Morgunblaðið - 26.11.2006, Blaðsíða 27
Innri fegurð Útskorin blóma-
mynstur prýða Inner Beauty.
Hekl Mismunandi handheklaðir dúkar, sem allir eiga sér
sína sögu, skreyta Flatpack Antique húsgagnlínuna.
þegar kemur að framleiðslu og mark-
aðssetningu á hugviti og hönnun. „Í
raun er það ekki hlutverk hönnuðarins
að fylgja framleiðsluferlinu eftir, ef
svo væri hefðu þeir ekki mikinn tíma
fyrir hugmyndavinnu,“ segir hún og
bætir við að hér skorti sérstakt „batt-
erí“, sem sjái um þann þátt í hönn-
unarferlinu. Henni finnst að Íslend-
ingar gætu tekið margar erlendar
þjóðir sér til fyrirmyndar í markaðs-
setningu hönnunar. „Víða um heim er
markaðssetning fyrir hönnuði mjög
vel heppnuð, til að mynda hjá Droog
Design og Mooi í Hollandi. Droog De-
sign hafði veigamikil áhrif á hönnun í
alþjóðlegu samhengi á tíunda ára-
tugnum og hefur í gegnum tíðina verið
góður stökkpallur fyrir upprennandi
hönnuði. Hollensk hönnun hefur svo
sannarlega komist á kortið á heims-
mælikvarða, og það má segja að Dro-
og Design hafi átt stóran hlut í því
ferli.“ Hún nefnir einnig að hollenska
hönnunartímaritið Frame, sem dreift
er víða um heim, sé fjármagnað af rík-
inu til að viðhalda góðri og vandaðri
umfjöllun um hönnun og styðja við
bakið á hollenskri hönnun.
„Ég hef alltaf haft áhuga á að skapa
og verið forvitin um hvernig til tekst,“
segir Guðrún Lilja, sem helgar sig al-
gjörlega starfi sínu. Hún kveðst varla
hafa tekið sér frí síðan hún kom heim
frá hönnunarnámi í Hollandi fyrir
tveimur árum. Þá stofnaði hún hönn-
unarfyrirtækið Studiobility ásamt
manni sínum Jóni Ásgeiri Hreinssyni,
grafískum hönnuði, og síðan kom
Ólafur Ómarsson, hönnuður, inn í fyr-
irtækið.
Þessa dagana hefur Guðrún Lilja í
nógu að snúast, því ný hönnun eftir
hana mun líta dagsins ljós í versl-
uninni Saltfélaginu í byrjun desember.
Verkið samanstendur af ævintýra-
legum hillum; annars vegar Fairy tale
hillu og hins vegar hillum sem nefnast
Heklað stál. Fairy tale hillan er ætluð
fyrir eina bók – þá bók sem verið er að
lesa. Hún er á við meðalstóra bók og
er þannig úr garði gerð að þegar bók-
in liggur flöt hylur hún hilluna. Þegar
svo bókin er tekin upp lifnar hillan við
og myndar skugga á veggnum. „Pabbi
minn sagði mér alltaf að það væru
ljósálfar í bókahillunni og svona sá ég
þá,“ segir Guðrún Lilja glöð í bragði
og lýsir hillunum sem hún nefnir
Heklað stál og eru úr lökkuðu stáli,
sem er gatað eins og gamalt hekl-
munstur. „Hugmyndina fékk ég af
blúnduköppunum, sem voru settir
framan á hillur hér áður fyrr til þess
að skreyta skápana,“ segir hún.
Markmiðið með hilluverkefninu
segir hún hafa verið að hanna vörur
sem hægt væri að framleiða með ís-
lenskum fyrirtækjum. Önnur verkefni
sem Studiobility er að vinna að eru
m.a. Gestastofan í Ásbyrgi og er hún
unnin fyrir Umhverfisstofnun. „Þetta
er upplýsingamiðstöð og sýning í
gömlu fjárhúsi og hlöðu, sem er búið
að gera upp. Afar skemmtilegt og
fræðandi verkefni,“ segir hún. Þre-
menningarnir sjá alfarið um hönnun
sýningarinnar ásamt innréttingum og
verður sýningin opnuð í apríl á næsta
ári.
„Hönnuðir þurfa mikið fé og mikinn
tíma til að fylgja eftir hugmyndum,“
segir Guðrún Lilja, sem veit að þeir
einir fiska sem róa.
Flatar einingar Flatpack Antique
hentar vel þörfum nútimans.
Ævintýrahillur Skuggar og mynstur birtast í Fairy tale
hillunni þegar bókin er tekin af hillunni.
Tilfinningar Inn-
er Beauty hús-
gagnalínan
fjallar um til-
finningar sem
bærast með okk-
ur og allt það
sem leynist und-
ir yfirborðinu.
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 27
Er lögheimili þitt
rétt skráð í þjóðskrá?
Nú er unnið að frágangi íbúaskrár 1. desember. Mikilvægt er að
lögheimili sé rétt skráð í þjóðskrá.
Hvað er lögheimili?
Samkvæmt lögheimilislögum er lögheimili sá staður, þar sem
maður hefur fasta búsetu.
Hvað er föst búseta?
Föst búseta er á þeim stað þar sem maður hefur bækistöð sína,
dvelst að jafnaði í tómstundum sínum, hefur heimilismuni sína
og svefnstaður hans er. Þetta þýðir að lögheimili manns skal
jafnan vera þar sem hann býr á hverjum tíma.
Hvenær og hvar skal tilkynna flutning?
Breytingu á lögheimili ber að tilkynna innan 7 daga frá flutningi
til skrifstofu þess sveitarfélags sem flutt er til. Ennfremur má
tilkynna flutning beint til Þjóðskrár.
Eyðublað vegna flutningstilkynninga er að finna á slóðinni
www.thjodskra.is/flutningstilkynning
Þjóðskrá
Borgartúni 24, 150 Reykjavík,
sími 569 2900, bréfasími 569 2949.