Morgunblaðið - 23.11.2006, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
viðskipti/athafnalíf
Hvað tapar þú
miklum peningum
á meðan þú bíður
eftir peningum?
Viðskiptavinir SPRON Factoring hf.
fela okkur umsjón og eftirlit með
lánsviðskiptum til þess að geta veitt
viðskiptavinum sínum betri þjónustu,
aukið söluna og losnað við áhyggjur.
Við hjálpum þeim að finna trausta
viðskiptavini, fjármögnum vöxtinn,
bókum viðskiptamannabókhaldið
og þjónustum skuldunauta þeirra.
" !
!
# !" #$$%
!&'
( ! %&'"($ "
)"
*+
+ "
, # " "
, +#
& " "
- !"+ "
.&'"/'0&1
$
2 3
$4
.&" $
5
5
6 6 5
6 5
6 *
+!
!
! !" #$
7!"(
8
9:$
";
9< :
9$;"
";
= "
";
-<
>/ <?
.@
";
$
"
!
=
!
@
!
A" A;:
.
B8.
9$
B $";
%$" / "C= "+
D "
*E>F
7;G
H;
I
.J%>
)AF
,
K
I
;
<#""
) $ ,1% $
J
1
J
1
J
1
J
1
7
A
A
5
5 5
7
A
A
5
5
5
7
A
A
5 5 5
7
A
A
5 5
5
; $
1 $
; $
1 $ ; $
1 $
; $
1 $
Eftir Bjarna Ólafsson | bjarni@mbl.is
RÚSSNESKI milljarðamæringurinn
Roman Abramovich hefur gert kaup-
tilboð í bandarískt stáliðjuver í Ore-
gon-fylki. Gangi áætlanir Abramo-
vich eftir verður um stærstu einstöku
fjárfestingu Rússa í Bandaríkjunum,
en kauptilboðið hljóðar upp á 2,3
milljarða dollara, andvirði um 165
milljarða króna.
Evraz Group, félag undir stjórn
Abramovich, hafa boðið 63,25 dali á
hlut fyrir alla hluti í Oregon Steel
Mills, sem framleiðir meðal annars
stórar stálpípur og járnbrautarteina.
Í grein New York Times segir að
tilboðið sé enn eitt merkið um þá þró-
un sem er að verða í stáliðnaði heims-
ins að fyrirtæki þar eru að færast á
færri hendur. Stálframleiðendur á
Indlandi, Brasilíu og Rússlandi hafa
verið að kaupa upp stálverksmiðjur í
Evrópu og N-Ameríku og hafa valda-
hlutföll í þessum geira því verið að
breytast að þessu leyti.
Oregon Steel er með um 1.700
starfsmenn í vinnu og kemur um 25%
af hráefninu frá Evraz-fyrirtækinu.
Flókið fyrirkomulag
Eignarhald Evraz, líkt og margra
annarra rússneskra fyrirtækja, er
ógagnsætt og flókið. Eignir fyrirtæk-
isins eru flestar í Rússlandi en það er
skráð í Lúxemborg. Meirihluti hluta-
fjár, 82,4%, er í eigu tveggja kýp-
verskra eignarhaldsfélaga, og er ann-
að þeirra undir stjórn Abramovich. Í
gegnum net fyrirtækja í ýmsum lönd-
um hefur hann meirihlutaeign í Evr-
az.
Þetta fyrirkomulag veldur því að
sumir hafa velt því fyrir sér hvort
heppilegt sé að Evraz komi að rekstri
stáliðjuvers í Bandaríkjunum, eink-
um í ljósi þess hve stjórnvöld í Kreml
eru gjörn á að láta viðskiptaákvarð-
anir rússneskra stórfyrirtækja sig
varða.
Abramovich í banda-
rískan stáliðnað
AP
Stáliðnaður Ríki þaðan sem hráefni í stáliðnað er fengið hafa upp á síð-
kastið gert sig meira gildandi í stáliðnaðinum sjálfum með yfirtökum.
Í HNOTSKURN
» Abramovich eignaðistfyrst 40% hlut í Evraz í
júní í sumar í gegnum fjárfest-
ingarfélag sitt, Millhouse.
» Hafa líkur verið leiddarað því að undir hans stjórn
gæti Evraz orðið hvatinn að
sameiningum í rússneskum
stáliðnaði.
» Væri það í samræmi viðþróun í öðrum geirum
rússnesks efnahags.
EINHVERJIR brutust inn í gagna-
banka vefverslunar breska tímarits-
ins Economist, Economistshop.com.
Ekki liggur fyrir hvaða upplýsingum
þeim tókst að koma höndum yfir en
það munu þó ekki vera banka- eða
greiðslukortaupplýsingar þar sem
slíkt er ekki vistað hjá Economist-
shop. Þetta kemur fram í bréfi til
viðskiptavina vefverslunarinnar.
Þar segir að innbrotið hafi upp-
götvast 6. nóvember síðastliðinn. Þá
hafi komið í ljós að einhverjum hefði
tekist að gera breytingar í gagna-
grunninum sem höfðu í för með sér
að viðskiptavinum var vísað frá vef-
versluninni. Við skoðun hefði komið í
ljós að reynt hefði verið að lesa gögn
í gagnagrunninum að minnsta kosti
frá upphafi þessa árs. Ekki sé þó
ljóst hvort það hafi tekist.
Vefverslunin var tekin niður um
tíma á meðan verið var að kanna inn-
brotið en hefur verið opnuð á ný.
Innbrot hjá Economist
Gramsað var í gagnagrunni vefverslunar tímaritsins
BANDARÍSKI bílaframleiðand-
inn General Motors (GM) hyggst
leggja meiri áherslu á framleiðslu
lítilla bíla en hingað til. New York
Times (NYT) greinir frá þessu.
Fram kemur í fréttinni að talið sé
að sala á bílum í Kína verði meiri en
í Bandaríkjunum eftir áratuga. Auk
þess vaxi aðrir markaðir í Asíu
hratt, svo sem á Indlandi.
NYT hefur eftir Nick Reilly, for-
stjórastjóra GM í Asíu, þar sem
hann var staddur á bílasýningu í
Beijing í Kína um síðustu helgi
ásamt fleiri stjórnendum fyrirtæk-
isins, að væntanlegir bílakaup-
endur á vaxandi mörkuðum Asíu
muni að stærstum hluta sækjast eft-
ir litlum bílum. GM hafi ekki verið
öflugt fyrirtæki á því sviði en kom-
inn sé tími til að breyta því.
Þá hefur NYT eftir Kevin E.
Wale, sem stýrir starfsemi GM í
Kína, að frá því fyrirtækið hóf sam-
starf við kínverska bílaframleið-
andann Wuling fyrir fimm árum,
hafi verksmiðja þeirra náð að verða
leiðandi í framleiðslu lítilla sendi-
bíla og pallbíla í Kína. Þar sé um að
ræða bíla sem kosti innan við 6 þús-
und dollara, eða innan við 420 þús-
und íslenskar krónur. Segir Wale
að GM hafi sýnt að fyrirtækið geti
framleitt ódýra bíla og hagnast á
því á mörkuðum í Asíu.
Segir í fréttinni að GM muni
mæta mikilli samkeppni frá kín-
verskum bílaframleiðendum sem
og framleiðendum á Indlandi.
GM veðjar á
litla bíla í Asíu
LÍKUR eru taldar á því að
bandaríska Nasdaq kauphöllin
hækki tilboð sitt í meirihluta hluta-
fjár í Kauphöllinni í Lundúnum
(LSE), en stjórn LSE hafnaði í vik-
unni tilboði Nasdaq sem gerði ráð
fyrir kaupgenginu 12,43 pund á
hlut, en daginn eftir var gengi
hlutabréfanna á opnum markaði
komið í 12,90 pund. Í frétt New
York Times segir að spákaupmenn
geri nú ráð fyrir að hærra tilboð
berist frá Nasdaq og því hafi hluta-
bréfaverðið hækkað. Nasdaq á nú
þegar 29% hlut í LSE.
Verði af samruna kauphallanna
tveggja yrði til stærsta kauphall-
arfyrirtæki í heimi með 6.400 fyr-
irtæki á skrá með heildarverðmæti
upp á 800.000 milljarða íslenskra
króna. Ástæðan fyrir því hve
áhugasamir eigendur Nasdaq eru
um LSE er sögð sú að í gegnum
bresku kauphöllina streymir mikið
fé frá Asíu og Mið-Austurlöndum,
auk þess sem meira er um ný-
skráningar þar vegna umfangs-
minna regluverks en í Bandaríkj-
unum.
Reuters
Nasdaq
talið munu
hækka sig