Morgunblaðið - 23.11.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.11.2006, Blaðsíða 2
Peningamarka›ssjó›ir eru fjárfestingarsjó›ir skv. lögum nr. 30/2003 um ver›bréfasjó›i og fjárfestingarsjó›i. Rekstrarfélag sjó›sins er Rekstrarfélag Kaupflings banka hf. Fjárfestingarsjó›ur telst vera áhættusamari fjárfesting en ver›bréfasjó›ur skv. lögunum. Meiri áhætta fjárfestingar- sjó›s er fólgin í r‡mri fjárfestingarheimildum sem geta m.a. leitt til minni áhættudreifingar en í ver›bréfasjó›i. Nánari uppl‡singar um framangreint má nálgast í útbo›sl‡singu e›a útdrætti úr útbo›sl‡singu sjó›sins í útibúum KB banka e›a á www.kbbanki.is. Ávöxtun í dollurum K a u p t h i n g L i q u i d i t y F u n d s Kynntu flér kosti Peningamarka›ssjó›a KB banka í ISK, USD og EUR 5,5%*5,6%* ávöxtun í evrum ávöxtun í dollurum *Nafnávöxtun í EUR og USD á ársgrundvelli fyrir tímabili› 29/9/06 - 31/10/06.                                                                     ! Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, net- fang vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Björn Jóhann Björnsson, frétta- stjóri, bjb@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins KAUPÞING banki hefur svarað þeirri 21 spurningu sem Ekstra blaðið danska vildi fá bankann til að svara vegna skrifa blaðsins um ís- lenskt viðskiptalíf og íslenska at- hafnamenn, en fyrsti hluti þeirra skrifa birtist í blaðinu í lok síðasta mánaðar. Sigurður Einarsson, stjórnarfor- maður bankans, segir í bréfi til Ekstra blaðsins, að það hafi ef til vill verið röng ákvörðun að svara ekki skrifum blaðsins strax. Lögmaður Kaupþings banka í Danmörku hafi hins vegar farið með bréf frá bank- anum til blaðsins 16. nóvember síð- astliðinn þar sem ýmsar rangfærslur í skrifum þess hafi verið leiðréttar. Ekkert svar hafi borist við því bréfi frá Ekstra blaðinu. Venjuleg yfirlýsing Fram kemur í bréfi Sigurðar að rétt fyrir blaðamannafund Kaupþings banka í Kaupmannahöfn 17. nóvem- ber síðastliðinn hafi Ekstra blaðið afhent bankanum 21 spurningu. Seg- ir í bréfinu að John Mynderup, blaðamaður á Ekstra blaðinu, hafi á fundinum dregið fram svo- kallaða peninga- þvættisyfirlýs- ingu sem starfs- menn Kaupþings banka hafi skrifað undir sem vitund- arvottar. Þessa yfirlýsingu hafi Mynderup sagt afar óvenjulega og sagst mundu gefa Sigurði rauðvíns- flösku ef hann gæti bent á aðra slíka. Segir Sigurður að með svörunum til Ekstra blaðsins fylgi undirrituð yfirlýsing frá þinglýsanda í Lúxem- borg þar sem fram komi að yfirlýs- ingin sem Mynderup kallar afar óvenjulega sé þvert á móti afar venjuleg og uppfylli að öllu leyti lög er þessi mál varðar. Sigurður segist ganga út frá því að Mynderup muni sýna að hann kunni að tapa veðmáli sem hann bauð sjálfur upp á. Svör send til Ekstra blaðsins Sigurður Einarsson reiknar með rauð- vínsflöskunni sem blaðamaður Ekstra blaðsins lofaði á blaðamannafundi Sigurður Einarsson ATLANTSSKIP hyggjast hefja strandflutninga norður og austur um land allt til Húsavíkur frá og með næstu áramótum að því gefnu að flutningarnir fái nægilegar góðar undirtektir á svæðinu. Gunnar Bachmann, framkvæmda- stjóri Atlantsskipa, sagði að búið væri að ganga frá öllum útreikningum varðandi siglingarnar. Fyrirtækið myndi kynna þennan flutningsmáta á Akureyri í næstu viku og yrðu und- irtektirnar nægilega góðar myndu siglingarnar hefjast í ársbyrjun 2007. Gunnar sagði að um yrði að ræða átta til níu viðkomustaði á Vestfjörð- um og Norðurlandi, allt austur til Húsavíkur eftir flutningsþörfinni frá hverjum stað. Austfirðir væru ekki inn í myndinni, enda væri Samskip og Eimskip með siglingar á Reyðarfjörð og þeir vildu frekar einbeita sér að því að veita betri þjónustu á Vestfjörðum og Norðurlandi. Siglt yrði einu sinni í viku og gæti skipið sem sinna myndi flutningunum siglt með 200 gámaein- ingar í einu. Til samanburðar gætu skip Atlantsskipa á Evrópuleiðinni flutt 500 gámaeiningar í einu. Farið yrði frá Reykjavík á fimmtudögum og komið þangað til baka á miðvikudags- morgnum aftur. Gunnar sagðist aðspurður sann- færður um að það væri góður rekstr- argrundvöllur fyrir strandflutning- um. Það sæist best á þeim miklu þungaflutningum sem færu fram um þjóðvegina á þessu svæði. „Hafi fyr- irtæki á annað borð áhuga á að nýta sér strandflutninga er þetta mjög auðvelt og hægt að gera á ódýrari hátt en fyrirtækin eru að kaupa þjón- ustuna á í dag,“ sagði Gunnar. Hann sagði að til viðbótar kæmi þjóðhagslegur sparnaður, sem fælist í minna sliti á vegum, færri slysum og fleiru, en þeir væru auðvitað ein- göngu að skoða þetta út frá eigin rekstrarforsendum. „Við erum til- búnir að fara af stað og ræða við við- skiptavini um hvort þeir hafi áhuga á að undirrita samninga við okkur um strandsiglingar.“ Gunnar sagði að þeir vildu fá skuld- bindingar um flutning á tilteknu magni. Atlantsskip hyggjast hefja strandsiglingar Morgunblaðið/Brynjar Gauti Siglingar Atlantsskip hyggjast hefja strandflutninga í ársbyrjun 2007. Í HNOTSKURN » Um árabil hafa engarreglulegar strandsiglingar verið og flutningar við það færst yfir á þjóðvegina. » Hekla og Askja, sem voruskip Ríkisskips og gerð út af stjórnvöldum, fóru áður fyrr reglubundið um hafnir landsins og það gerðu einnig önnur skipafélög, ekki hvað síst til að ná í frystan fisk. » Atlantsskip hófu siglingartil og frá landinu 1998. Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is RÍKISSJÓÐUR Íslands lauk í gær skuldabréfaútboði sínu á Evr- ópumarkaði, að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá Seðlabankanum. Fjárhæð útboðs- ins var einn milljarður evra, jafn- gildi 90 milljarða íslenskra króna. Skuldabréfin bera fasta vexti og eru með gjalddaga 1. desember árið 2011, en kjör bréf- anna eru 0,01% undir milli- bankavöxtum í Evrópu. Samkvæmt frétt Seðlabankans var mikill áhugi á útboðinu meðal fjárfesta, en kauptilboð, að fjár- hæð um 1,7 milljarðar evra, bár- ust frá 60 aðilum. Þá segir að fjárfestahópurinn sé breiður en flestir kaupendur bréfanna eru frá Evrópulöndum. Lánið verður að fullu notað til styrkingar á gjaldeyrisforða Seðlabanka Íslands. Skuldabréfaútboði ríkisins á Evr- ópumarkaði lokið ALÞJÓÐLEGA matsfyrirtækið Standard & Poor’s (S&P) hefur hækkað matseinkun norska trygg- ingafélagsins Nemi úr BBB- í BBB. Matseinkunnin var einnig tekin af svonefndum lánshæfislista S&P (e. Credit Watch) og segir að horfur séu stöðugar. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Tryggingamiðstöð- inni (TM) til Kauphallar Íslands, en Nemi er að fullu í eigu TM. Segir í tilkynningunni að í rök- stuðningi S&P komi fram að ástæða hafi þótt til að hækka matseinkunn Nemi í framhaldi af jákvæðri nið- urstöðu nýafstaðinnar hlutafjár- aukningar TM og breytinga á hlutafjársafni félagsins. Matseinkunn Nemi hækkuð BAKKAVÖR Group hefur náð sam- komulagi um kaup á öllu útgefnu hlutafé Fresh Cook Limited, að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá Bakkavör. Fresh Cook hefur verið samrekstrarfélag Bakkavarar og Rannoch Foods frá október 2004 en verður hluti af samstæðu Bakka- varar frá kaupdegi. Kaupin eru fjár- mögnuð með handbæru fé og er kaupverðið trúnaðarmál. Í frétta- tilkynningunni segir að kaupin muni hafa óveruleg áhrif á afkomu Bakka- varar á þessu ári. Starfsemi Fresh Cook er staðsett í Lincolnshire í Bretlandi og hjá fé- laginu starfa um 360 starfsmenn. Félagið framleiðir einkum rétti sem „tilbúnir eru til eldunar“ fyrir Marks & Spencer, en þeir eru frábrugðnir hefðbundum tilbúnum réttum. Markaðurinn fyrir þessar vörur hef- ur vaxið hraðar en markaðurinn fyr- ir tilbúna rétti í heild, eða um 6% á fyrstu níu mánuðum ársins. Í kjölfar kaupanna mun Bakkavör Group verða með um 11% markaðs- hlutdeild á þessu sviði. Sérhæfing Fresh Cook sérhæfir sig í tilbúnum réttum. Bakkavör kaupir Fresh Cook

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.