Morgunblaðið - 03.12.2006, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.12.2006, Blaðsíða 6
6 C SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Smiðir Vegna vaxandi verkefna óskar Lauffell ehf. byggingaverktakar eftir vönum smiðum í verkstjóra/hópstjórastöður. Góð kjör í boði. Spennandi verkefni framundan. Vinsamlegast sendið umsókn til lauffell@laufell.is eða hafið samband við Rúnar í síma 892 1001. Skógarhlí› 12 • 105 Reykjavík • Sími 520 4700 • www.hagvangur.is - vi› rá›um Forritari Point á Íslandi ehf. vill rá›a forritara til starfa sem fyrst vegna mikilla verkefna. Viltu taka flátt í spennandi vi›fangsefnum me› frískum vinnufélögum? Vi› leitum a› forritara sem vinnur vel í hóp og á au›velt me› mannleg samskipti. Vi›komandi flarf a› hafa a.m.k. 2-3ja ára reynslu í forritun í C++ og C#. Bakgrunnur í kerfisumsjón er kostur. fiér b‡›st gó› vinnua›sta›a í umhverfi flar sem ríkir líflegur vinnuandi og starfsmönnum er treyst til gó›ra verka. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is fyrir 10. desember nk. Númer starfs er 6114. Uppl‡singar veitir Gu›n‡ Sævinsdóttir. Netfang: gudny@hagvangur.is Point á Íslandi ehf er hluti af öflugri skandinavískri samsteypu me› starfsemi í 6 löndum. Fyrirtæki› sérhæfir sig í rafrænni grei›slumi›lun, innflutningi posavéla og flróun hugbúna›ar fyrir posa og mi›læga grei›slufljónustu. Point fljónustar flest stærri fyrirtæki landsins var›andi rafræna grei›slumi›lun. www.point.is Lager og útkeyrsla Heildverslun leitar eftir traustum og áreiðan- legum starfsmanni til lager og útkeyrslustarfa. Hæfniskröfur: - Þjónustulund og góð hæfni í mannlegum samskiptum. - Almenn tölvukunnátta. - Stundvísi og reglusemi. - Snyrtimennska og heiðarleiki. - Reyklaus. Starfssvið Tiltekt vörupantana - móttaka vörusendinga. Almenn lagerstörf - útkeyrsla og önnur tilfallandi störf. Vinnutími er frá kl. 9.00-14.00, möguleiki á fullu starfi. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsókn með mynd sendist til auglýsinga- deildar Mbl. eða á box@mbl.is sem fyrst, merkt: ,,Útkeyrsla - 19325’’. Verkefnastjóri Matís í Vestmannaeyjum Matís ohf. auglýsir eftir verkefnastjóra í Vest- mannaeyjum. Hlutverk verkefnistjórans er að stjórna og vinna að verkefnum á vegum Matís ohf. í Vestmannaeyjum en þau fela m.a. í sér: ● Umsjón með daglegum rekstri, öflun verk- efna og áætlanagerð. ● Samstarf við fyrirtæki og einstaklinga um verkefni. ● Vinna við verkefni er tengjast rannsóknum og þróun á sviði matvæla. ● Kortlagning á tækifærum. ● Kynna verkefni og tækifæri í umhverfinu. Umsækjendur skulu hafa lokið a.m.k. meistara- prófi í raunvísindum eða verkfræði. Umsækjendur þurfa að hafa frumkvæði og sjálf- stæði í vinnubrögðum, gott vald á ensku og íslensku og lipurð í mannlegum samskiptum. Umsóknum með upplýsingum um menntun og starfsreynslu, auk meðmæla sendist til Matís ohf., Skúlagötu 4, 101 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 15. desember 2006. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar 2007. Nánari upplýsingar veitir Guðjón Þorkelsson, gudjont@rf.is, sími 860 4748 og Ragnar Jóhannsson, ragnar@rf.is, sími 861 9695. Matís ohf. er nýtt hlutafélag í eigu ríkisins sem tekur við starfsemi Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, Matvælarannsókna Keldnaholti (MATRA) og Rannsóknastofu Umhverfisstofnunar. Tilgangur félagsins er að sinna rannsóknum og nýsköpun á sviði matvæla í þágu atvinnu- lífsins, lýðheilsu og matvælaöryggis. KÓPAVOGSBÆR www.kopavogur.is - www.job.is Lindaskóli Aðstoðarskólastjóri • Staða aðstoðarskólastjóra við Lindaskóla í Kópavogi er laus til umsóknar. Leitað er eftir einstaklingi sem hefur reynslu af kennslu. Viðkomandi einstak- lingur þarf að búa yfir góðum skipulags- hæfileikum og vera góður í samskiptum. Lindaskóli er einsetinn skóli með 590 nem- endur í 1. – 10. bekk. Skólinn er vel búinn kennslutækjum og starfsaðstaða er mjög góð. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem lögð er áhersla á góða kennslu og góða samvinnu skóla og heimila. Lindaskóli er umhverfisvænn skóli og tekur þátt í verk- efninu Skólar á grænni grein. Laun samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launa- nefndar sveitarfélaga. Hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar gefur skólastjóri Gunnsteinn Sigurðsson í síma 554-3900 eða 861-7100. Umsóknarfrestur er til 12. desember 2006 Gagnaveita Orkuveitu Reykjavíkur leitar að vörustjóra fyrirtækjalausna. Orkuveita Reykjavíkur er framsækið þjónustu- fyrirtæki sem aflar og dreifir vistvænni orku á sem hagkvæmastan hátt og í sátt við umhverfið. Á þjónustusvæði fyrirtækisins býr meira en helmingur íslensku þjóðarinnar. Stefna Orkuveitunnar er að veita viðskiptavinum sínum bestu mögulegu þjónustu og sjá þeim fyrir ódýrri orku sem framleidd er úr endurnýjanlegum íslenskum orkulindum. Þannig stuðlar fyrirtækið að aukinni notkun hreinnar innlendrar orku og leggur um leið sitt af mörkum til nýsköpunar og framfara í landinu. Orkuveitan er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður fólks með mikla þekkingu. Fyrirtækið leitast við að vera í fremstu röð hvað snertir öryggi og vinnuumhverfi og möguleika starfsfólks á að samræma vinnu og fjölskylduábyrgð eins og kostur er. Það er stefna Orkuveitu Reykjavíkur að auka hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum innan fyrirtækisins. Fyrirtækið er: Sveigjanlegt, það lagar sig að breyttum aðstæðum Sýnir frumkvæði og er opið fyrir nýjungum Sækir fram af eldmóði Traust og starfar í sátt við umhverfið Gagnaveita OR er sjálfstætt starfandi svið innan Orkuveitu Reykjavíkur (OR) sem verður að sjálfstæðu hlutafélagi í eigu OR frá og með janúar 2007. Gagnaveitan hefur með höndum uppbyggingu, rekstur og þjónustu á gagna- flutningskerfi OR. Gagnaveita OR vinnur að því að ljósleiðaravæða heimili á veitusvæðum OR undir vörumerkinu SAMBAND OR. Gagnaveitan rekur einnig dreifikerfi fyrir Internet-, síma- og sjónvarpsdreifingu, sem byggt er á IP samskiptatækni yfir ljósleiðara. Sjálfstæðir þjónustuaðilar á markaði nýta sér dreifikerfi OR til miðlunar á efnis- og þjónustuframboði sínu til heimila. Vörustjóri fyrirtækjalausna starfar á viðskiptadeild. Viðskiptadeild Gagnaveitu hefur umsjón með uppbyggingu, sölu og markaðssetningu þjónustuframboðs Gagnaveitu. Jafnframt hefur deildin umsjón með samstarfi við þjónustu og efnisveitur, þróun þjónustu með sveitarfélögum og leitar nýrra viðskipta- tækifæra. Starfs- og ábyrgðarsvið: • Markaðs- og kynningarmál • Umsjón með samstarfi við fjarskiptafyrirtæki • Uppbygging vöruframboðs • Þróun þjónustu með sveitarfélögum • Undirbúningur söluherferða • Ábyrgð á innri ferlum, eftirfylgni og framkvæmd frávikagreiningar Hæfniskröfur: • Háskólamenntun á sviði viðskipta, rekstrarfræði eða sambærilegt • Gráða í vörustjórnun kostur • Starfsreynsla æskileg • Reynsla af samningagerð og verkefnastjórnun • Góð ensku- og dönskukunnátta kostur • Samstarfshæfni, metnaður, frumkvæði, agi og sjálfstæði í vinnubrögðum ÍS L E N S K A /S IA .I S /O R V 35 20 7 11 /0 6 Umsjón með starfinu hafa Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Herdís Rán Magnúsdóttir (herdis.magnusdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Umsóknar- frestur er til og með 17. desember nk. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is og senda jafnframt starfsferilskrá. Atvinnuauglýsingar sími 569 1100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.