Morgunblaðið - 06.01.2007, Side 17

Morgunblaðið - 06.01.2007, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 17 OPIÐ: Í dag kl. 11-18, á morgun, sunnudag, kl. 13-16 ÚTSALA Mikill afsláttur af vönduðum vörum Verð áður: Verð nú: FARO Sófasett 3+1+1 449.800 kr. 289.000 kr. Leður ALBATROS Sófasett 3+1+1 396.890 kr. 246.000 kr. Leður DAPHNE Sófasett 3+1+1 489.800 kr. 244.900 kr. ákl. Alcantara BRITTI Hornsófi - 6 sæta 398.980 kr. 259.000 kr. Leður MENTOR Hægindastóll m/skammeli 98.820 kr. 59.000 kr. Leður EMILY Hægindastóll m/skammeli 59.980 kr. 35.900 kr. Leður á slitflötum FRANCESKA 3 sæta sófi 78.520 kr. 49.000 kr. Áklæði HABANA Sófaborð m/glerplötu 29.500 kr. 17.700 kr. Kirsuberjaviður ARGENTA Sófaborð og hornborð 96.690 kr. 58.000 kr. Ljós eik - krómfætur TOSCANO Borðstofuborð og 6 stólar 338.400 kr. 198.000 kr. Kirsuberjaviður XENON Borðstofuborð og 6 stólar 322.910 kr. 226.000 kr. Ljós eik XENON Sjónvarpsskápur 146.780 kr. 99.000 kr. Ljós eik BASIX Sjónvarpssamstæða 291.020 kr. 199.000 kr. Ljós eik BASIX Skenkur 136.540 kr. 95.600 kr. Ljós eik PRIMO Sjónvarpsskápur 175.570 kr. 87.700 kr. Bæsuð eik TORNADO Glerskápur 133.950 kr. 93.800 kr. Bæsuð eik DUBLIN Svefnsófi 99.860 kr. 69.900 kr. FLAMINGO Svefnsófi 97.980 kr. 59.000 kr. SAVANNAH Höfðagafl 180 cm og 2 náttborð 114.290 kr. 79.000 kr. Ljós eik VANILLA 6 skúffu kommóða 65.750 kr. 46.000 kr. Ljós eik .... og margt margt fleira. Ármúla 44 - S. 553 2035 www.lifoglist.is MORGUNBLAÐINU hefur borist til birtingar eftirfarandi yfirlýsing SVÞ (Samtaka verslunar og þjón- ustu) vegna frétta RÚV síðustu daga um takmörkun á siglingum skipa á siglingaleiðum um suðvesturhorn landsins: „Í ljósi frétta um siglingaleiðir fyr- ir suðvesturhorn landsins síðustu daga vilja SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu – taka fram eftirfarandi: Af fréttum síðustu daga má ráða að samgönguráðuneyti hafi nýverið skipað nefnd til að taka ákvörðun um takmarkanir siglinga skipa við suð- vesturströnd landsins. Ef rétt reyn- ist er sú nefnd skipuð án vitundar eða þátttöku kaupskipaútgerðar í land- inu. Innan kaupskipaútgerðarinnar eru m.a. starfandi skipstjórar sem til þessa hafa verið taldir færir um að velja sér siglingaleiðir eftir aðstæð- um. Þegar kaupskipaútgerðinni er ekki boðið til nefndarsetu þar sem taka á ákvarðanir um siglingaleiðir er verið að vinna að málefninu frá einni hlið; hlið ríkisstofnana eins og Siglingastofnunar Íslands og Um- hverfisstofnunar Íslands, og á grund- velli þeirra hagsmuna. Siglingastofn- un eða Umhverfisstofnun bera enga ábyrgð á öryggi skipa eða sjófarenda á hafi úti. Þegar ákvarðanir eru teknar um takmarkanir á siglingaleiðum er um leið verið að taka ákvarðanir um val á öðrum siglingaleiðum. Forsendur slíkrar ákvarðanatöku hljóta að byggja á víðtækum rannsóknum á öryggissjónarmiðum frá öllum hlið- um. Af fréttaflutningi síðustu daga hef- ur mátt álykta sem svo að hvað varð- ar val á siglingaleiðum skipa fyrir suðvesturhorn landsins sé til einn sannleikur, í formi skýrslu Det Norske Veritas frá því í maí 1999. Skýrslan var lögð fram eftir að nefnd samgönguráðherra hafði hafið störf og var unnin á forsendum sem þeir einir þekkja sem báðu um hana. Hún var og er ekki samþykkt sem heildarrannsókn þar sem tekið er til- lit til allra öryggisþátta og getur ein og sér ekki orðið grundvöllur ákvarð- anatöku um val á siglingaleið við suð- vesturströnd landsins. Kaupskipaútgerðin tók þátt í starfi nefndar samgönguráðherra á árun- um 1998–2000 sem hafði það hlutverk að móta reglur um tilkynningaskyldu og afmörkun siglingaleiða olíuskipa og annarra skipa sem sigla með hættulegan varning inn í íslenska efnahagslögsögu. Niðurstaða þeirrar nefndar var ótvírætt sú, að til þess að hægt væri að taka ákvarðanir þyrftu réttar forsendur að liggja fyrir. Í skýrslu nefndarinnar segir orðrétt: „Innan nefndarinnar eru uppi efa- semdir um öryggi siglinga á ytri leið. Miðað við fyrirliggjandi upplýsingar um sjólag á því hafsvæði telur nefnd- in sig, á þessu stigi, ekki geta mælt með öðrum hvorum kostinum. Áður en endanleg ákvörðun verður tekin um annan hvorn umræddra valkosta leggur nefndin því til að fram fari rannsóknir á öldufari og straumum á hafsvæðinu. Talið er að slík rannsókn geti tekið 2–3 ár og verði lokið eigi síðar en 2004.“ Í dag er 4. janúar 2007. Engar rannsóknarniðurstöður hafa enn ver- ið lagðar fram. SVÞ gera kröfu til þess að kaupskipaútgerðin fái að skipa fulltrúa í þá nefnd sem nú fjallar um málið. Yfirlýsing SVÞ vegna siglinga „ÞAÐ er enginn vafi á því að við verðum auðvitað að komast að hinu sanna um stöðu loðnustofnsins. Þarna er gríðarlega mikið í húfi,“ segir Einar K. Guðfinnsson sjávar- útvegsráðherra. Engar loðnugöngur hafa enn fundizt í leiðarangri Haf- rannsóknastofnunarinnar sem hófst síðastliðinn miðvikudag. „Loðnan veiðist á skömmum tíma á árinu og þess vegna er það þannig að fari hún framhjá okkur á þeim tíma sem hefðbundin loðnuvertíð ella stæði, erum við að missa þar mikil verðmæti. Það skiptir miklu máli að okkur takist að mæla stærð stofnsins. Það hefur ekki tekizt að hausti til undanfarnar fimm vertíðir og gengið brösuglega eftir áramótin. Í fyrra var til dæmis ekki hægt að gefa út kvóta fyrr en 31. janúar. Það er full ástæða til þess af okkar hálfu að leggja mikla áherzlu á málið. Þetta er ekki bara spurning um hagsmuni þeirra sem hafa beinar tekjur af loðnuveiðum og vinnslu, sem þó skiptir miklu máli, heldur líka er hér um að ræða þann stofn, sem er mikilvæg fæða fyrir okkar helztu nytjastofna. Vonandi finnst loðnan Við höfum lagt til sérstakar fjár- veitingar vegna loðnuleitar á und- anförnum árum og til dæmis var í fyrra lagt fram viðbótarfjármagn til að hægt væri að halda leitinni áfram. Ég tel ekki ástæðu til að taka afstöðu til þess hvort svo verði gert nú fyrr en það er orðið fullreynt hvort okkur takist að finna loðnuna í núverandi leiðangri. Vonandi tekst okkur það. Það er að minnsta kosti gert allt sem í okkar valdi stendur til þess,“ segir sjávarútvegsráðherra. Bæði skip Hafrannsóknastofnun- arinnar fóru til leitar út af Norðvest- urlandi 3. janúar og munu á næstu dögum ljúka yfirferð á líklegum svæðum norðan við landið. Ekki hef- ur enn orðið vart við neinar loðnu- göngur. Í starfsáætlun stofnunar- innar fyrir árið 2007 er gert ráð fyrir að úthald til loðnuleitar og mælinga á komandi vertíð verði 22 dagar. „Viðbúið er að það reynist of knappt áætlað, a.m.k. ef miðað er við reynslu undanfarinna ára. Því kann svo að fara að nauðsynlegt reynist að leita sérstaks fjárstuðn- ings strax á næstu vikum þótt ekki sé ástæða til að slá því föstu að svo komnu máli,“ segir Einar K. Guð- finnsson. Á seinustu vertíð mældist miklu minna af loðnu en undanfarin ár og nam heildarkvótinn ekki nema um 240 þúsund tonnum, sem er minni afli en fengist hefur undanfarin 15 ár. ÚR VERINU Loðnan hefur enn ekki fundizt Morgunblaðið/Kristinn Fiskveiðar Enn eitt árið ríkir óvissa um loðnuveiðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.