Morgunblaðið - 06.01.2007, Síða 4

Morgunblaðið - 06.01.2007, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Laugavegi 40 Sími 561 1690 RALPH LAUREN Útsala - Útsala 30-50% afsláttur Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is LÆKKUN tekjuskatts um eitt pró- sentustig um nýliðin áramót, hækk- un persónuafsláttar, hækkun barna- bóta, samningsbundnar launahækk- anir og hækkun þjónustugjalda gera að verkum að ráðstöfunartekjur hjóna hækka um 5,3–5,5% á ný- höfnu ári, samkvæmt útreikningum Alþýðusambands Íslands. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur hjá ASÍ, hefur tekið saman áhrif breytinganna á ráðstöf- unartekjur hjóna með meðaltekjur í fullu starfi í Reykjavík. Laun ársins 2007 miðast við samningsbundnar hækkanir í janúar 2007 og er miðað við 2,9% hækkun sem er algengasta hækkunin innan ASÍ. Meðaltekjurn- ar eru samkvæmt tölum Hagstof- unnar og ekki er tekið tillit til vaxta- bótakerfisins. Miðað við að karlinn hafi 383.000 kr. í mánaðartekjur 2007 (372.000 kr. 2006) og konan 270.000 kr. (262.000 kr. 2006) hækka ráðstöf- unartekjur þessara barnlausu hjóna um 5,4% 2007. Eigi þau tvö börn 4 og 8 ára hækka ráðstöfunartekjurn- ar um 5,5% og hækkun ráðstöfunar- tekna þeirra að frádregnum dag- vistargjöldum er 5,3%. Meðaltekjufólk fær ekki tekju- tengdar barnabætur og segir Sig- ríður Ingibjörg að það sé umhugs- unarefni. „Ef yngra barnið væri átta ára fengju þau engar barnabætur,“ segir hún. „Barnabótakerfið átti meðal annars að miðast við að fólk hefði svipuð kjör óháð barnafjölda en það er ekki þannig. Barnabóta- kerfið bætir kjör þeirra lægst laun- uðu umtalsvert en kerfið jafnar ekki kjör innan sama tekjubils.“ Í þessu sambandi vísar hún til þess að hjón með tvö börn fá um 56.000 kr. í barnabætur á ári. Leikur að tölum Gylfi Arnbjörnsson, fram- kvæmdastjóri ASÍ, bendir á að við- miðunarlaun hafi hækkað um 5,5% á liðnu ári en verðbólgan hafi verið um 7%. Miðað við það hafi kaup- máttur á árinu 2006 því lækkað um 1,5%. Hins vegar hafi launavísitala Hagstofunnar hækkað um 9% og samkvæmt því hafi kaupmáttur á árinu 2006 aukist um 1,5%. Auk þess hafi verið 15.000 kr. hækkun á töxtum, sem þýði um 13–15% hækk- un hjá lágtekjufólki. Ráðstöfunartekjur hjóna munu aukast um 5,3–5,5%                             ! "# $%   &"" '!#&( )* $*# +, -#( . # !  !! ! /0'% '( 1" -#''   '!  ','$" # /%#  0#  . # !  !! !  # $# !, -#''     , ,'!"#, ( 2- #! "# #' 3#'! "# #' 2- #! "# +" 3#'! "# +" 3#'! "# '!'          ! #- '!*&"#! "#    (( ! "# -#'' - "# 3#'! "# /  '!'  # ,*# !+& ! ' # ,# 4' #!# $#$%!"#  # ,  , !  567 ) "! , # $#$%!"# 8 $! 9 $# ,#   -# :#$%!"# ' "  #   $      1 '  '!" # &## ,# $# - -# ;#'!(/  +, /# '', &##  # $# - -# "  !  $    %   # ( (  ( ( ( ( ( ( &!&''!()* (( ( ( ((  ( < (  ( ( &!&&+!++& ( (  &!)&,!+'-   ( ( ( ( ( ( ( ( &!*(*!&*' ( ( (( ((   ( <(  ( ( &!*./!.++  (  (  &!&/(!&/+  &/0  &&0   6 &-0 MAGNÚS Stef- ánsson félags- málaráðherra hef- ur veitt Rauða krossi Íslands tæplega fjögurra milljóna króna styrk vegna flóttamannaverk- efnis í Króatíu, en verkefnið miðar að því að aðstoða aldraða flóttamenn af serbneskum uppruna við að koma sér fyrir á heimaslóðum sínum, sem þeir flúðu þegar ófriðarástand ríkti á Balkan- skaga. Með þessu verkefni Rauða kross- ins er ætlunin að veita aðstoð 190 flóttamönnum sem eru að flytja aftur til baka frá Bosníu og Serbíu heim til héraðanna Lika, Dalmatian, Kordun og Banovina í Króatíu. Styrkurinn var afhentur í húsa- kynnum Rauða krossins við Efstaleiti í gær, en þetta er framhald af hlið- stæðu framtaki Rauða krossins á árinu 2005 sem félagsmálaráðuneytið styrkti einnig. „Ísland á samkvæmt stefnuyfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar að skipa sér framarlega í flokki þeirra þjóða sem berjast fyrir mannréttindum,“ sagði Magnús Stefánsson félagsmálaráð- herra við þetta tækifæri, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Skiptir máli að verða að liði „Það skiptir miklu máli að við get- um orðið að liði í þessu sambandi og styrkveitingar af því tagi, sem hér um ræðir, hafa áður gefið góða raun. Það sýna athuganir Rauða krossins. Verkefni, sem íslensk stjórnvöld styrktu, hafa mætt brýnni þörf, fram- kvæmd gengið vel og kostnaður verið í samræmi við kostnaðaráætlun,“ sagði hann ennfremur. Ómar H. Kristmundsson, formað- ur Rauða kross Íslands, veitti styrkn- um viðtöku fyrir hönd samtakanna og sagði að Rauði krossinn þakkaði framlag íslenskra stjórnvalda sem nú væri veitt í annað sinn til verkefnis af þessu tagi. „Framlagið árið 2005 gerði okkur kleift að útvega flótta- fólkinu rúm og eldunartæki auk nauðsynlegra handverkfæra til léttra landbúnaðarstarfa. Með framlagi stjórnvalda nú getum við aðstoðað fleiri flóttamenn með aðstoð króat- íska Rauða krossins.“ Styrkur vegna flóttamanna Félagsmálaráðuneytið styrkir RKÍ Magnús Stefánsson RÉTT rúmlega 24 ára Lithái, Povil- as Akelaítis, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur til tveggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Við komuna til landsins með farþegaferj- unni Norrænu í lok ágúst sl. fundu tollverðir í bifreið mannsins tæp 2,5 kg af amfetamíni. Til viðbótar við dóminn var ákærða gert að greiða 790 þúsund krónur í sakarkostnað. Við yfirheyrslu hjá lögreglu neit- aði ákærði að hafa haft nokkra vitn- eskju um að fíkniefni væru falin í bif- reiðinni og hélt hann sig við þá sögu allan tímann. Skýrði hann m.a. frá því að hann hefði samið við mann að nafni Egidijus um að ferja bifreiðina, sem er 17 ára gömul af tegundinni BMW, til landsins gegn greiðslu. Við komuna til landsins sagði hann hins vegar tollvörðum að hingað væri hann kominn til að vinna og skýrði hann frá því fyrir dómi að Egidijus hefði stungið upp á að sú skýring væri heppilegust til að komast auð- veldlega í gegnum tollskoðun. Fyrir dómi var ákærði spurður hvort hann hefði heyrt af því að gerðar hefðy verið tilraunir til að smygla fíkniefnum til landsins með þessum hætti og sagðist hann kann- ast við það. Meðal annars hefði vinur hans minnst á það skömmu áður en ákærði lagði í ferðina, en hann hefði ekki hlustað á vininn. Virkaði taugaóstyrkur Í niðurstöðu héraðsdóms kemur fram að við mat á trúverðugleika fullyrðinga ákærða hafi verið litið til þess að hann viðurkenndi að hafa skýrt rangt frá ferðum sínum við komuna til landsins og þótti dómin- um það benda til að hann hefði haft eitthvað að fela. Einnig benti vitn- isburður tollvarðar til þess sama en hann sagði ákærða hafa virkað afar taugaóstyrkan meðan leit fór fram í bílnum. Héraðsdómarinn Ásgeir Magnús- son kvað upp dóminn. Kolbrún Benediktsdóttir, saksóknari hjá rík- issaksóknara, flutti málið af hálfu ákæruvaldsins og Björgvin Jónsson hrl. varði manninn. Neitaði að hafa vitað um fíkniefni falin í bílnum Í HNOTSKURN » Í bifreið Litháans leynd-ust 2,5 kg af amfetamíni falin í drifskaftinu. » Ákærði neitaði sök ogsagðist hafa svarað aug- lýsingu um að ferja bíl til landsins. » Dómurinn taldi framburð-inn ótrúverðugan, m.a. þar sem lítill hagur væri af því að ferja hingað 17 ára gamlan bíl. ÞÝÐANDINN og rithöfundur- inn Úlfur Hjörv- ar var á síðasta ársfundi Sam- bands þýðenda innan Danska rit- höfundasam- bandsins, DOF, kjörinn aðalmað- ur í stjórn en hann hafði áður verið varamaður. Úlfur hefur allt frá 1982 verið fé- lagi í Danska rithöfundasamband- inu, DFF, en stjórn DOF semur um kjör félaga sinna og stendur vörð um hagsmuni þeirra, að því er segir í til- kynningu frá sambandinu. DOF á aðild að ritstjórn tímarits rithöfunda, Forfatteren, og tekur auk þess þátt í hinni árlegu bóka- messu í Forum í Kaupmannahöfn. Sambandið hefur, í samvinnu við nokkra aðila, tekið þátt í gera þýð- endur sýnilegri, starf sem hófst í nóvember með kynningu á norska rithöfundinum Ketil Bjørnstad. Þá er DOF eitt af aðildarfélögum samtaka evrópskra þýðenda, CEATL. Kjörinn að- almaður í stjórn DOF Úlfur Hjörvar Úlfur Hjörvar gætir hags danskra skálda „ÞARNA hefur einhver komið með fullan vörubílspall og sturtað þarna niður,“ segir Tómas G. Gíslason, heilbrigðisfulltrúi hjá umhverf- issviði Reykjavíkurborgar um ófagra aðkomu að brennustæði við Ægisíðu í gærmorgun en þar hafði verið komið fyrir miklu af bygg- ingaúrgangi, líklega til að komast hjá að borga fyrir að losa hann hjá Sorpu. Kostnaður sem leggst á borgina við að hreinsa upp eftir við- komandi hleypur á hundruðum þús- unda. Meðal þess sem var í brennustæð- inu voru steypuklumpar, ofnar, steinull, rafmagnsvírar, málning- ardósir, plast og svampur en eins og flestir vita eru slík efni ekki leyfileg á brennur. Lögregla og umhverfissvið leita sökudólgsins. Morgunblaðið/Sverrir Við úrganginn Tómas G. Gíslason óskar eftir vitnum að losuninni. Losaði sig við bygg- ingaúrgang

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.