Morgunblaðið - 06.01.2007, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 06.01.2007, Qupperneq 34
34 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN D ætur mínar fengu margar góðar gjafir á jólunum. Bækur og bíómyndir, föt og alls konar leikföng, sem of langt mál væri að telja upp hér. Fyrir jólin fórum við nokkrum sinnum í leikfangaverslanir, enda þurfti að kaupa ýmislegt fyrir frændur og frænkur. Þeim fannst margt freistandi, en annað alveg út í hött. Ég sýndi þeim til dæmis fót- boltaspil, þetta gamla góða, þar sem litlir plastkarlar á gormi keppa, með dyggri aðstoð stjórn- enda. Þær horfðu á mig eins og ég væri eitthvað undarleg. „Þetta er strákadót!“ sögðu þær einum rómi. Á aðfangadagskvöld kom Daníel frændi þeirra í heimsókn. Hann fékk fótboltaspil í jólagjöf og áður en við vissum af voru stelpurnar ljómandi af gleði og áhuga að leika með honum. Þegar þær voru loks skriðnar upp í rúm á jólanótt spurði ég þær hvort þeim hefði þótt gaman að spila fótboltaspilið. „Já, mjög gaman,“ sagði Elísabet. Það svar segir kannski ekki alla söguna, því líklega gæti hún skemmt sér stórkostlega við að horfa á átrúnaðargoðið Daníel leggja kapal. Margrét staðfesti hins vegar að fótboltaspil væri af- skaplega skemmtilegt. Og þá spurði ég, eins og í leikfangabúð- inni, hvort þær vildu kannski eign- ast svona. „Nei, eða jú kannski,“ svaraði Elísabet og hefur áreið- anlega séð fyrir sér að Daníel myndi þá alltaf leika við hana þeg- ar hann kæmi í heimsókn. Margrét spurði hins vegar á móti: „Er til svona spil með stelpum?“ Ég er búin að leita á Netinu, en finn engin fótboltaspil þar sem litlu plastkapparnir eru stelpur. Hetj- urnar á fótboltavellinum eru strák- ar og svoleiðis dót vilja stelpurnar mínar ekki, þótt það sé skemmti- legt. Þær hafa nefnilega af- skaplega fastmótaðar hugmyndir um hvað telst strákadót og hvað stelpudót. Í herberginu þeirra eru leikföng upp um alla veggi, en samt lýsti Margrét því yfir um daginn, að við yrðum að kaupa strákadót. Drengurinn sem hún elskar er nefnilega nýfluttur í hverfið og hún vill taka á móti hon- um með stæl. Útlitið ræður því helst hvað þær systur telja stráka- og stelpudót. Þær hristu báðar höfuðið yfir vit- leysunni í mömmunum þegar við sýndum þeim litlar smásjár. Þessi silfruðu og gráu vísindatæki voru sko alls ekki heillandi. En svo rakst Kata á bleikar smásjár og núna grúfa þær sig yfir þær og býsnast yfir munstrinu á flugu- væng og örlítilli tréflís. Það er ekk- ert strákalegt við það. Þær fengu líka bleik Barbie- labbrabb-tæki og þau eru alveg frábær. Ég er sannfærð um að blá labbrabb-tæki hefðu verið al- gjörlega gagnslaus að mati tveggja tæplega sex ára systra. Mikið vildi ég að framleiðendur leikfanga væru duglegri að taka við sér og áttuðu sig á að stundum er alveg nóg að skipta um lit til að sama vara höfði til stráka og stelpna. Þegar ég leitaði sérstaklega eftir stelpuleikföngum á Netinu kom alltaf svipaður listi upp: Tuskudýr, Disney-prinsessur af öllum gerð- um, Barbie- og Bratz-dúkkur, dúkkuhús, litlir bökunarofnar og ryksugur, perlur til að búa til skartgripi og ýmislegt annað fönd- urdót. Sambærilegur listi fyrir stráka inniheldur kappakstursbrautir, fjarstýrðar risaeðlur, sjóræn- ingjakastala, alls konar kubba og byggingarsett, bíla sem þeir geta sjálfir setið í, talstöðvar, fjar- stýrðar flugvélar, tölvuleiki og geimverubúninga. Skilaboðin eru auðvitað augljós. Þær eiga að sitja og dunda sér, þeir eiga að skella sér í hasarinn. Ég veit hins vegar, sem móðir tveggja tæplega sex ára stelpna, að þær vilja gjarnan leika sér með bíla og kappakstursbrautir, tal- stöðvar og smásjár, svo framarlega sem slíkt dót er „stelpulegt“, og þær geta unað sér tímunum saman við að byggja úr seguldótinu, enda margir bleikir pinnar þar innan um. Fyrir jólin vildi Elísabet ólm eignast „svona flugvél sem getur keyrt og það er hægt að opna hana og setja fólk inn í hana og það eru ljós“, en þær flugvélar sem við sáum í leikfangabúðum voru allar „strákalegar“. Og Margrét vildi fjarstýrðan bíl, en þar var hið sama upp á teningnum, við fundum eng- an sem var nógu „stelpulegur“. Mér finnst fjári hart hvað það er erfitt að verða við óskum dætra minna, sem vilja ekki bara sitja og dunda sér við tuskudýr og dúkkur, eða leika með eftirlíkingar af heim- ilistækjum. Það eina sem þær fara fram á er að dótið þeirra líti „stelpulega“ út, en þær vilja svo gjarnan leika með allt það dót, sem annars telst víst hefðbundið strákadót. Þegar ég var lítil langaði mig í riffil eins og Kristján bróðir fékk, en þá hefði líklega aldrei hvarflað að nokkrum manni að gefa stelpu slíkan grip og núna fá auðvitað engin börn vopn. Samstarfskona mín ein fékk forláta leikfang- aryksugu á meðan bróðir hennar hljóp um allt hverfið með háværa vélbyssu. Hún hefur ekki enn fyr- irgefið þá mismunun. Og önnur samstarfskona mín er enn dálítið sár af því að hún fékk ekki Mekk- ano til að byggja úr. Bara af því að hún var stelpa og gerði hún þó eng- ar kröfur um að það væri bleikt. Stelpur áttu einfaldlega ekki að leika sér með byggingarsett. Það er löngu liðin tíð að fólki þyki sjálfsagt að hann fái bók, en hún nál og tvinna, eins og sungið er um í jólalaginu. En ef þau vilja bæði fjarstýrðan bíl, ætti auðvitað að vera sjálfsagt að þau geti valið þann sem þeim finnst fallegastur. Annar verður þá kannski fag- urblár, en hinn bleikur með glimm- erskrauti. Bleiku jóla- gjafirnar » Skilaboðin eru auðvitað augljós. Þær eiga aðsitja og dunda sér, þeir eiga að skella sér í hasarinn. Ég veit hins vegar, sem móðir tveggja tæplega sex ára stelpna, að þær vilja gjarnan leika sér með bíla og kappakstursbrautir, tal- stöðvar og smásjár, svo framarlega sem slíkt dót er „stelpulegt“. rsv@mbl.is Ragnhildur Sverrisdóttir FÖSTUDAGINN 29. desember ritar Ólafur Oddsson, starfsmaður skógræktar ríkisins grein í Morg- unblaðinu sem ber heitið „Fjár- hagsvandi Skógræktar ríkisins – nóg komið, ráðamenn!“ Í greininni telur Ólafur að Skógrækt ríkisins hafi farið varhluta af fjárveitingum undanfarin ár og lætur að því liggja að ástæðan sé m.a. tilkoma landshlutabundnu skógræktarverk- efnanna. Vissulega er það rétt að sé litið til framlaga til skógrækt- arverkefnanna, hafa framlög til Skógræktar ríkisins ekki hækkað í sama hlutfalli, enda ólíku saman að jafna. Og það er einnig rétt hjá Ólafi, og það vil ég undirstrika, að vægi Skógræktar ríkisins hefur breyst, en þar með er ekki sagt að vægi hennar hafi minnkað. Ég sé ástæðu til að þakka Ólafi greinina sem gefur tilefni til að rifja upp og halda til haga þeirri ákvörðun núverandi ríkisstjórn- arflokka að hefja markvissa og skipulagða skógrækt á Íslandi og helstu breytingum sem sú ákvörð- un fól í sér. Segja má að þetta ferli hafi hafist með nytjaskógrækt á bújörðum sem Skógrækt ríkisins styrkti og svo tilkomu Héraðsskóga árið 1991, en ég fullyrði að sam- þykkt ríkisstjórnarinnar hinn 18. desember 1996 um að verja 450 mkr. til átaks í landgræðslu og skógrækt næstu fjögur árin, mark- aði tímamót í sögu skógræktar á Íslandi. Árið 1997 voru Suðurlands- skógar stofnaðir og á grundvelli laga um landshlutabundin skóg- ræktarverkefni sem samþykkt voru 1999 voru Norðurlandsskógar, Vesturlandsskógar, Skjólskógar á Vestfjörðum og Austurlandsskógar settir á fót. Öll þessi verkefni hafa síðan vaxið og dafnað og teljast veigamikill þáttur í atvinnu- og bú- setumálum um allt land. Þótt að- almarkmið verkefnanna sé að rækta skóg hafa þau einnig önnur markmið, s.s. eflingu byggða og at- vinnulífs, auðlindasköpun og bind- ingu kolefnis þá hafa í kjölfar verk- efnanna opnast nýir möguleikar á störfum á landsbyggðinni fyrir há- skólamenntað fólk sem vissulega var og er þörf á. Ætlunin er að rækta skóg á 5% af láglendi landsins á 40 ára tímabili. Þessi áætlun byggist ekki hvað síst á farsælu 100 ára starfi Skóg- ræktar ríkisins, sem hefur með rann- sóknum, tilraunum og gróðursetningum sannað að á Íslandi er hægt að rækta skóga. Með tilkomu verkefnanna og þessu mikla skógræktarátaki breyttist óhjákvæmilega ýmislegt hjá Skóg- rækt ríkisins og má tiltaka einkum tvennt; dregið var úr gróðursetn- ingu í lönd í eigu eða umsjá Skóg- ræktar ríkisins og vegna sam- keppnissjónarmiða var Skógrækt ríkisins gert að hætta framleiðslu og sölu skógarplantna á almennan markað. Þetta þýddi samdrátt í umsvifum Skógræktarinnar hvað þessa þætti varðaði og tilheyrandi fækkun starfsmanna. Skógræktin hefur aftur á móti enn sem fyrr viðamiklu hlutverki að gegna og má þar ekki hvað síst benda á umsjón og uppbyggingu þjóðskóganna sem sífellt fleiri heimsækja og njóta ár hvert, ásamt fjölþættum rann- sóknum á sviði skógræktar sem er og verður undirstaða skógræktar í landinu. Engar áætlanir eru um annað en að Skógrækt ríkisins sinni áfram þessum þáttum ásamt öðrum þeim verkefnum sem henni eru falin. Skógrækt ríkisins hefur eflaust ekki, fremur en margar aðrar rík- isstofnanir úr of miklum fjár- munum að spila, en tillögur ráðu- neytisins hafa gert ráð fyrir árlegri aukningu til stofnunarinnar innan þess fjárlagaramma sem ráðuneyt- inu er settur. Það er hins vegar staðreynd að aldrei hefur verið var- ið meira fjármagni til skógræktar á Íslandi en nú og hafa þær fjárveit- ingar aukist jafnt og þétt ár frá ári eins og meðfylgjandi skýring- armynd ber með sér og segir trú- lega meira en mörg orð. Í upphafi ráðherraferils míns fullyrti ég á opinberum vettvangi að skógrækt væri landbúnaður og var eftir þeim orðum tekið. Ég er enn þeirrar skoðunar, og nú er þetta orðin viðurkennd staðreynd. Ráðuneytið hefur sinnt málefnum skógræktar af kostgæfni og lagt áherslu á að fá fjármagn í mála- flokkinn, m.a. með þingsályktun þess efnis sem hefur verið viðmið í fjárlagagerð þess. Undir lok greinar sinnar víkur Ólafur svofelldum orðum ráða- manna. „Ef til vill finnst ykkur eins og svo mörgum að það sé í lagi að svelta ríkisstofnun, það sé hvort sem er ekkert gert af viti þar og hana ætti að einkavæða.“ Ég svara fyrir mitt leyti; hef hvorki heyrt né séð slíka orðræðu fyrr og víðsfjarri að hún geti samræmst mínum skoðunum. Ég vil svo nota tækifærið til að óska öllu skógræktarfólki velfarn- aðar í störfum sínum og Skógrækt ríkisins og starfsfólki stofnunar- innar flyt ég þakkir og heillaóskir í tilefni 100 ára glæsilegs starfsfer- ils. Öflugur stuðningur við íslenska skógrækt Guðni Ágústsson svarar grein Ólafs Oddssonar »… vægi Skógræktarríkisins hefur breyst, en þar með er ekki sagt að vægi henn- ar hafi minnkað. Guðni Ágústsson Höfundur er landbúnaðarráðherra. Framlög til skógræktar á verðlagi hvers árs 0 100 200 300 400 500 600 700 800 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 milljónir Verkefni Skógrækt ÉG LAS viðtal við Valdimar Kristinsson í Morgunblaðinu frá 10. desember sl. þar sem sagt er frá einkar athygli- verðum hugmyndum hans um byggða- kjarna og þróun byggðar á Íslandi. Það er greinilegt að þar var afar fram- sýnn maður en hann setti þessar hug- myndir fram á sjö- unda áratug síðustu aldar. Í framhaldi af lestri greinarinnar skrifaði ég nokkrar hugleiðingar á blað og ef til vill eru fleiri að hugsa á svipuðum nótum. Það var ánægjulegt að sjá þegar bæjarstjórar Egilsstaða og Fjarðabyggðar hittust í kaffi á miðjum Fagradal sem merki um að þessi bæjarfélög ættu að vinna meira saman. Það yrði einnig ánægjulegt ef fulltrúar Fjarða- byggðar, Egilsstaða, Eyjafjarðar, Skagafjarðar og Þingeyinga hitt- ust í Mývatnssveit og mörkuðu framtíðarsýn og samvinnu þessara bæjarfélaga til lengri tíma. Það er ótalmargt sem er sameiginlegt þessum bæjarfélögum sem þau verða að leysa á hagkvæman hátt og má þar til dæmis nefna heil- brigðismál, mennta- mál, kynningarmál, samgöngumál, um- hverfisstefnu og al- menningssamgöngur. Bakland þessara sveitarfélaga er að styrkjast en nú þarf að marka betur framtíðarsýn bæj- arfélaganna svo að fjármagn nýt- ist betur í þeim málaflokkum sem áður hafa verið nefndir Látum ekki allt gerast í Reykja- vík, segjum frá framtíðarsýn okk- ar hér á norðausturhorni landsins sem má afmarka frá Skagafirði austur á Djúpavog. Þetta er efna- hagslega sterkt svæði, öflugur sjávarútvegur, sterkur landbún- aður, orkuiðnaður, ferða- mannaþjónusta og þar af leiðandi eina svæðið sem gæti keppt við suðvesturhornið að einhverju ráði. Látum ekki þrönga sérhags- muni skemma sýn okkar á mögu- leika þessara svæða, stöndum með þeim einstaklingum sem mundu bjóða í kaffi í Mývatnssveit eins og gert var á Fagradal. Látum ekki allt gerast í Reykjavík Örn Ingvarsson fjallar um þróun byggðar á Íslandi » Látum ekki allt ger-ast í Reykjavík, segjum frá framtíð- arsýn okkar hér á norð- austurhorni landsins sem má afmarka frá Skagafirði austur á Djúpavog. Örn Ingvarsson Höfundur er rafmagnsiðnfræðingur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.