Morgunblaðið - 06.01.2007, Page 29
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 29
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Útikerti eru oft staðsett
þannig að hætta er á
að yngsta kynslóðin
rekist í þau og að
yfirhafnir fullorðinna,
sérstaklega kápur og
frakkar fullorðinna
sláist í loga þeirra
Munið að
slökkva á
kertunum
i
Frönskunámskeið
hefjast 15. janúar
Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna.
Taltímar og einkatímar.
Viðskiptafranska og lagafranska.
Námskeið fyrir börn.
Kennum í fyrirtækjum.
Tryggvagata 8,
101 Reykjavík,
fax 562 3820.
Veffang: www.af.is
Netfang: alliance@af.is
Innritun í síma
552 3870
8.-13. janúar
Nú árið er liðið. Við tökum á móti
nýju ári með bjartsýni í huga og
um leið þökkum við fyrir góðar
minningar sem við eigum frá síð-
asta ári.
Jólahátíðin var friðsöm í Hólm-
inum eins og vera ber. Margir fara
til kirkju um jól eða áramót. Við
áttum kost á að sækja messu í
þremur kirkjum, í Stykkishólms-
kirkju, hjá systrum í katólsku kirkj-
unni og hjá Hvítasunnusöfnuðinum.
Lítið var um ferðamenn í Hólm-
inum um áramót. Það stafar m.a. af
því að hótelið er lokað yfir vetr-
artímann. Forsvarsmenn þess segja
að erfitt reynist að laða erlenda
ferðamenn út á landsbyggðina yfir
dimmasta skammdegið. Ekki er
hægt að treysta á að norðurljósin
verði til staðar fyrir gesti þegar á
þarf að halda. Þetta er annar vet-
urinn sem hótelið er lokað, Það er
slæmt en ekkert við því að segja ef
rekstur þess stendur ekki undir
kostnaði þennan árstímann.
Yngri kynslóðin fagnar nýju ári.
Nú um helgina flytja leikskólabörn
í glænýjan leikskóla. Leikskólinn
hefur verið til húsa St. Franciskus-
spítala frá upphafi. Það húsnæði
þótti ekki lengur nógu hentugt fyrir
starfsemi leikskólans og bæj-
arfélagið hóf byggingu nýs skóla
fyrir einu og hálfu ári. Nú er hann
tilbúinn og eru börnum og starfs-
fólki færðar hamingjuóskir með
nýja skólann.
Ekki er enn ákveðið hvað gert
verður við húsnæðið sem leikskól-
inn hafði til afnota, en það verður
vonandi notað fyrir aukna starfsemi
St. Franciskusspítala. Starfsemi
bakdeildar sjúkrahússins og sjúkra-
þjálfun henni tengd hefur vaxið á
síðustu árum því gott orð hefur far-
ið af þeirri starfsemi.
Íbúum Stykkishólms fækkaði á síð-
asta ári. Hinn 1. desember voru
skráðir hér 1.149 íbúar sem er
fækkun um 16 íbúa frá árinu áður.
Það þykja ekki góðar fréttir. Þar
sem húsbyggingar eru með mesta
móti í bænum koma þessar fréttir
frekar á óvart. Á það er bent að
áhugi höfuðborgarbúa fyrir að eign-
ast hús í Stykkishólmi er mikill og
því ekki óeðlilegt að það þurfi að
byggja ný hús til að vega þar á
móti. Talið er að um 50 hús eða
íbúðir í Stykkishólmi séu í eigu
fólks sem á lögheimili annars stað-
ar. Það er orðin nokkuð há pró-
senta af húsum í bæjarfélaginu.
Atvinnulífið er undirstaða hvers
bæjarfélagsins. Með fjölbreytni í
störfum er byggt á traustari
grunni. Það liggur fyrir að ný störf
verða til í Stykkishólmi á þessu ári.
Stykkishólmsbær og Ungmenna-
félag Íslands hafa auglýst starf
æskulýðsfulltrúa og svæðisstjóra og
verður ráðið í þá stöðu á fyrri hluta
árs. Í vikunni auglýsti Fiskistofa
eftir þremur starfsmönnum við
útibú Fiskistofu sem tekur til starfa
1. apríl nk.
Árni Mathiesen, þáverandi sjáv-
arútvegsráðherra, ákvað árið 2005
að færa hluta af starfsemi Fiski-
stofu frá höfuðborgarsvæðinu til
landsbyggðarinnar. Meðal þess sem
ákveðið var að á árinu 2007 yrði
stofnað hér útibú og á árinu 2008
yrðu starfsmönnum fjölgað um
þrjá.
STYKKISHÓLMUR
Gunnlaugur Árnason fréttaritari
Morgunblaðið/ Gunnlaugur Árnason
Flutningar Leikskólabörnin á
Stykkishólmi munu flytja í nýtt hús-
næði nú um helgina.
Hjálmar Freysteinsson velti þvífyrir sér þegar hann vaknaði
í gærmorgun hvort liðið skáld væri
farið að yrkja í gegnum sig eða
hvort hann væri bara að verða
ruglaður. Ástæðan var sú að hann
vaknaði með þessa undarlegu vísu í
höfðinu:
Kalli litli könguló
kominn er á nýja skó
og heldur nú í hættuför,
en hann þarf reyndar fleiri pör.
Hallmundi Kristinssyni fannst
þetta athyglisvert og orti:
Ljóðagerð manna var löngum sem nú
leikur að orðum.
Kannski ertu ruglaður. Kannski varst þú
könguló forðum?
Í gær birtist vísa ort af
Valdemar Guðmundssyni
yfirfangaverði á Skólavörðustíg 9
árið 1973. Annar fangavörður,
Gunnar Kristinsson frá Múla,
varðstjóri í tugthúsinu,
orti margt. En þegar hann hafði
verið fangavörður í nokkur ár orti
Kristján Schram, vinur hans:
Tugthúsið þig tók í sátt,
týndan son mun geyma.
Þú hefur, vinur, aldrei átt
annars staðar heima.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af fanga-
verði og
könguló
ÞAÐ að fara öfugum megin fram úr
rúminu getur haft áhrif fram eftir
degi og hefur m.a. áhrif á árangur
fólks í vinnu. Þetta kemur fram í
nýrri rannsókn sem gerð var við
Wharton-háskólann í Pennsylvaníu í
Bandaríkjunum. Þá getur góð morg-
unstund aftur á móti haft jákvæð
áhrif á frammistöðu fólks í vinnu.
Nancy Rothbard, prófessor við
háskólann, segir það vera mikilvæg-
ustu niðurstöðu rannsóknarinnar að
það skap sem fylgi mönnum í vinnu á
morgnana hafi meiri áhrif en það
sem gerist á sjálfum vinnustaðnum.
Rothbard segir þó að vinnuveit-
endur veiti þessu almennt ekki at-
hygli en að mögulegt sé að ná betri
árangri og framleiðni með því að
hjálpa starfsmönnum að ná tökum á
einkalífinu.
heilsa
Morgun-
úrillska slæm
fyrir vinnuna
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík