Morgunblaðið - 06.01.2007, Side 26
tíska
26 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Útsölur tískuverslana eru víðast hvar komnar ífullan gang og um leið runnið upp tækifæri tilað endurnýja úrvalið í klæðaskápnum að ein-hverju marki. Áður en ráðist er til atlögu við
útsölurnar er þó klókt að undirbúa sig gaumgæfilega svo
árangurinn verði sem mestur og bestur eins og breska
blaðið Sunday Times bendir á.
Fyrsta skrefið í þeim efnum er án efa að kanna hvaða
flíkur mann vantar. Gott er að temja sér að henda einni
flík út úr skápnum fyrir hverja nýja sem sett er í hann.
Þetta kemur í veg fyrir plássleysi í skápunum og gerir
eigandann án efa gagnrýnni á það sem hann kaupir. Ef
svörtu buxurnar sem þú ert að máta eru ekki betri en
þær sem hanga í skápnum heima, hví þá í ósköpunum að
kaupa þær?
Farið fyrst í dýrustu búðina
Eftir að búið er að fara í gegnum fataskápinn er næsta
skref að búa til lista yfir það sem þig vantar eða langar í.
Þannig verða innkaupin markvissari. Þá er ráð að velja
úr útsölur í nokkrum uppáhaldsverslunum í stað þess að
reyna að komast yfir alla borgina á einum degi. Að því
loknu er lagt af stað og farið fyrst í þá verslun sem er
með dýrasta fatnaðinn af þeim sem þú valdir úr. Þar eru
mestu líkurnar á að spara mestan pening, einfaldlega af
því að á bak við hvert prósentustig sem gefið er í afslátt
eru hærri fjárhæðir en í ódýrari verslunum.
Fylgdu eigin hugboði
Þvert á það sem margir halda getur borgað sig að
kíkja í búðir síðustu dagar útsölunnar enda er þá allra
mesti afslátturinn í boði. Vissulega er úrvalið minna en
þeim mun einbeittari verður maður í innkaupunum.
Kannski er fjólubláa peysan með gulu bryddingunum
fullkomin fyrir þig og þinn smekk á meðan sterkir lit-
irnir fæla flesta aðra frá?
Loks má aldrei vanmeta gildi góðra grunnflíka sem
eru úr gæðaefnum og með klæðileg snið. Þá er mikilvægt
að fylgja eigin hugboði í stað þess að hlusta of mikið á
vini eða tískurit. Ekki kaupa eitthvað sem þú fílar ekki
alveg og á sama hátt ættir þú ekki að hika ef þú kolfellur
fyrir einhverri flík.
Undirbúum
útsöluinnkaupin
Kápa Falleg og klassísk yfirhöfn
stendur alltaf fyrir sínu. Sand.
Fullt verð 39.990 kr. Útsöluverð
23.994 kr.
40% afsláttur
Útivistarfatnaður Vindþétt peysa
kemur sér vel á Íslandi allt árið um
kring. Útilíf.
Fullt verð 7.990 kr. Útsöluverð
3.995 kr.
40% afsláttur.
Undirföt Falleg nærklæði eru jafn-
an á þolanlegra verði á útsölum.
Knickerbox.
Nærbuxur: Fullt verð 1.999 kr. Út-
söluverð 1.399 kr.
Toppur: Fullt verð 2.899 kr. Út-
söluverð 2.029 kr.
Afsláttur 30%
Morgunblaðið/Ómar
Grunnflíkur Gallabuxur með góðu
sniði eru nauðsynlegar í klæða-
skápnum. Levis búðin.
Fullt verð 10.990 kr. Útsöluverð
6.594 kr.
40% afsláttur
Málmlitað Belti með
gull- og silfuráferð
voru áberandi þegar
vortískan var kynnt
í New York.
Reuters
Skæði Fylltu hæl-
arnir virðast ætla að
halda velli í vor eins
og sjá mátti á tísku-
sýningum á Spáni í
haust.
Hvað verður áfram í tísku?
Fylgihlutir úr málmi og með silfur-
áferð. Þeir verða mikið í tísku á
komandi tímabili og eru frábærir
með þeim flíkum sem þú átt fyrir í
skápnum.
Fylltir hælar. Þeir verða áfram í
tísku næsta vor.
Stutt pils. Pínupilsin halda áfram
þótt hnésíð pils standi alltaf fyrir
sínu.
Hvað verður ekki í tísku?
Níðþröngar buxur – þær hafa
runnið sitt skeið
Fatnaður með lágri mittislínu.
Lágir, mjóir hælar (kisuhælar).
Hvað er alltaf gott að eiga?
Kápur. Oft er hægt að gera góð
kaup á yfirhöfnum sem duga langt
fram á íslenska sumarið.
Belti, enda geta þau algerlega
breytt útliti fatnaðarins sem er til
fyrir.
Undirföt. Oft er hægt að næla sér í
falleg lúxusnærklæði á þolanlegu
verði á útsölum.
Dýramynstur. Þau eru ekki hluti af
vorlínunni en koma alltaf aftur og
aftur svo það er ekki vitlaust að
eiga þau í skápnum.
Stígvél.
Grunnfatnað, s.s. stuttermaboli,
buxur, svarta og einlita boli og
fleira í þeim dúr.
Útivistarfatnað, s.s. góðar göngu-
buxur, flíspeysur o.þ.h. sem nýtist í
íslenskri veðráttu allt árið um
kring.
Leikfimisfatnað. Hann er oft að
finna á góðu verði á útsölum.
Flíkur til að fylgjast með
Stutt Pínupilsin munu halda velli í
vor. Retro.
Fullt verð 5.990 kr. Útsöluverð
3.594 kr.
Afsláttur 40%
Vortískan Stuttu pilsin
sáust títt á tískupöllunum í
Bandaríkjunum í haust
þegar vortískan var kynnt.
Skór Fylltir hælar verða áfram í tísku
næsta sumar. GS skór.
Fullt verð 8.990 kr. Útsöluverð 2.990 kr.
67% afsláttur
Silfur Fylgihlutir með málmáferð
verða áfram í tísku. Friis & Company.
Taska: Fullt verð 4.990 kr. Útsölu-
verð 2.994 kr.
Belti: Fullt verð 4.490 kr.
Útsöluverð 2.694 kr.
Afsláttur 40%