Lesbók Morgunblaðsins - 09.06.2007, Side 1
Laugardagur 9. 6. 2007
81. árg.
lesbók
EITTHVAÐ NÝTT Í NÝHIL?
ÞAÐ SEM KRÝNIR SIG NÝTT REYNIST OFT EKKI NÝTT OG ÞAÐ
SEM KENNIR SIG VIÐ HIL HEFUR SENNILEGA ENGAN HYL >> 10
Hvor með sínum hætti eru Jónas og Megas að umbylta » 12-13
Eftir Þröst Helgason
vitinn.blog.is
Ívikunni kom út bók hjá JPV-útgáfu semá sér ekki marga líka hér á landi. Húnheitir Ljóðhús og er eftir Þorstein
Þorsteinsson og inniheldur þætti um skáld-
skap Sigfúsar Daðasonar.
En hvað er svona sérstakt við bókina? Jú,
afar fáar ef nokkur önnur bók þar sem gerð
er jafn viðamikil og heildstæð úttekt á ljóðlist
samtímaskálds hefur komið út hér á landi.
Hér hafa vissulega verið
skrifaðar ævisögur um
skáld og styttri náms-
ritgerðir um ljóðagerð
tuttugustu aldar höfunda
hafa verið gefnar út en
það er afar fátítt að hér
séu skrifaðar rúmlega
fjögurhundruð síðna bæk-
ur um ljóðlist einstakra
skálda.
En þegar það er gert ber að þakka sér-
staklega fyrir og þegar það er gert af jafn
mikilli þekkingu og Þorsteinn gerir þá er
ekki annað að hægt en hrópa húrra!
Þorsteinn hefur verið dyggur lesandi ljóða
Sigfúsar í meira en fjóra áratugi eins og kem-
ur fram í formála ritsins en hann hefur unnið
að rannsókn þeirra frá árinu 2001. Áður hafði
hann annast útgáfu á síðustu ljóðabók Sigfús-
ar, Og hugleiða steina, og ritgerðasafni hans.
Það sem er sérstaklega mikilsvert við
þessa bók Þorsteins er að hann hefur allan
feril Sigfúsar undir, allar ljóðabækurnar sex
sem innihalda 126 frumort kvæði auk þess
sem Þorsteinn þekkir önnur skrif Sigfúsar
vel. Umfjöllunarefnið er ljóðheimur Sigfúsar,
yrkisefnin, formið, stíllinn og skáldskap-
arfræðin sem bindur þetta allt saman. Þor-
steinn kannar áhrifavalda Sigfúsar og leggur
talsverða áherslu á það hvernig Sigfús veitti
eigin lífi inn í skáldskap sinn.
Þorsteinn leggur ekki strangfræðilegar
línur í aðferð sinni við að lesa ljóð Sigfúsar og
er miklu frekar eins konar fjölhyggjusinni í
þeim efnum. Hann grípur til þeirra vopna
sem henta hverju sinni í glímunni við textana.
Raunar má sjá í ritinu ákveðna fyrirvara á
fræðikenningum á borð við formgerðar-
stefnu, nýrýni, sem hann segir alls ekki eiga
við þegar kemur að skáldskap Sigfúsar, og
þjóðfélagslegan eða hugmyndafræðilegan
lestur sem Þorsteinn telur of takmarkandi.
Höfundurinn er hins vegar miðlægur í lestri
Þorsteins, sennilega fyrst og fremst af þeirri
ástæðu að hann telur Sigfús hafa ort talsvert
um og út frá eigin lífi. Fyrir vikið eru túlk-
unarfræðilegar pælingar talsverðar í bókinni
til dæmis um samspil höfundar og lesanda.
Um fram allt er Þorsteinn mjög glúrinn
túlkandi og það er leitun að ljóðgreiningu
sem er jafn skemmtilegur og fjölbreytilegur
lestur. Vísað er í fjölmarga höfunda, ekki síst
skáld. Hugsunin er skýr og stíllinn tær. Þetta
er bók sem maður myndi halda að breytti
hverjum lesanda í andríkan ljóðtúlkanda.
Húrra!
MENNINGARVITINN
Jane Austen Ný andlitsmynd af ensku skáldkonunni Jane Austen (1775-1817) hefur vakið mikinn úlfaþyt í fjölmiðlum undanfarið en breska út-
gáfufyrirtækið Wordsworth ákvað að lagfæra andlit hennar. Fjallað er um hin mörgu andlit Austen í grein í Lesbók í dag. » 4-5