Morgunblaðið - 06.01.2007, Page 31

Morgunblaðið - 06.01.2007, Page 31
um gert þetta mestallt sjálf. Mað- urinn minn er mjög handlaginn og hann sérsmíðaði líka allar hurðir hér inni, því þær sem voru fyrir voru svo ljótar. Hann smíðaði líka eldhúsinnréttinguna, skipti um alla glugga, pússaði upp gólffjalirnar og setti múrhúð utan á húsið. Hér voru allir veggir klæddir með spónaplötum, sem við rifum burt og klæddum í staðinn með panil sem við máluðum. Maðurinn minn hefur líka smíðað allar gardínustangir, handföng og fleira. Hann hlóð líka vegginn sem er hér fyrir utan. Við bjuggum í húsinu á meðan við vor- um að gera það upp og það kostaði nokkur geðvonskuköst á milli bjart- sýniskastanna, enda hefur þetta tekið tvö og hálft ár,“ segir Kristín sem hefur ekki síður lagt sitt af mörkum, hún lagði til dæmis allar flísar, bæði á baðherberginu og í eldhúsinu. „Mér finnst svo leiðinlegt hversu mörg gömul hús eru rifin hér í borginni og í staðinn byggð fjöl- býlishús á lóðunum. Mér finnst það ekki góð þróun. Í okkur hringdi til dæmis maður sem vildi kaupa húsið okkar og hann var ekkert að leyna því að hann ætlaði að rífa það til að byggja stærra.“ Stofa Heimasætan Belinda situr uppi á borði sem áður var forn kista. Bókaskápinn keyptu þau í Winchester. Barnaherbergi Á milli gömlu rúmanna systranna stendur tvöhundruð ára náttborð sem fylgdi með hjónarúmi mömmu og pabba. Brúðargjöf Leirkerasmiðurinn og tengdafaðir Kristínar færði henni þenn- an disk á brúðkaupsdegi hennar og hann stendur á heiðursstað í eldhúsinu. khk@mbl.is Breskir Slökkvarar úr messing. Einn á mann Skápar fyrir húfur. „Gólfin hérna hallast öll töluvert en við erum orðin vön því að hlutir rúlli sjálf- krafa eftir þeim.“ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 31 Upplifðu enska boltann á mbl.is! Vertu á tánum og fylgstu með enska boltanum á Meðal efnis á vefnum er: • Daglegar fréttir af enska boltanum • Getraunaleikurinn „Skjóttu á úrslitin“ með veglegum vinningum • Staðan í deildinni og úrslit leikja • Boltablogg • Yfirlit yfir næstu leiki • Tenglar á vefsíður stuðningsmannaklúbba H ví ta h ú si ð / SÍ A Taktu þátt í getraunaleiknum „Skjóttu á úrslitin“ og þú gætir verið á leiðinni á leik í Ensku úrvalsdeildinni í boði Iceland Express. Verður þú stjóri mánaðarins? Í hverjum mánuði fær heppinn giskari borðspilið um enska boltann, Stjórann, í verðlaun fyrir þátttökuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.