Morgunblaðið - 06.01.2007, Síða 8

Morgunblaðið - 06.01.2007, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Það er nú bara einhver orðaleikur að asninn þurfi að klifra yfir múrinn, Hrannar minn, við látum hann bara rölta yfir hann. VEÐUR Þau Valgerður Sverrisdóttir utan-ríkisráðherra og Guðni Ágústs- son landbúnaðarráðherra eru ekki á einu máli um lambakjötssöluna til Bandaríkjanna. Utanríkisráðherra sagði í samtali við RÚV í gær að hún teldi ekki framtíð í sölu á lambakjöti til Bandaríkjanna.     Landbún-aðarráðherra er einn helzti tals- maður þess sölu- átaks sem nú stendur yfir í Bandaríkjunum. Hann hefur per- sónulega lagt sitt af mörkum til þess að auka söluna.     Er Framsókn-arflokkurinn að bila í stuðningi sínum við land- búnaðinn? Það væri saga til næsta bæjar.     Yfirleitt hafa framsóknarmennstaðið sem einn maður í stuðn- ingi sínum við landbúnaðinn. Norð- austurkjördæmi, þangað sem Val- gerður Sverrisdóttir sækir umboð sitt til setu á Alþingi, á mikilla hags- muna að gæta í landbúnaði.     Engu að síður nánast afgreiðir Val-gerður Sverrisdóttir söluátakið í Bandaríkjunum sem lítils virði ef ekki einskis virði. Hvað vakir fyrir Valgerði?     Hvernig ætlar Guðni Ágústsson aðbregðast við? Hann stendur í harðri prófkjörsbaráttu við Hjálmar Árnason, formann þingflokks fram- sóknarmanna, og á sama tíma telur Valgerður að markaðsátak hans vestan hafs sé léttvægt fundið.     Jón Sigurðsson verður að komaskikki á sitt lið. Þau hlaupa í allar áttir eins og kálfar að vori.     Hvað gerir Baldvin Jónsson nú? STAKSTEINAR Valgerður Sverrisdóttir Hvað vakir fyrir Valgerði? Guðni Ágústsson SIGMUND                   !   "# $! %!!  !  &' ( ) * ! -. -/ -/ -- ( 0 1' ( -0 -/ '2 3 4! 3 4! 3 4! 3 4! ) % 4! 4! 5     4! 4!  )# + !  ,- .  ' / ! ! 0     +-  ! !   1- - 2 ( -' -/ -/ ( 0 ( - 3 4! 6 *%   4! )*4! )*4!    4! 6*%      4!  ! "1 2  !     1  3    2- 2  4! 1! & 5# )67! 8 !!) ' 1- / 1- 7 18 1' 18 0 / 2 6   %   3 4! 4! 3 4! 4! 4! 4! 4!  !    9! : ;                                   !"#$  %& ""  ' ('     #   : #  !* )        !  <2   < #  <2   < #  <2   !   9:    = 2!>         5    *  3  1          4!   ;      :!   (1-7 %  =  5     >  -/ -8     <   6  !  !!  -/1-89?   <  !          @= *4  *A    "3(4? ?<4@"AB" C./B<4@"AB" ,4D0C*.B" -88 78' /<2 /<. (/B B8. /7/ 8'/ -.'B -278 2-' --72 '/7' '''8 -''7 -0'. ---7 --8' --70 -/8- -88. -8'8 -8/2 -8-8 -(82 '778 .<- '<' -<- '<- /<2 /<. /<7 /<. 7<2 -<0 -<7 -<0 /<- /<'             ÁRIÐ 2006 var metár í niðurrifi bygginga í Reykjavík. 51 bygging var rifin á liðnu ári en árið 2005, sem einnig var metár, voru þær 47. Í fréttatilkynningu er haft eftir Erpi Snæ Hansen, heilbrigðisfull- trúa hjá mengunarvörnum um- hverfissviðs Reykjavíkurborgar, að niðurrif hafi aukist stöðugt frá alda- mótun en hann býst við að hámark- inu sé nú náð. Umfangsmikið niðurrif var áber- andi árið 2006 og má nefna Hamp- iðjuna, gömlu Lýsisverksmiðjuna, Faxaskála, hraðfrystihúsið við Mýr- argötu, tollvörugeymslur og olíu- birgðastöðina á Héðinsgötu. Gríð- arlegur byggingarúrgangur varð því til á árinu 2006 og er hann að mestu leyti urðaður í landfyllingum Faxaflóahafna. Þá má nefna viðamikið asbest- niðurrif eins og á Brokeyjar- húsunum á Austurbugt og olíustöð- inni á Héðinsgötu. Asbest var notað við byggingar alveg fram undir 1970 á Íslandi og finnst víða. Þegar asbest brotnar þyrlast upp glernál- ar sem festast í lungum eftir inn- öndun og leiða oftast til dauða 30– 40 árum síðar, segir í tilkynning- unni. Asbest úr niðurrifi er urðað í Álfsnesi. 22 tilfelli niðurrifs vegna endurnýjunar Erpur segir árið 2006 hafa ein- kennst af 22 tilfellum niðurrifs vegna endurnýjunar annars vegar og 16 tilfellum vegna þéttingar byggðar hins vegar. Þétting byggðar virðist vera á lokastigi og ef endurnýjun bygginga eykst ekki að ráði á komandi ári má búast við að niðurrif minnki í heild árið 2007. Aldrei meira rif- ið af byggingum Búist við minna niðurrifi í ár í borginni Margar stórar byggingar rifnar í fyrra Í HNOTSKURN »51 bygging var rifin í Reykja-vík á liðnu ári. »Asbest úr niðurrifi er urðað íÁlfsnesi. »Þétting byggðar virðist veraá lokastigi. » Margar stórar byggingar ímiðborginni voru rifnar. is]ráðuneytinu,“ segir Siv. Fjármála- ráðuneytið hafi haft forystu um að selja Heilsuverndarstöðina. „Mér er sagt að það hefði þurft talsvert mikið af fé til viðgerða á húsinu. Það hafa verið nefndar upphæðir sem eru í kringum milljarð, ef ríkið hefði keypt [af borginni] og gert við húsnæðið.“ Guðmundur Einarsson, forstjóri Heilsugæslunnar, segir að heilsu- gæslan hafi beitt sér gegn því að SIV Friðleifsdóttir heilbrigðisráð- herra er ósammála því að sala Heilsuverndarstöðvarinnar í Reykjavík til einkaaðila hafi verið mistök. Sviðsstjóri kvennasviðs LSH sagði í Morgunblaðinu nýverið að salan væri stærstu mistök sem gerð hefðu verið í heilbrigðiskerfinu. „En að vísu vil ég taka mjög skýrt fram að þessi sala er löngu gengin um garð þegar ég kem að [heilbrigð- Heilsuverndarstöðin yrði seld. Hús- næðið hafi hentað mjög vel, en tals- verð þörf hafi verið á viðhaldi „sem hafði dregist vegna þess að ríki og borg gátu ekki komið sér saman um framtíðareignarhald á húsinu.“ Stjórn Landspítala – háskóla- sjúkrahúss hafði efasemdir um að flutningur starfsemi miðstöðvar mæðraverndar upp í Mjódd væri skynsamlegur. Að sögn forstjóra LSH, Magnúsar Péturssonar, var ástæðan m.a. fjarlægðin við spítal- ann. Magnús segir að LSH hafi sóst eftir húsnæði Heilsuverndarstöðvar- innar við Barónsstíg. Það sé hannað fyrir heilbrigðisstarfssemi og spítal- inn búi við mikil þrengsli þar til nýr spítali rísi. Ákvörðun hafi hins vegar verið tekin af stjórnvöldum um að selja húsið. Sala til einkaaðila ekki mistök Heilsugæslan beitti sér gegn sölunni og stjórn LSH hafði efasemdir um flutning UNNIÐ er að undirbúningi hugs- anlegs framboðs eldri borgara í þingkosningunum í vor. „Það er unnið í þessu af fullum krafti,“ seg- ir Arndís H. Björnsdóttir, sem er í nefnd um framboðsmál eldri borg- ara. Fundir hafa verið haldnir þar sem rætt hefur verið um málið. „Það verða mjög líklega stofnuð formleg kosningasamtök í þessum mánuði,“ segir hún. Arndís segir m.a. rætt um hversu víða á landinu verði hægt að bjóða fram og að undirbúningsnefndir séu að störfum. „Það er verið að ræða stefnumálin og koma þessu saman,“ segir hún. Arndís segir að um þver- pólitíska hreyfingu sé að ræða. Sjálf segist hún alla tíð hafa verið mikil sjálfstæðiskona og unnið mik- ið fyrir Sjálfstæðisflokkinn. „Flokk- arnir okkar hafa brugðist okkur. Við höfum ekki brugðist þeim,“ segir hún. Sveinn Guðmundsson verkfræð- ingur er einn þeirra sem unnið hef- ur að undirbúningi framboðs eldri borgara og boðaði hann til fundar um málið 17. desember og aftur sl. miðvikudag. Stóð til að þar yrði tekin ákvörðun um framboð en af því varð ekki og lenti fundurinn í hálfgerðu uppnámi að sögn Sveins. „Það komu þarna menn sem vildu Lilju kveðið hafa og sem nánast unnu á móti mér. Þeir voru búnir að boða fund í gær [fimmtudag] en ég var ekki boðaður á hann,“ segir Sveinn. Hann segir óvíst hvert framhaldið verði af hans hálfu. Ræða fram- boð til þings

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.