Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
ÁRLEG þrettándagleði Íþrótta-
félagsins Þórs verður haldin í Bog-
anum í dag, laugardaginn 6. janúar,
og hefst kl. 17.
Álfakóngur og föruneyti hans
koma á svæðið að vanda. Tröll og
alls kyns kynjaverur sveima um sal-
inn, þar á meðal púkarnir sem sett
hafa svip sinn á þrettándagleðina í
áratugi.
Óskar Pétursson og Dagný Elísa
Halldórsdóttir skemmta með söng,
jólasveinarnir Ketkrókur, Hurða-
skellir og Kertasníkir mæta eins og
mörg undanfarin ár og dansflokkur
undir stjórn Gunnars Smára Björg-
vinssonar leikur listir sínar.
Að lokum verður boðið upp á
flugeldasýningu á Þórssvæðinu.
Aðgangseyrir á þrettándagleðina
er 500 kr. en hver fjölskylda greiðir
2.000 kr. að hámarki.
Kakó og rjómavöfflur verða seld
í Hamri fyrir og eftir sýningu.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Þrettánda-
gleðin í dag
í Boganum
Gaman Þessar stúlkur komu á
þrettándagleðina fyrir ári.
MUN fleiri bækur voru lánaðar
gestum Amtsbókasafnsins á Akur-
eyri í fyrra en árið áður; aukningin
var 12%. Þetta er mikil breyting frá
því sem verið hefur, því árið 2005
fjölgaði útlánum um 4% en árið 2003
fækkaði þeim um 5% frá árinu á und-
an. Þrátt fyrir aukin útlán voru gest-
ir safnsins samt færri í fyrra en árið
þar á undan.
Alls voru 194.748 gögn lánuð út ár-
ið 2006 sem samsvarar því að hver
Akureyringur hafi fengið 11,58 safn-
gögn að láni, u.þ.b. eitt á mánuði.
Samanlagður þungi þessara gagna
er um 53,5 tonn. Ef gögnunum sem
fengin voru að láni á árinu væri stafl-
að hverju ofan á annað yrði til turn
sem væri 2.726 metra hár. Til sam-
anburðar má geta þess að Kerling,
hæsta fjall Norðurlands, er 1.536
metra hátt og Súlutindur sem gnæfir
yfir Akureyri er 1.144 metra hár.
Samanlögð hæð þessara fjalla er 46
metrum minni en þessi ímyndaði
gagnaturn Amtsbókasafnsins.
„Já, ég hef að sjálfsögðu gengið á
Súlur en ekki á Kerlingu. Var ég þó
alinn upp að fjögurra ára aldri undir
því fjalli; á Finnastöðum,“ sagði
Hólmkell Hreinsson amtsbókavörð-
ur við Morgunblaðið í gær, spurður
vegna samanburðarins.
Sem fyrr eru bækur vinsælastar
meðal lánþega, eða um 75% þess sem
lánað var út á árinu. Næst koma
tímarit (15%) og myndbönd (5%).
Bækur Arnaldar Indriðasonar
voru þær vinsælustu hjá viðskipta-
vinum Amtsbókasafnsins í fyrra,
eins og árin þar á undan, ásamt
tveimur erlendum skáldsögum;
Flugdrekahlauparanum og Skugga
vindsins. Þá var bókin Myndin af
pabba, saga Thelmu Ásdísardóttur,
mikið lánuð út.
Gestir Amtsbókasafnsins árið
2006 voru 107.694 og fækkaði þeim
um tæplega 1.800 milli ára, sem er
athyglisvert í ljósi þess að útlánum
fjölgaði svo mikið sem raun ber vitni.
Hólmkell Hreinsson segir þessa þró-
un þá sömu og í öðrum bókasöfnum
landsins, þveröfugt við það sem ger-
ist annars staðar á Vesturlöndum.
Hann segir umferðina á safnið hafa
breyst. „Áður voru miklir toppar en
nú eru heimsóknir jafnari; það má
segja að hingað sé stöðugur straum-
ur. En það kom mér satt að segja dá-
lítið á óvart að gestum skyldi fækka
milli ára,“ sagði hann.
Til gamans má benda á að ef þess-
ir safngestir stilltu sér upp í einfalda
röð yrði hún 64,6 kílómetrar að
lengd, sem er u.þ.b. vegalengdin
milli Akureyrar og Lauga í Reykja-
dal. Röðin yrði fjórum kílómetrum
lengri en sem nemur vegalengdinni
milli Akureyrar og Ólafsfjarðar.
Bókastaflinn hærri
en Kerling og Súlur
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Á verði! Hólmkell Hreinsson, amtsbókavörður á Akureyri, á sínum stað.
Í HNOTSKURN
»Mun fleiri bækur voru lán-aðar út í fyrra en árið á
undan en gestum safnsins
fækkaði engu að síður.
»Bækur Arnaldar Indriða-sonar eru vinsælasta lesn-
ingin hjá gestum Amtsbóka-
safnsins og svo hefur verið
síðustu ár.
ÍBÚAR bæjarins Grænuhlíðar í
Eyjafjarðarsveit, sem þurftu að yf-
irgefa jörðina í kjölfar aurskriðna
skömmu fyrir jól, eru enn ekki fluttir
heim aftur og flytja ekki á næstunni.
Óljóst er hvenær af því getur orðið.
Tjón vegna hamfaranna í sveitar-
félaginu hefur ekki verið metið og
segir Bjarni Kristjánsson sveitar-
stjóri að leitað verði til stjórnar
Bjargráðasjóðs um það með hvaða
hætti sjóðurinn geti komið að mati á
tjóni vegna skriðufallanna og flóð-
anna og greiðslu bóta í samræmi við
lög um sjóðinn.
„Það er verið að safna upplýsing-
um frá einstaklingum og ég geri ráð
fyrir því að menn skili því inn í næstu
viku sem hægt er; veður þarf að vera
hagstætt svo hægt sé að meta tjónið,
þar sem hefur snjóað hverfa um-
merki tímabundið. Trúnaðarmenn
sjóðsins meta svo endanlega hvað
verður tekið til skoðunar,“ sagði
Bjarni við Morgunblaðið.
Sveitarstjórnin samþykkti á fundi
á dögunum að bjóða þeim, sem telja
sig hafa orðið fyrir tjóni, aðstoð við
að leita réttar síns og einnig að leita
til umhverfisráðuneytisins um
hættumat á flóðasvæðinu.
Náttúrufræðistofnun vinnur að
samantekt greinargerðar um at-
burðina og verður hún væntanlega
til umfjöllunar hjá stjórn Ofanflóða-
sjóðs í næstu viku.
Sveitarstjórnin samþykkti að
þakka sérstaklega félögum í hjálp-
arsveitinni Dalbjörg fyrir skjót við-
brögð við hættuástandi og ómetan-
lega aðstoð í kjölfar þess, sérstak-
lega aðstoð við heimilisfólkið í
Grænuhlíð.
Ekki vitað
hve mikið
tjónið er
Eftir Jóhann Óla Hilmarsson
Stokkseyri | Álfar flytja búferlum á
nýársnótt, eins og kunnugt er og var
engin undantekning á Stokkseyri
þessi áramót. Forsvarsmenn hins
nýja Álfa-, trölla- og norður-
ljósasafns unnu að undirbúningi
flutninganna á gamlársdag með við-
höfn.
Margir vættir eru nú á hrakhólum
vegna stórframkvæmda í landinu og
því tóku góðhjartaðir menn í Flóan-
um sig til og ákváðu að skjóta skjóls-
húsi yfir þá.
Tekið var sérstaklega vel á móti
álfunum á nýársnótt og að sjálfsögðu
verður þeim gefinn góður tími til að
aðlagast nýjum heimkynnum áður
en safnið verður formlega opnað. Í
beinu framhaldi er gert ráð fyrir að
tröllin flytji inn og gangi allt eftir
verður vetrarríkið með norður-
ljósum o.fl. einnig tilbúið innan
skamms.
Íslensk náttúra er fyrirmyndin
Fréttaritari lagði nokkrar spurn-
ingar fyrir Benedikt G. Guðmunds-
son, framkvæmdastjóra Álfa-, trölla-
og norðurljósasafnsins eða Icelandic
Wonders, eins og fyrirtækið nefnist,
sem stendur að baki safninu.
Á þetta safn fyrirmynd?
„Fyrirmynd þessa safns er í raun
íslensk náttúra eins og hún gerist
best og allt kapp hefur verið lagt á
að hafa umhverfið sem eðlilegast og
náttúrlegast. Það er fyrst og fremst
gert til að gera búsetu vænlega fyrir
álfa, tröll og huldufólk, enda von-
umst við til að halda þeim hér árið
um kring.
Þegar við byggðum Draugasetrið
fyrir um fjórum árum langaði okkur
einnig strax til þess að gera álfum og
tröllum góð skil. Ástæðan var fyrst
og fremst sú að þetta eru þeir hlutar
úr okkar þjóðtrú sem okkur finnst
hvað mest spennandi. Markmið okk-
ar með þessu nýja safni var að sjálf-
sögðu að gera betur en síðast og er-
um við bjartsýn á að það muni
takast.“
Hvað býðst gestum?
„Gestum mun bjóðast að skyggn-
ast inn í heim álfa, trölla og huldu-
fólks, auk þess sem þeir munu sjá
norðurljósin í sínu eðlilega umhverfi.
Markmiðið er að auka áhuga okkar
Íslendinga á þjóðtrú okkar sem og
gera hana aðgengilegri fyrir erlenda
gesti sem heimsækja landið.“
Hverjir standa að baki safninu?
„Aðalhugmyndasmiður og hönn-
uður þessa safns er Benedikt G.
Guðmundsson. Auk hans koma fjöl-
margir góðir aðilar að þessu verk-
efni, m.a. Indriði Ingimundarson að-
stoðarhönnuður, Sveinn
Tyrfingsson, Guðmundur Tyrfings-
son og starfsmenn, Sigurgeir Hilm-
ar leikstjóri, Ingólfur Júlíusson
tökumaður, að ógleymdum snilling-
unum Þór Vigfússyni og Bjarna
Harðarsyni sem eru í broddi fylk-
ingar.“
Hvenær áætlarðu að safnið verði
opnað?
„Tröllin munu flytja inn strax í
ársbyrjun en hvenær óhætt verður
að heimsækja þessar mætu verur er
of snemmt að segja til um. Við ger-
um ráð fyrir að það taki nokkra daga
og jafnvel vikur fyrir þær að aðlag-
ast nýjum heimkynnum. Formleg
opnun þessa safns er því alls ekki í
okkar höndum en líklegt má telja að
hún verði á fyrstu vikum á nýju ári.“
Fjölbreytt menningarstarfsemi
Safnið er í Menningarverstöðinni
Hólmaröst á Stokkseyri. Það er á
um 1.200 fermetrum af jarðhæðinni í
þessu mikla lista- og menningarhúsi.
Fjölmargir listamenn og söfn hafa í
dag aðsetur í þessu sama húsi.
Draugasetrið, Elvar Guðni mynd-
listamaður með meiru og dætur
hans, auk þess eru í húsinu org-
elsmiður, glerlistamaður, fjölmörg
gallerí og handverksfólk með frá-
bæra listmuni auk þess sem Lista-
og menningarverstöðin er með sína
starfsemi þarna í stórum salar-
kynnum.
Benedikt naut fulltingis Bjarna
Harðarsonar, stjórnarformanns
Álfasafnsins, og Þórs Vigfússonar,
stjórnarformanns Draugasetursins,
þegar þeir gengu kringum húsið og
kyrjuðu fullum hálsi: „Komi þeir
sem koma vilja, veri þeir sem vera
vilja, fari þeir sem fara vilja, mér og
mínum að meinalausu.“ Nánari
upplýsingar má finna á vefnum
www.icelandicwonders.com.
Villuráfandi álfar og tröll fá
loks varanlegt húsaskjól
Komi þeir sem koma vilja Aðstandendur Álfa-, trölla- og norðurljósasafnsins á Stokkseyri bjóða álfana velkomna
með fornum kveðskap, frá vinstri Þór Vigfússon, Benedikt G. Guðmundsson og Bjarni Harðarson.
Álfa-, trölla- og norð-
urljósasafn byggt
upp á Stokkseyri
Morgunblaðið/Jóhann Óli Hilmarsson
ÁRBORGARSVÆÐIÐ