Morgunblaðið - 28.10.2006, Side 48
48 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞAÐ er undarleg þversögn fólg-
in í því að merkja rafhlöður með
norræna umhverfismerkinu Svan-
inum meðan starfsmenn verk-
smiðju í Kína sem framleiðir þær
verða fyrir eitrunaráhrifum.
Tískuvörukeðjan Hennes & Mau-
ritz hefur verið staðin að því að
selja peysur sem framleiddar voru
í verksmiðju í Kambódíu þar sem
börn voru látin vinna, laun voru
langt undir öllum velsæm-
ismörkum og þar sem brotið var
gegn ýmsum samþykktum Al-
þjóðavinnumálastofnunarinnar um
vinnuumhverfi. Margar af þeim
vörum, sem seldar eru á Norð-
urlöndum nú á dögum hnattvæð-
ingarinnar, eru framleiddar við
óásættanleg vinnuskilyrði.
Alþjóðlegar rannsóknir sýna að
Norðurlönd hafa allar forsendur
til að spjara sig í hnattvæddu
efnahagslífi. Þau fá háa einkunn
þegar samkeppnishæfni er mæld.
Á Norðurlandaráðsþingi, sem
haldið verður í Kaupmannahöfn
um mánaðamótin október-
nóvember, verður velferðarsam-
félag framtíðarinnar eitt af meg-
inumræðuefnunum. Forsætisráð-
herrar Norðurlanda, helstu
leiðtogar stjórnarandstöðunnar og
fjölmargir aðrir stjórnmála-, vís-
inda- og embættismenn verða
meðal þátttakenda í umræðunni.
Yfirskriftin er „Norðurlönd í
fararbroddi á alþjóðavettvangi“
(Norden som global vinderregion).
En hverjir eru það þá sem verða
undir á dögum hnattvæðingar? Og
hvaða stefnu þarf að taka í vel-
ferðarmálum til þess að hnattvæð-
ingin bitni ekki á ákveðnum hóp-
um fólks? Hugum aftur að
rafhlöðunum frá Kína:
Yfirskriftin er „Norðurlönd sem
alþjóðlegt sigursvæði“. En hverjir
eru þeir þá sem tapa? Og hvaða
velferðarstefnu á að taka ef við
viljum hnattvæðingu án þess að
einhverjir tapi? Hugum aftur að
rafhlöðunum frá Kína:
Á Norðurlandaráðsþingi ætla
þingmenn Vinstri-grænna flokka
að leggja fram tillögu um að
Norðurlönd verði í fararbroddi
hvað varðar alþjóðlega ábyrgð.
Við leggjum til að á Norð-
urlöndum fái vörur sem fram-
leiddar eru á ábyrgan hátt frá al-
þjóðlegum sjónarhóli sérstakt
merki. Merkið er trygging fyrir
því að vinnuskilyrði og launa-
greiðslur hafi verið í lagi í öllu
framleiðsluferlinu, að samþykktum
Alþjóðavinnumálastofnunarinnar
og mannréttindasáttmála Samein-
uðu þjóðanna hafi verið fylgt og
að börn hafi ekki unnið að fram-
leiðslunni. Skilyrðin til neytenda
eru skýr: Kaupið þessa vöru því
hún var framleidd á ábyrgan hátt.
Norræna umhverfismerkið
Svanurinn gefur neytendum kost
á að kaupa þær vörur sem fram-
leiddar eru á umhverfisvænan
hátt. Það er kominn tími til að
gera þeim jafnframt kleift að velja
vörur sem eru framleiddar á fé-
lagslega ábyrgan hátt og til að
auka söluna á félagslega sjálf-
bærum vörum.
Umsjón með nýju merki fyrir
Alþjóðlega ábyrgð gæti verið á
hendi norrænnar merkjanefndar
eins og Svanurinn. Nefndin gæti
sett reglur um notkun merkisins
og haldið utan um gagnagrunn um
viðurkenndar vörur og fram-
leiðsluaðferðir. Yfirvöld í hverju
Norðurlandanna myndu sjá um
eftirlit á sama hátt og gert er með
Svaninn. Skilyrðin fyrir merking-
unni skal þróa í samvinnu við
neytendasamtök, mannréttinda-
samtök, samtök atvinnulífsins og
stéttarfélög.
Við viljum beita okkur fyrir
hnattvæðingu þar sem enginn
verður undir.
Line Barfod (EL-Danmörku)
May Hansen (SV-Noregi)
Høgni Hoydal (TF-Færeyjum)
Elina Linna (v-Svíþjóð)
Outi Ojala (vänst-Finnlandi)
Johan Lund Olsen
(IA-Grænlandi)
May Hansen (SV-Noregi)
Steingrímur J. Sigfússon
(VG-Íslandi)
Kristen Touborg
(SF-Danmörku)
Hnattvæðing þar
sem enginn verður undir
Þingmenn í þingmannahópi
Vinstri-grænna í Norð-
urlandaráði skrifa um al-
þjóðlega ábyrgð
» Á Norðurlandaráðs-þingi ætla þingmenn
Vinstri-grænna flokka
að leggja fram tillögu
um að Norðurlönd verði
í fararbroddi hvað varð-
ar alþjóðlega ábyrgð.
Höfundar eru þingmenn í þing-
mannahópi Vinstri-grænna í Norð-
urlandaráði.
HVERSU oft og lengi hafa
landsmenn ekki mátt hlusta á ráð-
stjórnarmenn lofa og prísa stöð-
ugleikann í efnahagsmálum? Þeir
halda meira að segja áfram þeim
söng, þótt allt leiki á reiðiskjálfi,
sem nýi sérfræðingurinn í Seðla-
bankanum ber gleggst vitni um
með aðgerðum sínum í vaxta-
málum.
Sannleikurinn er sá, að ráð-
stjórnarmenn hafa teflt djarft í
efnahagsmálum um langa hríð.
Allan síðasta áratug hefir út-
gjaldahlið fjárlaga farið langt
fram úr verðlagsþróun, auk millj-
arða eyðslu utan fjárheimilda.
Skipbroti ríkisstjórna Halldórs
og Davíðs þarf ekki að lýsa fyrir
fólki. Verðbólgan æðir áfram; við-
skiptahallinn geigvænlegur ár
eftir ár; skuldir þjóðarbúsins við
útlönd vaxa með risaskrefum:
Skammtímaskuldir við útlönd,
sem námu 18% af landsfram-
leiðslu árið 2000, nema nú 85%,
eða tíföldun gjaldeyrisforða
Seðlabankans!
Fyrr á árinu lýstu sérfræðingar
yfir því að stíga yrði fast á
bremsur í ríkisrekstrinum vegna
verðþenslunnar. Þjóðarbúinu
lægi raunar lífið á að draga saman
seglin vegna hinnar ógnvænlegu
verðþróunar.
Og ýmsir málsmetandi menn
trúðu því að sú yrði raunin. Aðrir,
sem betur þekkja til atkvæða-
kaupmanna ráðstjórnar, voru
ekki eins bjartsýnir.
Og hvað kemur á daginn við
framlagningu fjárlagafrumvarps
fyrir næsta ár, 2007?
Það ber með sér að fullur skrið-
ur verður á skútunni, enda engin
hætta á kollsiglingu fyrir kosn-
ingar að vori. Ráðstjórnarmenn
lýsa því hiklaust yfir að nú þegar
hafi verið siglt fyrir öll sker sem
öðrum sýnast blasa við fram-
undan. Nú sé kominn tími til að
setja á fulla ferð í fjáraustri, þar
sem öll hættumerki í efnahags- og
fjármálum séu að baki.
Það verður áhugavert að fylgj-
ast með viðbrögðum Seðlabanka.
Hvernig mun hann grípa um
vaxtastýrið? Mun hann snar-
beygja frá fyrri stefnu og horfa á
atkvæðakaupendurna leika listir
sínar? Sleppa kannski stýrinu al-
veg og lýsa því þar með yfir, að
skoðanir hans og allar aðgerðir í
efnahags- og peningamálum að
undanförnu hafi verið á misskiln-
ingi byggðar?
Það væri eftir öðru.
Sverrir Hermannsson
Óstöðugleiki
Höfundur er fv. form.
Frjálslynda flokksins.
Í LOK nítjándu aldar héldu menn
því fram, að aðgreining á vinstri og
hægri í stjórnmálum skipti engu
máli. Nú er liðin meira en öld og enn
skipar fólk sér í flokka til vinstri eða
hægri. Það er ekki að
tilefnislausu því mun-
urinn skiptir máli.
Hver er munurinn
Hugmyndafræðilega
felst munurinn í
grundvallarviðhorfi til
samfélagsins. Vinstri-
menn byggja viðhorf
sín á því að samfélagið
eigi að byggjast á jöfn-
uði. Hægrimenn gera
það ekki og byggja á
kenningum um lítt
breytanlega sam-
félagsskipan þar sem sumir séu öðr-
um óhjákvæmilega æðri. Af borðum
þeirra hrjóti gæði til þeirra sem
lægra sitja. Í augum þeirra er vel-
ferðarsamfélagið samfélag þeirra
sem þiggja af því að þeir hafi orðið
undir af einhverjum ástæðum og
þeirra sem gefa vegna þess að þeir
hafi orðið ofan á. Í augum vinstri-
manna er velferðarsamfélagið sam-
félag jafnrétthárra einstaklinga sem
eiga rétt til þess að tækifæri og að-
staða séu jöfnuð. Þessi munur birtist
ekki bara í staðbundnum stjórn-
málum heldur einnig í alþjóðastjórn-
málum og kristallast í viðhorfum
hægrimanna til þróunaraðstoðar, al-
þjóðastofnana og mannréttinda.
Getur munurinn horfið
Það er alþekkt, að þegar stjórn-
málaflokkur hefur staðið lengi
áhrifalaus eða stendur frammi fyrir
því að missa völd, hefur hann upp
raust sína um, að mun-
urinn á hægri og
vinstri sé horfinn.
Vinstri flokkum er
þetta ekki síður tamt
en hægri flokkunum.
Breski verka-
mannaflokkurinn
komst til valda með
þessum hætti. Hann
tók upp ýmis þau mál
sem alfarið höfðu verið
álitin mál breska
íhaldsflokksins. Sama
er breski íhaldsflokk-
urinn að gera núna og
að því er virðist með góðum árangri.
Nú þegar stefnir í að almenningur
hér á landi sé að vakna til vitundar
um það hyldýpi sem myndast hefur
milli hinna efnaminni og efnameiri,
freistast frambjóðendur Sjálfstæð-
isflokksins til þess að taka upp hin
ýmsu velferðarmál og kynna að auki
til sögunnar hægrigræna stefnu.
Þessa leið fór Sjálfstæðisflokkurinn
í Reykjavík í síðustu sveitarstjórn-
arkosningum og tókst bara nokkuð
vel ef marka má úrslitin. Þessi
áhersluflutningur eyðir hins vegar
ekki þeim grundvallarmun sem á
hægri og vinstri er. Hægrimenn
hafa alltaf og munu alltaf vinna gegn
jöfnuði og þeim stjórntækjum og
stofnunum sem notuð eru til jöfn-
unar, hvort heldur það er skatt-
kerfið, almannatryggingar eða líf-
eyriskerfið. Á sama hátt munu
vinstrimenn alltaf vinna að jöfnuði
og styrkingu innviða velferðarsam-
félagsins. Það fólk sem stendur á
miðju stjórnmálanna og til vinstri
má því ekki láta blekkjast núna á
kosningavetri og mikilvægt að Sam-
fylkingin haldi kúrsinum klárum.
Það er verk að vinna
Ég tel að Samfylkingunni sé best
treystandi til þess að vinna þau í sátt
við allt samfélagið. Ég hvet þig ein-
dregið til þess að taka þátt í próf-
kjöri Samfylkingarinnar í Suðvest-
urkjördæmi þann 4.11. nk og leggja
þitt af mörkum til að móta sterkan
og frambærilegan framboðslista í
kjördæminu. Ég vil taka 2.–3. sætið
á þeim lista og óska eftir stuðningi
þínum.
Vinstri eða hægri,
er einhver munur?
Magnús M. Norðdahl
fjallar um stjórnmál » Það er alþekkt, aðþegar stjórnmála-
flokkur hefur staðið
lengi áhrifalaus eða
stendur frammi fyrir því
að missa völd, hefur
hann upp raust sína um,
að munurinn á hægri og
vinstri sé horfinn.
Magnús M. Norðdahl
Höfundur er lögfræðingur ASÍ og
býður sig fram í 2.–3. sæti á fram-
boðslista Samfylkingarinnar í SV-
kjördæmi.
TENGLAR
..............................................
www.mn.is
UMHVERFISRÁÐHERRA
Ástralíu, Ian Campbell, sagði ný-
verið í tengslum við hvalveiðar ís-
lensku ríkisstjórn-
arinnar að: „Ekki sé
hægt að taka Ísland
alvarlega hvað varðar
umhverfismál héðan í
frá.“ Mér þykir það
mjög skiljanleg um-
mæli þar sem rík-
isstjórn Íslands er að
draga okkur Íslend-
inga lengra niður í
fen, þar sem um-
hverfissjónarmið eru
algerlega virt að
vettugi. Þar standa
hæst virkjanamál og
nýlega leyfðar hval-
veiðar. Hinsvegar
reynir ríkisstjórnin
að telja okkur trú um
að hún sé umhverf-
isvæn og stuðli að
sjálfbærni, orða-
tiltæki sem hið al-
þjóðlega stórfyr-
irtæki Alcoa hefur
verið þekkt fyrir að
nota. Samkvæmt íslenskri orðabók
er sjálfbærni: „auðlindanýting sem
fullnægir samtímaþörfum án þess
að ganga á möguleika komandi
kynslóða til að nýta auðlindirnar.“
Sjálfbærni er yfirleitt notað um
hluti sem hafa ekki skaðleg áhrif á
umhverfið og geta „borið sig sjálf-
ir“ eins og litlar vatnsaflsvirkjanir
sem skaða ekki lífríki og eru ætl-
aðar til óskaðlegra nytja eða rækt-
un grænmetis á lífrænan máta án
skaðlegra efna fyrir umhverfið.
Framkvæmdir sem ekki skaða
möguleika komandi kynslóða til að
nýta auðlindirnar einnig.
Ríkisstjórnin og Alcoa snúa
þessu hinsvegar upp í einhverja
afskræmda mynd þar sem orðið
virðist þýða einmitt hið öfuga.
Einar K. sjávarútvegsráðherra,
sem greinilega ætlar sér að koma
Íslandi á kortið sem óvinsælustu
þjóð Evrópu, segir að hvalveiðar
séu sjálfbær auðlinda-
nýting. Vissulega er
þetta auðlindanýting
en að hún sé sjálfbær
vil ég ekki samþykkja.
Að veiða hvali sem eru
í útrýmingarhættu,
það er langreyði, get-
ur aldrei talist sjálf-
bær. Veiðarnar full-
nægja heldur ekki
þörfum komandi kyn-
slóða þar sem Íslend-
ingar borða sjálfir
mjög lítið magn af
hvalkjöti og veiðarnar
skaða hvalaskoðun og
ferðamannaiðnaðinn.
Alveg eins og það að
reisa álverksmiðju
sem mengar álíka
mikið og allur bílafloti
Íslands og hefur skað-
leg áhrif um allan
heim hvað varðar sú-
rálsframleiðslu getur
heldur ekki talist
sjálfbært. Hvað þá að vilja nota
allar mögulegar orkuuppsprettur á
Íslandi til þess að útvega hræó-
dýrt rafmagn fyrir orkufrekan iðn-
að.
Sjálfbærni er mjög mikilvægt
hugtak í heimi sem virðist vera að
falla á tíma í umhverfismálum.
Þetta er hugtak sem hugsjónafólk
notast við til að skapa samfélög
sem lifa í sátt við náttúruna.
Ríkisstjórn Íslands er ekki þess
verð að notast við þetta hugtak!
Ísland mun seint
verða tekið alvar-
lega í umhverfis-
málum aftur
Einar Rafn Þórhallsson fjallar
um hvalveiðar
Einar Rafn Þórhallsson
» Að veiðahvali sem
eru í útrýming-
arhættu, það er
langreyði, getur
aldrei talist
sjálfbært.
Höfundur er meðeigandi í sam-
vinnurekna kaffihúsinu Kaffi Hljóma-
lind og Proutisti.
mbl.issmáauglýsingar