Morgunblaðið - 28.10.2006, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 35
reynsla, áhugi, kraftur
Kristján í 2.sætið
- Allir velkomnir
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
í Suðurkjördæmi
Ný tækifæri
á varnarsvæðinu
- Hvað er framundan hjá
nýju hlutafélagi?
Frummælendur:
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæ.
Kristján Pálsson
f.v. alþingismaður.
Fundarstjóri:
Gunnlaugur Kárason, Heimi
félagi ungra Sjáfstæðismanna.
Sunnudaginn 29. október kl.13:30
boðar Kristján Pálsson til fundar
um framtíð varnarsvæðisins og hvert
stefnir í atvinnumálum svæðisins.
www.kristjanpalsson.is
Fundarstaður:
Kosningaskrifstofan
Hólagötu 15, Reykjanesbæ.
SNYRTISETRIÐ
h ú ð f e g r u n a r s t o f a sími 533 3100 – Domus Medica
CELL RESTRUCTURE
Eyðir línum og hrukkum
Yngjandi meðhöndlun
Árangur strax
Betra en Botox!?
20%
afsláttur
af 10 tíma
kortum
Snyrtisetrið – líttu vel úti i lí l
mjög sjaldgjæf en ég man eftir lifandi ísbirni á
Sædýrasafninu sem var í pínulítilli og djúpri
gryfju.“
Bryndís og Mark hafa í listsköpun sinni
skoðað hugmyndir mannsins um náttúruna og
umhverfið með því að rannsaka samband hans
við dýr. Dýrin sem slík eru hinsvegar ekki til
staðar í verkunum sjálfum. „Ísbjörnin sem fyr-
irbæri í náttúrunni hefur fangað hugmynda-
flug fólks og vakið spennu, enda komast fáir í
návígi við hann. Ísbirnir eru miklir einfarar
sem ferðast ótrúlegar vegalengdir á degi
hverjum og heimkynni þeirra eru hvít og köld.
Þeir eru nánast samlitir umhverfi sínu og
vegna þess hvað þeir eru stórir og framandi,
þá er mannfólkið hrætt við þessar fallegu
skepnur. En yfir þeim er goðsagnakenndur
blær og allir hafa heyrt ævintýralegar sögur
um hvítabirni og samskipti þeirra við menn.
Það virðist líka vera einhver karlmennsku-
ímynd tengd því að fella stórar skepnur.“
Urðu geðveikir í dýragörðum
Bryndís segir að þó ætlunin hafi verið að leita
uppi alla uppstoppaða hvítabirni í Bretlandi, þá
leynist þar eflaust fleiri en þessir þrjátíu og
fjórir sem þau Mark höfðu upp á. „Flesta fund-
um við á söfnum, marga í geymslum, aðra á
einkaheimilum fólks og þá oftast hjá aðalsfólki.
Þessir ísbirnir spanna yfir 200 ára tímabil. Sá
elsti er frá 1786 en við fundum hann á einka-
heimili, nánar tiltekið í Blair kastala í Pert-
hshire, þar sem hann stendur heldur óhrjálegur
í stigagangi hjá fornum herklæðum Samuraia.
Yngstu birnirnir eru frá seinni hluta tuttugustu
aldarinnar og höfðu orðið brjálaðir af því að búa
í dýragörðum og því verið drepnir og stoppaðir
upp. Kannski ekkert skrítið að skepna sem er
einfari og kemur úr víðáttumiklu umhverfi
norðurskautsins þrífist illa í dýragörðum.“
Bryndís segir að hlutverk þessara uppstopp-
uðu ísbjarna sem þau Mark fundu, hafi verið
margvíslegt. „Sumir voru notaðir í kennslu-
stundum á menntastofnunum, aðrir sem heim-
ilsprýði og einn hafði lengi verið á læknabið-
stofu og haldið á lampa. Tveir var staðsettir í
dýragarði sem einskonar kennsluefni og börn
fengu að sitja á þeim. Og einn ísbjörn fundum
við á krá. Hann var reyndar aðeins með haus,
herðar og framloppur, því hann hafði eyðilagst í
sprengingu þjóðverja árið 1940 þegar hann stóð
sem stáss á hóteli sem hét White Bear Hotel.
Þessi björn hafði verið skotinn á Alaska árið
1901.“
Hættulegir hungraðir
Stellingarnar sem ísbirnirnir eru stoppaðir
upp í eru misjafnar. „Þeir sem voru frá lokum
nítjándu aldar og byrjun þeirra tuttugustu,
virðast oftar vera ógnandi og í árásarstell-
ingum, kannski líka til að sýna hvað menn höfðu
lagt mikið á sig til að fanga þá. En þeir yngstu í
hópnum eru frekar í vinalegum stellingum, eins
og þeir séu jafnvel að leika sér og minna svolítið
á Kóka kóla auglýsinguna, enda eru það birnir
sem höfðu verið í dýragörðum og fólk upplifað
þá sem góða og sæta.“
En sýningin með ljósmyndunum af uppstopp-
uðu ísbjörnunum er stærra verkefni, því Bryn-
dís og Mark hafa í tengslum við hana gefið út
bókina nanoq: flat out and bluesome. Þar eru
allar myndirnar og ýmsar greinar tengdar efn-
inu. „Við vorum líka með ráðstefnu í tengslum
við verkefnið þar sem rædd var staða dýra í
myndlist, veiðar og fleira,“ segir Bryndís og
bætir við að hvítabirnir séu friðaðir en á Græn-
landi megi þó skjóta ákveðinn fjölda þeirra ár-
lega. „Ef fólk kemst í hættu í návígi við björn,
þá má auðvitað skjóta hann, enda geta þeir ver-
ið mjög grimmir ef þeir komast mjög hungraðir
til mannabyggða og þá eru þetta hættulegar
skepnur.“
Ísbirnir uppi í rúmi hjá gestunum
Bryndís segir að það hafi verið mjög
skemmtilegt að koma inn á heimilin þar sem
uppstoppaða ísbirni var að finna.
„Til dæmis voru hjón á miðjum aldri í Somer-
set með brosandi ísbjörn á ganginum hjá sér og
hann var með fangið fullt af lýsandi gervitúlí-
pönum. Heimilisfaðirinn hafði fengið björninn í
afmælisgjöf þegar hann var tuttugu og eins árs
frá systur sinni. Við fundum líka tvo uppstopp-
aða ísbirni í forstofunni hjá gömlum lávarði sem
var mikill indælis maður. Hann var mjög stoltur
af þessum skepnum enda hafði faðir hans skotið
þær á sínum tíma. Hann gaf okkur líka leyfi til
að birta í bókinni okkar myndir sem teknar voru
í veiðileiðangrinum, einstakar myndir sem aldr-
ei fyrr hafa verið birtar. Karlinn faðir hans
skaut hvorki meira né minna en fimmtíu og
fimm ísbirni í þessari ferð,“ segir Bryndís og
bætir við að hann hafi sagt þeim skemmtilegar
sögur af matarboðum þar sem húsráðendur
léku sér með birnina. „Þeir voru settir upp í
rúm hjá gestunum til að hrekkja þá og fleira í
þeim dúr. Blessaður Lordinn átti margar
skemmtilegar minningar tengdar þeim og hafði
svolitlar áhyggjur af framtíð þeirra, vegna þess
að hann var að fara að flytja af óðalinu í hús á
landareigninni, en einkasonur hans á að taka við
óðalinu. Hann var ekki viss um að sonurinn
kynni að meta ísbirnina og ætlaði því jafnvel að
taka þá með sér í nýja húsið.“
Morgunblaðið/Kristinn
Ísbjarnarkona Myndlistarkonan Bryndís Snæbjörnsdóttir hugsar
til hvítabjarnarins í kuldanum við opið haf á Íslandi.
Ljósmynd/Snæbjörnsdóttir/Wilson
Hálfur björn Þessi ísbjörn er á krá og sómir sér vel innanum flöskurnar.
Ísbjörnin sem fyrirbæri í náttúrunni hefur fangað
hugmyndaflug fólks og vakið spennu, enda kom-
ast fáir í návígi við hann. Ísbirnir eru miklir ein-
farar sem ferðast ótrúlegar vegalengdir á degi
hverjum og heimkynni þeirra eru hvít og köld.
frá Kunst-
håndverken í Kaup-
mannahöfn árið
1963.
Er munur á að
vinna að vöru-
hönnun á Íslandi
og í útlöndum?
„Ég hef unnið að
hönnun í Svíþjóð,
Ítalíu, Bretlandi,
Asíu og Þýskalandi
auk Íslands. Það er
jafngott að fá hug-
myndir hér og annars
staðar, hér er gott
rými fyrir skapandi anda. Hins
vegar er erfiðara að fá efnivið
til hönnunar eða keppa við er-
lenda framleiðendur í verði. En
hugmyndir, þær ferðast ekki í
efni.“
Katrín Pétursdóttir Young, út-
skrifaðist frá ESDI í París árið
1980.
Tinna Kollar úr trefjagleri sem
hönnuðurinn hefur nefnt Paint Balls.
Gunnar Borðstofuborðið Edda er áratugagömul hönnun en sígild.
TENGLAR
.....................................................
www.rjomi.is