Kristján Möller og Einar
Már Sigurðarson tvö efstu sætin.
Sú breyting hefur verið gerð í sumum
grunnskólum bæjarins að nemendur
yngstu bekkjanna mæta kl. 8.15 í stað
8.00. Margir foreldrar aka börnum í skóla
og er breytingin er ekki síst gerð í því
skyni að dreifa álaginu á bílastæðunum …
Breytingin veldur því líka að yngstu nem-
endur fara ekki í frímínútur samtímis öðr-
um og hafa því meira rými til leikja.
Það er gott framtak, nýja skiltið sem blas-
ir við þegar ekið er inn í Síðuhverfi: Vel-
komin – Í þessu hverfi förum við varlega í
umferðinni. Kurteisleg ábending og þörf,
ekki síst við upphaf skólaársins.
Árleg Akureyrarvaka fer fram á laug-
ardaginn. Ég hlakka ekki síst til þess að
sjá Ráðhústorgið lagt grasi á nýjan leik,
þótt það verði aðeins þennan eina dag.
Það var fallegt og grasi gróið í gamla
daga og verður kannski aftur, til fram-
búðar.
Klassískir tónleikar frábærra söngvara og
Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands við
Hótel KEA eru tilhlökkunarefni og áhorf-
endastæðin líka; sjálfar kirkjutröppurnar,
sem kannski verða „betri sæti“ eins og í
bíóinu í gamla daga, auk þess sem áheyr-
endur geta staðið eða setið í Listagilinu.
Úr
bæjarlífinu
AKUREYRI
EFTIR SKAPTA HALLGRÍMSSON
BLAÐAMANN
Skyndibitastaður
Til sölu einn þekktasti skyndibitastaður borgarinnar. Sami
eigandi í 12 ár og þar áður í 20 ár. Góður og hollur matur,
mikið af föstum viðskiptavinum. Góð langvarandi viðskipta-
sambönd við birgja. Góðar tekjur fyrir gott fólk. Laus strax.
Frábær staðsetning. Lokað kl. 22.00 á kvöldin.
Innrömmun
Vinsæl innrömmun til sölu vegna veikinda eiganda. Mikið að
gera og hefur verið lengi enda frábær staðsetning og einstak-
lega vel tækjum búið og hagkvæm innrétting. Góð vinnuað-
staða, stórir sýningargluggar, góður og smekklegur lager.
Innrömmun með góðan orðstír. Frábær vinna sem getur gefið
góðar tekjur.
Iðnaður
Til sölu framleiðslufyrirtæki úti á landi sem sérhæfir sig í
framleiðslu á sérhæfum bílum. Mjög sanngjarnt verð á fyr-
irtækinu. Miklir samningar langt fram í tímann og enn
meira framundan. Eigandinn er tilbúinn að vinna áfram og
kenna nýju fólki handbrögðin. Er í snyrtilegu og hentugu
húsnæði sem fæst keypt fyrir sanngjarnt verð eða leigt.
Hægt að hafa heildsölu með þessu á netinu. Leitum að
kaupanda sem getur verið framkvæmdastjóri.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni, ekki í síma eða
á netinu.
Skráin á netinu: www.fyrirtaeki.is
Elsta fyrirtækjaslan á landinu.
Lögg. fasteignasali: Bergur Guðnason hdl.
Elsta fyrirtækjasalan á landinu.