Morgunblaðið - 28.10.2006, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 53
hann að fara í sína árlegu golfferð til
Ameríku með henni Dóru sinni og
vinafólki. En svo komu fréttirnar um
að Gulli hefði látið lífið í umferðar-
slysi. Við Gulli erum bæði nágrannar
og samstarfsmenn hjá Skipalyftunni í
Vestmannaeyjum síðan hún var stofn-
uð í nóvember 1981. En árið 1988
gerðist ég sameignarmaður hans í
fyrirtækinu ásamt fleiri góðum mönn-
um. En það er alveg á hreinu að
vinnustaðurinn verður aldrei sá sami
án þín. Því í dag sé ég hvað ein mann-
eskja getur skipt vinnustað miklu
máli.
Ekki vorum við Gulli alltaf sam-
mála, það kom fyrir að ég skellti hurð-
um þegar mér fannst hann ósann-
gjarn, en við létum ekki svoleiðis
smámuni spilla vináttu okkar, jú, við
stefndum að sama takmarkinu, að
láta fyrirtæki okkar ganga sem best,
sem voru reyndar ekki aðeins í Eyjum
heldur líka á Selfossi og Hvolsvelli.
Hugur Gulla til vinnustaðar síns var
bæði heill og hollur.
Ekki var Gulli skaplaus maður,
hann lét ekki vaða yfir sig en hann var
heldur ekki ósanngjarn. Hann hafði
skoðanir og þær voru réttar. Allavega
var maður ekkert mikið að reyna að
breyta þeim.
Gulli var félagslyndur, var m.a. fé-
lagi í Kiwanis- og Golfklúbbi Vest-
mannaeyja.
En fyrst og síðast var Gulli mikill
fjölskyldumaður, vildi að fjölskyldu
sinni liði vel og einhvern veginn held
ég að fjölskyldan hafi litið á hann sem
sinn foringja. En lífið lék ekki alltaf
við Gulla og hans fjölskyldu, því þau
misstu unga dóttur sína í bílslysi.
Nú þegar ljóst er að leiðir okkar
skilja í bili er maður ekki sáttur, því
hvenær er nokkur viðbúinn þeirri
stund þá er vinur er kallaður burt, ég
tala nú ekki um svona snöggt, því er
það svo sárt, því er það svo þungt. Þú
ert kallaður burt án fyrirvara, án
orða, án þess að nokkurn hafi órað
fyrir að nú væri stundin komin. Ég og
fjölskylda mín viljum senda Dóru og
fjölskyldu innilegustu samúðarkveðj-
ur okkar, ég veit að foringjans er sárt
saknað. Farðu í friði, kæri vinur.
Þinn samstarfsfélagi til margra
ára,
Stefán Örn Jónsson.
Það var í hádeginu 16. október sl.
að ég fékk þá hræðilegu frétt að hann
Gulli Axels væri dáinn. Við slíka frétt
leitar hugurinn til baka og samskipti
okkar Gulla í gegnum árin rifjast upp.
Ég kynntist Gulla þegar ég hóf
nám í vélvirkjun í Vélsmiðjunni Völ-
undi vorið 1971. Gulli var þá forstjóri
Völundar og einn af eigendum ásamt
þeim Tryggva Jóns, Friðþóri,
Tryggva Jónasar og Ella. Það hófst
ótrúlega fljótt vinskapur milli mín og
Gulla, þ.e. forstjórans og peyjans
frammi á gólfi.
Í gosinu 1973 hóf Vélsmiðjan Völ-
undur rekstur í Kópavogi þar sem
verkfæri höfðu verið flutt úr Eyjum
og menn tilbúnir að taka slaginn á
höfuðborgarsvæðinu, eða þar til að
flutt yrði heim aftur. Vann ég þar
fram á haust eða þar til ég fluttist aft-
ur heim til Eyja. Þegar foreldrar mín-
ir fluttu heim aftur í byrjun septem-
ber stóð þannig á hjá mér í vinnunni
að ég gat ekki flutt með. Varð ég þá að
redda mér gistingu. Gulli sagði það
ekkert mál, ég yrði bara hjá honum og
Dóru. Gisti ég hjá fjölskyldunni í einn
mánuð og kynntist ég þá nýrri hlið á
Gulla sem heimilisföður og var hún
ekki síðri en forstjórans. Það var
mjög ljúft að gista hjá þeim og vildu
þau allt fyrir mig tvítugan peyjann
gera.
Árið 1976 fórum við Gulli saman í
„útgerð“ ásamt þeim Tryggva Jónas-
ar og Hrafni Steindórs vinnufélögum
okkar. Festum við kaup á nýrri
þriggja tonna trillu og fóru páskarnir
það ár í að standsetja trilluna, setja
niður vél, smíða stýrishús o.fl. Trillan
var skírð Fjarki VE 444 og fórum við
félagarnir ófáa túrana á skak eða
skytterí.
Þegar ég byrjaði að byggja húsið
mitt 1978 var gott að eiga Gulla í for-
stjórastólnum í Völundi því oft stóð
illa á og þörf fyrir pening þegar staðið
er í húsbyggingu. Ósjaldan fékk mað-
ur fyrirfram eða jafnvel smá lán til
lengri tíma. Já, hann Gulli reyndist
mér mjög vel á þessum árum.
Árið 1981 sameinuðust Völundur
og Vélsmiðjan Magni og úr varð
Skipalyftan. Vann ég þar með Gulla
sem forstjóra til ársins 1990, en þá
stofnaði ég lítið verkstæði sjálfur, eitt-
hvað varð það að heita og leitaði ég því
til Gulla og hinna fyrrverandi eigenda
Vélsmiðjunnar Völundar og spurði
hvort þeim væri ekki sama þótt verk-
stæðið mitt héti Vélsmiðjan Völund-
ur, jafnvel þótt ég væri í smá sam-
keppni við þá í Lyftunni. Samþykktu
þeir það strax. Gulli sagði þá nokkuð
við mig sem mér þótti afar vænt um:
„Ef þetta nafn á einhvers staðar
heima þá er það hjá þér, Halli minn.“
Kynni mín af Gulla síðastliðin 35 ár
hafa einungis verið ánægjuleg enda
ekki annað hægt þegar slíkur maður
eins og Gulli átti í hlut.
Elsku Fríða Dóra, Bóbó, Jóhanna,
Halldór og fjölskyldur, ég votta ykkur
mína dýpstu samúð. Megi Guð
styrkja ykkur í ykkar miklu sorg.
Far í friði, vinur.
Hallgrímur Tryggvason.
Kveðja frá Golfklúbbi
Vestmannaeyja (GV)
Í dag kveðjum við okkar góða fé-
laga til margra ára, Gunnlaug Axels-
son, Gulla Axels. Segja má að saga
Gulla og GV sé um margt samofin.
Gulli fæddist árið 1940 og GV var
stofnað árið 1938 og einn af stofnend-
um var faðir Gulla, Axel Halldórsson.
Gulli var snemma byrjaður að fylgjast
með golfinu og spila sjálfur og hefur
gert alveg til dagsins í dag. Í dag eru
barnabörnin byrjuð í golfinu og fylgd-
ist afinn vel með þeim og studdi í æf-
ingum og leik.
Gulli fylgdist vel með og tók virkan
þátt í starfi GV, var góður kylfingur
og fáir voru betur að sér um reglur og
siði golfsins. Gulli var í öldungaliði GV
hin seinni ár, mikilvægur hlekkur í lið-
inu sem vann fimm Íslandsmeistara-
titla. Gulli gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir klúbbinn í gegnum árin.
Hann var formaður GV árin 1972-
1973 og árið 1977 og tók m.a. þátt í
uppbyggingu og hreinsun vallarins í
Herjólfsdal eftir gos. Hin síðustu ár
var Gulli í mótsnefnd fyrir hið vinsæla
Volcano Open golfmót og átti sinn
þátt í því að gera það að því stórmóti
sem það er orðið í dag. Gulli var
veislustjóri og sá um verðlaunaaf-
hendingu í mótinu og gerði það með
miklum sóma enda glæsileg fyrir-
mynd, myndarlegur á velli, kominn í
blazerinn og stjórnaði dagskránni.
Nýlega kláraði Gulli að setja upp nýja
heimasíðu fyrir klúbbinn og skilaði
þeirri vinnu vel frá sér.
Undanfarin ár höfum við verið
þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa haft
lífsförunaut Gulla, hana Fríðu Dóru,
til að sjá um veitingasöluna í golfskál-
anum. Oft kom Gulli í heimsókn í golf-
skálann að hitta sína heittelskuðu og
spjalla við félagana um golfið og ann-
að sem var að gerast í þjóðfélaginu.
Undirritaður fékk þar oft góð ráð og
ábendingar um það sem vel væri gert
og það sem betur mætti fara. Gulli og
Fríða Dóra fóru árlega í golfferðir til
útlanda og höfðu góð sambönd víða og
var gott að leita til Gulla um að taka á
móti gestum á vegum klúbbsins.
Mikill er missir okkar félaga í GV
en mestur er missirinn hjá fjölskyldu
Gulla og ástvinum. Um leið og við
kveðjum okkar góða félaga og þökk-
um fyrir allt, sendum við Fríðu, börn-
unum og öðrum ástvinum samúðar-
kveðjur. Minningin um frábæran
félaga lifir.
F.h. Golfklúbbs Vestmannaeyja,
Helgi Bragason, formaður.
Kveðja frá Kiwanisklúbbnum
Helgafelli
Enn á ný þurfum við Kiwanismenn
í Vestmannaeyjum að sjá á bak góð-
um félaga, því að einn af okkar traust-
ustu mönnum, Gunnlaugur Axelsson,
félagi í Kiwanisklúbbnum Helgafelli,
lést af slysförum að morgni 16. októ-
ber sl. Gulli gekk ungur til liðs við
Kiwanishreyfinguna, en hann var
einn þeirra er tóku þátt í að klúbbur
var stofnaður í Eyjum 1967 og starf-
aði óslitið fyrir hann alla tíð síðan.
Hann átti eðlilega stóran þátt í að
móta og byggja upp starf Kiwanis-
klúbbsins Helgafells, ásamt því að
taka virkan þátt í þeim fjölmörgu
verkefnum sem Kiwanismenn í Eyj-
um hafa unnið að síðustu 40 árin.
Gulli gegndi á sínum ferli flestum
embættum innan klúbbsins og var sá
eini er sat tvö ár sem forseti, það er
1972 til 1974, en vegna Heimaeyjar-
gossins 1973 var ekki skipt um stjórn
það ár. Hann var svæðisstjóri Sögu-
svæðis 1984–1985.
Gulli var mjög traustur Kiwanis-
maður, sem mat mikils þau gildi er
hreyfingin stendur fyrir. Hann var
duglegur og ákveðinn, gekk í þau verk
er vinna þurfti, án þess að orðlengja
hlutina. Hann var góður samstarfs-
maður og mikill fjölskyldumaður, auk
þess að vera einn af forystumönnum í
atvinnulífinu í Vestmannaeyjum,
þannig að stórt skarð er höggvið í rað-
ir okkar allra við skyndilegt fráfall
þessa góða drengs.
Við Helgafellsfélagar kveðjum nú
mætan félaga og vin um leið og við
þökkum það óeigingjarna starf sem
hann vann fyrir Kiwanishreyfinguna.
Við sendum hans góðu konu, Fríðu
Dóru, börnum þeirra og öðrum að-
standendum okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Fyrir hönd Helgafellsfélaga,
Ólafur H. Sigurjónsson.
Elskuleg móðir og amma,
SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn
22. október.
Útförin fer fram frá Áskirkju mánudaginn
30. október kl. 15.00.
Halldóra Ólafsdóttir,
börn og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
AUÐBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudag-
inn 24. október.
Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 31. október kl. 13.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast Auðbjargar er bent á Félag einstakra barna.
Guðmundur Arnaldsson,
Arnhildur Gríma Guðmundsdóttir,
Guðjón Guðmundsson, Elín Tryggvadóttir,
Grímur Nói og Eva Elínbjört,
Edda Margrét Guðmundsdóttir, Valtýr Stefánsson Thors,
Guðjón Gunnar og Helga,
Vala Védís Guðmundsdóttir, Simon Halink.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
MATTHÍAS JÓNSSON
frá Lækjarbotnum,
Hæðargarði 33,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn
30. október kl. 13.00.
Inga Ísaksdóttir,
Friðrik Axel Þorsteinsson, Helga Þ. Einarsdóttir,
Steinunn Jóna Matthíasdóttir,
Ísak Jakob Matthíasson, Hulda Gunnarsdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar,
STEFANÍA ARNFRÍÐUR HEIÐAR
SIGURJÓNSDÓTTIR,
lést fimmtudaginn 26. október.
Jarðarför auglýst síðar.
Kleópatra Kristbjörg Stefánsdóttir,
Jóna Hildur Jósepsdóttir,
Þorgerður Jósepsdóttir,
Gyða Álfheiður Jósepsdóttir,
Jósep Hjálmar Jósepsson
og fjölskyldur þeirra.
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er
auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegs föður okkar, tengdaföður og afa,
BÖÐVARS ÞÓRIS PÁLSSONAR,
Hringbraut 77,
Keflavík.
Guð blessi ykkur öll.
Ásta Vigdís Böðvarsdóttir, Kristján Vilhjálmsson,
Margrét Böðvarsdóttir, Einar Bergsson,
Anna Þóra Böðvarsdóttir, Lúðvík Smárason
og afabörnin.
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
ÞORSTEINN Ó. THORARENSEN
bókaútgefandi og rithöfundur,
Bólstaðarhlíð 41,
Reykjavík,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 26. október.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Sigurlaug Bjarnadóttir,
Ingunn Thorarensen,
Björn Thorarensen,
Björg Thorarensen
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
SIGURÐUR SNÆBJÖRNSSON,
Höskuldsstöðum,
Eyjafjarðarsveit,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtu-
daginn 26. október.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn
3. nóvember kl. 13.30.
Jarðsett verður að Munkaþverá.
Rósa Árnadóttir,
Snjólaug Sigurðardóttir, Matthías Henriksen,
Snæbjörn Sigurðsson, Elva Sigurðardóttir,
Árni Sigurðsson, Hrefna Laufey Ingólfsdóttir,
Ingólfur Sigurðsson, Bryndís Lúðvíksdóttir,
Elín Kristbjörg Sigurðardóttir, Hafþór Hreiðarsson,
Margrét Sigurðardóttir,
Pálína Stefanía Sigurðardóttir, Freyr Aðalgeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.