Morgunblaðið - 06.01.2007, Síða 27

Morgunblaðið - 06.01.2007, Síða 27
neytendur MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 27 SÍÐASTI dagur jóla er runninn upp og hátíðirnar að baki. Eitt af árviss- um verkum á nýju ári er að koma jólaskrauti og seríum fyrir uppi á háalofti eða niðri í geymslu og losa sig við jólatréð, sé það ekki endur- nýtanlegt að ári. „Flestir setja trén út eftir þrett- ándann og við miðum við að fólk dragi þau út fyrir lóðarmörk svo að okkar menn sjái þau vel,“ segir Ísak Möller, rekstrarstjóri hjá Hverfa- stöðinni í Breiðholti, en starfsmenn á vegum borgarinnar munu aka götu úr götu og hirða upp jólatré borg- arbúa dagana 8.–12. janúar næst- komandi. Með seríum, skrauti og fæti Hann segir undirtektir við þessari þjónustu hafa verið mjög góðar und- anfarin ár. „Yfirleitt hefur þetta gengið vel en vissulega hefur komið fyrir að við höfum séð trén liggjandi inni á lóðum fram á vor eða þar til fólk fer að taka til í görðunum hjá sér. Sem betur fer er þó ekki mikið um það.“ Jólatréð sjálft er þó ekki það eina sem villist upp í kerrur borgarstarfsmanna þessa daga. „Nei nei, það kemur fyrir að trén komi með skrautinu, seríunni, fæt- inum og öllu,“ segir Ísak. Hann bendir fólki á að binda svo um hnúta að trén fari ekki á flug enda geti fjúkandi jólatré auðveld- lega valdið skemmdum. „Ég á nú von á að margir nýti helgina til þess að losa sig við trén. Sennilega verður töluvert mikið að gera hjá okkur á mánudaginn við þetta. Við förum svo með trén í Gámaþjónustuna þar sem þau eru kurluð niður og nýtt í moltu eða annan jarðveg,“ segir hann. Þeir sem ekki setja trén út í síð- asta lagi á föstudag þurfa sjálfir að sjá um að koma þeim á gámastöðvar Sorpu. Morgunblaðið/Eggert Jólin að baki Best er að koma jólatrjánum fyrir utan lóðarmarka og þann- ig að þau sjáist vel og fjúki ekki þó að það hvessi. Jólatrén þurfa að fara út í næstu viku MARGT er það sem valdið getur hugarangri hjá nútímafólki og sumt af því er hégómlegra en annað. Ein af nýjustu sálarflækjum Breta felst t.d. í því að verða sér mögulega til skammar á fínum veitingastöðum, samkvæmt því sem segir á vefmiðli Guardian þar sem vitnað er í nýlega rannsókn. Óskapleg skömm virðist fylgja því að vera ekki nógu vel að sér í fínum mat og vínum og lætur fólk það hik- laust aftra sér frá því að njóta þess sem boðið er upp á. Jafnvel sleppir fólk því að panta girnilega rétti á matseðlinum af ótta við að bera nafn- ið ekki rétt fram. Eins telja Bretar sig ekki vera þannig gerða að þeir kvarti og 63% þeirra sem þátt tóku í rannsókninni sögðust frekar þegja ef matur sem pantaður hefði verið á veitingastað væri á einhvern hátt ófullnægjandi, heldur en senda hann til baka með tilheyrandi athygli. Meirihluti þeirra sem taka reglulega þátt í s.k. viðskiptamáltíðum segist velja sér rétti af matseðlinum með það í huga að þóknast eða ganga í augun á öðrum, frekar en að velja það sem þá langar raunverulega til að borða. Sumir segja það ekki koma á óvart að hjá Bretum fylgi sálarflækjur því að fara út að borða, því þeir séu bæði hæverskir og meðvitaðir um sjálfa sig. En vissulega er það dapurlegt að fólk láti nautnina, sem góður matur og borðhald ætti að vera, snúast upp í einhvers konar yfirheyrslu eða próf. Skömmin skemmir unaðinn Fáðu úrslitin send í símann þinn Viltu komast í form? Fagleg heilsurækt Frábær a›sta›a Frábær lífsstíls námskei› Frábær sta›setning Nánari uppl‡singar um fleiri námskei› og stundaskrá fyrir vori› 2007 á www.hreyfigreining.is Höf›abakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is Haukur Gu›mundsson, lei›beinandi Arna Hrönn Aradóttir, Rope-Yoga kennari Gígja fiór›ardóttir, sjúkrafljálfari BSc Sandra Dögg Árnadóttir, sjúkrafljálfari BSc Harpa Helgadóttir, sjúkrafljálfari BSc, MTc, MHSc Talya Freeman, Jógakennari Joga flæ›i N‡ námskei› eru a› hefjast Brei›u bökin Í formi til framtí›ar Bókanir eru hafnar í flessi vinsælu a›halds- og lífsstílsnámskei› fyrir konur. 8 e›a 16 vikur. Rope Joga hjá Örnu Ara. Námskei› eru a› hefjast. Skráning í síma 895 7275. www.arnaara.com Joga Flæ›i Talya Freeman heldur flessi Joga námskei› flar sem öndun og hreyfing flæ›a saman. Námskei› hefjast á helgarnámskei›i flann 15. janúar. Betri lí›an í hálsi, her›um og baki. Skráning í síma: 897 2896. www.bakleikfimi.is Einka- fljálfun Bumban burt Loku› námskei› fyrir karla sem vilja ná árangri. 8 vikna námskei›. Mó›ir og barn Bókanir eru hafnar í fimm vikna námskei› Söndru Daggar Árnadóttur. Námskei›i› byrjar 9. jan. Líkamsrækt Frábær a›sta›a til a› æfa á eigin vegum á flægi- legum sta›. Opnir tímar. Stundaskrá: www.hreyfigreining.is Fagleg fljónusta, markviss og örugg einkafljálfun hjá sjúkrafljálfurum. S J Ú K R A fi J Á L F U N O G L Í K A M S R Æ K T

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.