Morgunblaðið - 26.11.2006, Side 35
hreinlega hafa unun af því að
rúnta.
– Ertu nokkuð á hjólinu? spyr
hún gjarna.
Ef svarið er nei virðist hún kæt-
ast mjög.
– Fínt, þá skutla ég þér heim!
Ef manni verður á að segja að
það sé orðið áliðið, dimmt og slag-
veðursrigning, færist hún öll í
aukana og fullyrðir að hana hafi
einmitt dreymt um að drífa sig út.
Svo þrífur hún hækjuna, rýkur út í
bílinn og brunar af stað. Það þýðir
oftast að maður fer ekki beina leið
heim. Kannski þarf að koma við hjá
ketti og færa honum harðfisk og
kanínu sem bíður í ofvæni eftir kál-
haus eða fíflablöðum sem sótt eru
handa henni vestur á Seltjarnarnes
þótt hún búi inni við Sund. Svo
mikið er víst að svona skutl er aldr-
ei minna en ævintýri, mjög gjarna
með góðri viðkomu niðri við höfn
að skoða báta eða dást að Esjunni.
Það er sem sagt engin lognmolla í
kringum Guðrúnu Jónínu.
Lengi lifir í gömlum glæðum.
Manneskjan getur hreinlega ekki
hætt að segja öðrum til og þau eru
ekki mörg kvöldin í vikunni sem
enginn lítur inn til að fá hjálp við
heimalærdóminn.
– Já, ég hef alltaf haft ánægju af
að hjálpa fólki sem vill bæta sig í
hinu og þessu. Við skulum segja að
til mín komi reglulega nokkrir á
viku – aðallega ungmenni af erlend-
um uppruna – sem trúa því að ég
geti orðið þeim að liði. Ég vil þó
taka það fram að ég er ekki að
kenna – bara hjálpa.
hjálpa
þegar lífeyrissjóðakerfinu var kom-
ið á um 1970. Sama gilti þegar
fæðingarorlof var lögleitt og einnig
starfsmenntun í atvinnulífinu. Sjóð-
urinn var notaður til að greiða
fastráðnu fiskverkafólki laun í
ákveðinn tíma þegar verk-
efnaskortur brast á og var notaður
til að fjármagna húsnæðis-
málastjórn í um tvo áratugi og þar
með uppbyggingu á íbúðahúsnæði.
Smám saman fóru fyrirtæki og
sveitarfélög að fá lán úr sjóðnum
og fram undir 1980 voru nánast
engar framkvæmdir sem heitið
gátu án lána þaðan. En þessi lána-
starfsemi fór aldrei hátt í fjöl-
miðlum.“
Þorgrímur bætir við: „Annað
sem ekki fór hátt var að árið 1999
var Atvinnuleysistryggingasjóður,
sem verið hafði svokölluð B-
hlutastofnun á fjárlögum og hafði
sem slík talsvert sjálfstæði, gerður
að A-hlutastofnun að sjóðsstjórn-
inni forspurðri. Sigurður Líndal
mat það svo að þetta væri lögbrot,
en lögfræðingar fjármálaráðuneyt-
isins kváðust ósammála því og þar
við sat.“
Og nú er Þorgrímur að ljúka
þessu verkefni og næsta tekur við
á berangri einyrkjans. „Ég lagði
útí þetta skuldlaus og hef verið
mjög heppinn með verkefni, þannig
að þótt hlé verði á milli hef ég get-
að safnað mér varaforða til að
grípa til. Núna hlakka ég til að
losna af launaská á ný! Þá get ég
farið að skrifa næstu bók sem verð-
ur eftir mínu eigin höfði.“
Þorgrímur Gestsson segir að
hann sakni stundum fjölmiðla-
heimsins vegna félagsskaparins,
„en mér líkar þróunin í faginu ekki
alls kostar. Málfari fer almennt
hrakandi. Ambögur og flatneskja
vaða uppi. Það er einsog tilfinning
fyrir því sem gerir texta góðan og
áhrifamikinn sé á hröðu und-
anhaldi.“
ath@mbl.is
saga hlutanna | frímerkið
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 35
Mæðrastyrksnefnd innir af hönd-
um mikilvægt starf í hinu íslenska
þjóðfélagi. Til hennar geta þeir leit-
að sem þurfa vegna ýmiskonar erf-
iðleika á aðstoð að halda. Nefndin
var stofnuð á þriðja áratug síðustu
aldar í kjölfar mikils sjóslyss, þar
sem margar konur urðu ekkjur og
mörg börn föðurlaus. Lengi vel var
það árviss atburður að Mæðra-
styrksnefnd hefði sinn fjáröflunar-
dag á mæðradag, annan sunnudag í
maí, eða allt frá árinu 1934.
Nefndin hefur starfað á nokkrum
stöðum en í sumar sem leið flutti hún
starfsemi sína að Hátúni 12, þar sem
gott rými er fyrir þá sem koma og
það sem þeim er úthlutað.
Fyrir jólin hefur nefndin jafnan
verið með matarúthlutanir, fataút-
hlutun og aðra aðstoð fyrir þurfandi
fólk. Á þessu hefur ekki orðið nein
breyting og víst er að þrátt fyrir ann-
álað góðæri eru enn margir í þessu
samfélagi sem eru í þörf fyrir aðstoð.
Þeir sem eru aflögufærir ættu fyrir
hátíðirnar að hugsa til hinna sem eru
illa staddir af ýmsum orsökum, gjaf-
ir til mæðrastyrksefndar rata til
þeirra sem eiga bágt. Þarna er verð-
ugt málefni að styðja sem löngu hef-
ur sannað gildi sitt. Hitt er jafn verð-
ugt umhugsunarefni – hvers vegna
íslenskt samfélag er enn svo
óburðugt að það getur ekki séð sínu
fólki fyrir mannsæmandi kjörum,
svo sem þeim sem eru öryrkjar, aldr-
aðir eða hafa orðið fyrir miklum
áföllum í lífi sínu.
Hvers vegna er þörfin svona mikil?
Starf Mæðrastyrksnefndar
ÞJÓÐLÍFSÞANKAR
Guðrúnu Guðlaugsdóttur
gudrung@mbl.is
Áður en fyrsta frímerkiðkom fram á sjónarsviðiðárið 1840 hefur pósturinneflaust farið allnokkrar
fýluferðirnar því öfugt við það sem
síðan hefur tíðkast þurftu viðtak-
endur að greiða sérstakt gjald til
þess að fá sendibréfin sín afhent.
Gjaldið þótti hátt og þar að auki var
vitaskuld undir hælinn lagt hvort
þeim þætti bréfið þess virði.
Skólastjórinn Sir Rowland Hill er
sagður hafa orðið vitni að uppákomu
þar sem yngismær í ónefndu þorpi á
Bretlandseyjum vísaði póstinum á
bug eftir að hafa litið rétt sem
snöggvast á bréfið, sem hann hugð-
ist færa henni. Af einskærri góð-
mennsku bauðst Sir Hill til að borga
póstburðargjaldið fyrir veslings
stúlkuna, sem bar fyrir sig að hafa
ekki efni á að greiða uppsett verð.
Þegar pósturinn var úr augsýn við-
urkenndi hún aftur á móti að í raun-
inni hefði hún ekkert með bréfið að
gera, enda hefði sendandinn dulkóð-
að skilaboðin utan á það – og þau
gat hún hæglega lesið þegar póst-
urinn sýndi henni bréfið.
Sir Rowland Hill er ætíð nefndur
faðir frímerkisins, þótt honum væri
frímerkið sem slíkt ekkert sér-
staklega hugleikið. Hann hafði
miklu meiri áhuga á að koma póst-
burðarmálum í skynsamlegan far-
veg, lækka póstburðargjöldin og
búa svo um hnútana að sendandinn
borgaði þau, en ekki viðtakandinn.
Frímerkið myndi leysa þann vanda.
Hugmynd Sir Hills gekk út á að inn-
an Bretlandseyja mætti senda u.þ.b.
14 gramma bréf með frímerki, sem
kostaði sendandann eitt penní.
Viktoría drottning lagði blessun
sína yfir fyrsta frímerkið í heim-
inum, Penny Black, 4. mars 1840 og
6. maí sama ár var það gefið út og
tekið í notkun. Prófílmynd af sjálfri
drottningunni prýðir frímerkið, en á
því kemur ekki fram frá hvaða landi
það er. Raunar eru bresk frímerki
enn þau einu í heiminum þar sem
uppruninn er ekki tilgreindur. Þau
eru þó auðþekkt því hefð er fyrir að
á þeim sé mynd af ríkjandi þjóð-
höfðingja.
Smám saman tóku aðrar þjóðir
upp sama háttinn við póstsendingar.
Fyrstu tvö frímerkin komu út í
Bandaríkjunum árið 1847, en virð-
ast ekki hafa náð mikilli útbreiðslu.
Að minnsta kosti hafði Zachary
Taylor í margar vikur ekki hug-
mynd um að hann hefði verið til-
nefndur forseti Bandaríkjanna, eða
ekki fyrr en maður var gerður út af
örkinni til að segja honum tíðindin í
eigin persónu. Taylor hafði nefni-
lega neitað að taka við sendibréfum
sem báru honum fregnina – hann
tímdi ekki að borga póstburð-
argjaldið!
Á kostnað sendandans
1840 Penny
Black.
Faðir frímerkisins
Sir Rowland Hill.
1847 Fyrstu bandarísku frímerkin.
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
24
3
45
Kúbu
Frá 69.990 kr.
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á
Hotel villla Tortuga í viku með morgun-
verði, 16. eða 30. des. Aukavika kr. 20.000.
Aukagjald fyrir allt innifalið kr. 1.390 á dag.
Ferð 23. des. kr. 79.990.
Síðustu 58 sætin á ótrúlegu verði
Jól eða áramót á
16. des. 1 eða 2 vikur
23. des. 1 eða 2 vikur
30. des. 1 eða 2 vikur
Bókaðu núna!
Frá kr. 69.990
A
RG
U
S
/
06
-0
55
2
Debetkort
með kreditheimild*
– vaxtalaus og án nokkurs kostnaðar!
Kynntu þér DMK Debetkort og aðra þjónustuþætti
DMK á spron.is
* skv. útlánareglum SPRON