Morgunblaðið - 28.10.2006, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 67
menning
Til sölu
nokkrar glæsilegar fullbúnar íbúðir
í grónu hverfi 2ja, 4ra og 5 herbergja
• Tveggja herbergja 80 m²
• Fjögurra herbergja 135 m²
• Fimm herbergja 143 m²
Baðherbergi eru rúmgóð, 90 cm sturta, baðkar, eikarinnréttingar og
fínar flísar. Svefnherbergi er 12 til 16 m² með fallegum eikarskápum.
Eldhús eru rúmgóð með góðum borðkrók og eikarinnréttingum.
Stofurnar eru 30-40 m².
Á gólfum eru flísar og gott eikarparket.
Stórar svalir á móti suðri og sérstaklega fallegt útsýni.
Stutt í golfvöll.
Hrauntún ehf. byggir
Uppl. gefur Örn Ísebarn, byggingameistari,
í símum 896 1606 og 557 7060.
Dæmi um 2ja herbergja íbúð
EITT sinn skal hver
deyja segir í frægri vísu
sem býður mönnum að
herða upp hugann and-
spænis endalokunum.
Segja má að hugsanir
um dauðann hafi
snemma sótt á Jón Sæ-
mund Auðarson, sem nú
sýnir á Sequences-
myndlistarhátíðinni í
Galleríi Turpentine við
Ingólfsstræti, en hann
greindist ungur með
eyðnismit. Á þeim u.þ.b.
12 árum sem síðan eru
liðin hefur Jón Sæmund-
ur gert „Dead“ að vöru-
merki (þar sem sést
hauskúpa) í tengslum við
hönnun, m.a. fatnaðar,
og verslunarrekstur en
með þeirri athafnasemi
leitast hann við að vinna
gegn fordómum gagnvart
alnæmissjúkdómnum. Á heimasíðu,
þar sem svartur litur er allsráð-
andi, kemur einnig fram að „þeim
sem óttast dauðann sé ekki unnt að
njóta lífsins“.
Á sýningunni „Longplay“ birtast
hugleiðingar listamannsins um
dauðann, vonina, hið andlega – og
listina. Sýningin hefur gotneskt og
leikrænt yfirbragð, dálítið yfirdrif-
ið, og er svarti liturinn áberandi í
málverkum þar sem sjá má hrafna,
ábúðarmikið mannsandlit og beina-
grind sem heldur á hauskúpu. Á
vegg þar sem getur að líta sviðs-
mynd gjörnings sem framinn var
við opnun sýningarinnar sést stór
svört málningarsletta, uppstopp-
aður hrafn, þakinn svörtu olíulakki,
og á svartmáluðum stólum, sem
standa á bláu teppi, eru myndir af
hauskúpum. Hvítmálaðar mál-
aratrönur standa þar hjá. Á öðrum
stað getur að líta nautshöfuð á
vegg og rjúpu á stöpli, hvort-
tveggja innsiglað í hvítu lakki –
hvítu sem tákni vonarinnar?
„Íkonógrafískt“ myndmálið er
víða hrátt, jafnvel um of, svo sem í
táknum dauða og þjáningar (beina-
grind, hauskúpu, svartri litanotk-
un). Líkt og svartur litur tengist sá
hvíti í senn upphafinu og endinum.
Túlka mætti dramatíska táknnotk-
un listamannsins sem skírskotun í
sköpunarferlið – eyðileggjandi öfl
og endurfæðingu – í ýmsum skiln-
ingi: í sálrænum og listrænum
átökum eða í stærra samhengi fyrir
lífið sjálft. Niðurrifsáhrif mannsins
í náttúrunni koma jafnvel við sögu
þar sem óheillakrákur umlykja
mynd af Kárahnjúkavirkjun.
Jón Sæmundur beinir einnig
sjónum að andlegum málefnum en í
tveimur grafískum málverkum sést
andlit enska dulspekingsins Alist-
ers Crowleys, annað baðað birtu og
hita frá níu kösturum – í hinu rýnir
Crowley út úr svartri málning-
arþekjunni líkt og listamaðurinn
rýnir ef til vill sjálfur í endalokin.
Hvað tekur við – guðdómlegt ljós
eða tómið eitt?
Svarthvít endalok
MYNDLIST
Gallery Turpentine
Til 28. október 2006
Opið þri.–fö. kl. 12–18, lau.
kl. 12–16. Ókeypis aðgang-
ur.
Longplay – Jón Sæmundur
Auðarson
Morgunblaðið/Kristinn
Jón Sæmundur Á sýningunni Longplay birtast
hugleiðingar listamannsins um dauðann, von-
ina, hið andlega – og listina.
Anna Jóa