Morgunblaðið - 26.11.2006, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Einar Már Guðmundsson
edda.is
„Kitlandi skemmtileg“
Metsölulisti Mbl.
24. nóv.
3.
LJÓÐ
„Margslungin bók ... mögnuð og
óvenjuleg“
Þorgerður E. Sigurðardóttir, bokmenntir.is
„Það er meiri lífsháski í þessari
ljóðabók en fyrri bókum Einars ...
Lestur hennar er skemmtileg
glíma við frjótt ímyndunarafl.“
Skafti Þ.
Halldórsson, Mbl.
„Kitlandi skemmtileg.“
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir, Víðsjá
„Hér er ekkert meðalskáld á ferð.“
Ármann Jakobsson, kistan.is
KÆRLEIKSKÚLAN 2006 nefnist
Salt jarðar og er eftir listakonuna
Gabríelu Friðriksdóttur. Er þetta
fjórða árið sem Kærleikskúlan
kemur út og eins og áður verður
hún seld í desember og rennur
ágóðinn af sölunni til starfs
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra
í Reykjadal í þágu fatlaðra barna
og unglinga. Í ár verður sú breyt-
ing á að kúlan er ekki einungis
seld innanlands heldur einnig í
Berlín og er þetta í fyrsta sinn
sem Kærleikskúlan er tekin til
sölu utan landsteinana. Af því til-
efni var Kærleikskúlan 2006 frum-
sýnd í móttöku sem fram fór á
vegum íslenska sendiráðsins í
Berlín í liðinni viku og mun hanga
á jólatré þýska utanríkisráðuneyt-
isins í desember. Verður Kærleik-
skúlan til sölu bæði í Felleshúsi,
sameiginlegu húsi norrænu sendi-
ráðanna í Berlín, og í þýskum gall-
eríum.
„Dásamleg hugmynd“
Í samtali við Ruth Bobrich, við-
skiptafulltrúa í íslenska sendi-
ráðinu í Berlín, sagði hún frum-
sýninguna hafa gefist afar vel að
viðstöddum fjölda gesta, þeirra á
meðal sendiherra víða að úr heim-
inum, og hefði kúlan vakið mikla
athygli. „Þetta er dásamleg hug-
mynd,“ segir Ruth um Kærleiks-
kúluna og markmið hennar. „Okk-
ur finnst að þessi hugmynd um að
styrkja góðgerðarmálefni á sama
tíma og íslenskir listamenn eru
kynntir, eigi fullt erindi út fyrir
landsteinana,“ segir Ruth og tekur
fram að í raun hafi legið beint við
að Þýskaland væri fyrsta landið
þar sem íslenska Kærleikskúlan er
kynnt og seld. „Því glerjólakúlur
eiga uppruna sinn í Þýskalandi og
byggjast á 400 ára gamalli hefð í
glerblæstri sem þróuð hefur verið
hér,“ segir Ruth og bendir jafn-
framt á að bæði Ólafur Elíasson og
Gabríela hafi mikil tengsl við
Þýskaland í listastörfum sínum.
Einstakur listmunur
með ríku innihaldi
Að sögn Evu Þengilsdóttur, hjá
Styrktarfélagi lamaðra og fatl-
aðra, hafa fremstu listamenn
þjóðarinnar lagt Styrktarfélaginu
lið með list sinni, en höfundar
Kærleikskúlunnar hafa verið þeir
Erró, Ólafur Elíasson og Rúrí auk
Gabríelu. Segir hún árangurinn af
Kærleikskúlunni hér innanlands,
ágóðann af sölunni, framlag
fremstu listamanna þjóðarinnar
og velvilja allra þeirra sem hafa
komið gefa tilefni til að ætla að
hugmyndin geti orðið til farsæld-
ar fyrir enn fleiri börn í heim-
inum.
Gæti gjörbreytt lífi
margra barna
Bendir Eva á að bæði sé mögu-
leiki að íslenska Kærleikskúlan
verði markaðssett í fleiri löndum
en hinn möguleikinn sé að hug-
myndin að íslensku kúlunni verði
útfærð í viðkomandi landi. „Þann-
ig mætti sjá fyrir sér að Kærleiks-
kúlan væri gefin út í öðrum lönd-
um með þarlendum listamönnum
og ágóðinn rynni til starfs í þágu
barna í viðkomandi landi,“ segir
Eva og bendir á að á heimsvísu
verji einstaklingar og fyrirtæki
milljörðum til jólagjafa á hverju
ári. „Og sú staðreynd að brot af
þeirri upphæð gæti gjörbreytt lífi
fjölda barna er þess virði að láta
á reyna. Engar tvær kúlur eru
eins og takmarkað upplagið eykur
söfnunargildið enn frekar. Það
hlýtur að vera eftirsóknarvert að
geta gefið einstakan listmun með
ríku innihaldi – og um leið stuðl-
að að aukinni velferð fatlaðra
barna og ungmenna.“
Þess má að lokum geta að líkt
og síðustu ár fer afhending Kær-
leikskúlunnar fram í byrjun des-
ember en kúlan er viðurkenning
sem veitt er verðugum fyr-
irmyndum. Sölutímabil Kærleik-
skúlunnar stendur frá 5.–19. des-
ember 2006.
Frumsýning í íslenska
sendiráðinu í Berlín
Kærleikskúla Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra komin í útrás
» Okkur finnst að þessi
hugmynd, að styrkja
góðgerðarmálefni á
sama tíma og íslenskir
listamenn eru kynntir,
eigi fullt erindi.
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
FORSVARSMENN þriggja vá-
tryggingafélaga, sem Morgunblaðið
hefur rætt við, telja mikilvægt að
óvátryggð ökutæki, sem nú eru alls
3.640 talsins, séu tekin úr umferð.
Þeir lýsa vilja sínum til að stuðla að
sem bestum árangri lögreglunnar í
viðleitni hennar við að hafa uppi á
þessum tækjum. Geir Jón Þórisson,
yfirlögregluþjónn í Reykjavík, sagði
í samtali við Morgunblaðið að eftir-
grennslan eftir þessum ökutækjum
væri tímafrek og oft árangurslítil.
Hann var þeirrar skoðunar að trygg-
ingafélögin gætu lagt lögreglunni lið
í leit að óvátryggðum ökutækjum.
Vátryggingafélögin senda Um-
ferðarstofu upplýsingar um vátrygg-
ingar ökutækja sem sagt er upp.
Umferðarstofa sendir síðan lögregl-
unni lista með upplýsingum um óvá-
tryggð ökutæki. Lögreglan leitar
ökutækjanna til að taka af þeim
skráningarplötur, en lögreglumönn-
um þykir leitin ekki skila árangri í
samræmi við erfiði því upplýsingar á
listunum séu oft ekki fullnægjandi.
Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár,
sagði vátryggingafélag sitt reiðubúið
að leggja sitt af mörkum, t.d. með því
taka þátt í að mynda hóp, þar sem
lögreglan ætti aðild, til að skoða
þessi mál.
Ásgeir Baldurs, framkvæmda-
stjóri VÍS, sagði að fjöldi óvá-
tryggðra ökutækja í umferð ylli
miklum vanda. Hann sagði raunar
ekki ljóst hve mörg þessara öku-
tækja væru á götunni og hve mörg
væru ekki í notkun og eigendur
hefðu trassað að tilkynna að notkun
þeirra væri hætt. „Þetta er ófremd-
arástand eins og þetta er,“ sagði Ás-
geir. Hann benti á að trygginga-
félagið væri ekki í beinu sambandi
við lögregluna í þessum efnum.
Fækka verður óvátryggð-
um ökutækjum í umferð
Forsvarsmenn tryggingafélaga hlynntir auknu samráði
Morgunblaðið/Golli
Öryggi Eftirgrennslan með óvá-
tryggðum ökutækjum er tímafrek.
REKJA má að
minnsta kosti
átta banaslys í
umferðinni á Ís-
landi á árunum
1998 til 2004 til
þess að ökumað-
ur sofnaði undir
stýri og talið er
að um 13% um-
ferðarslysa, þar
sem um fram-
anákeyrslu er að ræða, séu vegna
syfju, sagði Gunnar Guðmundsson,
lungnalæknir á Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi, í erindi sínu um
syfju og akstur á Umferðarþingi
sem lauk á Hótel Loftleiðum á
föstudag.
Gunnar sagði m.a. að svo mætti
líta á að syfja gæti verið jafn-
hættuleg í umferðinni og ölvun við
akstur og nefndi hann sem helstu
orsakir fyrir of litlum eða lélegum
svefni áfengisneyslu, lyfjanotkun,
fíkniefnaneyslu og ekki síst kæfi-
svefn.
Syfja og ölvun
jafnhættuleg
Gunnar
Guðmundsson
FRUMTÖK, samtök framleiðenda
frumlyfja, furða sig á því að lyf
skuli áfram bera 24,5% vsk. líkt og
hver önnur munaðarvara.
Í fréttatilkynningu frá samtök-
unum segir meðal annars: „Í frétta-
tilkynningu frá fjármálaráðuneyt-
inu kemur fram að ríkisstjórnin
hafi samþykkt tillögu fjár-
málaráðherra að lækka virð-
isaukaskatt af geisladiskum úr
24,5% í 7%. Allar skattalækkanir
eru ánægjuefni og því ber að fagna
þessari lækkun sem öðrum.
Þó þykir samtökum framleið-
enda frumlyfja skjóta nokkuð
skökku við að í allri þeirri umræðu
sem verið hefur að undanförnu um
lækkun virðisaukaskatts á hinar
ýmsu nauðsynjar skuli ekki vera
rætt um lækkun virðisaukaskatts á
lyfjum. Lyf bera 24,5% vsk. líkt og
hver önnur munaðarvara. Lyf eru
jú munaðarvara, en ekki gos-
drykkir og geisladiskar. Þau hljóta
að vera skilaboðin til almennings.“
Lyf flokkuð sem
munaðarvara
Morgunblaðið/Kristinn
GABRÍELA Friðriksdóttir er höfundur Kærleikskúlunnar 2006. Um verk
sitt segir listakonan: „Óteljandi agnir mynda landslag sem breiðir úr sér og
þekur jörðina. Þar vaxa áferðarmiklir og kynlegir kvistir. Landslag sem mót-
ar og nærir hin margvíslegu lífsform og andann sem innan og utan þess býr.
Það er lífsvilji sálarinnar og vonin sem mynda samfélög heimsins. Að við-
urkenna, varðveita og virða hið skapandi afl margbreytileikans er krydd lífs-
ins – salt jarðar.“
Salt jarðar