Morgunblaðið - 28.10.2006, Side 34
hönnun
34 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
Sími 0045 3297 5530 • Gsm 0045 2848 8905 • www.lavilla.dk
Kaupmannahöfn - La Villa
Þegar stórfengleg skepna eins og ís-björn er drepin, tekin úr sínu nátt-úrulega umhverfi, stoppuð upp og settí allt annað og framandi samhengi, þá
verður það einhvernveginn sorglegt og fyndið í
senn,“ segir myndlistarkonan Bryndís Snæ-
björnsdóttir sem ásamt sambýlismanni sínum
og myndlistarmanninum Mark Wilson, leitaði í
fjögur ár að uppstoppuðum ísbjörnum í Bret-
landi til að taka af þeim ljósmyndir og safna
upplýsingum um sögu þeirra. Árangur leit-
arinnar var 34 birnir og nú stendur yfir sýning á
þessum ljósmyndum þeirra í Horniman Mu-
seum í London og einnig í Kaupmannahöfn.
„Okkur kom mjög á óvart hvað viðbrögðin voru
mikil og sterk við myndunum á sýningunum.
Fólk hefur mjög ákveðnar hugmyndir um upp-
stoppuð dýr. Sumum Bretum finnst þau ógeð-
felld og skammast sín fyrir uppstoppuð dýr sem
þjóðin hefur sankað að sér í gegnum tíðina, sér-
staklega þau sem hafa komið til í tengslum við
heimsvaldastefnuna og vilja helst losna við þau.
Eins finnst sumum sú staðreynd ónotaleg að
farið hafi verið í sérstaka leiðangra gagngert til
að drepa þessi dýr og láta stoppa þau upp. Hjá
öðrum eru þau aftur á móti í hávegum höfð og
áhugi sumra á sögunni á bak við skepnurnar er
mikill. Í minni bernsku voru uppstoppuð dýr
Ljósmynd/Snæbjörnsdóttir/Wilson
Sérstakt Hjón á miðjum aldri í Somerset voru með brosandi ísbjörn á ganginum hjá sér og hann var með fangið fullt af lýsandi gervitúlípönum.
Hvítabirnir í óvæntu samhengi
Hvers vegna að leita í fjögur ár
að uppstoppuðum ísbjörnum í
Bretlandi? Jú, til að taka af þeim
ljósmyndir og forvitnast um
sögu þeirra. Kristín Heiða
Kristinsdóttr hitti ísbjarnakonu
sem veit margt um bangsa.
mynd kallar síðan oft á aðra og
raunar er hönnun oft samsafn hug-
mynda sem verða til á löngum
tíma.“
Guðrún Lilja, útskrifaðist frá
Design Akademy Eindhoven árið
2005.
Hver er mesta
áskorunin í vöruhönnun?
„Ég held að mesta áskorunin sé
að lifa á vöruhönnun og með henni.
Ég á þá ósk heitasta að skapa
sterkari starfsgrundvöll hér á Ís-
landi.“
Tinna Gunnarsdóttir, útskrif-
aðist frá WFCAD í Bretlandi árið
1992 og úr mastersnámi frá Domus
Academy í Mílanó árið 1997
Hvert er þitt
eftirminnilegasta verk?
„Það eru svo mörg verk í uppá-
haldi. Höfði, húsgögn sem ég hann-
aði fyrir Höfða og Mosi, húsgögn
sem ég hannaði fyrir Expó 2000,
koma strax upp í hugann. Með-
ganga hvers verks er yfirleitt svo
löng að það verður eins og fjöl-
skyldumeðlimur þegar það loksins
kemst í framleiðslu. Ef vel tekst til
upplifir maður oft verkefnið í um-
hverfinu.“
Guðrún Lilja Innri
fegurð heitir þessi
kollur sem ber nafn
með rentu.
Óðinn Bolli Íslensku klakaformin
hafa slegið í gegn.
Eftir Unni H. Jóhanns-
dóttur
uhj@mbl.is
Tuttugu og fjórir ís-
lenskir hönnuðir,
RJÓMI íslenskrar hönn-
unar, munu kynna verk
sín í 240 mínútna hönn-
unarmaraþoni sem verður í
Listasafni Reykjavíkur í dag.
Nemendur Háskólans í Reykjavík
og Listaháskóla Íslands standa að
viðburðinum sem ætlað er að efla
tengsl viðskipta- og hönnunarlífs.
Þar verða vöruhönnuðir, grafískir
hönnuðir, fatahönnuðir og arki-
tektar. Morgunblaðið sló á þráðinn
til vöruhönnuðanna og lagði fyrir
þá eina spurningu hvern.
Hvað finnst þér svona
skemmtilegt við vöruhönnun?
„Frá því að ég var lítill strákur
hef ég verið að smíða og búa til
hluti. Ég ætlaði að verða uppfinn-
ingamaður og vöruhönnun kemst
nálægt því. Þetta er draumastarf.“
Óðinn Bolli, útskrifaðist frá
Listaháskóla Íslands árið 2005
Hvað finnst þér
skemmtilegast að hanna?
„Þetta er svolítið erfið spurning
en mér finnst mjög gaman þegar
hugmyndir koma til mín. Ein hug-
Þórdís Zoëga, útskrifaðist frá
Skolen for Brugskunst árið 1980.
Hvað hefur breyst í vöruhönn-
un á undanförnum áratugum?
„Netið hefur auðvitað breytt
geysilega miklu og gefur færi á
fleiri og stærri markaðssvæðum.
Þá hafa hönnuðir líka möguleika á
að vinna með miklu fjölbreyttari
efni en þegar ég byrjaði að vinna í
húsgagnahönnuninni fyrir 45 ár-
um.“
Gunnar Magnússon, útskrifaðist
Þórdís Sófinn Mosi
sem hannaður var
fyrir sýninguna
Expó 2000.
Vandað til
vöruhönnunar
Katrín
Myndskreytt
snjóbretti.