Morgunblaðið - 06.01.2007, Síða 23

Morgunblaðið - 06.01.2007, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 23 LANDIÐ Eftir Gunnlaug Árnason Stykkishólmur | Tímamót urðu í atvinnusögu Stykkishólms um áramótin þegar St. Franc- iskusreglan seldi ríkissjóði St. Franciskusspít- alann og hætti rekstri hans. Reglan hefur rekið spítalann í yfir 70 ár. Systurnar kvöddu starfs- fólk spítalans og þökkuðu því samstarfið á liðn- um árum. Fram kom hjá Róberti Jörgensen, fram- kvæmdastjóra spítalans, að um sjö ár eru síðan systurnar fóru fram á það með formlegum hætti við ríkið að það keypti spítalann. Systurnar hafa í minnkandi mæli tekið þátt í almennu starfi á spítalanum. Nú er sr. Antonia ein eftir. En hún nýtist vel þar sem hún starfar á 3 stöðum, á legudeild, í röntgen og lyfjabúri. „Ég tala smátt og smátt“ Róbert sagði ennfremur: „Sé sagan skoðuð þá hafa St. Franciskussystur líkt og aðrar líkn- arreglur í heilbrigðiskerfinu komið inn þegar neyð hefur verið og síðan farið aftur þegar sam- félagið er orðið efnahagslega sjálfstætt. Brýn þörf var á heilbrigðisþjónustu við Breiðafjörð árið 1930 þegar Páll Vídalín Bjarnason sýslu- maður og Oskar Clausen leituðu til kaþólsku kirkjunnar um aðstoð við að fá í Stykkishólm systrareglu sem vildi byggja og reka sjúkrahús til hagsbóta fyrir íbúa við Breiðafjörð. Nú er öldin önnur og er komið að St. Franciskusregl- unni að yfirgefa heilbrigðiskerfi Íslendinga.“ Systir Petra kom til Stykkishólms árið 1961 og hefur starfað hér í 45 ár. Hún starfaði í prentsmiðju kaþólsku kirkjunnar á Íslandi allt til þess tíma að prentsmiðjan var seld árið 1994. „Ég kom frá Hollandi til Íslands og átti að vera hér í eitt ár og ég er hér enn. Ég kunni strax vel við mig á Íslandi og hér vildi ég eiga heima. Ætli það hafi ekki verið fjöllin, hafið og veðráttan sem höfðu þessi áhrif á mig,“ segir systir Petra. Hún segir að mikið starf hafi verið í prent- smiðjunni. Þá var allt handsett, einn stafur eftir annan, sem mynduðu að lokum orð og svo setn- ingar. Þegar búið var að prenta þurfti að flokka stafina upp á nýtt fyrir næstu prentun. „Ég lærði íslenskuna smátt og smátt, og var fyrsta setningin sem ég sagði á íslensku: „Ég tala smátt og smátt.“ Krakkarnir sem sóttu leikskól- ann voru mínir góðu kennarar. Nú er það orðið þannig að þegar ég horfi á franskar myndir í sjónvarpinu finnst mér betra að lesa íslenska textann, en hlusta á talið,“ segir systir Petra. Nú hefur systir Petra sest í helgan stein. Hún er mikil handavinnukona. Síðustu ár hefur hún verið dugleg að hekla teppi, sem hún gefur Rauða krossinum. Sér um trúfræðslu á Snæfellsnesi Systir Czeslawa hefur dvalist skemmst systr- anna í Stykkishólmi. Hún kom hingað fyrir tæp- um fjórum árum. Hún er pólsk og er lærður vél- virki. Hún kom til Íslands fyrir 14 árum og starfaði fyrst í Hafnarfirði. Í Stykkishólmi sér hún um trúfræðslu kaþólskra barna á Snæfells- nesi. Hún heimsækir börnin í Grundarfirði, Ólafsvík og Rifi og undirbýr þau fyrir fermingu og fyrstu altarisgöngu. Hún sagði að hvort tveggja hefði mikla þýðingu í katólskri trú. „Ég kenni 13 börnum í vetur, og af þeim fermast 5 í vor. Ég fer í hverri viku út á Nes að hitta börn- in. Ég fer heim til þeirra og kenni þeim þar. Þetta er skemmtilegt og gefandi starf segir systir Czeslawa. Þegar systurnar voru spurðar hvort þær yrðu áfram í Stykkishólmi eftir að þær hefðu hætt rekstri spítalans sögðust þær ekki vita mikið um það. „Við lofuðum að þjóna Guði um leið og við gengum í St. Franciskusregluna og því stjórnum við ekki okkar ferðum. Við hlýðum vilja yfirpríorinnunnar í Belgíu. Ef það er henn- ar vilji að við verðum hér sættum við okkur mjög vel við það.“ „Hér vildi ég eiga heima“ Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Handavinna Systir Petra og systir Czeslawa með teppi sem systir Petra heklar og gefur Rauða krossinum. Systurnar hafa nú enn meiri tíma fyrir handavinnuna. St. Franciskussystur hætta rekstri spítalans Borgarnes | Grábrókarveita, ný vatnsveita Orkuveitu Reykjavíkur í Borgarfirði, var formlega tekin í notkun í gær. Af því tilefni var efnt til hátíðar í Borgarnesi. Þegar Orkuveitan eignaðist vatnsveiturnar í Borgarnesi og á Bifröst var það áskilið við kaupin að fyrirtækið réðist í þær end- urbætur á vatnsöflun fyrir hér- aðið, sem þegar voru áform um. Leitað var fanga í Grábrókar- hrauni og fundust prýðileg vatns- ból við boranir á árinu 2004. Nú hefur verið lokið við lagn- ingu nýrrar vatnsæðar allt frá Bifröst í Borgarnes og er hún ríf- lega 30 kílómetra löng. Á leiðinni eru nokkrar stórar sumarhúsa- byggðir auk bújarða og gefst þeim kostur á að tengjast nýju vatnsæðinni. Talsverður skortur hefur verið á góðu neysluvatni í nokkrum þessara byggða og munu byggðirnar í Munaðarnesi og Stóru Skógum t.a.m. njóta lagnarinnar. Lagt við veginn Lagning vatnsleiðslunnar hefur staðið frá árinu 2004 en leitast var við að fella framkvæmdir við lagningu hennar saman við vega- gerð. Leiðslan liggur meðfram þjóðvegi 1 um Borgarfjörð en síð- ustu misseri hafa endurbætur staðið yfir á hringveginum á hluta milli Borgarness og Bifrastar. Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Hátíð Nýrri vatnsveitu var fagnað með mikilli hátíð í Borgarnesi í gær. Vatn úr Grábrókarhrauni Skagafjörður | Staðfest hefur verið að riðuveiki er í kind á bænum Sól- heimum í Sæmundarhlíð í Skagafirði. Á bænum er rekið kúabú og þar eru einungis tuttugu kindur. Þeim verður fargað á næstunni. Bóndinn í Sólheimum, Valdimar Sigmarsson, sem býr þar ásamt fjölskyldu sinni, sagði að þetta hefði ekki teljandi áhrif á þeirra búskap en hann teldi að þetta væri í raun meira áfall fyrir ná- granna sína. Á Auðnum, næsta bæ sunnan við, væri stærsta fjárbú sveit- arinnar en í Árgerði, sem er næsti bær utan við Sólheima, hefðu verið tekin lömb í haust eftir niðurskurð árið 2004. Riðuveikin hefur verið þrálát í Sæ- mundarhlíð því alls hefur hún komið upp á fjórum bæjum og tvívegis á tveimur. Valdimar sagði að hans fé hefði ekki verið sleppt í afrétt und- anfarin ár heldur verið haft heima í girðingu á sumrin. Hann hefði því haft von um að féð myndi sleppa við riðuveikina. Riða staðfest á bæ í Sæmundarhlíð Framsóknarmenn í Norðausturkjördæmi! Kjósum sigurstranglegan lista laugardaginn 13. janúar Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra opnar kosningamiðstöð sína og tekur vel á móti gestum alla vikuna. Kosningamiðstöðin er lífleg: Laugardagur 6. janúar Kl. 16:00 – Opnun kosningamiðstöðvar Góðir gestir og óvæntar uppákomur Sunnudagur 7. janúar: Kl. 15:00 – Síðdegiskaffi með eldri borgurum Sérstakur gestur Sigríður Schiöth söngstjóri Kl. 20:00 – Gamanmál, Jón Kristjánsson, Alþingismaður Mánudagur 8. janúar Kl. 12:00 – Orkuháskóli á Akureyri? Þórleifur Stefán Björnsson, Háskólanum á Akureyri Kl. 17:00 – Straumar og stefnur stjórnmálanna Birgir Guðmundsson stjórnmálafræðingur Kl. 20:00 – Fíkniefnaneysla á Akureyri Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn Þriðjudagur 9. janúar Kl. 12:00 – Hlýnun loftslags, áhrif á skipaferðir Þór Jakobsson veðurfræðingur Kl. 17:00 – Samstarf í ferðamálum á Norðausturlandi. Kjartan Lárusson, Markaðsskrifstofa ferðamála á Norðurlandi Kl. 20:00 – Staða jafnréttismála Margrét María Sigurðardóttir, Jafnréttisstofu Miðvikudagur 10. janúar Kl. 12:00 – Auðlindir Þingeyjarsýslu Bjarni Gautason forstöðumaður ÍSOR Kl. 17:00 – Framtíð íslensku krónunnar Stefán Gunnarsson frkvstj. Íslenskra verðbréfa Kl. 20:00 – Vetni og vistvænt eldsneyti Ágústa S. Loftsdóttir, Orkustofnun Fimmtudagur 11. janúar Kl. 12:00 – Uppbygging reiðhallar á Akureyri Sigfús Helgason hestamaður Kl. 17:00 – Hraun í Öxnadal – 200 ár frá fæðingu Jónasar. Tryggvi Gíslason fyrrv. skólameistari Kl. 20:00 – Petra Björk Pálsdóttir söngstjóri og fleiri góðir gestir Föstudagur 12. janúar Kl. 12:00 – Álver á Norðurlandi? Erna Indriðadóttir upplýsingastjóri ALCOA Kl. 20:00 – Opið hús stuðningsmanna Kosningamiðstöðin Hafnarstræti 108 (Bókabúð Jónasar), Akureyri, sími 867 8703. Opið frá kl. 12:00 alla daga til 13. janúar. Allir hjartanlega velkomnir. Kaffi á könnunni og súpa í hádeginu. Stuðningsmenn Valgerðar Sverrisdóttur Forysta og frumkvæði – fyrir kjördæmið allt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.