Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „OKKUR fannst við hæfi að gera sögu bankans í 120 ár skil í tilefni af- mælisins. Þetta er hins vegar ekki að- eins saga Landsbankans, þetta er saga stærsta starfandi stórfyrirtækis á Íslandi. Þetta er líka saga landsins, því á þessum 120 árum hefur bankinn verið í fararbroddi í öllum þjóðfélags- breytingum, þetta er saga þjóðar, saga Reykjavíkur, saga atvinnulífs- ins, ekki síður en saga stjórnmála og efnahagspólitíkur,“ segir Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbankans, um viðamikla sögu- sýningu sem sett hefur verið upp í til- efni af 120. afmælisári Landsbankans og opnuð verður með pomp og prakt í Aðalstræti 6 í dag kl. 15.30. Banki allra landsmanna Á blaðamannafundi í gær leiddi Björgólfur viðstadda um sýninguna sem spannar jafnt fortíð, nútíð og framtíð, því sýningunni lýkur með líkani og tölvuteikningum af nýja miðbæ Reykjavíkur við höfnina þar sem rísa munu framtíðarhöf- uðstöðvar bankans, ásamt tónlistar- húsi og hóteli. „Það er kannski afar dæmigert að á sögusýningu sem þessari sé ég með hugann við fram- tíðina,“ sagði Björgólfur kíminn og minnti á að hann væri sérstakur áhugamaður um uppbyggingu mið- borgarinnar. Spurður hverjir væru að hans mati merkustu viðburðirnir í sögu Lands- bankans segir Björgólfur árið 2003 mikilvægt ár í sögu bankans. „Því það er fyrsta árið sem bankinn starfar án pólitískra afskipta,“ segir Björgólfur og tekur fram að einkavæðing bank- anna hafi falið í sér eina mestu þjóð- félagsbreytingu hérlendis á síðari ár- um. Minnti hann á að ákveðin tímamót hefðu einnig orðið í fyrra þegar stóru viðskiptabankarnir þrír hefðu í fyrsta sinn verið með meiri umsvif og tekjur en sjávarútvegurinn hérlendis. Af orðum Björgólfs má ljóst vera að saga bankans og saga þjóðar eru samtvinnuð. Spurður hvort ekki felist í því meiri ábyrgð fyrir bankann svar- ar Björgólfur því játandi. „Við skynj- um það mjög sterkt að við erum banki allra landsmanna,“ segir Björgólfur og tekur fram að það sé bankanum afar mikilvægt. Landsbankinn hefur verið í fararbroddi í öllum þjóðfélagsbreytingum sl. 120 ár Landsbankinn býður í dag til þrettándagleði á Ingólfstorgi í anda þess sem var fyrir 120 árum. Samhliða verður opnuð vegleg sögusýning bankans. Morgunblaðið/Kristinn Saga í málum og myndum Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbankans, við upprunalegt skrifpúlt úr bankanum sem í dag er varðveitt á Þjóðminjasafni Íslands. Ljósmyndirnar á sögusýningu bankans í Aðalstrætinu eru flestar frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur en einnig úr einkaeigu. ENGAN sakaði þegar tvær stórar jeppabifreiðar féllu niður um ís nokkra kílómetra innan við Þóris- tind síðdegis í gærdag. Þar var á ferð hópur úr Suðurnesjadeild Ferðaklúbbsins 4x4 á ellefu jeppum sem stefndi á helgarferð upp í Grímsfjöll. Að sögn Sigurgeirs Guðmunds- sonar, fulltrúa í svæðisstjórn Lands- bjargar, var töluvert djúpt undir um átta cm þykkum ísnum og fór annar jeppinn niður í heilu lagi. „Eftir því sem mér skildist var hann kominn upp að gluggum í vatni en hinn var svona hálfur ofan í að framan.“ Greiðlega gekk að koma öðrum bíln- um upp og virtist sem lítið tjón hefði orðið á honum, en verra var með hinn. Um áttaleytið í gærkvöldi tókst að ná honum upp úr vatninu en hann var þá óökufær og í gærkvöldi veltu menn því fyrir sér hvernig bæri að sækja hann. Einhverjir héldu heim á leið eftir ófarirnar en aðrir héldu ótrauðir áfram ferðinni. „Manni segir svo hugur að menn verði að kanna aðstæður með járn- karli þar sem yfirborðið er flatt. Hlýindi hafa verið og þessir bílar eru mjög þungir,“ segir Sigurgeir. Tveir stórir jeppar féllu niður um ís Engan sakaði – vatn náði upp að gluggum Á SÖGUSÝNINGU Landsbankans má líta marga at- hyglisverði muni, ekki aðeins úr bankasögunni heldur eru dregnar upp myndir af þjóðlífi fyrri tíðar. Að sögn Björns G. Björnssonar sýningarhönnuðar spannar sýn- ingin söguna í réttri tímaröð sem rakin er á vegg- spjöldum, myndböndum, með aðstoð leikmuna, gam- alla skrifstofutækja, ljósmynda og leikhljóða, auk þess sem uppáklæddar gínur skapa skemmtilega stemn- ingu. Aðspurður segir Björn að staldrað sé við á nokkrum markverðum tímapunktum í sögu bankans, þeirra á meðal er bruninn mikli árið 1915 þegar tólf hús í mið- borginni ýmist stórskemmdust eða brunnu til kaldra kola, þar á meðal hús Landsbankans í Austurstræti. Bendir Björn á að nýtt lifandi líkan af miðborg Reykja- víkur sýni hvernig umhorfs var í Reykjavík eftir brun- ann. Samkvæmt upplýsingum frá Birni eru sýning- argripir að stærstum hluta úr geymslu Landsbankans sem og úr geymslu Seðlabankans, en einnig eru fengn- ir munir að láni frá Þjóðminjasafni og Árbæjarsafni. Ljósmyndir koma flestar frá Ljósmyndasafni Reykja- víkur, en einnig úr einkaeigu. Spurður hvort hann eigi sér uppáhaldsgrip á sýningunni svarar Björn því ját- andi og bendir á listaverk Sigurjóns Ólafssonar sem nefnist Börn að leik. „Þetta listaverk var árum saman í útibúi bankans á Laugavegi 77 og síðan í Múlaútibúi. Síðan hvarf það sjónum okkar. Þegar ég rakst á verkið í geymslu bank- ans fannst mér endilega að það ætti að fara aftur upp.“ Þess má að lokum geta að sögusýning Landsbankans verður opin alla daga vikunnar fram á vor kl. 11–17 virka daga og kl. 13–17 um helgar. Aðgangur er ókeypis. Boðið er upp á leiðsögn um sýninguna, auk þess sem leikin atriði verða reglulega á boðstólum. Dregur upp mynd af þjóðlífi fyrri tíma
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.