Morgunblaðið - 06.01.2007, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 06.01.2007, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Í VIÐTALI við The Seattle Tim- es segir þýski kvikmyndaleik- stjórinn Tom Tykwer frá stutt- um kynnum af landa sínum, rit- höfundinum Pat- rick Süskind. Süskind er höf- undur metsölubókarinnar Ilmsins: Sögu af morðingja (Das Parfum: Die Geschichte eines Mörders) sem nú hefur verið færð upp á hvíta tjaldið í leikstjórn Tykwer. Süskind er frægur fyrir að gefa ekki svo glatt á sér færi. Hann veitir ekki viðtöl né kemur opinberlega fram. Eins og Tykwer bendir á í um- ræddu viðtali eru í raun fáar myndir til af rithöfundinum. „Hann er mjög undarleg per- sóna,“ er haft eftir Tykwer sem skrifaði einnig handritið að mynd- inni ásamt Andrew Birkin og fram- leiðanda hennar, Bernd Eichinger. Tykwer hitti Süskind aðeins einu sinni. „Það var augljóst að hann vildi ekki láta flækja sér í vinnuna við myndina. Við snæddum saman og hann óskaði mér góðs gengis. Ég veit ekki einu sinu hvort hann er bú- inn að sjá myndina.“ Það var mikil þrautaganga fyrir framleiðandann Bernd Eichinger að fá Süskind til að samþykkja gerð myndarinnar, reyndar 15 ára þrautaganga. Tykwer, sem er frægastur fyrir myndina Hlauptu Lola (Lola Rennt), segir handritshöfundana þrjá hafa gert 23 uppköst að end- anlega handritinu á tveggja ára tímabili. Að sögn Tykwer var vandamálið fyrst og fremst hin óvenjulega söguhetja, Jean-Baptiste Grenouille. „Mjög und- arlegur“ Tykwer hitti Süskind einu sinni Tom Tykwer TITILL nýjustu bókarinnar í bókaröðinni Ung- ur Bond (Young Bond), sem fjallar um æsku- ár og bernskuaf- rek James Bonds, hefur ver- ið tilkynntur. Mun bókin heita Double or Die. Það er breski grín- istinn og rithöfundurinn Charlie Higson sem er maðurinn á bak við bækurnar um hinn unga Bond en hann er einkum þekktur í heima- landinu fyrir aðkomu sína að BBC- gamanþættinum Fast Show. Fyrsta bókin í bókaröðinni var gefin út árið 2005 undir heitinu SilverFin. Bókin sló strax í gegn og var fylgt eftir með nýrri í fyrra, Blood Fever. Higson, sem hefur samþykkt að skrifa tvær bækur í viðbót, hefur gefið í skyn að kvik- myndir byggðar á verkum sínum kunni að líta dagsins ljós í náinni framtíð, en þó ekki fyrr en hann hefur lokið við fyrstu fimm bæk- urnar. Í hinni væntanlegu Double or Die segir frá kynnum hins unga Bonds af ólöglegum spilavítisgrenjum, njósnurum frá Cambridge, gengi frá austurhluta London og harð- skeyttum írskum hafnarverka- mönnum. Það voru aðdáendur Ungs Bonds sem völdu heiti nýju bókarinnar úr úrvali þriggja titla og höfnuðu um leið Nemesis og The Deadlock Cipher. Bækurnar eru gefnar út með leyfi ættingja Ian Flemings, höfundar James Bonds. Ungur Bond fær nafn Charlie Higson BOÐIÐ verður upp á leiðsögn á morgun klukkan 14 í fylgd Rakelar Pétursdóttur, safn- afræðings á Listasafni Íslands. Rakel mun beina sjónum sín- um að sýningunni Frelsun lit- arins/Regard Fauve sem kem- ur frá Fagurlistasafninu í Bordeaux í Frakklandi. Á sýn- ingunni eru verk eftir heims- þekkta málara listasögunnar, m.a. Raoul Dufy, Pierre Bonnard, Henri Matisse, Oskar Kokoschka, Auguste Reoir og Félix Vallo- ton. Er þetta í fyrsta sinn sem verk frá þessu tímabili eru kynnt hér á landi. Aðgangur að Listasafni Íslands er ókeypis. Myndlist Leiðsögn á Listasafni Íslands Rakel Pétursdóttir EFTIR að hafa verið uppseld hjá útgefanda um nokkurt skeið hefur bókin Leitin að til- gangi lífsins eftir austurríska geðlækninn Viktor E. Frankl verið endurútgefin með breyttu útliti. Bókin kom fyrst út hérlendis árið 1997 á vegum Siðfræðistofnunar og Háskóla- útgáfunnar. Frankl var upphafsmaður kenningar í sálarfræði sem nefnd er tilgangs- meðferð þar sem lögð er áhersla á að í lífi sér- hvers manns sé einstakur tilgangur sem hver og einn verði að finna fyrir sjálfan sig. Páll Skúlason ritar inngang að íslensku útgáfunni. Bókmenntir Leitin að tilgangi lífsins endurútgefin Viktor E. Frankl ÚT ER komið 10. hefti Jóns á Bægisá, tímarits þýðenda. Heftið er blanda af fræðilegu efni og þýðingum fagur- bókmennta. Meðal efnis: Greinar Kristjönu Gunnars og Jóns Bjarna Atlasonar um þýð- ingar og tvær greinar eftir Franz Gíslason, einn af stofn- endum tímaritsins og ritnefnd- armann frá upphafi, sem lést í fyrra. Þá eru nokkur þýdd ljóð. Heftið er 115 blaðsíður. Verð í lausasölu er 1.500 krónur. Útgefandi er Ormstunga. Nánari upplýsingar er að finna á vefslóðinni www.ormstunga.is. Þýðingar Tíunda hefti Jóns á Bægisá komið út Tíunda hefti Jóns á Bægisá. Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is NÝJASTA kvikmyndahús landsins er á frekar ólíklegum stað og af heldur óvenjulegu tagi. Seyð- isfjörður er nú vettvangur Mini Ciné, svokallaðs míkrókvikmyndahúss sem parið Hassan Harazi og Lilja Dögg Jónsdóttir Eldon standa að. Þar hyggjast þau reglulega bjóða bæjarbúum, og öðr- um sem þangað sækja, upp á stuttmyndir af fjöl- breyttu tagi: gamanmyndir, dramatík, tilraunast- uttmyndir, teiknimyndir, heimamyndbönd og annað sem á fjörur þeirra rekur; og það sem meira er, aðgangur er ókeypis og öllum opinn. „Við vildum flytja út á land. Við eigum ung börn og fannst það því tilvalið. Og þar sem Seyð- isfjörður er fallegasti bær á Íslandi ákváðum við að flytja hingað,“ segir Hassan um þá ákvörðun þeirra Lilju Daggar síðasta sumar að yfirgefa Reykjavík og búa sér heimili með tveimur ungum börnum sínum í hinum austfirska firði. „Hér fund- um við meira að segja hús með viðbyggingu sem hentaði fullkomlega því sem okkur hefur lengi langað að gera, að koma okkur upp eigin aðstöðu til kvikmyndasýninga.“ Með tuttugu ára reynslu Hassan, sem er frá Englandi, er enginn ný- græðingur þegar kemur að kvikmyndasýningum, hefur verið viðloðandi bransann í ein tuttugu ár. Hann var meðlimur í Exploding Cinema Collect- ive í London um 1990 og rak um skeið Lundabíó Alternative Cinema í Reykjavík. Auk þess var hann einn stofnenda Bíó Reykjavík. Hann segist trúa því að kvikmyndahús sé mikilvægur hluti lif- andi listasamfélags. Með Mini Ciné takist þeim Lilju Dögg því að sameina ástríðuna fyrir kvik- myndum og þjónustu við samfélagið sem þau búa í. Hann játar því að starfsemin sé ekki rekin áfram af gróðavon. „Þess vegna er mikilvægt að við séum með eigin aðstöðu, þá þurfum við ekki að leigja húsnæði undir sýningarnar. Myndirnar fáum við svo oftast ókeypis,“ segir Hassan og bætir við að sýningargestir geti keypt drykkjar- föng og snarl á kostnaðarverði. Markmiðið er að sýna athyglisverðar kvik- myndir og myndbönd frá öllum heimshornum, myndir sem allajafna rati ekki í hérlenda sýning- arsali. Að sögn Hassans er auðveldara að nálgast myndir af þeim meiði en margan grunar. „Við auglýsum eftir óháðum stuttmyndum í tímaritum og á sérstökum vefsíðum og kvik- myndagerðarmennirnir setja sig svo í samband við okkur. Auk þess hef ég góð sambönd frá fyrri tíð. Við borgum kvikmyndagerðarmönnunum yf- irleitt ekkert. Þeir senda okkur myndirnar kynn- ingarinnar vegna. Það er gott fyrir þá að geta greint frá því að myndin þeirra hafi verið sýnd á Íslandi.“ Í gömlu verslunarhúsnæði Sýningarsalur Mini Ciné er að miklu leyti inn- réttaður úr endurunnum hlutum og efni. „Þarna var áður verslun [E.J. Waage] sem nú hefur flutt um set. Þar sem við áttum enga pen- inga tókum við niður hillur, og bara hvað sem þar var að finna, og notuðum til að endurhanna hús- næðið. Það eina sem við þurftum að borga sjálf var því smávegis málning og efni til að búa til tjöld og annað slíkt.“ Seyðfirsk skólabörn voru fyrstu gestir kvik- myndahússins 8. desember sl. en næst á dagskrá er sýning frönsku myndarinnar Être et avoir. Um er að ræða heimildarmynd um grunnskóla í 200 manna smáþorpi í Frakklandi þar sem nemendum frá fjögurra til tólf ára er kennt saman í einum bekk af hinum áhugasama kennara Georges Lopez. Myndin er með enskum texta og verður kennurum grunnskólans á Seyðisfirði sérstaklega boðið. Nýtt kvikmyndahús Lilja Dögg Jónsdóttir Eldon og Hassan Harazi hafa opnað míkrókvikmynda- húsið Mini Ciné á Seyðisfirði þar sem boðið verður upp á óháðar stuttmyndir Nýir Seyðfirðingar Lilja Dögg og Hassan ásamt börnum sínum, hinum þriggja ára gamla Hilmari Smára og Heiðbjörk Emblu sem er eins árs. Parið hefur brennandi áhuga á kvikmyndum. www.thefreedomcouncil.com Morgunblaðið/Steinunn BRAGI Bergþórsson tenór hlaut í gær fjárstyrk úr Tónlistarsjóði Rót- arýhreyfingarinnar á Íslandi. Um er að ræða styrk til frekara tónlistar- náms að upphæð 500.000 krónur. Er þetta í þriðja sinn sem styrknum er úthlutað en hann er ætlaður ungu tónlistarfólki sem þykir hafa skarað framúr á sínu sviði. Fyrri styrkþeg- ar eru Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari og Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari. Við söngnám í London Bragi er fæddur í Reykjavík árið 1981. Ungur hóf hann nám á fiðlu og píanó en sneri sé að söngnámi árið 2002 í Tónlistarskólanum í Reykja- vík hjá Dr. Þórunni Guðmunds- dóttur. Árið 2004 hélt hann til Lond- on þar sem hann hefur stundað nám við Guildhall School of Music & Drama undir handleiðslu Adrians Thompsons og Rudolfs Piernays. Hann lauk meistaragráðu við skól- ann árið 2005 en er nú við nám í óperudeild hans. Hann hefur komið fram í ýmsum óperum, t.d. frum- flutningi á Gretti Þorkels Sig- urbjörnssonar, auk þess að hafa sungið á tónleikum, nú síðast í Re- quiem Mozarts í Dover í Englandi. Bragi hlýtur tón- listarstyrk Rótarý Morgunblaðið/ÞÖK Styrktur Bragi Bergþórsson veitti styrk Tónlistarsjóðs Rótarýhreyfing- arinnar viðtöku við hátíðlega athöfn í gær. ♦♦♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.