Morgunblaðið - 26.11.2006, Qupperneq 49
Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Sími 533 4800
345 fm glæsilegt einbýlishús á 3 hæðum í Garðabæ. Húsið skiptist í forstofu, gestabaðher-
bergi, gang, borðstofu, stofu, eldhús, vinnuherbergi og þvottahús. Á efri hæð er sjónvarps-
herbergi (tvö herb. samkv. teikningum), tvö barnaherbergi, hjónaherbergi, fataherbergi og
baðherbergi. Tvöfaldur bílskúr með tveimur geymslum. Á jarðhæð er 52 fm íbúð sem er í út-
leigu. Glæsilegur garður hannaður af Stanislav með ca 100 fm verönd. Verð 79,0 millj. 7839
ENGIMÝRI – GARÐABÆ
– Ö r u g g f a s t e i g n a v i ð s k i p t i ! –
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 49
ESJUGRUND - 116 RVK.
SJÁVARÚTSÝNI
Fjölskylduvænt hús á rólegum stað í Reykjavík. Nálægt vistvæn-
um leikskóla, grunnskóla og íþróttamiðstöð með sundlaug. Alls
200 fm, 5-6 herbergi, nýtt eldhús, þvottahús og bílaplan með
snjóbræðslu. Stór lóð. Strætóleið 27.
Glæsilegt útsýni og náttúran nálæg. Verð 43,9 millj.
Sölumaður Hinrik Olsen, sími 893 4191.
Gott atvinnu-/skrifstofuhús-
næði í Vogum, Vatnsleysu-
strönd. Húsið er í góðu
ástandi bæði að utan og inn-
an. Gólfflötur er 427,6 fm og
efri hæð er 63,6 fm, samtals
491,2 fm. Lofthæð í húsinu
er ca 7 m, ein innkeyrslu-
hurð. Húsið skiptist í þurrk-
herbergi (ca 30 fm), geymsl-
ur, ca 50 fm kæligeymslu, starfsmannaaðstöðu, snyrtingu, eld-
hús, skrifstofu og góðan vinnusal. Húsið er allt einangrað, snyrti-
legt og lítur vel út bæði að innan og utan. Verð 49 millj.
JÓNSVÖR 5 - VOGUM
Símar : 551 7270, 551 7282 og 893 3985
Þjónustusími utan skrifstofutíma 893 3985
Ferjubakki, 4ra herb.
Til afhendingar strax
Lækkað verð
Þuríður Halldórsdóttir hdl., lögg. fasteigna- og skipasali
hibyliogskip@hibyliogskip.is • www.hibyliogskip.is
Mjög góð 4ra herb. íbúð á góðum stað í
Breiðholtinu, alls 105,2 fm.
Íbúðin er með góðu parketi á gólfum,
með stórum og góðum herbergjum og
góðum skápum. Björt og rúmgóð stofa,
opið milli stofu og eldhúss sem er með
mjög góðri innréttingu. Góðir skápar í
holi. Stórt baðherbergi með þvottaað-
stöðu.
Mjög áhugaverð eign.
VLADIMIR Kramnik heimsmeist-
ari hóf í gær einvígi sitt við tölvufor-
ritið Deeper Fritz. Einvígið sem fer
fram í Bonn samanstendur af sex
skákum. Margir telja að í þessu ein-
vígi muni ráðast hvort mannshugur-
inn hafi einhverja möguleika gegn
bestu tölvuforritunum. Ýmislegt
bendir til þess að Deep Fritz sigri
auðveldlega en engu að síður hafa að-
stæður Kramniks verið gerðar mun
betri en þær sem Kasparov bjó við
þegar hann tefldi við Deeper blue í
New York vorið 1997 og tapaði eins
og frægt er orðið.
Þá gripu ýmsir til stórra yfirlýs-
inga að um að síðasta vígið væri fallið;
áróðursgildi sigursins var enda feikn-
arlegur. CNN-sjónvarpsstöðin var
t.d. með það sem fyrstu frétt að Kasp-
arov hefði tapað og efir fylgdi viðtal
við heimsmeistarann sem kvaðst
myndi „hluta vélina í sundur“ ef hann
fengi tækifæri á öðru einvígi. Það sem
gerðist hinsvegar að Deeper blue var
í reynd hlutað í sundur, samstæðan
sett saman aftur með einhverjum við-
bótum til að „herma eftir“ kjarnorku-
sprengju.
Ljóst er að Kasparov átti í miklum
erfiðleikum með að aðlaga sig nýjum
aðstæðum, kraftmikill stíllinn vann
að sumu leyti gegn honum. Kramnik
sem teflir af meiri varkárni og tekur
sjaldan mikla áhættu og var nálægt
því að sigra Deep Fritz fyrir fjórum
árum í Bahrain, komst í 3:1 en varð að
sætta sig við skiptan hlut 4:4. Í New
York ’97 hafði Kasparov engar upp-
lýsingar um mötun Deeper blue, né
heldur skákir sem forritið hafði teflt.
Deeper blue var vitanlega með inn-
byggðan gagnagrunn og þ.a.l. með
allar upplýsingar tiltækar. Þá tókst
forritinu að notfæra sér ákveðinn
misskilning Kasparovs í lokaskák ein-
vígisins sem lauk eftir aðeins 19. leiki.
Kasparov virtist telja að efnishyggja
forritsins héldi því frá því að fórna
manni í upphafi tafls og þegar Deeper
blue fórnaði riddara eins og ekkert
væri sjálfsagðara hafði Kasparov
ekkert fram að færa og tapaði á nið-
urlægjandi hátt. Það liggur nú fyrir
að Deeper blue-forritið var með A-
lista byrjana á takteinum, var tilbúið
að tefla allar vinsælustu byrjanirnar
studd af ótal dæmum sem hvert og
eitt voru sett í sérstaka útreikninga.
Kramnik hefur fyrir nokkru síðan
fengið síðasta eintak af Deeper Fritz
til athugunar. Hann fær einnig afnot
af „byrjanabók“ Deeper Fritz og get-
ur væntanlega stýrt taflmennskunni
eftir bókinni. Þetta er feiknarlegur
aðstöðumunur.
En tíminn stendur ekki í stað og
hafa ber í huga að reiknigetan er allt
af aukast. Deeper Fritz verður knú-
inn áfram að Intel-örgjörva Dual core
2 Duo 5160-kerfi sem reiknar 8 millj-
ón stöður á sekúndu. Þetta þýðir að
forritið getur gert hverri einustu
stöðu tæmandi skil.
Anand óopinber
heimsmeistari í hraðskák
Wisvantahan Anand sigraði örugg-
lega á hinu óopinbera heimsmeistara-
móti í hraðskák sem lauk i Moskvu á
sunnudag fyrir viku. Anand hlaut 23
vinninga af 34 mögulegum en 18
keppendur tefldu tvöfalda umferð.
Hraðskákmótið var lokahnykkurinn
á skákveislunni í kringum 70 ára af-
mæli töframannsins frá Riga, Mikhail
Tal, sem varð heimsmeistari í hrað-
skák árið 1988 í eina opinbera heims-
meistaramótinu sem haldið hefur ver-
ið en það fór fram í Saint John í
Kanada. Þó miklu hafa verið kostað
til vegna hraðskákmótsins Moskvu
gat mótshaldarinn ekki séð til þess að
mótið væri sýnt beint á Internetinu
og fékk fyrir það harða gagnrýni.
Þess má geta að Rússar eiga nú alveg
að getað klárað sig af slíku og má
nefna að 24 skáka hraðskákeinvígi
Kasparovs og Kramnik árið 1998 var
sýnt beint á netinu. Hraðskák er vit-
anlega hin besta skemmtun og margt
sem bendir til að styttri skákir munu
ryðja sér æ meira til rúms sem mark-
tækt keppnisform. Lokaniðurstaðan í
Moskvu varð þessi:
1. Anand, 23 v. 2. Aronian, 21 v.
3.–4. Radjabov og Svidler 20½ v. 5.
Ponomariov, 19½ v. 6. Morozevich,
Grischuk, og Gelfand, 18. v. 9.–10.
Carlsen, og Karpov, 17½ v. 11.–13.
Karjakin, Mamedyarov, og Judit
Polgar, 17 v. 14.–15. Leko og Jako-
venko, 15½ v. 16. Bologan, 10½ v. 17.
Timofeev, 10 v. 18. Jobava, 9 v.
Lenka sigraði á Boðsmóti TR
Lenka Ptacnikova varð ein í efsta
sæti á Boðsmóti TR sem lauk sl.
sunnudag. Dagur Arngrímsson var
efstur fyrir síðustu umferð en tapaði
lokaskákinni fyrir Sigurbirni Björns-
syni. Dagur hafnaði í 2.–4. sæti ásamt
Sigurbirni og Daða Ómarssyni og
hlutu þeir allir 5 vinninga. Árangur
Daða er eftirtektarverður. Jóhann
Ingvason og Hrannar Baldursson
urðu í 5.–6. sæti með 4½ vinning.
Keppendur voru alls 21.
Afmælismót um helgina
í Reykjanesbæ
Afmælismót Helga Ólafssonar er
haldið í Reykjanesbæ nú um helgina.
Helsti drifkraftur mótsins er Ás-
mundur Friðriksson verkefnastjóri
atvinnu- og menningarmála í Reykja-
nesbæ. Reikna má með um 30 kepp-
endum en mótinu er sjónvarpað á Sýn
og er Hermann Gunnarsson við
stjórnvölinn. Stigahæsti skákmaður
mótsins er Ivan Sokolov og er hann
eini erlendi keppandinn. Aðrir ís-
lenskir stórmeistarar auk undirritaðs
eru Friðrik Ólafsson, Jóhann Hjart-
arson, Jón L. Árnason, Þröstur Þór-
hallsson, Helgi Áss Grétarsson, og
Hendrik Danielssen. Aðalstyrktarað-
ili mótsins er NETTÓ verslanir. Úr-
slit verða tefld í dag, sunnudag.
Mun ofurforritið Deeper
Fritz sigra heimsmeistarann?
Helgi Ólafsson | helol@simnet.is
Bestur í hraðskák Wisvanathan
Anand að tafli í Moskvu.
SKÁK
Kramnik gegn Deeper Fritz
25. nóvember–5. desember
BONN, ÞÝSKALANDI