Morgunblaðið - 06.01.2007, Síða 24
|laugardagur|6. 1. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Helga Bergsteinsdóttir og Guð-
finna Sigurðardóttir Hansen,
hafa vakið athygli í Dubai fyrir
vinsæl heilsunámskeið. » 28
daglegt líf
Um helgina tekur fólk niður
jólaskraut og seríur og losar sig
við jólatréð sé það ekki endur-
nýtanlegt að ári. » 29
jólatré
Kíkt var í heimsókn til sex
manna fjölskyldu sem býr í litlu,
gömlu húsi í Vesturbænum sem
er frá árinu 1890. » 30
lifun
Talið er að um fimmtíu hús eða
íbúðir í Stykkishólmi séu í eigu
fólks sem á lögheimili annars
staðar. »29
bæjarlíf
Nú er rétta tækifærið til að
endurnýja úrvalið í klæða-
skápnum því á útsölunum má
finna ýmislegt bitastætt. » 26
tíska
Sólóklúbburinn varð óform-lega til skömmu fyrir jólvegna fjölda fyrirspurna,sem bárust Önnu Magneu
Harðardóttur eftir að hún hrinti
þessari hugmynd sinni í fram-
kvæmd.
„Ég stofnaði bloggsíðu um þessa
hugmynd mína og fékk haug af pósti
frá áhugasömu fólki. Í kjölfarið boð-
aði ég allt þetta fólk á kaffihús þar
sem þessi fyrsti kjarni sást og
kynntist, en í klúbbnum erum við öll
undir okkar réttu nöfnum og ekkert
pukur eða leynimakk í gangi. Sífellt
fleiri bætast við og er félagið nú
komið með heimasíðu, sem hefur að
geyma m.a. spjallrás og það sem er
efst á baugi hjá okkur hverju sinni.
Margir eru einmana
Hópurinn er virkur í lifandi spjalli
dags daglega, einkum á kvöldin þeg-
ar börnin eru sofnuð. Þá hittist hóp-
urinn gjarnan á spjallrásinni og ræð-
ir ýmis mál, sem er mjög skemmti-
legt. Það kom t.d. vel í ljós yfir
hátíðarnar hversu mikil þörf er fyrir
slíkt. Þetta er mjög skemmtilegt og
ljóst að þörf er fyrir svona samfélag
því margir eru einmana og vilja efla
félagstengslin þegar stund gefst frá
amstri dagsins. Klúbburinn er eink-
um fyrir einhleypt fólk af báðum
kynjum á aldrinum 30 til 50 ára sem
vantar einhleypa vini til að gera eitt-
hvað skemmtilegt með. Nú stendur
til að halda fyrsta aðalfund félagsins
og stofna stjórn og hugmyndir eru
svo uppi um alls konar félagsstarf-
semi í stærri eða minni hópum. Okk-
ur langar til dæmis að stofna göngu-
klúbb, sundklúbb, leikhúsklúbb,
bíóklúbb, matarklúbb, leshring og
ferðaklúbb svo eitthvað sé nefnt. Á
vefnum okkar er svo þráður fyrir
skyndihugdettur og gsm-númera-
listi þannig að ef mig langar í bíó get
ég sent inn fyrirspurn og séð hvort
einhver vill koma með, frekar en að
fara ein,“ segir Anna Magnea. Gera
má þó ráð fyrir að kaffihúsafund-
irnir verði vikulega því þótt félagið
sé öllum einhleypingum opið er farið
fram á að verðandi félagsmenn sæki
kaffihúsafund í eigin persónu áður
en fullur aðgangur er veittur að
Sólóklúbbnum.
„Þetta er áhugaverður og góður
hópur fólks sem er hér í leit að
skemmtilegum félagsskap í fullri al-
vöru. Við komum fram undir fullu
nafni og í eigin persónu, en viljum
hvorki pukur né leynimakk, eins og
t.d. tíðkast á einkamál.is.“
Karlar efla síður félagsnetið
Að sögn Önnu Magneu, sem er
kennari og þriggja barna einstæð
móðir, var hugmyndin fyrst sú að
hafa klúbbinn eingöngu fyrir konur,
en þar sem karlar sýndu meiri
áhuga féll hún algjörlega frá því.
„Þeir voru hins vegar óduglegri við
að mæta á fyrstu fundina en kon-
urnar, en eru nú allir að koma til.
Karlmenn eru einfaldlega meira ein-
mana en við konurnar og eru síður
að rækta sín félagslegu tengsl. Þessi
félagsskapur er kominn á gott flug
og lofar bara góðu um framhaldið
enda er þetta allt mjög heilbrigt og
elskulegt fólk, sem vill kynnast fólki
á heilbrigðum forsendum. Ég hef til
dæmis ekki rekist á einhleypan karl-
mann í fjórtán ár enda vinn ég á
kvennavinnustað og hef ekki áhuga
á að vera á öldurhúsum borg-
arinnar,“ segir Anna Magnea og
hlær. „Það eru því einkum eigin-
menn vinkvennanna sem maður hitt-
ir,“ bætir hún við.
Vilja hvorki pukur né leynimakk
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framtakssemi Nú stendur til að halda fyrsta aðalfund félagsins og stofna stjórn og hugmyndir eru svo uppi um
alls konar félagsstarfsemi í stærri eða minni hópum segir aðalhvatakonan Anna Magnea Harðardóttir.
Sólóklúbburinn er heil-
brigður félagsskapur fyr-
ir einhleypa, sem vilja
stækka félagahóp sinn og
gera eitthvað skemmti-
legt í frístundunum með
fólki í svipaðri stöðu,“
segir Anna Magnea
Harðardóttir, aðal-
hvatakona að stofnun
Sólóklúbbsins svokallaða.
Klúbburinn er
einkum fyrir ein-
hleypt fólk af
báðum kynjum á
aldrinum 30 til 50
ára sem vantar
einhleypa vini til
að gera eitthvað
skemmtilegt
með.
FINNAR sem halda gæludýr eru
heilsuveilli en aðrir, samkvæmt
nýrri rannsókn, þvert á það sem
áður var talið.
Lengi hefur gæludýrahald verið
talið af hinu góða fyrir heilsuna
enda er ekki óvarlegt að ætla að
þeir sem eigi hund hreyfi sig
meira en aðrir. Aðrir benda á já-
kvæð áhrif gæludýra fyrir and-
lega heilsu.
Þessu er þó allt öðruvísi farið ef
marka má niðurstöður finnskra
vísindamanna við háskólann í
Turku sem forskning.no greinir
frá. Þær sýna fram á að Finnar
sem eiga gæludýr glíma við fleiri
heilsuvandamál en aðrir.
Niðurstöðurnar eru byggðar á
upplýsingum úr umfangsmikilli
rannsókn á heilsu og lífsgæðum
finnsku þjóðarinnar. Af þeim var
hægt að ráða að samhengi er á
milli gæludýrahalds og lítilla
tekna sem og lágrar stéttarstöðu.
Gæludýr eru sérstaklega vinsæl
meðal Finna sem starfa við land-
búnað því í þeim hópi áttu fjórir
af hverjum fimm gæludýr, á með-
an gæludýraeignin var 41% í öðr-
um starfshópum. Þá reykja Finn-
ar sem eiga gæludýr meira og
hreyfa sig minna en aðrir. Af
þeim sem héldu gæludýr áttu 58%
hund og þeir hreyfðu sig meira en
aðrir gæludýraeigendur, en þó
ekki nægilega til að það hefði
áhrif á líkamsþyngdarstuðul
þeirra.
Gæludýraeigendur áttu oftar við
heilsuvandamál að stríða, s.s. háan
blóðþrýsting og sjúkdóma honum
tengda, sykursýki, magasár, þung-
lyndi og kvíða.
Munurinn á gæludýraeigendum
og öðrum er skýrður með fé-
lagslegum þáttum, s.s. að þeir sem
hafi helst tíma til að hugsa um
gæludýr séu komnir af léttasta
skeiði eða séu ekki í „fínu“ starfi
sem krefjist þess að þeir séu mik-
ið að heiman.
Finni fólk fyrir slappleika og
heilsubresti er því ósennilegt að
hann megi rekja til kattarins eða
hundsins. Hins vegar virðist goð-
sögnin um heilbrigði og frískleika
gæludýraeigenda hafa fengið á sig
brotsjó.
Gæludýraeigendur
veikari en aðrir
Slappur? Köttur og hvítar mýs virðast ekki valda Greg Pike heilsutjóni.
Reuters
gæludýr