Morgunblaðið - 23.11.2006, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
viðskipti/athafnalíf
REYKJAVÍK · HAFNARFIR‹I · AKUREYRI · REY‹ARFIR‹I · EGILSSTÖ‹UM
I‹NA‹ARHUR‹IR
*V
er
›
m
i›
a›
v
i›
3
x3
m
h
u
r›
.
HÁ
GÆ
‹A
VA
RA
FRÁ
A‹
EIN
S
94.
000
kr.
*
www.midlun.is
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
AUÐKÝFINGURINN Richard
Branson hefur kallað eftir aðgerðum
af hálfu breskra stjórnvalda til að
koma í veg fyrir að ástralski fjölmiðla-
kóngurinn Rupert Murdock kæfi
samkeppnina á sjónvarpsmarkaðin-
um í Bretlandi. Segir Branson að
Murdock muni ráða öllu því sem hann
vilji ráða ef hann fái að auka hlut sinn
á markaðnum enn frekar en nú er
orðið.
Branson hefur verið að reyna að
auka hlut sinn á breskum sjónvarps-
markaði, að því er hann segir til að
koma á virkri samkeppni í landinu.
Kapalsjónvarpsfélagið NTL, sem
Branson er stærsti hluthafinn í með
um 10% eignarhlut, lagði fyrir nokkru
fram yfirtökutilboð í stærstu auglýs-
ingasjónvarpsstöð Bretlands, ITV.
Stjórn ITV hafnaði tilboðinu hins veg-
ar í fyrradag og sagði í yfirlýsingu að
hún sæi ekki að samruni við NTL
hefði kosti í för með sér. Auk þess
hefði tilboð NTL verið of lágt.
Gæti valið forsætisráðherra
Síðastliðinn föstudag, þ.e. áður en
stjórn ITV hafnaði tilboði NTL,
keypti BSkyB sjónvarpsstöðin, sem
fyrirtæki Murdocks, News Corpora-
tion, á 39% hlut í, 17,9% hlut í ITV fyr-
ir 940 milljónir punda. Gengið á hluta-
bréfum ITV í kaupum BSkyB var
liðlega 10% yfir tilboði NTL sem lagt
var fram um einni viku áður. Segir í
frétt á fréttavef breska blaðsins Gu-
ardian að þessi kaup BSkyB á hlutn-
um í ITV hafi komið öllum sem til
þessara mála þekkja fullkomlega á
óvart. Meðal þeirra sem voru hvað
mest undrandi var sjálfur Richard
Branson.
Viðbrögð Bransons við kaupunum
voru þau að saka Murdoch um að
reyna að ná yfirráðum yfir breskum
sjónvarpsmarkaði.
Í fyrradag, áður en tilkynnt var að
stjórn ITV hefði hafnað tilboði NTL,
sagði Branson að bresk stjórnvöld
þyrftu að draga skýra línu varðandi
eignarhald á fjölmiðlum, til hagsbóta
fyrir lýðræðið í landinu.
Hann hélt mikla tölu þegar verið
var að vígja nýjan stórmarkaði í Man-
chester, sem eins og flest annað sem
hann tekur sér fyrir hendur ber Virg-
in nafnið, eða Virgin Megastore.
Sagði Branson að ef The Sun, Sunday
Times, Sky og News of the World,
sem eru allt fjölmiðlar sem tilheyra
News Corporation, myndu allir leggj-
ast á sveif með sama stjórnmála-
flokknum, myndi sá flokkur fara með
sigur af hólmi í kosningum í Bret-
landi. Og þá væri búið að gera út af
við lýðræðið í landinu. Hægt væri þá
að fá Murdock það hlutverk að velja
forsætisráðherrann. Branson sagði
nauðsynlegt að samkeppnisyfirvöld
gripu í taumana.
Erfiðleikar ITV
Baksaga þessa máls er sú að ITV hef-
ur átt í erfiðleikum þar sem auglýs-
ingaverð í sjónvarpi í Bretlandi hefur
farið lækkandi og áhorf á stöðina
einnig. Sjónvarpsstjórinn Charles
Allen var neyddur til að segja upp
hjá stöðinni í ágústmánuði síðastliðn-
um og í framhaldi af því fór af stað
orðrómur um að von væri á yfirtöku-
tilboði í stöðina. Það kom líka á dag-
inn og kapalsjónvarpsstöðin NTL
lagði fram yfirtökutilboð í ITV upp á
5 milljarða punda, jafnvirði um 670
milljarða íslenskra króna. Frá því
var greint í Guardian að tilgangurinn
væri að kom á fót samkeppni við kap-
alsjónvarpsstöð Murdocks, BSkyB.
Meiri afþreying
Það leið ekki nema vika frá því NTL
lagði fram yfirtökutilboð sitt í ITV
þar til Sky keypti 17,9% hlutinn í fé-
laginu síðastliðinn föstudag eins og
áður segir.
Stjórnendur Sky hafa svarað gagn-
rýni Bransons á þann veg að sam-
keppni á sjónvarpsmarkaði hafi auk-
ist mikið eftir að Sky hóf starfsemi,
og neytendur eigi nú kost á meiri af-
þreyingu en nokkru sinni áður.
Branson í baráttu við Murdock
Hatrömm barátta virðist í uppsiglingu
á breskum sjónvarpsmarkaði
Reuters
Ánægður en þó ekki Ævintýramaðurinn Richard Branson mætir ánægður
á frumsýningu á James Bond í Odeon kvikmyndahúsinu í London.
YFIRVÖLD orkumála í Bretlandi
hafa hafið rannsókn á tveimur
orkudreifingarfyrirtækjum sem
eru í eigu hins þekkta bandaríska
fjárfestis Warrens Buffetts.
Fyrirtækin sem orkueftirlits-
stofnunin Ofgem hefur hafið rann-
sókn á eru Northern Electric Dist-
ribution og Yorkshire Electricity
Distribution. Í frétt á fréttavef
BBC-fréttastofunnar segir að fyr-
irtækin séu grunuð um að hafa gef-
ið upp rangar upplýsingar um
orkudreifingu sína. Ef það reynist
rétt geti þau átt yfir höfði sér sektir
sem geti numið allt að 10% af ár-
legri veltu þeirra.
Fyrirtækin tvö eru hluti af
breska fyrirtækinu CE Electric,
sem er í eigu Mid-American
Energy, sem er dótturfélag fyr-
irtækisins Berkshire Hathaway, en
þar hefur Buffett ráðið ríkjum í
langan tíma.
Orkufyrirtæki Buffetts
rannsökuð í Bretlandi
Reuters
Fjárfestirinn Warren E. Buffet
SJÖ dagblaðakeðjur sem sam-
anlagt gefa út 176 dagblöð um öll
Bandaríkin hafa tekið höndum sam-
an við vefleitarfyrirtækið Yahoo í
tengslum við auglýsingar og tækni-
mál. Í grein í bandaríska dagblaðinu
New York Times (NYT) segir að
þetta sé enn eitt dæmið um samstarf
dagblaða og netfyrirtækjanna, sem
dagblöðin hafi eitt sinn litið á sem
ógnun við starfsemi sína.
Í greininni í NYT segir að til að
byrja með verði samstarf dagblað-
anna og Yahoo um atvinnuauglýs-
ingar, sem muni bæði birtast í blöð-
unum og á Yahoo.
Langtímamarkmiðið sé hins vegar
að innihald blaðanna komi fram í
leitarvél Yahoo. Þannig muni stað-
bundnar fréttir sem birtast í dag-
blöðunum verða hluti af allsherjar
upplýsinganeti leitarvélarinnar. Það
muni nýtast lesendum og það muni
þá höfða til auglýsenda.
Bandarísk dagblöð í
samstarf við Yahoo
Reuters
Forstjórinn Jerry Yang, forstjóri
Yahoo, ásamt Charlie Rose.
Í LOK ársins 2005 reyndist mikill
meirihluti nýrra íslenskra tæknifyr-
irtækja vera þjónustufyrirtæki og
um helmingur þeirra sérhæfir sig í
tölvutækni. Stjórnendur þeirra telja
helstu ógnunina í starfsumhverfinu
vera skort á hæfu starfsfólki, frekar
en framboð á fjármagni eða almennt
efnahagsumhverfi.
Þessar niðurstöður koma fram í
árlegu rannsóknarverkefni fyrir árið
2006 um stofnun, vöxt og viðgang
tæknifyrirtækja á vegum Rannsókn-
armiðstöðvar Háskólans í Reykjavík
í nýsköpunar- og frumkvöðlafræð-
um. Alls tóku 103 fyrirtæki sem voru
stofnuð á árunum 2000–2005 þátt í
rannsókninni sem var framkvæmd í
annað sinn í ár.
Í niðurstöðunum segir m.a. að
meginmarkmið rannsóknarinnar sé
að efla vitneskju um þá þætti sem
ráða stofnun, vexti og viðgangi
nýrra tæknifyrirtækja. Rannsóknin
er unnin með það fyrir augum að
niðurstöður hennar geti nýst bæði
stjórnendum, við stjórnun sinna fyr-
irtækja, sem og stjórnvöldum við að
byggja upp umhverfi sem styður
hvað best við tækninýsköpun.
Nýsköpun mikilvæg
Nýsköpun er þessum fyrirtækjum
mikilvæg þar sem í tæplega 40% til-
fella stendur sala á nýjum vörum eða
þjónustu undir meira en 50% af
veltu fyrirtækjanna.
Meirihluti fyrirtækjanna er rek-
inn með hagnaði og flest þeirra sem
rekin voru með tapi árið 2005 gera
ráð fyrir að reksturinn verði a.m.k. í
jafnvægi á þessu ári.
Fleiri fyrirtæki fá nú utanaðkom-
andi fjármagn en árið áður og
stjórnendur eru almennt bjartsýnir.
Samkvæmt rannsókninni telja
tveir af hverjum þremur stjórn-
endum að starfsmönnum muni fjölga
á árinu. Þá gera stjórnendur ráð fyr-
ir töluverðum fjárfestingum í búnaði
og aðstöðu á árinu, þrátt fyrir að
þeir hafi ekki miklar væntingar um
aukið utanaðkomandi fjármagn.
Aukinn skortur á fólki
Skortur á hæfu starfsfólki hefur
aukist á milli áranna 2004 og 2005.
Aðgangur að fjármagni hefur batnað
því hærra hlutfall fyrirtækja reynd-
ist fá inn mikið fjármagn árið 2005
en árið 2004. Framlag til rann-
sóknar- og þróunarstarfs hefur
minnkað hlutfallslega milli ára, en
það er talið geta stafað af aukinni
veltu frekar en minni fjárfestingum í
rannsóknar- og þróunarstarfi. Hlut-
fallslega fleiri fyrirtæki skiluðu
hagnaði árið 2005 en árið 2004.
Skortur á
hæfu starfs-
fólki helsta
ógnunin