Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag laugardagur 6. 1. 2007 íþróttir mbl.isíþróttir Leikmenn Dallas eru á miklu skriði í NBA-deildinni >> 4 BIKARBARÁTTA BIKARMEISTARAR LIVERPOOL TAKA Á MÓTI LEIKMÖNNUM ARSENAL Á ANFIELD >> 3 Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is Staðan var 16:13 fyrir Norðmenn í hálfleik en þegar upp var staðið skoruðu Norðmenn 34 mörk gegn 22 mörkum Íslands. „Þetta var vissulega æfingaleikur en ég tek að sjálfsögðu á mig ábyrgð á hve stórt við töpuðum. Það fengu allir leikmenn liðsins að spila nokkuð mikið. Hinsvegar var sóknarleikur- inn í síðari hálfleik alveg ömurlegur og við skoruðum ekki mark utan af velli. Það var engin liðsheild í sókn- arleiknum og menn að dunda sér eitthvað hver í sínu horni. Við gerð- um líka ótal mistök sem urðu til þess að norska liðið komst í mörg hraða- upphlaup og ég get ekki skellt skuld- inni á markverði liðsins. Þeirra hlut- verk var ekki öfundsvert að fá á sig hvert hraðaupphlaupið á eftir öðru. Á meðan voru varnarmenn okkar liðs að „skokka“ til baka í vörnina. Það var sorglegt að sjá okkur í síðari hálfleiknum þar sem að baráttan var ekki einu sinni til staðar,“ sagði Al- freð og var frekar óhress með ís- lensku leikmennina. „Ég sagði við liðið eftir leikinn að andrúmsloftið yrði að lagast í hópn- um. Ef við berjumst ekki af lífi og sál á heimsmeistarakeppninni í Þýska- landi bíður ekkert annað eftir okkur en að enda á svipuðum slóðum og Brasilía, Angóla eða Ástralía. Þetta er sá hluti leiksins sem hefur alltaf verið helsta einkenni íslenska liðsins. Barátta. Og ég átti erfitt með að horfa á leikmenn liðsins skokka á eftir sóknarmönnum Norðmanna þegar þeir skoruðu hvert markið á fætur öðru úr hraðaupphlaupum.“ Alfreð bætti því við að lagið sem leikið var í íþróttahöllinni í Hróars- keldu þegar íslenska liðið hljóp inn á völlinn hefði átt vel við um miðjan síðari hálfleik. „Það var lagið YMCA. Menn geta síðan dregið eigin álykt- anir af því lagavali.“ Steinar Ege, markvörður Norð- manna, fór á kostum í leiknum og varði hann 28 skot í leiknum. „Ég held að við höfum skotið hann í stuð. Skotin sem við tókum voru flest léleg og hann átti ekki í erf- iðleikum með að taka þessa bolta.“ Línumaðurinn Frank Løke var at- kvæðamestur í liði Norðmanna en hann skoraði 8 mörk úr aðeins 9 til- raunum. Róbert Gunnarsson skoraði flest mörk fyrir íslenska liðið eða alls 4 en Alexander Pettersson, Vignir Svavarsson og Guðjón Valur Sig- urðsson skoruðu 3 mörk hver. „Ömurlegur sóknarleikur“ Morgunblaðið/ÞÖK Áhyggjufullur þjálfari Alfreð Gíslason þjálfari íslenska landsliðsins í handknattleik karla var afar ósáttur við leik sinna manna eftir 12 marka tap liðsins gegn Norðmönnum, 34:22, á æfingamóti í Hróarskeldu í Danmörku. VIÐ vorum alveg skelfilega lélegir í síðari hálfleik og ég hef aldrei séð liðið sýna eins litla baráttu í vörn- inni frá því ég tók við þjálfun liðs- ins. Fyrri hálfleikurinn var í lagi en sá síðari algjör hörmung,“ sagði Al- freð Gíslason, þjálfari íslenska landsliðsins í handknattleik, við Morgunblaðið eftir 12 marka tap ís- lenska liðsins gegn Norðmönnum á æfingamóti í Danmörku í gær. Ís- lendingar mæta Pólverjum í dag og Dönum á morgun. Alfreð Gíslason ósáttur við uppgjöf Íslendinga í stórtapi gegn Noregi FORVARSMENN karlaliðs Hauka í körfuknattleik hafa í hyggju að senda inn kæru til dómstóls Körfuknattleikssam- bands Íslands vegna ólöglegs eikmanns sem var á leik- skýrslu Tindastóls gegn Hauk- um sl. fimmtudag. Tindastóll hafði betur í leiknum en Hauk- ar telja að Hans Björnsson, eikmaður Tindastóls, hafi ekki verið löglegur í leiknum. „Forsvarsmenn Tindastóls telja að Hans hafi aldrei til- kynnt fé- lagaskipti úr Tinda- stóli – en hann lék einhverja leiki með liði Smára í 2. deild fyr- ir nokkrum misserum. Við erum ekki bún- ir að ná í þau gögn sem skýra málið og þegar kæran berst til okkar munum við senda þau gögn sem dómstóll KKÍ óskar eftir,“ sagði Friðrik Rúnars- son, framkvæmdastjóri KKÍ, í gær. Hans Björnsson var á leikskýrslu Tindastóls gegn Haukum en kom ekki við sögu. Keflavík tapaði leik á síðustu leiktíð vegna svipaðs atviks. Þar sat Guðjón Skúlason á varamannabekk og kom ekki við sögu í leiknum. Hann var ekki löglegur í leik gegn Hamri/Selfoss og var H/S dæmdur sigur í leiknum. Haukar ætla að kæra úrslitin gegn Tindastóli STJÓRN Knattspyrnusam- bands Íslands samþykkti á fundi á dögunum að leggja fram tillögu á ársþingi KSÍ, sem haldið verður í næsta mánuði, um fjölgun í Lands- bankadeild karla og 2. deild karla úr tíu liðum í tólf. Verði tillagan samþykkt munu tólf lið skipa þrjár efstu karla- deildirnar keppnistímabilið 2008 en á komandi tímabili í sumar verða í fyrsta sinn tólf lið í 1. deild karla. Gert er ráð fyrir að flutningar á milli deilda eftir næsta tímabil verði með þeim hætti að liðið sem hafnar í 10. og neðsta sæti í Landsbankadeildinni flyst í 1. deild en liðin sem hafna í þremur efstu sætun- um í 1. deild flytjast upp í Landsbankadeild. Liðið sem lendir í 12. og neðsta sæti í 1. deildinni fellur í 2. deild en þrjú efstu liðin í 2. deild taka sæti í 1. deildinni. Liðið sem lendir í 10. og neðsta sæti í 2. deildinni fellur í 3. deild en fimm efstu liðin í 3. deild flytjast upp í 2. deild. Þá ákvað stjórnin að leggja til við ársþingið að fjölgað yrði um eitt sæti í Landsbanka- deild kvenna á komandi tíma- bili og liðin urðu níu í stað átta. Lagt er til að ÍR verði 9. liðið og er tillaga stjórnar KSÍ komin til vegna kærumáls sem varð vegna aukaleikja Þórs/KA og ÍR um sæti í Landsbankadeildinni í haust. KSÍ vill fjölga í Lands- bankadeildinni 2008 Laugardagur 6. 1. 2007 82. árg. lesbók SKAUPIÐ OG HÚMORINN ÞETTA SKAUP VAR LAUST VIÐ FYRIRLITNINGU Á ÍSLENSKU SAMFÉLAGI OG ÍSLENSKU GILDISMATI >> 2 Börn var minnisstæðasta íslenska kvikmyndin á árinu » 12 LOKSINS FÁANLEG AFTUR Á ÍSLANDI BÓKIN SEM BREYTT HEFUR LÍFI MARGRA TIL HINS BETRA Ástráður Eysteinsson, pró-fessor í almennri bók-menntafræði við HáskólaÍslands, segir í grein í Les- bók í dag greinilegt að Einar Már Guðmundsson sé ekki sáttur við sinn hlut í því völundarhúsi sem íslensk bókmenntastofnun sé. Hann hafi not- ð velgengni og vinsælda, oftar en ekki fengið góðar viðtökur gagnrýn- enda, iðulega notið mikillar athygli í jölmiðlum og stundum verið hampað vel og rækilega. Samt sé honum mót- ætið hugstætt, segir Ástráður sem varar í greininni athugasemdum Einars Más í sinn garð í Frétta- blaðinu nýlega en þar hélt Einar Már því fram að Ástráður hefði gert at- ögu að sér sem rithöfundi. Í umræddu viðtali segir Einar Már að það hafi ekki þótt fínt að vera strákur og skrifa bækur á níunda áratugnum. Telur hann að Helga Kress og Ástráður séu „andlegir arkitektar þeirrar múgsefjunar sem stundum sé kallað tossabandalagið“. Það hafi einkum sett sig upp á móti strákasögum og Vogasögum. Segir hann að Ástráður hafi verið gerður út af örkinni til þess að taka sig niður en þetta sé „einhver misheppnaðasta af- taka sem farið hefur fram, enda er ég sprelllifandi og enn í fæting við vind- myllur orðanna“. Ástráður segist í svari sínu hafa sinnt öðru í gegnum tíðina en að skrifa um verk Einars Más. Hann hafi aðeins skrifað einn ritdóm um hann. Hann sé hins vegar áhugamað- ur um bókmenntir um drengi og æskuvitund enda skrifað talsvert um það efni. » 16 Einari Má mótlætið hugstætt Morgunblaðið/Kristinn Einar Már Er hann fórnarlamb bókmenntastofnunarinnar? Ástráður Eysteinsson svarar athugasemdum höfundarins Morgunblaðið/Kristinn Arcade Fire Í Kanada er nú ein mesta uppspretta áhugaverðra ungra rokksveita, að mati Arnars Eggerts Thoroddsen. » 13 Ég lýsi frati á fordómafulla gagnrýnendurog skammast mín sem leikhúsmann-eskja fyrir að þeir skuli starfa og hafaáhrif á lesendur blaðanna sem þeir skrifa fyrir,“ segir Sigrún Sól Ólafsdóttir í grein í Lesbók í dag þar sem hún svarar þremur dag- blaðadómum um leiksýninguna Þjóðarsálina sem hún setti upp í Reiðhöll Gusts í Kópavogi sl. haust. Hún segir að gagnrýnendur standi fyrir forpokuð viðhorf, einsleitni og þröngsýni og bætir við: „Þeir eiga að taka pokann sinn og leyfa ham- ingjublómunum í leikhúsinu að vaxa, svo það fái að þroskast, þróast og opnast enn betur fyrir áhorfendum framtíðarinnar.“ Sigrún Sól gagnrýnir harðlega skrif leik- húsgagnrýnenda blaðana sem hún segir hafa verið mjög ófaglega og opinbera mikla fordóma gagn- vart ákveðnum þjóðfélagshópum og þá sérstaklega fötluðum einstaklingum. Hún segir að eftir sitji óbragð í munni sér yfir því að í „okkar litla leik- húsheimi skuli starfa fólk sem fær laun fyrir það að níða og rífa niður sköpunarverk annarra, án nokkurs faglegs rökstuðnings“. Að hennar mati fékk Þjóðarsálin eina verstu út- reið frá gagnrýnanda sem sögur fara af, en hins vegar hafi aðstandendur sýningarinnar fengið „dásamlegar viðtökur áhorfenda og djúpt þakklæti frá fólki úr ólíkum afkimum samfélagsins“. » 6-7 Lýsir frati á gagn- rýnendur Leikstjóri Þjóðarsálarinnar segir gagnrýnendur fordómafulla og skilja eftir óbragð í munni sér 06 | 01 | 07 menntun Y f i r l i t                                  ! " # $ %       &         '() * +,,,                       Í dag Sigmund 8 Umræðan 34/36 Staksteinar 8 Minningar 37/46 Veður 8 Kirkjustarf 47/48 Viðskipti 16/17 Skák 47 Erlent 18/19 Leikhús 54 Menning 20/21, 52/56 Myndasögur 56 Akureyri 22 Dagbók 57/61 Árborg 22 Bíó 58/61 Landið 23 Staður og stund 58 Daglegt líf 24/31 Víkverji 60 Forystugrein 32 Velvakandi 60 Viðvorf 34 Ljósvakamiðlar 62 * * * Innlent  Lögreglan í Reykjavík kvíðir framhaldinu eftir að borið hefur á tilkynningum til hennar vegna vist- manna sem yfirgefið hafa meðferð- arheimilið Byrgið í kjölfar umfjöll- unar í fjölmiðlum um málefni heimilisins og forstöðumanns þess, Guðmundar Jónssonar. » 64  Árásarpiltarnir þrír sem sæta rannsókn vegna hinnar hrottalegu árásar í Garðastræti eru á fram- haldsskólaaldri og framhaldsskóla- samfélaginu er mjög brugðið vegna atburðarins. Sveinn Allan Morthens uppeldisfræðingur, sem unnið hefur lengi hefur með unglingum með of- beldisvanda, segir að tilefnislausum og hrottalegum árásum sé að fjölga. » 1 og 14  Íslensk stjórnvöld voru ekki ein um að hafa áhyggjur af sovéskum síldveiðiskipum í nágrenni Íslands um miðja síðustu öld. Bandaríska herforingjaráðið hafði miklar áhyggjur af sovéska flotanum og sendi herskip til að fylgjast með skipunum án hvatningar íslenskra stjórnvalda. Þetta kemur fram í grein Björns Bjarnasonar dóms- málaráðherra í blaðinu í dag. » 64 Erlent  Forseti Sómalíu, Yusuf Ahmed, hvatti í gær til þess að þegar í stað yrði samþykkt að senda alþjóðlegt friðargæslulið til landsins. Einnig væri brýnt að veita Sómölum fjár- hagslega og tæknilega aðstoð. » 18  George W. Bush Bandaríkja- forseti tilkynnti í gær að Mike McConnell tæki við af John Negro- ponte sem yfirmaður leyniþjón- ustustofnana Bandaríkjanna. Negroponte verður varautanrík- isráðherra, eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær » 19 Viðskipti  FL Group, Glitnir og verk- fræðistofan VGK-Hönnun hafa stofnað fjárfestingarfélagið Geysir Green Energy. Tilgangur félagsins er að fjárfesta í verkefnum tengdum sjálfbærri orkuframleiðslu víðs veg- ar um heim. » 16 Eftir Hjört Gíslason og Andra Karl ÁKVEÐIÐ hefur verið að flytja stærsta fiskiskip íslenska flotans, Engey, yfir í hollenzkt dótturfélag HB Granda og senda það til veiða við Máritaníu á vesturströnd Afríku. Áhöfn Engeyjar var sagt upp störf- um á fimmtudagskvöld og hljóðið í skipverjum er þungt. HB Grandi hf. mun stofna dótt- urfyrirtækið Atlantic Pelagic B.V. í Hollandi. Atlantic Pelagic mun kaupa uppsjávarfrystiskipið Engey af HB Granda og gera skipið út til veiða á makríl, hrossamakríl, sard- ínu og sardínellu úti fyrir ströndum Afríku. Kaupverðið fékkst ekki upp- gefið. Atlantic Pelagic mun vinna í nánu samstarfi við hollenzka útgerð- arfélagið Parlevliet & Van der Plas og mun það félag einnig annast markaðssetningu afurða Engeyjar. Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB Granda, segir ástæðuna fyrir flutningi Engeyjar til Hollands tengjast samstarfinu við hollenzka fyrirtækið. „Við gerum þetta í sam- starfi við þá, þeir hafa aðgang að kvóta sem þeir leggja í samstarfið,“ segir Eggert en blæs á sögusagnir um skattaumhverfið í Hollandi sem ástæðu flutningsins. „Með þessu fáum við aukin verk- efni fyrir Engeyna annars staðar og aukum þannig umsvif og arðsemi fyrirtækisins. Sá fiskur, sem ella hefði verið unninn um borð í Engey, fer til vinnslu í landi, bæði í bræðslu og frystingu.“ Eggert nefnir að verð á frystri síld hafi verið að gefa eftir á meðan mjöl- verð hefur hækkað mikið. Með flutn- ingnum er því hægt að koma Engey í enn öflugri rekstur en verið hefur. Hann útilokar þó ekki að skipið verði notað á komandi loðnuvertíð, en reiknað er með að það hefji veiðar við Afríku í apríl nk. Eftirsjá að starfsfélögum Allri áhöfn Engeyjar verður sagt upp og mun ný áhöfn verða ráðin í Hollandi en lykilstöður verða mann- aðar Íslendingum. Í áhöfn er á fimmta tug manna en á annan tug manna getur fengið pláss áfram. Þórður Magnússon skipstjóri segir erfitt að kveðja menn sem hann valdi sjálfur til starfa. „Ég hef aldrei verið til sjós með svona einvala liði eins og áhöfninni á Engey og á aldrei eftir að vera með svona áhöfn aftur. Það er geysileg eftirsjá að þessum góðu starfsfélögum og illa komið fyrir ís- lenskum sjómönnum.“ Helgi Kristinsson bátsmaður seg- ist hafa rætt við marga skipverja og hljóðið í þeim sé þungt. „Þarna eru menn sem hættu á bestu skipum flot- ans til að vera á Engeynni og það er ljóst að það sefur enginn vel eftir svona fréttir.“ Engey RE heldur til veiða við V-Afríku Skipstjórinn segir illa komið fyrir íslenskum sjómönnum Í HNOTSKURN » HB Grandi hf. mun stofnadótturfyrirtækið Atlantic Pelagic B.V. í Hollandi. Atlantic Pelagic mun kaupa uppsjávarfrystiskipið Engey af HB Granda. » Á árinu 2006 var aflaverð-mæti Engeyjar 1.451 millj- ónir króna, en ríflega 36.000 tonn voru tekin til vinnslu um borð. » Engey verður gerð út tilveiða á makríl, hrossa- makríl, sardínu og sardínellu úti fyrir ströndum Afríku. Morgunblaðið/Kristján Skip Engey RE fer í apríl til veiða í lögsögu Máritaníu í Afríku. BANDARÍSKA innanríkisráðuneyt- ið hefur afturkallað aðstoð sem það hafði heitið Íslendingum vegna end- urskoðunar á flokkun langreyðar sem tegundar í útrýmingarhættu á lista Cites, samnings um alþjóða- verslun með tegundir í útrýmingar- hættu. Jafnframt lýsti ráðuneytið því yfir að það væri andvígt endurskoð- uninni. Ástæðan er hvalveiðar Ís- lendinga í atvinnuskyni. Þetta kemur fram í bréfi sem ráðu- neytið sendi aðalritara Cites skömmu fyrir áramót. Stefán Ásmundsson, deildarstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, segir að þessi ákvörðun hafi lítil áhrif á end- urskoðunina sem búist sé við að ljúki eftir 2–3 ár. Buðu aðstoð vísindamanna Í bréfi ráðuneytisins segir m.a. að Bandaríkin hafi upphaflega boðist til að aðstoða Ísland vegna endurskoð- unarinnar, þ.e. hvort langreyðar- stofninn í N-Atlantshafi eigi áfram að vera á lista yfir dýrategundir í út- rýmingarhættu. Jafnframt hafi Ís- lendingum verið bent á að endur- skoðun á listum Cites myndi eiga sér stað samhliða endurmati Alþjóða- hvalveiðiráðsins. Boðin hafi verið fram aðstoð vísindamanna sem hefðu margra ára reynslu á vettvangi hval- veiðiráðsins, að hluta til að tryggja samræmi. Þegar Íslendingar ákváðu einhliða að hefja veiðar á langreyðum í at- vinnuskyni og ljá máls á millilanda- verslun með kjötið, án þess að endur- skoðuninni væri lokið, hefði stuðningurinn verið afturkallaður. Í bréfinu er þeirri afstöðu einnig lýst að endurskoðun Cites fari ekki fram fyrr en niðurstaða Alþjóðahvalveiði- ráðsins liggi fyrir. Skiptir litlu máli Að sögn Stefáns Ásmundssonar buðust Bandaríkin og nokkur fleiri ríki til að veita aðstoð sl. haust, eftir að Íslendingar áttu frumkvæði að því að staða langreyðarstofnsins í N-Atl- antshafi á lista Cites yrði tekin til endurskoðunar. Þar sem frumkvæð- ið hefði verið Íslands væri það á ábyrgð Íslendinga að gera úttekt á því hvort ástæða væri til að endur- skoða stöðu stofnsins, þ.e. hvort það væri ástæða til að hann væri skráður í útrýmingarhættu eða ekki. „Lang- reyður er nú skráð í viðauka eitt þannig að það er litið á hana sem teg- und í útrýmingarhættu sem á auðvit- að alls ekki við í Norður-Atlantshafi,“ segir Stefán og bætir við að ráðu- neytið telji gefið að úttektin muni leiða það í ljós. Stefán segir ákvörðun Bandaríkj- anna hafa lítil áhrif og bendir á að málið komi ekki til afgreiðslu fyrr en eftir 2–3 ár. Um þá afstöðu Bandaríkjamanna að vera andvígir því að endurskoð- unin fari fram segir Stefán að það hafi engin áhrif. Það sé heldur ekki mjög ábyrg afstaða að vera á móti því að leiða staðreyndir málsins í ljós. Stuðningi hætt vegna hvalveiða Íslendinga Í GÆR, föstudag, lauk ráðstefnu um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum í Háskóla Íslands. Um 400 manns sóttu ráðstefnuna, sem var sú þrettánda í röðinni og fór fram í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Við lok hennar voru ungum vísindamönnum veitt verðlaun fyrir framúrskarandi rannsóknir á þeim sviðum sem fjölmörg erindi og veggspjaldakynningar komu inn á. Á myndinni eru (f.v.) Ársæll Már Arnarsson, fulltrúi Actavis er styrkti hvatningarverðlaun Jóhanns Axels- sonar prófessors emeritus, Siv Friðleifsdóttir heil- brigðisráðherra, María Ragnarsdóttir er hlaut hvatn- ingarverðlaun Jóhanns Axelssonar, Lena Rós Ásmundsdóttir og Stefán Ragnar Jónsson er hlutu verðlaun heilbrigðisráðuneytisins, Dagbjört Helga Pét- ursdóttir sem hlaut verðlaun frá menntamálaráðuneyt- inu og Vilhjálmur Lúðvíksson er veitti þau. Morgunblaðið/Kristinn Hlutu verðlaun fyrir vísindarannsóknir laugardagur 6. 1. 2007 börn LEIKUR AÐ MYNDUM Í VERÐLAUNALEIK VIKUNNAR ÞURFA GLÖGGIR LESENDUR AÐ ÁTTA SIG Á NÖFNUM FRÆGRA TEIKNIMYNDAPERSÓNA >> 2 „Það er skrýtið að sjá alla svona hvíta eins og á Íslandi,“ segir Sif » 3 Anna Sóley er sannfærð um að nýja árið færi okkur gleði og hamingju. Mikil friðsæld og litadýrð er í myndinni hennar. Ljómandi veröld Búðu til þitt eigið spil. Taktu stórt pappaspjald og teiknaðu marga hringi á það. Þú þarft að gæta þín að hafa þá í mismunandi litum og hvern með sínu mynstrinu. Síðan færðu vini þína með í leikinn og einn hróp- ar: „Allir eiga að setja fing- urinn á hringinn með krossinum.“ Þá eiga allir að setja vísifingur á þann hring. Þannig á að kalla út alla hringina. Sá sem setur vísifingurinn á vitlausan hring fær einn bleðil til hegningar. Sá sem fær þrjá slíka er úr leik. Nú er bara að prófa leik- inn og hafa gaman af. Hringjaspil Í dag er síðasti dagur jóla. Þeir sem eiga enn flugelda eða rakettur skjóta þeim á loft í kvöld. Víða eru brennur og álfadans er stiginn. Hvernig ætlar þú að enda jólin? Þrettándinn Morgunblaðið/Ómar Hæstánægðar Sif Snorradóttir og Kristborg Sóley Þráinsdóttir voru bestu vinkonur þegar þær bjuggu í Kaliforníu. Kristborg flutti til Íslands fyrir þremur árum en Sif fluttist heim fyrir skömmu. Þær eru himinlifandi yfir því að hittast á nýjan leik. Þær eru sammála um að krakkar á Íslandi séu frjálslegri en um leið ókurteisari en jafnaldrar þeirra í Ameríku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.