Morgunblaðið - 26.11.2006, Blaðsíða 76
76 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
BÖRN
eeee
DV
eeee
Davíð Örn Jónsson – Kvikmyndir.com
eeeee
Jón Viðar – Ísafold
eeeee
Hallgrímur Helgason
– Kastljósið
eeee
T.V. KVIKMYNDIR.IS
eee
H.J. MBL
/ AKUREYRI
THE GRUDGE 2 kl. 8 - 10 B.I. 16
SANTA CLAUSE 3 kl. 2 - 4 - 6 - 8 LEYFÐ
ADRIFT kl. 10 B.I. 12
JÓNAS... m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
/ KEFLAVÍK
ÓVISSUSÝNING kl. 11
CASINO ROYALE kl. 5 - 8 - 11 B.I. 14
SANTA CLAUSE 3 kl. 2 - 5:30 - 8 LEYFÐ
JÓNAS... m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ
ÓTEX
TUÐ
kvikmyndir.is
eeee
H.J. Mbl.
5 Edduverðlaun
besta mynd ársins, besti leikar ársins, besti leikstjórinn,
besti aukaleikarinn og besta tónlistin (Mugison)
- ÍTÖLSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ -
23. nóv - 3. des.
THE DEPARTED kl. 3 - 6 - 9 B.i. 16 ára
MÝRIN kl. 3 - 5 - 7 - 9 - 10:15 B.i. 12.ára
BÖRN kl. 8 B.i.12.ára
A SCANNER DARKLY ÓTEXTUÐ kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 B.i. 16.ára
THE QUEEN kl. 3:30 B.i. 12.ára
Drottningin
ROFIN PERSÓNUVERND
FRÁFÖLLNUHINIR
FRÁFÖLLNUHINIR Í SAATeeeeeV.J.V. TOPP5.IS
the last kiss
síðasti kossinn
eeee
EMPIRE MAGAZINE
eee
L.I.B. Topp5.is
Sýningartímar
M.M.J. Kvikmyndir.com
eeee
Blaðið
HAGATORGI • S. 530 1919 WWW.HASKOLABIO.IS
IL CUORE ALTROVE (Með hjartað á öðrum stað)
Sýnd kl. 5:50
L'UOMO IN PIÙ (Honum er ofaukið)
Sýnd kl. 8
ZEDER (Hefnd hinna dauðu)
Sýnd kl. 10:10
á allar sýningar merktar með appelsínugulu
á laugardögum og sunnudögumSPARBÍÓ 450kr
“Besta Bond myndin í áraraðir.„
eeee
V.J.V. Topp5.is
“Besta Bond myndin frá upphafi...„
eeee
Þ.Þ. Fbl.
“Ein besta myndin frá upphafi... „
eeee
S.V. Mbl.
á allar myndir sem sýndar eru
á ítölsku kvikmyndahátíðinni
Gegn framvísun miða sem er
framan á morgunblaðinu í dag
Býður áskrif-
endum sínum í bíó1fyrir2
sagðar, eða um
skemmdir á vatns-
lögnum í húsum á
Keflavíkurflugvelli.
Húsum sem verða flest
rifin áður en langt um
líður. Ungt barnafólk
myndi frekar vilja
hlusta á alþingismenn
sem boðuðu betri tíma,
heldur en þá sem eru
stöðugt að nöldra.
x x x
Ferð Víkverja tilSkotlands var
ánægjuleg, en það var
þó eitt sem var leið-
inlegt við hana – það
var að standa lengi í röð í flughöfn-
inni í Glasgow, til að skrá sig í flugið
heim. Ástæðan fyrir langri töf var að
sumir kunna sér ekki hóf í verslun –
voru með mikla yfirvigt. Sérstakar
tafir voru þegar fimm til sex voru að
bóka sig inn í einu og síðan fóru
menn að þrasa um hver ætti að
borga yfirvigt eða ekki. Fyrir utan
að vera með of mikinn þunga í ferða-
töskunum voru margir með þungan
handfarangur sem þeir ætluðu sér
að burðast með inn í farþegarými.
Víkverji áttar sig ekki á hvers vegna
margir þurfa að bóka sig inn saman,
eins og um íþróttahópa sé að ræða –
sem eru saman með búningatöskur.
Víkverji brá sér tilSkotlands á dög-
unum. Ferðin er ekki í
frásögur færandi nema
þá fyrir það að Víkverji
hrökk við þegar hann
gerði sér grein fyrir
hvað verðmunurinn á
barnafatnaði er mikill í
Skotlandi og hér á
landi, þar sem barna-
fólk borgar nær þrefalt
hærra verð fyrir
barnafatnað heldur en
Skotar. Það er því ekki
nema vona að barna-
fólk, sem hefur efni á,
fari út fyrir landstein-
ana til að versla – haldi
í auknum mæli í víking til að kaupa
fatnað á börnin sín. Þeir sem hafa
ekki ráð á því – dvelja hér heima í
átthagafjötrum.
Það er sorglegt að vita til þess
hvað ungt barnafólk þarf að greiða
mikið fyrir fatnað sem nýtist ekki
lengi þar sem börnin vaxa hratt og
fötin verða því fljótt of lítil.
Er það ekki miklu meira baráttu-
mál fyrir alþingismenn að hlúa að
æsku Íslands með því leggja til að
enginn virðisaukaskattur verði á
barnafötum eins og þekkist í ná-
grannalöndum okkur, frekar en að
vera endalaust að þrefa um hluti
eins og hvalveiðar, sem eru sjálf-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Orð dagsins: Fagnið því, þótt þér nú um skamma
stund hafið orðið að hryggjast í margs konar
raunum. (1Pt. 1, 6.)
Í dag er sunnudagur
26. nóvember, 330. dag-
ur ársins 2006
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
RÚV sem öryggisnet
fyrir landið?
ÉG VAR á ferðinni aðfaranótt
sunnudagsins þegar mjög slæmt
veður var og margt fólk í vandræð-
um í miðbæ Reykjavíkur.
Fréttastofa Ríkisútvarpsins er
með fréttir kl. 5 að morgni og kl. 6 og
það var ekki minnst einu orði á vont
veður í Reykjavík eða nágrenni. Ein-
ungis voru lesnar erlendar fréttir.
Ég hélt að Ríkisútvarpið ætti að
vera eins konar öryggisnet fyrir
landið og flytja fréttir af svona lög-
uðu. Það hefur stundum þurft minna
tilefni til að segja frá.
Eins vil ég benda á að ekki var
byrjað að ryðja göturnar fyrr en kl.
6 um morguninn og var mér sagt að
það væri ekki byrjað fyrr en kl. 6 um
helgar.
Óli Þór.
Bílastæðin við Sigtún
ÉG BÝ í Sigtúni 21 en það er síðasta
húsið í götunni, næst Kringlumýrar-
braut. Það er orðið vita vonlaust að
fá bílastæði fyrir framan húsið sitt
hér í götunni því það er stöðugur
straumur af fólki á ráðstefnur og
aðra viðburði á Grand Hóteli í Sig-
túni.
Nýlega var búið að leggja fyrir
innkeyrsluna hjá okkur og bíllinn
sem var inni í innkeyrslunni var lok-
aður inni og við lentum í vandræðum
með að komast frá húsinu út á göt-
una.
Ég held að við sem búum þarna
eigum forgang í bílastæðin fyrir
framan húsin.
Laufey Sólveigardóttir,
Sigtúni 21.
Pólitíkusar gleyma –
en þó ekki sér
VIÐ fjárlagagerð er í mörg horn að
líta og gleymast þar sumir en svo er
að sjá að pólitíkusarnir gleymi ekki
sjálfum sér.
Að undanförnu hafa blöðin verið
hlaðin endalausum áróðri bæði í
greinum og auglýsingum og enn skal
seilst í vasa skattgreiðenda svo unnt
verði enn að auka þennan ófögnuð.
Vissulega er lýðræðinu hætt þeg-
ar miklu fjármagni er veitt í þennan
ófögnuð en nú er ljóst að flestir
landsfeðranna sameinast um að
bæta í. Vissulega vil ég sem kjósandi
vita deili á þeim er bjóða fram krafta
sína í þágu landsins en sú kynning
þarf að vera einföld og aðgengileg.
Okkar landsfeður gætu t.d. sett
reglur um að hætta áróðri en gefa
hins vegar frambjóðendum kost á að
kynna sig og sín fyrri afreksverk í
sameiginlegu riti sem væri öllum að-
gengilegt og láta síðan okkur kjós-
endur í friði fyrir frekari áróðri. Með
því má gefa kjósendunum frið til að
átta sig á mannvalinu og gera upp
hug sinn varðandi frambjóðendur og
hvaða frambjóðendum þeir treysta
best fyrir málefnum samfélags okk-
ar.
Vert er að benda á að lestur dag-
blaðanna yrði mun ánægjulegri þeg-
ar áróðurinn væri á bak og burt.
Steinar Steinsson.
Skemmtileg og fræðandi saga
ÉG VONA að sem flestir er heima
sitja á daginn hafi hlustað á Harald
Bessason frá Kýrholti í Skagafirði
flytja sína frábæru sögu, „Bréf til
Brands“, sem brátt lýkur. Hún er
upplýsandi, fræðandi, skemmtileg
og mjög vel flutt á fagurri íslensku.
Ég vil þakka Haraldi fyrir
skemmtilega og fræðandi sögu.
Ingibjörg.