Morgunblaðið - 26.11.2006, Qupperneq 46
46 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
„ÉG ER ekki með fordóma,“
sagði íslensk alþýðukona við und-
irritaða um daginn. „En ég segi það
nú samt að það er fáranlegt þegar
verið er að gefa börnunum töflur til
þess eins að þau verði ekki eins
óþæg“ En er það svo og hverjar
eru staðreyndirnar um lyfjagjöf við
einkennum ADHD?
ADHD (Attention
Deficit Hyperactivity
Disorder) eða athygl-
isbrestur og ofvirkni
er hegðunartruflun
hjá börnum og getur
haft víðtæk áhrif á
daglegt líf, nám og fé-
lagslega aðlögun
barnanna. Heilkennið
er algerlega óháð
greind. Orsakir at-
hyglisbrests og of-
virkni eru líf-
fræðilegar og
þunglyndi er algengur fylgifiskur
ADHD. Rannsóknir hafa sýnt að
þeirra sé að finna í truflun í boð-
efnakerfi heila á stöðum sem gegna
mikilvægu hlutverki í stjórnun
hegðunar. Einstaklingar með
ADHD eiga erfitt með að einbeita
sér að viðfangsefnum sínum. Þeim
er hætt við að framkvæma og gera
hluti án þess að hugsa um afleið-
ingar gerða sinna en slíkt kemur
þeim bæði í vandræði og hættu.
Ákveðinn hópur á við námsörð-
ugleika að stríða og félags- og
hegðunarerfiðleikar eru ekki óal-
gengir. Börnum með ADHD er
mjög hætt við að þróa með sér
ómeðvitaða mótþróahegðun sem
birtist í formi mikillar ögrunar.
Kvíði og depurð eru algeng og
mörg þessara barna sýna einkenni
áráttuhegðunar. Viss hætta er á að
hluti hópsins leiðist út í andfélags-
lega hegðun og vímuefnaneyslu á
unglingsárum fáist ekki viðeigandi
meðferð. Samkvæmt áliti færustu
lækna á þessu sviði er rétt meðferð
m.a. lyfjameðferð. Rétt meðferð er
einnig fræðsla foreldra um ofvirkni,
þjálfun í heppilegum uppeldis-
aðferðum og notkun viðeigandi
kennsluaðferða. Engan efa er að
finna í samfélaginu um aðrar að-
ferðir en lyfjagjöfina. Hún hefur
verið mikið gagnrýnd þótt ein-
kennilegt megi virðast. Það segir
sig sjálft að ekkert foreldri leggur
daglega lyfjagjöf á
barnið sitt að óþörfu.
Reynsla flestra for-
eldra barna með
ADHD er sú að börn
þeirra sem hafa frá
unga aldri verið ör,
hvatvís, fyrirferð-
armikil og fá ADHD
greiningu er ráðlagt
að hefja lyfjameðferð.
Við upphaf lyfja-
meðferðar láta breyt-
ingarnar ekki á sér
standa. Börnunum
gengur strax betur að
læra og fyrirferðin verður strax
miklu minni. Með tímanum verða
þau betur stödd félagslega og líður
því betur á allan hátt.
Foreldrarnir upplifa ekki þessa
lyfjagjöf öðruvísi en lyfjagjöf gagn-
vart öðrum sjúkdómum. Börnunum
líður vel og eru hamingjusamari en
áður. Foreldrar láta fylgjast vel
með börnunum, eru í góðu sam-
bandi við lækna og afla þekkingar
um ADHD.
Harðorðar greinar hafa birst í
blöðum og tímaritum þar sem full-
yrt er að lyfjagjöf sé óþörf og að
foreldrar séu að koma sér undan
uppeldisskyldum sínum Yfirleitt
eru þær skrifaðar af aðilum sem
ekki tala af reynslunni af ADHD.
Sú umfjöllun er einhverra hluta
vegna fólki minnisstæðari heldur en
fræðigreinar um orsakir og ein-
kenni ADHD sem skrifaðar eru af
jákvæðni og hlutlægni. Viðhorf nei-
kvæðrar umfjöllunar sitja því miður
frekar eftir og móta skoðanir fólks.
Kannski er þannig háttað með kon-
una sem nefnd var í upphafi og
henni því vorkunn af skoðunum sín-
um. Þær skoðanir eru byggðar á
takmörkuðum upplýsingum og
skorti á gagnrýninni hugsun. Það
er engu að síður alvarlegt að for-
eldrar barna með ADHD þurfi að
standa frammi fyrir órökstuddum
sleggjudómum eins og lýst var í
byrjun.
Utan þessarar „góðu“ konu sem
nefnd var í upphafi þá heyrast
sömu raddir segja að foreldrarnir
séu að gera börnin sín að fíklum
með lyfjagjöfinni. Myndu þær radd-
ir segja það sama ef foreldrar gefa
börnum sínum lyf við öðrum sjúk-
dómum ? Auðvitað vita foreldrar
betur en breytinga er þörf á við-
horfum í þjóðfélaginu og þar með
umræðunni. Að foreldrar þyrftu
ekki að berjast við fólk í afneitun
samhliða því að taka á sjúkdómi
barns síns. Sá starfi er ærinn þótt
ekki bætist við fáfræði og sleggju-
dómar sem grafa undan þeirri
læknismeðferð sem er viðurkennd
til árangurs. Sú sem þetta ritar
hvetur foreldra, læknastétt og fleiri
sem að þessum málum koma, til að
láta til sín taka í umræðunni um
þessi mál og leiðrétta þær rang-
færslur sem hafðar eru uppi. Það
er sannarlega alvarlegur hlutur
þegar alið er á fordómum gagnvart
þeim sem greindir hafa verið of-
virkir með athyglisbrest vegna þess
að þeir þurfa að taka lyf við þeim
heilsubresti. Tökum ábyrgð og
verndum börnin.
Þið, sem ekkert þekkið til AHDH
og lyfjameðferða við henni, aflið
ykkur þekkingar áður en þið takið
afstöðu og varist að dæma lyfja-
gjöfina af öðrum hvötum en um-
hyggju fyrir velferð barna.
Ég er ekki með fordóma
Guðný Ólafsdóttir fjallar um
athyglisbrest og ofvirkni hjá
börnum og lyfjagjöf við því
» Þið, sem ekkertþekkið til AHDH og
lyfjameðferða við henni,
aflið ykkur þekkingar
áður en þið takið afstöðu
og varist að dæma lyfja-
gjöfina af öðrum hvöt-
um en umhyggju fyrir
velferð barna.
Guðný Ólafsdóttir
Höfundur er móðir.
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
ÁLFHEIMAR
ÍBÚÐARHÚSNÆÐI
OG VERSLUNARPLÁSS
Vorum að fá í einkasölu eftirtaldar eignir
í þessari verslunar- og íbúðarsamstæðu:
• Þrjú aðskilin verslunarpláss, alls skráð 275 fm.
Öll í útleigu með ágætum leigutekjum.
• Íbúð á 2. hæð (efri hæð) 145 fm ásamt
2 bílskúrum og 2 íbúðarherbergjum, alls 230 fm.
• Aukaíbúð á jarðhæð með sérinngangi bakatil.
• Heildarfermetrafjöldi eignarinnar er 614 fm.
• Góð bílastæði og góð aðkoma að verslunarhúsnæðum.
• Verslunarkjarni sem er vel þekktur og á áberandi
stað með auglýsingagildi.
• Mögulegur byggingarréttur.
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Ólafur B. Blöndal 6-900-811 eða Sveinn Eyland 6-900-820
Dan V.S. Wiium hdl.,lögg. fasteignasali
OPIÐ HÚS í dag sunnudag kl. 16-18
FURUGERÐI 2, 108 Rvík
Traust og örugg
þjónusta í 30 ár
Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040 • Fax 533 4041
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Glæsileg og vel umgengin efri sérhæð í tvíbýli ásamt innbyggðum bílskúr.
Stærð eignar er alls ca 208,0 fm. 3 stofur, 5 svefnherbergi þ.a. 20 fm her-
bergi með snyrtingu á jarðhæð með sérinngangi. Frábær stað-
setning miðsvæðis í borginni.
VERÐ 51,2 millj.
Páll og Ingibjörg
taka á móti áhugasömum.jöreign ehf
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Til sölu er jörðin Sauðhagi 1 í Fljótsdalshéraði sem er 405,3 ha. að stærð.
Jörðin er á Völlum milli Egilsstaða og Hallormsstaðar. Gert er ráð fyrir að
jörðinni og nýtingu hennar verði skipt upp í fjögur svæði skv. deiliskipu-
lagsuppdrætti. Þ.e. 70 sumarhúsalóðir í almennri sumarhúsabyggð, 25
eignarlóðir undir heilsárshús, 25 hús fyrir t.d. fyrirtæki eða félagasamtök
og um 40 ha. land undir hótel eða aðra ferðaþjónustu. Möguleiki á golf-
velli. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu.
Jörðin Sauðhagi 1
á Fljótsdalshéraði
Miklir framtíðarmöguleikar
Brekkuland 4a, Mosfellsbæ
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Glæsilega hannað tvílyft 255 fm einbýlishús með tvöföldum 42 fm bíl-
skúr og 42 fm stúdíóíbúð sem er yfir bílskúrnum, samtals 339,6 fm.
Húsið hefur prýtt forsíðu Arkitektablaðsins og einnig verið fjallað um það
í öðrum tímaritum. Húsið skiptist í glæsilegar stofur með mikilli lofthæð,
stórt eldhús með miklu graníti, 2-3 svefnherb. auk stúdíóíbúðarinnar
(vinnustofu). Hér er um einstakt hús að ræða.
Fáðu
fréttirnar
sendar í
símann þinn