Morgunblaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 20
Daglegtlíf ágúst „ÞAÐ getur verið svolítið fyndið að fylgjast með húsmóður sem maður sér fyrir sér heima í frotteslopp og með rúllur í hárinu, hvernig hún breytist í drápsvél þegar hún er komin með stöng út í ána,“ segir Ingi Freyr Ágústsson, laganemi við Háskóla Íslands, sem starfar í sum- ar sem leiðsögumaður í nokkrum laxveiðiám fyrir norðan og hefur gaman af. Þegar hann er ekki leið- sögumaður starfar hann í afleys- ingum hjá lögreglunni á Blönduósi. Ástæðan fyrir því að Ingi sækir sumarstörfin sín norður í land, er sú að þar á hann rætur, en hann er fæddur og uppalinn á Sauðárkróki. Misjafnlega skemmtilegt fólk Ingi segist kunna ágætlega við lögreglustarfið á Blönduósi sem felst mestmegnis í umferðareftirliti á vegum úti. „Við erum mikið í því að mæla hraða og veitir ekki af, því hér er gríðarlega mikið um hraðakstur. Umdæmið okkar er víðfeðmt, frá Brú í Hrútafirði og að Vatnsskarði, en við skiptum þessu með okkur,“ segir Ingi sem er mikil veiðikló og það er ein ástæðan fyrir því að hann er í starfi yfirleiðsögumanns í Blöndu, en auk þess er hann með leiðsögn í Miðfjarðará. „Maður verður að þekkja árnar mjög vel til að geta leiðbeint fólki og ég þarf að vera með því allan daginn, en veiðitúrinn getur verið frá einum og upp í sex daga. Þetta eru mikið til sömu einstaklingarnir ár eftir ár en auðvitað detta einhverjir nýir líka inn og þá verður maður að vera naskur að lesa fólk, finna hvernig húmorinn liggur og annað slíkt. Það getur verið kúnst að láta öllum líða vel, þegar maður er með ókunnu fólki samfleytt í nokkra daga og maður kemur ekki eins fram við alla. Og vissulega er þetta misjafnlega skemmtilegt fólk, eins og gengur og gerist.“ Ingi segir að stundum komi upp pirringur milli veiðimanna í sam- bandi við skiptingar á milli veiði- staða, því allir vilji vera á bestu stöð- unum í sem lengstan tíma, og þá hörfi siðferðiskenndin svolítið. „Það gengur auðvitað ekki upp að einoka bestu staðina algjörlega og þá verð ég að ræða við menn og leiða þeim þetta fyrir sjónir og yfirleitt sjá menn þá að sér og láta hylinn af hendi.“ Ingi segist stundum lenda í sérkennilegum uppákomum í veiðiferðunum sem ekki séu prent- hæfar. „En langoftast gengur þetta vel og drykkja meðal veiðimanna hefur minnkað verulega, sem betur fer.“ Straumþungi Blöndu varasamur „Nú er það hending að erlendu veiðimennirnir verði drukknir, þó svo að þeir fái sér kannski gin og tónik fyrir matinn og einhverja bjóra, þá verða þeir ekki veltandi fullir. Fólk sem kaupir sér veiðileyfi í rándýrum ám sóar ekki tímanum í drykkju, heldur fer það snemma í háttinn og snemma á fætur til að nýta tímann sem best. En fyrst þeg- ar ég var í þessu fyrir sex árum lent- um við stundum í því að þurfa að vísa mönnum úr ám vegna ölvunar. Blanda er til dæmis straumþung og það er eins gott að vera með fulla meðvitund ef fólk dettur, því það getur verið hættulegt.“ Hundruð laxa í einkaþoturnar Þar sem Ingi er að nema lögfræði segir hann það vera ágætt að mynda sambönd við erlenda lögmenn sem gjarnan sækja í íslenskar laxveiðiár. „Þetta er mikið til efnafólk enda er dýrt að fljúga til Íslands og dýrt að veiða hér. Þetta eru að mestum hluta karlmenn en þó slæðist ein og ein kona með og þær eru margar mjög lunknir veiðimenn. Sumir eru með einkaþoturnar sín- ar tiltækar og hlaða eins miklum fiski í þær og þeim þóknast því þar er engin yfirvigt eða vesen. Menn eru stundum að veiða hundruð laxa á viku. Flestir láta reykja fiskinn, grafa hann eða hvað annað sem þeim hentar og nota hann síðan til gjafa.“ Ingi segir fólk frá ólíkustu þjóðum koma og veiða í ánum. „Ég er ánægðastur með Bretana því þeir eru langskemmtilegastir og hafa áþekkt skopskyn og við Íslend- ingar.“  SUMARSTARF | Ingi Freyr Ágústsson er í lögreglunni auk þess að vera veiðileiðsögumaður Einkaþotur auðmanna hlaðnar íslenskum laxi Ingi Freyr kampakátur með 17 punda lax , sem hann landaði í Blöndu. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Verðhækkun á SMA-ungbarnamjólk? Lesandi Morgunblaðsins hafði samband og sagði farir sínar ekki sléttar. Honum var nokkuð brugðið nýlega við kaup á ungbarnamjólk í verslun Lyfja og heilsu við Hring- braut, þegar hann sá að verðið á krukku af SMA Gold ungbarnamjólk var komið upp í 145 krónur, en viku fyrr hafði hann keypt samskonar dós í Lyfjum og heilsu í Kringlunni á 95 krónur. Þetta þótti honum óeðlilega mikil verðhækkun á svo skömmum tíma og vildi vita hver skýringin væri. Hjalti Sölvason framkvæmdastjóri hjá Lyfjum og heilsu sagði að Ice- pharma, heildsöluaðili SMA mjólkur, hefði hækkað þessa vöru mikið og því hefði hún óhjákvæmilega hækkað í smásöluverslunum. Karl Þór Sigurðsson fjármálastjóri Icepharma segir að ástæðan fyrir hækkuninni samanstandi af mörgum þáttum. „Þó verðið frá okkur hækki, þá getur líka verið að smásöluaðilinn hækki sína álagningu, því mörg fyr- irtæki eru með flata prósentuálagn- ingu ofan á hækkað heildsöluverð.“ Til smásala á spítalaverði Karl Þór segir hækkun á verði bæði hafa orðið á fljótandi mjólk og þurrmjólkurdufti frá SMA. Sú fljót- andi er í 100 ml umbúðum en þurr- mjólkin er í 450 gramma dósum. Hann segist vona að eftirfarandi varpi ljósi á hækkun verðsins: „Það er mjög bagalegt þegar hækkanir verða svo miklar sem raun- in er í þessu tilviki. Það segir hins vegar lítið um það hvort varan sé of dýr eða ekki í raun, heldur hitt að hækkunin er mikil, því verður ekki neitað. Þegar ég dreg í efa að varan sé í raun dýr, þá hef ég það í huga að upphaflegt verð á vörunni var of lágt. Verðið til smásala var nefnilega sam- bærilegt við það verð sem við seldum þessa vöru inn á spítalana, þar sem mikið magn og langtímasamningur á í hlut, og varan er ekki ætluð til end- ursölu heldur til neyslu á fæðing- ardeild og vökudeildum, auk barna- spítala. Um er að ræða stórnotendasölusamning eins og við köllum það. Staðreyndin er sú að gæði SMA mjólkur eru hinsvegar það mikil að varan er dýrari fyrir bragðið. Okkar verð á ofangreindum vörum var hækkað í maí og júní sl. Fljótandi mjólkin um 38% en þurrmjólkin í tveimur áföngum, fyrst um 14,9% og svo um 13,2% í viðbót. Verð þessara afurða hafði þá ekki breyst í vel á þriðja ár. Þar sem Lyf og heilsa var nefnt í þessu sambandi sem smásali, kemur í ljós að hækkun þeirra er í prósentum talin nokkuð meiri, eða 41% á fljótandi mjólk, að því ég best veit. Mér er hins vegar ekki kunnugt um hækkun þeirra á þurrmjólk í dós- um.“ Karl Þór segir ástæður hækk- ananna í stuttu máli þær, að rekja megi um 15% til gengisbreytinga, 10–13% til erlendra hækkana, upp- safnaðra, og rest m.a. vegna hækk- ana á flutningskostnaði, en varan er flutt í flugi og nema hækkanir á tíma- bilinu allt að 27 prósentum. Greitt var með vörunni „Það sem okkur þykir verst er að hafa ekki látið erlendar hækkanir fara hraðar út í verðlagið, einkum og sér í lagi vegna þess að það verð sem miðað var við, þ.e. spítalaverðið, var orðið svo lágt að í fjölmörgum til- vikum, t.d. þegar magn var óhag- stætt í flutningi, var greitt með vör- unni. Nú var hins vegar ákveðið að horfast í augu við þessar staðreyndir og koma verðlaginu í eðlilegt horf. Okkur þykir miður að hækkunin komi illa við neytendur en við erum þess fullviss að gæði vörunnar rétt- læti áframhaldandi kaup hennar og neyslu.“ Morgunblaðið/Ásdís  SPURT OG SVARAÐ NÆSTKOMANDI laugardag verður opinn dagur í Skaftholti í Gnúp- verjahreppi. Í Skaftholti búa Aaltje Bakker og Guðfinnur Jakobsson og eru þar með lífræna landbún- aðarframleiðslu. „Við starfrækjum líka heimili fyrir þroskahefta ein- staklinga og þau eru átta fullorðin sem búa hérna núna og starfa með okkur en aðrir starfsmenn eru um tíu talsins. Við erum með kýr, kind- ur og hænsni auk þess að vera með grænmetisræktun, bæði í gróð- urhúsum og úti,“ segir Guðfinnur og bætir við að allir séu velkomnir að Skaftholti á laugardaginn til að líta á hvað þau eru að gera. „Það verða til sölu þær grænmetisafurðir sem standa til boða á þessum árstíma, t.d. grænkál, steinselja, rauðrófur, tómatar, rauðkál og hvítkál. Síðan verður veitingasala þar sem hægt verður að kaupa kaffi og jurtate og eitthvert heimabakkelsi með.“ Allur búskapur hefur verið líf- rænn í Skaftholti síðan árið 1980 og er heimilið sjálfu sér nægt með bús- afurðir. „Fyrir utan að rækta græn- meti vinnum við allar mjólkurvörur fyrir heimilið sjálf, gerum osta, jóg- úrt og rjóma og strokkum smjör.“ Það eru fimmtán ár síðan heim- ilisfólkið í Skafholti fór að hafa opið hús.  UPPSKERA Lífræn grænmetis- og veitingasala Morgunblaðið/Árni Sæberg Lífrænn grænmetismarkaður verður í Skaftholti á laugardaginn. Skafholt verður opið fyrir gesti og gangandi milli kl. 14 og 17 á laug- ardaginn. Þegar ekið er frá Reykjavík er farið fram hjá Árnesi og þaðan eru 3 kílómetrar að bænum. Ingi ásamt erlendum veiðimanni á bökkum Blöndu. Hjá þeim liggur afrakstur 90 mínútna veiði: Tveir 15 punda laxar og þrír 6–8 punda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.