Morgunblaðið - 26.11.2006, Page 33
Öllu léttvægara en þó leiðinlegt
var sá skuggi sem pólitíkin varpaði á
líf mitt. Það var hreint ekki auðvelt
að vera dóttir kommúnista í svona
litlum bæ. Ég öfundaði börn sjálf-
stæðis- og framsóknarfólks, ég vildi
vera þeim megin sem allir hinir
væru. En ég sveik ekki pabba, ég
stóð alltaf með honum. Síðar breytt-
ist hið pólitíska landslag og þá átti
ég leik sem kommi, tilheyrði stóra
hópnum sem fór í Keflavíkurgöngur
gegn her í landi.
Nám, gifting og barneignir
Ég varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri árið 1967. Þá
var hægt að taka svokallaða stúd-
entadeild í Kennaraskólanum. Ég
held að það hafi verið svo um bæði
mig og margar vinkonur mínar að
okkur var farið að langa til að sjá
peninga, geta eignast flík og svoleið-
is. Ég skellti mér því í Kennaraskól-
ann og fór svo að kenna.
Ég bjó í Suðurgötu 15, í sama húsi
og Anna og Ólafur Jóhann Sigurðs-
son, og bar óttablandna virðingu fyrir
honum, það er skemmtilegt að minn-
ast þessa því ég fór svo sjálf síðar að
stunda ritstörf. Þarna bjó líka Ólafur
Jóhann Ólafsson, einnig rithöfundur,
og var mjög fjörugur strákur.
Þegar ég fór að kenna fann ég að
ég kunni ekki mikið. Það er ekki
hægt að verða kennari á einu ári .
Ég kenndi við Réttarholtsskóla og
fékk erfiða bekki og vildi nú gerast
fagkennari, læra eitthvert fag til
hlítar. Þá dreif ég mig til Danmerk-
ur og fór þar í kennaraháskóla eftir
að hafa unnið á spítala þar í nokkur
sumur. Ég hef síðan fundið heima-
tilfinningu í Kaupmannahöfn. Ég
lærði þar mikið en til að gera langa
sögu stutta fór ég, ástfangin upp fyr-
ir haus, með manni mínum til Þýska-
lands.“
Tókst þér að hafa ráð ömmu þinn-
ar, kyssa bara einn?
„Nei, ég kyssti fleiri en einn og
fleiri en tvo og álít mig ekki verri
manneskju fyrir það. En ég hef hins
vegar ekki kysst neinn annan en eig-
inmanninn eftir að ég var gift. Minn
útkjörna, Jón Hálfdánarson, hitti ég
á Garðsballi, hann var að læra eðl-
isfræði út í Göttingen. Þangað fór ég
frá Kaupmannahöfn og þar eignaðist
ég tvo drengi, Stein Arnar og Eirík.
Eitthvað gutlaði ég við háskólanám,
mest bókmenntir og þýsku. Mað-
urinn minn var í doktorsnámi. Mér
fannst skipta mestu máli að halda ut-
an um mitt fólk.
Ég hafði kynnst og hrifist af rauð-
sokkahreyfingunni á Íslandi og í
Danmörku en ég skal játa að ég var
dálítið klofin í afstöðu minni síðar.
Eftir að heim frá Þýskalandi kom
eignaðist ég fljótlega þriðja barnið.
Ég hef alltaf séð í þessum kvenrétt-
indamálum ákveðna þversögn – þau
mál verða ekki leyst á einni nóttu.
Ég hellt mér út í vinnu en fannst
jafnframt erfitt að hafa yfir mér þá
kröfu að eiga að fara út á vinnu-
markaðinn. Það var skýlaus krafa á
þessum tíma. Ég sá hins vegar fljót-
lega að það kom brestur í mitt fólk ef
ég var ekki nógu mikið heima. Mað-
urinn minn vann óskaplega mikið.
Ég hef haldið mig við það gegnum
þykkt og þunnt að mestu máli skipti
hagur fjölskyldunnar. Það þarf að
koma því þannig fyrir að konur geti
unnið utan heimilis án þess að allt
fari í vitleysu í fjölskyldunni. Við
höfum horft upp á of mörg „lykla-
börn“ og síðar alls konar lausung í
samfélaginu, svo er fólk að undrast
að upp komi vandamál þegar heilu
kynslóðirnar hafa nánast gengið
sjálfala.
Börn þroskast best og mest undir
hæfilegri umsjá foreldranna. Þetta
segi ég vegna reynslu minnar sem
kennari.
Skriftir, kennsla og heimili
Sjálf leysti ég þessi mál með því
að kenna þegar börnin voru í skóla.
Maðurinn minn fór að vinna hjá Ís-
lenska járnblendifélaginu svo við
settumst að á Akranesi. Þar vantaði
kennara og því gat ég komið stunda-
skrá minni í það horf sem hentaði
okkar fjölskyldu. Ég vildi ekki að
börnin mín kæmu að tómu húsi.
Ég fór síðar að kenna í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands og þar gat
ég líka haft þetta svona. En það voru
mörg börn heima hjá mér á eftirmið-
dögum, þetta voru félagar minna
barna sem áttu foreldra sem höfðu
kannski ekki sömu möguleika á
sveigjanlegum vinnutíma og ég.
Síðan gerðist það að fóstra
mannsins míns, fjörgömul, fluttist til
okkar. Hún mátti aldrei vera ein því
hún var sjúklingur. Hún hét Sigríður
Víðis Jónsdóttir, eins og dóttir okk-
ar. Meðan ég var að kenna milli 1 og
5 á daginn kom kona til að vera hjá
ömmu, en á morgnana var ég heima
með henni og skrifaði.
Þarna var ég komin undir fertugt
og farin að skrifa.
Skrifaði leikrit með
Iðunni systur
Þetta byrjaði með því að ég og Ið-
unn systir skrifuðum útvarps-
leikritið; 19. júní, sem við sendum
nafnlaust inn í keppni hjá Rík-
isútvarpinu og unnum fyrstu verð-
laun fyrir. Ég tek það fram að þetta
var áður en Heimir bróðir var út-
varpsstjóri. Við vorum alveg í skýj-
unum með þessi verðlaun, í Útvarps-
sal vorum við boðnar ásamt mökum
og vissum ekki hvar í röðinni við
værum. Lesin voru upp þriðju verð-
laun, svo önnur verðlaun og svo
komu nöfnin okkar. Við misstum
næstum fótanna og Dagblaðið bað
um viðtal við okkur. Ég sagðist ekki
geta það, dóttir mín ætti afmæli og
ég þyrfti að fara upp á Skaga til að
halda upp á það. En þá sagði eig-
inmaðurinn: „Ég skal sjá um afmæl-
ið, far þú í viðtalið, góða.“
En nú vorum við Iðunn komnar
með „blod paa tanden“ og tókum til
við að skrifa; Síldin kemur og síldin
fer, það var sýnt út um allt land af
áhugamannafélögum og hafði að
geyma talsvert af æskuminningum
okkar.
Við settumst bara saman í sum-
arbústað og skrifuðum til skiptis eða
í sameiningu. Við gerðum þetta að-
allega til að skemmta okkur og not-
uðum gömul lög frá þessum tíma.
Þetta var algjör nostalgía sem fór
meira að segja alla leið til Færeyja.
Síðar var þetta verk sýnt hjá Leik-
félagi Reykjavíkur og hét þá; Síldin
er komin við tónlist og texta eftir
Valgeir Guðjónsson.
Við héldum áfram að skrifa og
rákum okkur á að það er ekki bara
gaman að skrifa fyrir leikhús, það
getur haft sínar skuggahliðar, –
skiptar meiningar og svo framvegis.
Verðlaun fyrir
barnabókarskrif
Síðar fór ég að skrifa barnabæk-
ur, ekki síst fyrir hvatningu frá Ið-
unni systur. Ég tók þátt í samkeppni
á vegum Vöku-Helgafells. Ég skrif-
aði mest endurminningar mínar,
þær rifjaði ég upp meðan ég var að
taka til, mér finnst heimsins leið-
inlegasta verk að taka til, einkum
ryksuga. Svo tók ég mig til og skrif-
aði niður ryksugusögurnar, úr því
varð bókin; Franskbrauð með sultu.
Vaka-Helgafell verðlaunaði bókina
og gaf hana út. Ég vildi ekki hætta
og spurði hvort þeir vildu gefa út
aðra bók eftir mig. Það gekk og úr
þessu varð trílógía, næst var; Fallin
spýta og síðan; Stjörnur og stráka-
pör. Þessar bækur voru mynd-
skreyttar af Brian Pilkington. Það
var ægilega gaman að skrifa þessar
bækur, hreint endurminningafyllirí.
Upp úr þessu varð ekki aftur snúið.
Við Iðunn héldum áfram í nokkur ár
að skrifa saman og ég hélt áfram
með barnabækurnar. Heimilið var
stórt og eitthvað varð undan að láta.
Ég sagði upp kennslunni 1989 og hef
verið rithöfundur í fullu starfi síðan.
Aðallega hef ég skrifað fyrir börn.
Einnig hef ég fengist við leiðsögn,
það er leiðinlegt að sitja alltaf við
einn.
Þrjátíu barnabækur
og tvær skáldsögur
Ég saknaði frímínútnanna mjög
mikið, það er enginn sem fer í frí-
mínútur með manni þegar maður er
að skrifa bækur. Maður er einn með
sitt kaffi. Þá er ágætt að hitta þýska
túrista.
Ég held að ef ég tel saman alla
titla sé ég búin að skrifa 30 barna-
bækur og tvær bækur fyrir full-
orðna. Fimmtán af barnabókunum
eru skrifaðar fyrir Námsgagna-
stofnun og miðaðar við ákveðinn ald-
ur og ákveðnar þarfir sem ég þekki
sem kennari.
Amma Guðrún hefur gengið aftur
í ýmsum þessum bókum, lengst hef
ég gengið þegar hún varð Guð al-
máttugur, en hún varð líka engill í
verðlaunabókinni; Engill í vest-
urbænum. Það var mjög gott fyrir
mig að skrifa bókina; Sólin sest að
morgni. Mamma fór svo skyndileg
og ég var svo reið í mörg ár við Guð
og Seyðisfjörð. En eftir að ég skrif-
aði þessa bók hef ég losnað að mestu
við reiðina. Eftir að bókin kom út fór
ég út í kirkjugarð með blóm, settist á
leiðið hjá mömmu og pabba og sagði
si svona: „Nú er ég búin að þessu og
ég vona að þið misvirðið það ekki við
mig.“
Þetta varð til þess með öðru að ég
vildi halda áfram á þessum vettvangi
og nú er ég komin með fullburða
skáldsögu. Það var dálítið spaugilegt
að þeir sem voru að gagnrýna; Sólin
sest að morgni, voru ekki á eitt sáttir
hvers konar saga þetta væri. Mér
datt satt að segja aldrei í hug að það
gæti verið mál hvort þetta héti
skáldsaga, nóvella eða endurminn-
ingabók. Við skulum segja að bókin
mín nýja sé sannarlega skáldsaga –
og ég vona að það verði ekki erfitt að
flokka hana.“
guðrung@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 33
Síðumúla 11 - 108 Reykjavík - S. 575 8500
Brynjar Fransson,
löggiltur fasteignasali í 30 ár
PENINGAMARKAÐSSJÓÐURINN
14,1%
ávöxtun
Markmið Peningamarkaðssjóðsins er að skila jafnri ávöxtun með
fjárfestingum í skammtímaverðbréfum. Aðallega er fjárfest í innlánum,
skuldabréfum og víxlum skráðum í Kauphöll Íslands. Meðaltími sjóðsins
er mjög stuttur, innan við ár og því er ekki að vænta mikilla sveiflna á
gengi sjóðsins. Peningamarkaðssjóðurinn skilaði 14,1% nafnávöxtun á
ársgrundvelli frá 29. september–31. október 2006. Hafðu samband við
ráðgjafa okkar í síma 575 4400 eða kíktu á vefsíðuna okkar www.vsp.is.
Engin kaup- eða söluþóknun
Peningamarkaðssjóðurinn er rekinn af Rekstrarfélagi Sparisjóðanna hf. Verðbréfaþjónusta Sparisjóðanna hf. er
vörsluaðili sjóðsins. Peningamarkaðssjóðurinn er fjárfestingarsjóður sem starfar skv. lögum nr. 30/2003 um
verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Fjárfestingarsjóður telst vera áhættusamari fjárfesting en verðbréfasjóður skv.
lögunum. Meiri áhætta fjárfestingarsjóðs er m.a. fólgin í rýmri fjárfestingarheimildum sem geta leitt til minni
áhættudreifingar en í verðbréfasjóði. Frekari upplýsingar um sjóðinn má finna í útboðslýsingu og útdrætti
útboðslýsingar sem hægt er að nálgast á www.vsp.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
22
92
7
frá 29.990 kr.*
Beint morgunflugtil Salzburg
Skíðaveisla
í Austurríki - Flachau - Zell am See
26. des. – 11 dagar AUKAFLUG
6. jan. – 12 dagar UPPSELT
18. jan. – 9 dagar SÍÐUSTU SÆTI
27. jan. – vika SÍÐUSTU SÆTI
3. feb. – vika SÍÐUSTU SÆTI
10. feb. – vika UPPSELT
17. feb. – vika SÍÐUSTU SÆTI
24. feb. – vika SÍÐUSTU SÆTI
Frá 29.990 kr.
Flugsæti með sköttum. Fargjald A.
67.990 kr.
vikuferð 27. jan.
Flug, skattar og gisting, m.v. 2 í herbergi
á gististað „án nafns“ við Zell am See,
27. jan., vikuferð með morgunmat.*
Áramótaveisla - 11 nætur
flug og gisting frá kr. 99.995
Netverð á mann, m.v. 2 full
orðna og 2 börn í herbergi
í
11 nætur á Gasthof Kunstle
ralm með hálfu fæði.