Morgunblaðið - 06.01.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 5. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
lotto.is
22.000.000
BARNALEGT?
UPPÁÞRENGJANDI AUGLÝSINGAR Á
MYNDDISKUM HANDA BÖRNUM >> 53
VONANDI Á GEKKO
EKKI LOFTHJÚPINN
GRÆÐGIN
AFLEIÐINGAR >> LESBÓK
HUGVITSSAMIR ráðgjafar bresku ríkis-
stjórnarinnar hafa lagt fram leiðbeiningar um
hvernig megi auka framleiðni opinberra starfs-
manna með því að skikka þá til að fylgja
ströngum fyrirmælum um uppstillingu á rit-
föngum, tölvum og öðrum búnaði á skrif-
borðum sínum. Hugsunin er sú að fyrirmælin
muni auka skilvirkni starfsmanna með því að
tryggja að hlutirnir séu alltaf nákvæmlega þar
sem þeir eigi að vera.
Sérfræðingar fyrirtækisins Unipart eiga
heiðurinn af þessari óvenjulegu nálgun í að
draga úr ríkisútgjöldum en þeir þiggja árlega
um 1.110 milljónir króna fyrir hugvitið sem
liggur að baki, enda góð ráð dýr.
Skrifstofufólk tryggingastofnunar breska
ríkisins hefur gegnt hlutverki tilraunadýra í
þessu merka framtaki, að því er breska blaðið
Times hermir, en því hefur verið gert að
merkja með svörtu límbandi hvar það telji
heppilegast að geyma einstaka hluti á skrif-
borðinu. Starfsmönnum er jafnframt bannað að
stilla upp persónulegum hlutum á borðunum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dýr ráðgjöf
um skrifborð
FL Group, Glitnir og verkfræðistofan VGK-
Hönnun hafa stofnað fjárfestingarfélagið
Geysir Green Energy. Tilgangur félagsins er að
fjárfesta í verkefnum tengdum sjálfbærri orku-
framleiðslu víðs vegar um heim.
Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að í
upphafi leggi fjárfestar fram 100 milljónir
Bandaríkjadala til þess, eða um 7 milljarða ís-
lenskra króna með peningum og eignum. Miðað
er við að félagið geti þegar tækifæri gefist ráð-
ist í fjárfestingar sem nema yfir einum milljarði
dala, eða yfir 70 milljörðum ísl. kr.
Félagið mun einbeita sér að tækifærum í nýt-
ingu jarðvarma, fjárfestingum í þróun og bygg-
ingu jarðvarmaorkuvera, annast yfirtöku á
jarðvarmaorkuverum og taka þátt í einkavæð-
ingu orkufyrirtækja þar sem færi gefast. | 16
Fjárfesting-
argeta yfir
70 milljarðar
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
ÁRÁSARPILTARNIR þrír sem
sæta rannsókn vegna hinnar
hrottalegu árásar í Garðastræti
eru á framhaldsskólaaldri og
framhaldsskólasamfélaginu er
mjög brugðið vegna atburðarins.
Að sögn Vilmundar Sveinssonar
sem situr í stjórn hagsmunaráðs
framhaldsskólanna eru margir
jafnaldra hans miður sín vegna
málsins. „Það er alveg á hreinu að
við erum jafnsjokkeruð og aðrir
yfir þessu,“ segir hann. „Það ligg-
ur eitthvað að baki og öllum má
ljóst vera að enginn heilbrigður
einstaklingur gerir svona lagað.
Ég held að svona unglingar fái
ekki þann stuðning sem þeir
þurfa,“ bendir hann á.
„Ofbeldisvæðingin sem kemur í
gegnum Netið er orðin augljós og
á sér svipaðar rætur og klámvæð-
ingin. Það má t.d. benda á að það
er ekki í sjónvarpi sem aftaka
Saddams Husseins er sýnd heldur
á Netinu. Alls staðar á Netinu er
vísað á myndskeið með mjög grófu
ofbeldi og ég held að þetta ýti und-
ir ákveðið hömluleysi,“ segir hann.
Skýringar á ofbeldishegðun af
þeim toga sem átti sér stað í
Garðastræti helgast af ólíkum
þáttum að mati sérfræðinga og er
um að ræða samspil firringar,
fíkniefnaneyslu og þess sem nefnt
er ofbeldisfíkn.
Dr. Páll Biering skrifaði dokt-
orsritgerð í geðhjúkrunarfræði
árið 2001 þar sem hann birti nið-
urstöður rannsóknar sinnar á of-
beldi íslenskra unglinga. „Ég hef
rætt við unglinga sem hafa lent í
vandræðum vegna ofbeldishegð-
unar og þeir lýsa þessu sem fíkn,
ákveðinni spennu sem þeir sækja
í, og eru síðan miður sín á eftir,“
segir hann.
Sveinn Allan Morthens uppeld-
isfræðingur segir að tilefnislaus-
um og hrottalegum árásum sé að
fjölga. Vissulega hafi menn slegist
áður en tiltölulega óþekkt hafi ver-
ið að ráðist væri á ókunnuga.
Hinn ótrúlegasti | 14
„Netið ýtir undir hömlu-
leysi og gróft ofbeldi“
Í HNOTSKURN
» Tilefnislausum oghrottalegum árásum er
að fjölga og óskrifaðar „regl-
ur“ sem eitt sinn giltu í slags-
málum eru ekki lengur fyrir
hendi að mati sérfræðings.
» Að mati sérfræðinga erum að ræða samspil firr-
ingar, fíkniefnaneyslu og
svonefndrar ofbeldisfíknar.
UMHVERFIÐ í austurhöfn Reykjavíkur er að
taka gríðarlegum breytingum vegna undir-
búnings og framkvæmda við ráðstefnu- og
tónlistarhús þar. Faxaskálinn gamli er horf-
inn fyrir nokkru og unnið er að gríðarmiklum
uppfyllingum að austanverðu við Ingólfs-
garð. Stærð framkvæmdarinnar má marka af
samanburði við hús Seðlabankans sem þótti
sannarlega mikil framkvæmd á sínum tíma.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Austurhöfnin tekur stakkaskiptum