Morgunblaðið - 03.12.2006, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2006 C 17
Skrifstofu- og
bókhaldsstarf
Veitingahúsið Ítalía leitar eftir starfsmanni
í hlutastarf á skrifstofu. Starfið felur í sér
umsjón með bókhaldi og launakerfi fyrir-
tækisins, ásamt almennum skrifstofustörf-
um og öðrum tilfallandi verkefnum. Reynsla
af færslu bókhalds nauðsynleg.
Nánari upplýsingar eru gefnar í síma
562 4630 eða með tölvupósti á italia@italia.is
Gallerý fiskur
Gallerý fiskur óskar eftri að ráða starfsfólk til
aðstoðar í veitingasal og verslun sína í Nethyl
2, Reykjavík.
Starfshlutfall 80-100% eftir samkomulagi og
2-3 daga í viku er unnið til 18:30.
Verksvið: Almenn afgreiðsla í verslun og
veitingasal, gerð fiskrétta í afgreiðsluborð,
aðstoð í eldhúsi ofl.
Reynsla af matvælavinnslu eða þjónustu-
störfum æskileg sem og ökupróf.
Frítt fæði í vinnutíma
Uppl: galleryfiskur@galleryfiskur.is og í
símum: 587 2882 og 869 4443.
Raðauglýsingar 569 1100
Húsnæði óskast
+ -100 fm húsnæði óskast
til leigu fyrir léttan iðnað. Þarf að vera á jarð-
hæð eða með góðri aðkomu fyrir vörur.
Vinsamlega hafið samband í síma
897 3196 eða icemail@simnet.is
Íbúð óskast til leigu
Höfum verið beðnir um að útvega 2ja eða
3ja herb. íbúð á leigu á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu í eitt ár, með eða án húsgagna.
Nánari uplýsingar gefur Magnús í síma
595 6700 eða magnus@rjc.is
Kennsla
Grunnnámskeið
flugumferðarstjóra
Flugstoðir ohf. hafa ákveðið að halda grunnnámskeið flugumferðarstjóra eftir
áramótin. Grunnnám og nám til fyrstu réttinda er ólaunað.
Umsækjendur skulu hafa lokið stúdentsprófi, tala skýrt mál, hafa greinilega
rithönd og gott vald á íslenskri og enskri tungu. Þá skulu umsækjendur einnig
fullnægja tilskyldum heilbrigðiskröfum.
Umsækjendur þurfa að þreyta samkeppnispróf, fara í viðtöl í kjölfarið og þeir sem
koma til greina eftir fyrrgreint munu hefja nám í flugumferðarstjórn.
Standist nemendur grunnnámið munu þeir hljóta þjálfun og eiga starfsstöð í
Reykjavík eða Keflavík.
Þeir sem hafa áhuga á að sitja þetta námskeið, skulu skila inn umsóknum til flug-
umferðarsviðs Flugmálastjórnar Íslands, Ingibjargar Bergþórsdóttur, á 4. hæð í
flugturninum á Reykjavíkurflugvelli. Umsóknareyðublöð liggja frammi á sama
stað. Umsóknareyðublöð er einnig hægt að prenta út af heimasíðu
Flugmálastjórnar Íslands, www.flugmalastjorn.is, undir ,,Þjálfunardeild”. Með
umsókn skulu fylgja staðfest afrit af stúdentsprófi, augnvottorð í samræmi við
leiðbeiningar sem fylgja umsóknargögnum, nýtt sakavottorð og mynd af
umsækjanda.
Umsóknarfrestur rennur út 18. desember 2006.
Flugmálastjórn Íslands er ríkisstofnun sem sett var á stofn árið 1945. Síðan hefur stofnunin innt af hendi margvíslega þjónustu í þágu flug-
samgangna. Þann 1. janúar 2007 munu þjónustuverkefni Flugmálastjórnar Íslands verða flutt frá stofnuninni og hefur verið stofnað um þau
nýtt opinbert hlutafélag, Flugstoðir ohf. Hjá Flugstoðum ohf. munu starfa um 230 starfsmenn. Helstu verkefni fyrirtækisins að sjá um upp-
byggingu og rekstur flugvalla og veita flugumferðar– og flugleiðsöguþjónustu fyrir innanlandsflug og alþjóðlegt flug yfir Norður–Atlantshaf-
ið. Flugstoðir ohf. leggja áherslu á jafnan rétt karla og kvenna til starfa
Tilkynningar
Bókaveisla
í Kolaportinu
30% afsláttur af sérmerktum bókum
Mikið magn bóka á 2-300 kr. stk.
(Erum hafnarmegin í húsinu).
Vel að verki staðið
Viðurkenning Alþjóðahúss
fyrir lofsverða frammistöðu
í málefnum innflytjenda og
samfélagsins.
Auglýst er eftir tilnefningum til viðurkenninga
Alþjóðahúss, sem verða afhentar í lok desem-
ber.
Veittar verða viðurkenningar í þremur flokk-
um. Í fyrsta lagi til fyrirtækis, stofnunar eða
félagasamtaka, í öðru lagi til einstaklings af
innlendum uppruna og í þriðja lagi til einstakl-
ings af erlendum uppruna.
Í tveimur fyrrnefndu flokkunum er viðurkenn-
ing veitt til aðila sem hafa gert meira í málefn-
um innflytjenda en ætlast má til. Í þeim síðast-
nefnda er gert ráð fyrir að veita viðurkenningu
fyrir framlag viðkomandi til samfélagsins.
Tilnefningarnar skulu rökstuddar í stuttu og
knöppu máli, eigi lengra en 200 orð.
Skilafrestur á tilnefningum er til og með 11. des-
ember. Hægt er að senda þær í tölvupósti á
netfangið einar@ahus.is eða skriflega á skrif-
stofu Alþjóðahússins, Hverfisgötu 18,
101 Reykjavík.
Nánari upplýsingar fást á www.ahus.is og í
síma 530 9300.
BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090
Ármúli 1 - Kynningarfundur
í Álftamýrarskóla
um tillögu að breytingu á deiliskipu-
lagi og umferðarmál á svæðinu
Í samvinnu við hverfisráð Háaleitis og
Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis
verður haldinn kynningarfundur
mánudaginn 4. desember 2006
kl. 17.30 í sal Álftamýrarskóla.
Á fundinum verður tillaga kynnt og umferðar-
sérfræðingar frá Framkvæmdasviði Reykjavíkur-
borgar munu fjalla um umferðarmál í hverfinu.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Framkvæmdasvið Reykjavíkur
Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis
Reykjavík, 30. nóvember 2006
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Ýmislegt
Frystigámur
Frystigámur til sölu. 1 x 40 fet
í góðu lagi. Uppl. í síma 861 2319.
OPIÐ ÚTBOÐ
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf.
Háspennubúnaður
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. (FLE hf.) óskar eftir
áhugasömum aðilum til að taka þátt í opnu útboði
vegna útvegunar og uppsetningar á háspennubúnaði
í nýrri dreifistöð fyrir flugstöðina á Keflavíkurflugvelli.
Verkið felst í efnisútvegun og uppsetningu á
háspennubúnaði í nýrri dreifistöð fyrir Flugstöð Leifs
Eiríkssonar. Háspennubúnaðurinn tengist vararafstöð
sem sett verður upp í sömu byggingu.
Helstu kennitölur eru:
1. Spennir 11/0.4kV, 2500kVA
2. Rofabúnaður 11kV, 6 stk með skápum, mæla-
og varnarbúnaði
Afhending útboðsgagna: 05. desember 2006
Áætlað upphaf verks: 12. janúar 2007
Verklok: 01. júní 2007
Útboðsgögnin liggja frammi á skrifstofu Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar hf. á 3.hæð í flugstöðinni á
Keflavíkurflugvelli svo og hjá VSÓ Ráðgjöf,
Borgartúni 20, 105 Reykjavík, frá og með
þriðjudeginum 05. desember 2006. Gögnin eru á
rafrænu formi og verða seld á 10.000 kr.
Tilboðum skal skilað á skrifstofu FLE hf. eigi síðar en
fimmtudaginn 21. desember 2006, kl.: 11:00.
Útboðið er auglýst á evrópska efnahagssvæðinu.