Morgunblaðið - 03.12.2006, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2006 C 15
Öryggisstjóri og öryggisfulltrúi
Norðurál óskar eftir að ráða öryggisstjóra og öryggisfulltrúa til framtíðarstarfa.
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir til að takast á við krefjandi verkefni.
Öryggisstjóri
Öryggisstjóri ber ábyrgð á þróun og mótun öryggismála
hjá fyrirtækinu í samráði við aðra stjórnendur og hefur
yfirsýn og eftirlit með þessum málum.
Við leitum að einstaklingi með eftirfarandi hæfni
og bakgrunn:
l Háskólapróf sem nýtist í starfi
l Sérhæfingu í áhættugreiningu og áhættumati
l Hæfni í samskiptum og getu til að örva
samstarfsfólk til dáða
l Frumkvæði og skipulagshæfni
l Góða almenna tölvukunnáttu
l Nokkurra ára reynslu af öryggisstjórnun
l Reynslu af vinnu í iðnaði
Öryggisfulltrúi
Öryggisfulltrúi tekur þátt í fjölbreyttum verkefnum
tengdum öryggismálum.
Við leitum að einstaklingi með eftirfarandi hæfni
og bakgrunn:
l Menntun sem nýtist í starfi
l Góða samskipta- og samstarfshæfni
l Góða almenna tölvukunnáttu
l Reynslu af vinnu í iðnaði
l Reynslu af starfi í öryggismálum (æskilegt)
Æskilegt er að viðkomandi starfsmenn geti hafið störf
sem fyrst.
Jafnrétti
Áhersla er lögð á jafna möguleika karla og kvenna
til starfa hjá Norðuráli.
Trúnaður
Við förum með umsókn þína og allar persónulegar
upplýsingar sem trúnaðarmál.
Hvernig sækir þú um?
Vinsamlega sendu okkur umsókn þína fyrir 18. desember
næstkomandi. Þú getur sótt um á vef fyrirtækisins
www.nordural.is, sent umsókn þína á netfangið
umsokn@nordural.is eða póstlagt umsóknina merkta:
Öryggisstjóri eða öryggisfulltrúi.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Rakel Heiðmarsdóttir,
framkvæmdastjóri starfsmannasviðs, í síma 430 1000.
Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 • Fax 430 1001 • nordural@nordural.is • www.nordural.is
Norðurál
Um þessar mundir er unnið að stækkun Norðuráls sem felur í sér
að framleiðslugeta álversins verður aukin í 260.000 tonn árið 2007.
Hjá okkur starfa nú um 360 manns að margvíslegum verkefnum
og gert er ráð fyrir að starfsfólki fjölgi enn frekar næsta ári.
Pípulagningamaður
eða vélvirki óskast til starfa.
Orkuveita Reykjavíkur er framsækið þjónustu-
fyrirtæki sem aflar og dreifir vistvænni orku á sem
hagkvæmastan hátt og í sátt við umhverfið.
Á þjónustusvæði fyrirtækisins býr meira en helmingur
íslensku þjóðarinnar.
Stefna Orkuveitunnar er að veita viðskiptavinum sínum
bestu mögulegu þjónustu og sjá þeim fyrir ódýrri orku
sem framleidd er úr endurnýjanlegum íslenskum
orkulindum. Þannig stuðlar fyrirtækið að aukinni notkun
hreinnar innlendrar orku og leggur um leið sitt af
mörkum til nýsköpunar og framfara í landinu.
Orkuveitan er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður fólks
með mikla þekkingu. Fyrirtækið leitast við að vera
í fremstu röð hvað snertir öryggi og vinnuumhverfi
og möguleika starfsfólks á að samræma vinnu
og fjölskylduábyrgð eins og kostur er.
Það er stefna Orkuveitu Reykjavíkur að auka hlut
kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum innan
fyrirtækisins.
Fyrirtækið er:
Sveigjanlegt, það lagar sig að breyttum aðstæðum
Sýnir frumkvæði og er opið fyrir nýjungum
Sækir fram af eldmóði
Traust og starfar í sátt við umhverfið
Um er að ræða starf í Framkvæmdadeild Orkuveitunnar á Vesturlandi.
Viðkomandi þarf að vera búsettur í Borgarbyggð.
Framkvæmdadeild hefur með höndum viðhaldsverk, viðbrögð við bilunum og
smærri nýlagnir í kerfum Orkuveitunnar og HAB (Aðveituæðin milli Deildar-
tungu og Akraness).
Um starfið gildir að viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að fást við öll þau
fjölbreyttu verkefni sem upp geta komið.
Við leitum að duglegum, samviskusömum einstaklingi með færni í mannlegum
samskiptum. Ef þú ert einstaklingur með áðurnefnda hæfileika getur orðið um
framtíðarráðningu að ræða. Umsækjendur um starfið þurfa að uppfylla
eftirfarandi kröfur:
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Sveinspróf í pípulögnum eða vélvirkjun
• Haldgóð almenn tölvukunnátta
• Aukin ökuréttindi æskileg
Upplýsingar og umsjón með úrvinnslu umsókna hefur Sólrún Kristjánsdóttir
(solrun.kristjansdottir@or.is) hjá Orkuveitu Reykjavíkur.
Umsóknarfrestur er til og með 17. desember nk.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um störfin á heimasíðu
Orkuveitunnar: www.or.is og senda jafnframt ferilskrá.
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
V
35
23
0
12
/0
6
Framkvæmdasvið Orkuveitu Reykjavíkur óskar að ráða
öflugan starfsmann í framtíðarstarf. Starfsmaðurinn mun
starfa á athafnasvæði Orkuveitunnar á Vesturlandi.
Vaktstýra óskast
Samtök um kvennaathvarf leita að vaktstýru til
starfa. Starfið er fjölbreytt og lifandi og felst
einkum í umsjón með daglegu starfi Kvenna-
athvarsins, m.a. í aðstoð við konur og börn
sem þangað leita. Vaktstýra þarf að búa yfir
nærgætni, hæfileikum til að vinna sjálfstætt og
skipulega, og getu til að ráða við krefjandi
aðstæður í mannlegum samskiptum.
Nánari upplýsingar fást í Kvennaathvarfinu, hjá
Sigþrúði Guðmundsdóttur framkvæmdastýru í
síma 561 3740 og Þórlaugu Jónsdóttur rekstr-
arstjóra í síma 561 3720.
Umsóknum skal skilað í Kvennaathvarfið,
pósthólf 1486, 121 Reykjavík, eða á netfangið
thorlaug@kvennaathvarf.is í síðasta lagi
þriðjudaginn 12. desember nk.
Lífeindafræðingar
Tvær stöður lífeindafræðinga eru lausar til umsóknar á
klínískri lífefnafræðideild. Starfshlutföll 100% eða eftir
samkomulagi. Störfin eru áhugaverð og felast m.a. í
almennum efnarannsóknum og blóðsýnatöku á klíniskri
lífefnafræðideild við Hringbraut og í Fossvogi. Áhersla
er lögð á sjálfstæð vinnubrögð og góða samskipta-
hæfileika. Umsækjendur skulu hafa próf í lífeindafræði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum
gögnum og viðtölum.
Umsóknir berist fyrir 18. des. nk. til Lísbetar Grímsdóttur,
yfirlífeindafræðings klínískrar lífefnafræðideildar,K-bygg-
ingu 2. hæð við Hringbraut og veitir hún upplýsingar í
síma 825 5004, netfang lisbet@landspitali.is.
Hjúkrunarfræðingar
óskast til starfa á svefnrannsóknareiningu lungnadeildar
A-6 og göngudeildar A-3, Fossvogi.
· Starfið felur í sér skipulagningu innlagna, móttöku
og eftirfylgni við sjúklinga sem koma til greiningar,
meðferðar og eftirlits vegna svefnháðra
öndunartruflana. Skjólstæðingar einingarinnar eru
sjúklingar með kæfisvefn, minnkaða öndunargetu
(vanöndun) og öndunarbilun af ýmsum orsökum.
· Lögð er áhersla á einstaklingahæfða og
fjölskyldumiðaða hjúkrun. Veitt er fræðsla um
sjúkdómana og gefnar leiðbeiningar um meðferð
með öndunartækjum til sjúklinga og fjölskyldu.
Stuðningur við sjúklinga eftir útskrift með
svefnöndunartæki heima fer fram með símaviðtölum,
næturmælingum og vitjunum.
· Þjálfun og kennsla til starfsfólks og nema á A-6 og
A-3, annarra deilda LSH og annarra stofnana.
Hjúkrunarfræðingar á svefnrannsóknareiningu starfa í
teymi með læknum, svefnrannsóknarmönnum og
sjúkraliðum. Unnið er í dagvinnu.
Um er að ræða starf sem krefst sjálfstæðra vinnubragða
og hæfileika til að vinna í hópi. Fræðsla og
fjölskylduhjúkrun eru mikilvægur þáttur í starfinu.
Grunnfærni í tölvunotkun er æskileg.
Skemmtilegt, gefandi og krefjandi starf fyrir þá sem
geta unnið sjálfstætt. Jákvætt andrúmsloft þar sem
rannsóknir og nýjungar eru hluti af daglegu starfi.
Umsóknir berist fyrir 18. des. nk. til Öldu
Gunnarsdóttur, deildarstjóra A-6 og veitir hún
upplýsingar í síma 543 6677, 825 5037, netfang
aldagunn@landspitali.is.
Hjúkrunarfræðingur og sjúkraliðar
Endurhæfingardeild R-2 Grensási leitar eftir
hjúkrunarfræðingi á næturvaktir. Einnig leitum við eftir
sjúkraliðum. Unnið er samkvæmt einstaklingshæfðri
hjúkrun með virki þátttöku sjúkraliða. Á deildinni starfar
samhentur hópur fagfólks að uppbyggingu og þróun
hjúkrunar á sviði endurhæfingar.
Deildin sérhæfir sig m.a. í endurhæfingu sjúklinga með
fjöláverka, aflimanir, heila- og mænuskaða. Í boði er
einstaklingshæfð aðlögun og skipulögð fræðsla.
Starfshlutfall eftir samkomulagi.
Umsóknir berist fyrir 18. des. nk. til Þórveigar Huldu
Bergvinsdóttur, deildarstjóra R-2 Grensási og veitir hún
upplýsingar í síma 543 9150, 893 6248, netfang
huldberg@landspitali.is.
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og
fjármálaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi og
Hringbraut, skrifstofu starfsmannamála Eiríksgötu 5, á heimasíðu
www.landspitali.is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf
á Landspítala háskólasjúkrahúsi. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Landspítali háskólasjúkrahús er reyklaus vinnustaður.