Morgunblaðið - 26.11.2006, Síða 48
48 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
DAGANA 9.–22. júlí sl. heimsótti
hollenska dróttskátasveitin Wyxus
íslenskan skátahóp í Mosfellsbæ, þar
sem tekið var á móti henni. Íslensku
skátarnir fengu styrk frá Evrópu-
samtökunum Ungt fólk í Evrópu til
þess að fjármagna ævintýrið.
Þema verkefnisins var jarðfræði
Íslands og álfa- og huldufólkssögur.
Þetta tvennt var fléttað saman með
ferðum, fræðslu og skemmtun. M.a.
var farið í 4 daga göngu með allan
búnað á bakinu. Svo má nefna flúða-
siglingu niður Hvítá, hestaferð um
Mosfellsdalinn og skoðunarferð um
álfa- og huldufólksslóðir á Íslandi.
Laugavegurinn genginn
Hápunktur ferðarinnar var án efa
gönguferð um Laugaveginn milli
Landmannalauga og Þórsmerkur.
Þessi leið er um 54 km á lengd, þar
sem fara þarf um fjöllótt land og
vaða óbrúaðar ár. Fyrsti göngudag-
urinn byrjaði vel því það var sólskin
og blíða. Á leiðinni var áð við Stóra
hver og núðlusúpan soðin á heitum
hvernum. Síðan var haldið áfram og
gengið í snjó síðustu kílómetrana.
Þegar komið var í Hrafntinnusker
fór aðeins að dropa úr lofti. Þetta var
aðeins byrjunin á því vonskuveðri
sem þeir áttu nú í vændum. Gefin
hafði verið út óveðurspá á hálendinu
og útlitið var ekki gott. En sannir
skátar geta gengið í rigningu og
þoku.
Annan daginn í göngunni vöknuðu
allir við hávaðarok og rigningu.
Rætt var um að halda kyrru fyrir í
skálanum í Hrafntinnuskeri, en þar
sem þetta voru nú sannir skátar
lögðu þau af stað upp úr hádegi.
Veðrið hafði aðeins lagast með deg-
inum en blaut voru þau engu að síður
alla gönguna. Það var mikill léttir að
komast í skálann í Hvanngili og ynd-
islegt að komast inn í hlýjuna og í
þurr föt. Þriðja daginn var áætlað að
ganga frá Hvanngili í Emstrur, sem
er stysti kafli göngunnar. Voru þau
mjög bjartsýn á góðan göngudag
vegna þess að þessi kafli er frekar
beinn og auðveldur yfirferðar. En
annað kom á daginn, því mikil rign-
ing og brjálaður mótvindur skall á
þau. Þegar komið var í Emstrur
höfðu skátarnir því miður ekki feng-
ið gistingu í skálanum þar heldur
þurftu þau að byrja á að tjalda í
þessu vonda veðri. Það gekk betur
en á horfðist og eftir alveg yndislega
og langþráða máltíð, sem brösuð var
við erfiðar aðstæður, sofnuðu allir
værum svefni hver í sínu tjaldi.
Í Þórsmörk
Síðan rann upp síðasti dagur göngu-
ferðarinnar. Þegar komið var að
göngubrúnni yfir syðri Emstruá var
staðnæmst og eitt af jarðfræðiverk-
efnum leyst. Þar fræddust þau um
skriðjökla og landrof. Ferðin sóttist
nú vel og enginn farartálmi á leiðinni
nema ef vera skyldi Þröngá, sem
getur verið stríð. Það var létt yfir
skátunum þegar takmarkinu var náð
og mikil ánægja með að hafa lokið
þessari strembnu göngu, vitandi að
þau væru á leiðinni heim í heitt bað,
hlýtt rúm.
Í þessari göngu var sérstök
áhersla lögð á jarðfræði Íslands.
Fengu þau mörg fræðandi og
skemmtileg verkefni á leiðinni til
þess að leysa og læra af. Bæði Ís-
lendingarnir og Hollendingarnir
lærðu mikið um eldfjöllin, skriðjökl-
ana, jökulárnar og jarðhitann. Á
þessum tveimur vikum tengdust hol-
lensku og íslensku skátarnir sterk-
um vináttuböndum. Báðum hóp-
unum fannst þessi ferð vel heppnuð í
alla staði og samskipti hópanna
framar vonum. Eftir að verkefninu
lauk hafa skátarnir haldið samskipt-
unum áfram með því að skiptast á
bréfum og myndum. Með rafrænum
samskiptum vonast hóparnir til þess
að halda sambandinu, geta e.t.v. hist
aftur og farið saman á vit nýrra æv-
intýra.
UNNUR SIGURÐARDÓTTIR,
DRÍFA ÖRVARSDÓTTIR,
dróttskátar í Mosverjum.
Hollenskir skátar heimsækja íslenska skáta
Frá Unni Sigurðardóttur
og Drífu Örvarsdóttur:
Hópurinn fyrir framan Skagfjörðsskála í Þórsmörk.
Hópurinn í vitlausu veðri á Emstrunum.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Sérlega glæsilegt parhús á þessum góða stað í
Ásahverfinu í Garðabæ. Húsið er 170,9 fm auk bíl-
skúrs sem er 28,5 fm, samtals 199,4 fm. Skipting
eignarinnar: Neðri hæð: Geymsla, bílskúr, hol,
stofa, borðstofa, eldhús og baðherbergi. Efri hæð:
3 svefnherbergi, sjónvarpshol, tvennar svalir, bað-
herbergi og þvottahús. Laust strax. Tilboð óskast.
Jón Borgar og Þorleif bjóða ykkur velkomin
Allar nánari upplýsingar gefur
Þorbjörn Helgi í síma 896 0058.
Grjótás 6 - Garðabæ
Opið hús í dag kl. 14-16
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Glæsileg 99 fm 3ja herb. íbúð á efstu
hæð, íbúð merkt 0401, í þessu fallega
endurbyggðu húsi í hjarta miðborgarinnar. Hæðin var byggð ofan á
húsið árið 2005 og er því um nýbyggingu að ræða. Glæsilegar
sprautulakkaðar innréttingar. Stórar og bjartar stofur með miklum
frönskum gluggum, stórt svefnherb. með miklu skápaplássi og baðherb.
með vönduðum tækjum. Eyja í eldhúsi og hellulagðar svalir til suðaust-
urs með miklu útsýni yfir borgina. Laus fljótlega. Verð 34,9 millj.
Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16.
Verið velkomin.
Miðborgin - Vatnsstígur 3
Glæsileg 3ja herb. íbúð í endurbyggðu húsi
Opið hús í dag frá kl. 14-16
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
OPIÐ HÚS Í DAG
Kópavogsbraut 72
Sýnum í dag mjög bjarta og
vel skipulagða 133 fm efri
sérhæð í þessu húsi á mjög
rólegum og fallegum útsýnis-
stað í vesturbæ Kópavogs.
Sérinngangur. Þvottahús á
stigapalli. Gott skipulag
íbúðar. Rúmgott eldhús með
vinnuaðstöðu innaf. Rúm-
góðar og bjartar stofur með
fallegu útsýni. Suðursvalir af
herbergjagangi. Þakið endur-
nýjað fyrir nokkrum árum.
Suðurgarður. Verð 29,9 millj.
Áhvílandi lán frá KB banka
kr. 24,5 millj. til 40 ára.
Mikael og Helga taka á móti þér og þínum í dag á milli kl. 14 og 16.