Morgunblaðið - 06.01.2007, Page 32

Morgunblaðið - 06.01.2007, Page 32
32 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. TRÉ Í ÞÁGU HEILSU OG UMHVERFIS Jón Geir Pétursson, skógfræðing-ur hjá Skógræktarfélagi Ís-lands, hefur vakið athygli á því að skógrækt kunni að koma að gagni í baráttunni við þann skaðvald, sem er svifryk í höfuðborginni. Mikil notkun nagladekkja ræður mestu um svif- rykið, þótt aðrar orsakir komi þar einnig við sögu. Svifrykið getur haft skaðleg áhrif á heilsu fólks, ekki sízt þeirra sem eru með öndunarfæra- og lungnasjúkdóma. Í samtali við Morgunblaðið í gær bendir Jón Pétur á að ein leið til að draga úr rykinu sé að gróðursetja tré við umferðargötur. Tré geti tekið upp svifryksagnir, auk þess sem þær setj- ist á tré og lauf. Öll tré koma þannig að gagni, vilji menn draga úr svif- ryksmengun, en sígræn barrtré koma að beztum notum, eðli málsins samkvæmt þar sem þau eru græn á veturna þegar svifrykið er mest. „Þau virka eins og greiður, ekki síst þegar þau standa nærri umferð- aræðunum, og geta veitt í sig óhemju- mikið af svifryki,“ segir Jón Pétur. Vakin var athygli á skoðunum Jóns Péturs á vef umhverfissviðs Reykja- víkurborgar. Auðvitað stendur það engum nær en borginni og öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæð- inu að fara eftir þessum ábendingum. Raunar má undrum sæta að ekki hafi fyrir löngu verið mörkuð sú stefna að planta trjám meðfram helztu umferð- argötum, þótt ekki sé nema vegna þess að það myndi mjög fegra ásýnd borgarinnar. Í mörgum erlendum borgum er það reglan að planta trjám meðfram fjölförnum götum. Sama regla ætti auðvitað að eiga við hér, enda víða berangurslegt við helztu götur borgarinnar. Það er ekki erfitt að rækta mynd- arleg tré meðfram umferðargötum. Það sýnir sú takmarkaða reynsla, sem er af slíku á höfuðborgarsvæð- inu, t.d. á milli Miklubrautar og Skaftahlíðar, meðfram neðri hluta Kringlumýrarbrautar, meðfram Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ og víð- ar. Við Skaftahlíðina og víðar gegnir trjágróðurinn líka hlutverki hljóð- manar og er mun fegurri en ýmsar aðrar tilraunir, hannaðar af sérfræð- ingum, sem gerðar hafa verið til að koma í veg fyrir að umferðarhávaði berist inn í íbúðarhverfi. Jón Geir Pétursson bendir á að trjágróðurinn myndi líka skjól og komi þannig í veg fyrir að svifrykið þyrlist upp – fyrir utan annað gagn, sem hafa má af skjóli í þessu vindblásna landi. En auðvitað tekur tíma að rækta upp slíkan gróðurvegg. Skógrækt hefur áhrif á umhverfi okkar, heilsu og vellíðan í svo marg- víslegum skilningi að full ástæða er til þess að sveitarfélögin stórefli hana á þeim svæðum, sem þau ráða yfir. Rökin fyrir því að gróðursetja meira meðfram umferðargötum eru sterk og ástæða til að hlusta á þau. BAKSLAG Í MÁLUM BASKA Hvað er til bragðs þegar eiga þarfvið öfl sem beita óboðlegum að- ferðum? Á að semja eða sýna hörku? Á að láta undan þunga hryðjuverka? Barátta ETA-hreyfingarinnar fyr- ir sjálfstæði Baska á Norður-Spáni hefur nú staðið í um fjóra áratugi og kostað um 850 manns lífið. Skömmu eftir að José Luis Rodríguez Zapa- tero komst til valda á Spáni kviknuðu vonir um að hreyfing myndi komast á málefni Baska. Ákvörðun hans um að gefa færi á viðræðum við ETA var þó einnig gagnrýnd harðlega, einkum á hægri vængnum. Ekki væri hægt að verja að taka upp viðræður við hryðjuverkamenn og morðingja. Í mars á liðnu ári lýsti ETA yfir vopnahléi ótímabundið og í sumar sagði Zapatero að hann teldi að skýrt hefði komið fram að ETA hefði hafn- að ofbeldi í sjálfstæðisbaráttunni og því yrðu hafnar hreyfingar. Sprengjutilræði ETA í Madríd á næstsíðasta degi ársins 2006 var bak- slag í þessar umleitanir. 19 manns særðust í sprengingunni og tveir menn létu lífið, báðir frá Ekvador. Zapatero lýsti þegar yfir því að þreif- ingum um viðræður yrði slegið á frest og var harðlega gagnrýndur fyrir að ganga ekki lengra og slíta þeim ein- faldlega. Skömmu síðar lýsti innan- ríkisráðherra Spánar, Alfredo Perez Rubalcaba, yfir því að friðarfrum- kvæðið hefði verið að engu gert, þótt Batasuna, hinn pólitíski armur ETA, héldi því fram að enn væri líf í því. Í fyrradag fannst síðan bíll hlaðinn sprengiefni í Baskahéraði, nokkrum stundum eftir að Zapatero kom fram og hét því að stöðva blóðsúthelling- arnar: „Ég er staðráðnari í því en nokkru sinni fyrr að beina kröftum mínum að því að binda enda á ofbeld- ið og ná friði,“ sagði hann og bætti við að allir borgarar ættu „rétt á lífi án sprengna og ofbeldis“. Enginn hefur lýst á hendur sér ábyrgð á sprengjutilræðinu í Madríd. Talið er að þar hafi verið að verki ein- angrað brot úr ETA, sem hafi gengið í berhögg við forustu samtakanna til að grafa undan friðarumleitunum. Þá væri í raun komin upp svipuð staða og á Írlandi þar sem hinn pólitíski arm- ur, Sinn Fein, hafði ekki bolmagn til að halda aftur af vopnaða arminum, Írska lýðveldishernum, og brotum innan hans. Þá er spurning hvort sprengjufundurinn í fyrradag sýni að andstæðingar friðarferlisins innan ETA séu ekki svo einangraðir þegar allt kemur til alls. Það er hins vegar ljóst að aðferðir ETA njóta ekki mikillar hylli meðal Baska. Meirihluti þeirra er fylgjandi sjálfstæði, en hafnar leið ofbeldis og morða. Sú stefna Zapateros að stilla til friðar og fá ETA til að leggja niður vopn hefur notið fylgis meirihluta Spánverja. Staða forsætisráðherrans er erfið, en það hlýtur að vera mark- mið hans að blóðsúthellingunum linni. Það getur kostað málamiðlanir, sem erfitt verður að kyngja, en þær fórnir yrðu þess virði ef raunveruleg- ur árangur næðist. Í frétt á baksíðu Morgunblaðsins laugardaginn 23. des- ember 2006 var vitnað til umsagnar eftir Jón Ólafsson, prófessor við Háskólann á Bifröst, um bók Guðna Th. Jó- hannessonar Óvini ríkisins. Í fréttinni sagði, að fulltrúar KGB og GRU (njósnastofnun sovéska hersins) hefðu frætt Jón um það í Moskvu á árunum 1993–1995 að engin „óeðli- leg“ starfsemi hefði verið stunduð á vegum þeirra á Ís- landi á kaldastríðsárunum – „og þá var átt við að ekki hefði verið um innlent njósnanet að ræða,“ segir Jón. Við fyrstu sýn mátti ætla, að með frétt- inni væri verið grínast. Nánari athugun sýndi, að blaðinu og Jóni var fúlasta alvara. Þá vöknuðu spurningar: Hvaða heimild- argildi hefur, að rússneskir leyniþjón- ustumenn fullyrði, að stofnanir þeirra hafi ekki stundað hér ,,óeðlilega“ starfsemi? Er unnt að taka þann fræðimann alvarlega, sem ætlast í fyrsta lagi til þess að hann fái upplýsingar frá slíkum aðilum um hugs- anlega ,,óeðlilega starfsemi“ og virðist síð- an taka gildan vitnisburð þeirra um, að hún hafi ekki farið hér fram? Sæmir það virðu- legu og lífsreyndu dagblað að birta slíkan vitnisburð sem baksíðufrétt? Hvaða kröfur eru gerðar til heimildarmanna við slíkt fréttamat? Umsögn Jóns Ólafssonar vakti ekki aðeins spurningar af þessu tagi. Hún sýndi einnig, hve nauðsynlegt er að halda því til haga, sem gerðist hér á landi um það leyti, sem íslensk stjórnvöld voru að móta stefnu sína í öryggis- málum og gera eigin ráðstafanir til að tryggja öryggi borgaranna. Eins og hér verður sýnt, er Jóni Ólafssyni ekki kappsmál að hafa það, sem sannara reynist í því efni. KGB að störfum Fyrir liggja óyggjandi heimildir um að austrænar leyni- þjónustur hafi gert allnokkrar tilraunir til að ráða Íslendinga í sína þjón- ustu, eins og fram kemur í nýlegri grein eftir Þór White- head, sagnfræðiprófessor við Háskóla Íslands, í tímaritinu Þjóðmálum. Tvö þessara mála voru upplýst, vegna þess að tilvonandi erindrekar skýrðu lögreglunni frá tilraunum leyniþjónustumanna til að ráða þá til starfa: Í fyrsta lagi hið alkunna mál Ragnars Gunnarssonar, en það leiddi til þess að viðkomandi sovéskum leyniþjónustumönnum var vísað úr landi. Í öðru lagi tilraun tékknesks sendiráðs- manns til að ráða mann í þjónustu sína, en Tékki þessi blandaðist einnig inn í mál Ragnars Gunnarssonar. Þá segja heimildir, að Stasi, austur-þýska öryggis- lögreglan, hafi gert ítrekaðar tilraunir til að ráða Íslend- inga í sína þjónustu. Íslendingur (fulltrúi Sósíalistaflokks- ins gagnvart austur-þýska bræðraflokknum) tók að sér þetta ráðningarstarf ásamt smærri verkefnum. Sá flokks- félagi hans, sem hann taldi upphaflega, að hefði gefið sér vilyrði um að ganga í þjónustu Stasi, synjaði því að lokum, m.a. með því að vísa til þess, að íslenska lögreglan hefði flett ofan af tilraun sovésku leyniþjónustunnar til að ráða mann í þjónustu sína. Það er ómótmælanleg staðreynd, að á kalda stríðs- árunum störfuðu tvær leyniþjónustur Sovétríkjanna, KGB og GRU, í skjóli Sovétsendiráðsins í Reykjavík og starfs- menn þeirra skiptu trúlega hundruðum frekar en tugum. Hvernig unnu þessir menn fyrir kaupi sínu öðru vísi en með því að sinna þeirri starfsemi sem slíkar stofnanir sinna alls staðar? Fyrir utan beina njósnastarfsemi af því tagi sem fram kom í upplýstum njósnamálum virðast KGB-menn m.a. hafa komið hingað fé til að kosta starf- semi Sósíalistaflokksins. Skyldi það falla undir ,,eðlilega starfsemi“ að þeirra mati og Jóns Ólafssonar? Jón og síldarflotinn Undir lok umsagnar Jóns Ólafssonar um Óvini ríkisins segir: „Í fyrsta hluta bókarinnar segir Guðni frá ótta Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra við mögulega innrás Sovétmanna sumarið 1950. Það var sovéskur síldarfloti fyrir norðan landið sem olli þessum ótta Bjarna, en menn grunaði að síldveiðar Rússa á þessum slóðum væru yf- irvarp. Raunverulegur tilgangur flotans, sem kom í fylgd fjögurra móðurskipa væri annaðhvort upplýsingasöfnun eða undirbúningur innrásar. Þótt breskir og bandarískir hernaðarsérfræðingar teldu innrás útilokaða með öllu starfaði ímyndunarafl íslenskra ráðamanna og embættis- manna og varð ekki friðað fyrr en Bandaríkjamenn féllust á að senda tundurspilla til að fylgjast með sovéska síld- arflotanum (115–116) … En sagan af síldarflotanum er líka ágætt dæmi um það hve illa íslenskir ráðamenn bjuggu að upplýsingum og greiningu á aðstæðum. Bjarni Benediktsson hafði engar forsendur til að meta hvort hætta væri á innrás Sov- étmanna 1950 og því kann hugmyndaflugið að hafa ráðið ferðinni. Íslendingar höfðu á þessum árum lítinn aðgang að upplýsingum frá leyniþjónustum erlendra ríkja og voru því í raun háðir því að geta treyst bandamönnum sínum fullkomlega, en það setur menn augljóslega í óþolandi þrönga stöðu. Það er hinsvegar grátbroslegt ef þessi skortur á „greiningardeild“ árið 1950 hefur aðallega orðið til þess að viðamikil upplýsingasöfnun hófst um ein- staklinga, frekar en að Íslendingar kæmu sér upp sér- fræðingum sem færir væru um að meta öryggishagsmuni og fjalla um öryggis-, varnar- og hernaðarmál.“ Grunnhyggni Tilgangur hinna tilvitnuðu orða er að gera lítið úr þekk- ingu íslenskra stjórnmálamanna á öryggis- og varnar- málum á þessum árum, auk þess sem smíð kenning um ástæður þess, að ríkisstjórn Í nauðsynlegt að gera ráðstafanir til að fylg sem hugsanlega myndu ógna öryggi ríkisi í Reykjavík hefur aldrei verið ætlað að leg aðarlega ytri ógn og ber það vott um lítið muninum á starfsemi hers og lögreglu að reglu yrði falið að vinna að hernaðarlegu m Afstaða Jóns til hernaðarlegra álitaefna grunnhyggni og raunar einnig hannessonar, þegar hann ræð öryggismálum við upphaf sjöt og segir meðal annars: „Í Bre ríkjunum drógu hernaðarsérf embættismenn stórlega í efa a væri í vændum. Þó var fallist ganga úr skugga um það hvor til í áhyggjum íslenskra valdh unaraflið, andrúmsloft kalda s minningar um innrásaraðferð Noregi og Danmörku hlupu m ur.“ Niðurstaða Guðna Th. og Jó við þau gögn, sem fyrir hendi tíma, eins og lýst er hér fyrir Þór Whitehead sagt frá því í greininni Le í tímaritinu Sögu 1991, og í bókinni The A from the Cold frá 1998, að á þessum árum aðarsérfræðingar, að hætta væri á skyndi m.a. úr kaupskipum, fiskiskipum eða flugv Í greininni í Sögu ræðir Þór um ástandi meðal annars: „Hvað var nú á seyði hér á landi? Íslens um og erlendum stjórnarerindrekum virti gætu hnigið að niðurstöðu, sem var eitthv Ráðstjórnin var í óða önn að kanna hér að aðar á landi, sjó og í lofti. Skylli á stríð, ky að ráðast á landið með því að beita sovésk og langdrægum flugvélum ellegar reiða si tveggja. Hörðustu sovétvinir Sósíalistaflo vera reiðubúnir til að opna árásarhernum einkum með því að taka á sitt vald flugvel og Reykjavík.“ Gögn frá þessum árum ákvarðana um a Atlantshafsbandalaginu (NATO) 1949 og v við Bandaríkin í maí 1951 sýna, að íslensk málamenn og embættismenn gerðu sér gl ólíku hlutverki hers og lögreglu. Þau sýna áttu þá víðtækari viðræður um öryggis- og lands við erlenda stjórnmálamenn og herf nokkru sinni fyrr og líklega síðar í sögu þj Í ritgerð sinni í Sögu 1991 segir Þór Wh ræðum íslenskra ráðherra í mars 1949 við ríkjahers og flota. Þór segir um afstöðu he „Ótvíræð var þó sú höfuðniðurstaða þeirra á því, að flugvellirnir í Reykjavík og Kefla skyndiárás, raid, í upphafi styrjaldar eða r fremja skemmdarverk á þeim. Frá herfræ armiði væri ákjósanlegast fyrir Rússa að b sig „fimmtu herdeild“ íslenskra kommúni iðleika við að flytja hingað her.“ Mat og orðrómur 1948 Í frásögn Bjarna Benediktssonar utanr 18. ágúst 1948 af fundi hans með Richard sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, segir „Mr. Butrick sagðist ekki geta sagt mik sem Ísland kynni að vera í. Það, sem hann ef til ófriðar kæmi yrði Bandaríkjaflugher heldur en rússneskur. Væri það þó mjög u ið vegna þess, að flugher Bandaríkjamann kyrrsettur vegna veðurs vestan við Atlant kæmu Rússar hingað. Ég varpaði fram þe hvort þetta væri líklegt, þegar á það væri væri, að ef svo ófriðvænlega væri í heimin gæti brotist út á hverri stundu, að Bandar þá ekki flugflota stadda á öllum viðkomus til Þýzkalands. Mr. Butrick kvað það kynn en um hættuna væri hann sem sagt ekki m dæma; sig skorti sérþekkingu á því. Um h aðarsérfræðingar að segja, ef mark ætti a manna væri sá, þótt það væri ekki örugg v hefðu flugvöll í Spitzbergen og eins hefðu (svo!) norðarlega í Finnlandi og a.m.k. gæ Finnland hvenær sem þeim litist. Þeir væ jafnlangt undan eins og við e.t.v. vildum v Í þessu sambandi drap ég á orðróminn, ar, um að rússneskur her kynni að vera um nesku síldarskipunum og sagði, að ég hefð Byrns frá þeim orðrómi, í fjarveru Butrick unum, til að fregna hjá honum, hvort nokk meginhætta væri í heimsmálum, að þetta legt, en Mr. Byrns hefði sagt, að svo væri láta mig vita, ef breyting yrði þar á. Mr. Butrick spurði þá, hvort Rússar væ kvaðst ég halda svo vera og sagði honum f eitt rússneska skipið var tekið í landhelgi reyndi þrisvar að kasta sér í sjóinn á leiðin yfirmanninum á skipinu, að hann og aðrir rússneska veiðiskips, hefðu allir verið, og rússneska flotanum, en sjálfur hefði hann síldveiðum komið. Þá sagði ég og skoðun í manna, að Rússarnir yfirleitt virtust lítið anna, enda hefðu þeir Íslendingar, sem þe borð, ekki verið sérfræðingar í síldveiðum annar þeirra. Mr. Butrick spurði þá nánar anna. Sagði ég, að stærsta skipið mundi v Eftir Björn Bjarnason Björn Bjarnason Jón og fimmta he

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.